Fréttablaðið - 27.01.2009, Síða 23
ÞRIÐJUDAGUR 27. janúar 2009 19
Jón Atli Jónasson leikskáld og Ingvar Þórðar-
son hafa á liðnum mánuðum verið í samstarfi um
sviðsverk sem þeir kalla Djúpið. Einleikurinn er
á verkefnaskrá Leikfélags Reykjavíkur í Borg-
arleikhúsi sem einn einleikja sem þar eru á dag-
skrá á þessum vetri. Hann lýsir hvað gerist þegar
skipstapi verður og menn lenda í sjó.
Undirbúningi verksins hefur verið skotið inn
milli verkefna sem á þeim báðum hvíla: Jón Atli
hefur nýlokið vinnu við sviðsetningu á Sumarljósi
í Þjóðleikhúsinu þar sem hann var aðstoðarleik-
stjóri, en Ingvar hefur verið á fullu við æfingar
á Rústað eftir Söru Kane sem frumsýnt verður á
nýja sviði Borgarleikhússins næstkomandi föstu-
dag.
Ingvar verður að því loknu bundinn við leik-
sýningar á vegum Vesturports í Eyjaálfu. Á
meðan mun Jón Atli vinna með þeim Halli Ing-
ólfssyni og Jóni Páli Eyjólfssyni að sýningu í
Borgarleikhúsi sem fjallar um hrunið.
Í viðtali við Fréttablaðið sagði Jón Atli fátt
um verkefnið: „Hvað gerist þegar maður dett-
ur í sjó?“ Einleikurinn mun sprottinn úr Brimi
sem Jón Atli samdi fyrir Vesturport sem nú
hefur verið kvikmyndað. Einleikurinn sækir að
einhverju leyti efni sitt í hrakningasögur sjó-
manna sem hafa lent í sjávarháska og komist til
lands. Er þá skemmst að minnast atburðar fyrir
mörgum árum við Vestmannaeyjar þar sem
maður synti langan leið til lands.
Einleikurinn virðist vekja áhuga:
skoski leikstjórinn Graham Mall-
ey ætlar að setja einleikinn á svið
í Skotlandi, bæði í Glasgow og
Edinborg í apríl, en Graham hefur
áður unnið við sviðsetningar hér á
landi þegar hann setti upp Black-
bird sem kallaður var Svartfugl í
íslenskri þýðingu í Hafnarfjarðar-
leikhúsinu. - pbb
Skipreika maður nær landi
LEIKLIST Jón Atli Jónasson leik-
skáld er með hugann við sjósókn.
LEIKLIST Ingvar
Sigurðsson er önnum
kafinn um heim allan.
Á laugardagskvöld var hundrað-
asta sýning á einleik Brynhildar
Guðjónsdóttur um írsku amb-
áttina Brák í Landnámssetrinu í
Borgarnesi en rúmt ár er síðan
Brynhildur frumsýndi einleikinn
þar 5. janúar 2008 og sló strax
rækilega í gegn. Brynhildur
hefur hlotið fjölda viðurkenninga
og verðlauna fyrir sýninguna:
Grímuna sem besti höfundur
leikársins 2007-8 og besti leikari
í aðalhlutverki auk þess sem sýn-
ingin var tilnefnd sem besta leik-
sýning ársins 2008. Nýlega hlaut
Brynhildur viðurkenningu úr
Stefaníusjóðnum og Bjartsýnis-
verðlaunin sem áður voru kennd
við Bröste árið 2008.
Brynhildi hefur verið verið
boðið að sýna Brák á Íslands-
bryggju í Kaupmannahöfn og fer
hún utan í byrjun febrúar og þar
verða tvær sýningar en aðeins
örfáar sýningar eru fyrirhugað-
ar í Borgarnesi í febrúar og eru
óðum að fyllast. Gert verður hlé
á sýningum á Brák í mars, apríl
og maí þar sem Brynhildur vinn-
ur að nýju verki sem hún hefur
skrifað um listakonuna Fridu
Kahlo og frumsýnt verður í Þjóð-
leikhúsinu í apríl. Sýningar á
Brák hefjast svo að nýju í júní.
Samhliða sýningum á Brák
heldur áfram einleikur Bene-
dikts Erlingssonar á Mr. Skalla-
grímsson í Landnámssetri en
ekkert lát er á aðsókn á þann
rómaða einleik.
Benedikt greindi nýlega frá
því að hann væri með sjónvarps-
þáttaröð í undirbúningi sem
helguð er Sturlungu en hann
mun sýna Skallagrímsson áfram
meðan aðsókn heimtar. Ein-
leikir þeirra Brynhildar í Borg-
arnesi munu því keppa í sumar
við fyrirhugaðar sumarsýning-
ar í Reykjavík: Sound of Music
og Við borgum ekki í Borgarleik-
húsinu og Grease í Loftkastalan-
um.
- pbb
Brák fer
brátt í frí
BRYNHILDUR SEM BRÁK.
Kvikmyndin Sveitabrúðkaup, í
leikstjórn Valdísar Óskarsdóttur,
tekur þátt í keppni í flokki nor-
rænna mynda á alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í Gautaborg sem
fer fram dagana 23. janúar til 2.
febrúar. Sveitabrúðkaup er frum-
raun Valdísar sem leikstjóri, en
hún hefur áður getið sér gott orð
sem klippari. Hún vann meðal
annars til BAFTA-verðlauna
árið 2004 fyrir klippingu sína
á kvikmyndinni The Eternal
Sun shine of the Spotless Mind.
Fleiri íslenskar myndir taka
þátt í hátíðinni í Gautaborg í ár.
Kjötborg, heimildarmynd eftir
þær Helgu Rakel Rafnsdóttur og
Huldu Rós Guðnadóttur, tekur
þátt í keppni í flokki sem nefnist
Norðurljós, en auk hennar taka
þátt í hátíðinni stuttmyndirnar
Bræðrabylta eftir Grím Hákon-
arson og Smáfuglar eftir Rúnar
Rúnarsson.
Kvikmyndin Stóra planið tekur
þátt í keppni í Spectrum-flokki
á alþjóðlegu kvikmyndahátíð-
inni í Rotterdam sem fer fram
dagana 21. janúar til 1. febrúar.
Í Spectrum-flokki keppa mynd-
ir frá öllum heimshornum sem
þykja frumlegar og áhrifarík-
ar. Leikstjóri Stóra plansins er
Ólafur de Fleur Jóhannesson.
- pbb
Kvikmyndir
á hátíðum
Búum við á besta stað
blessa skyldum kúna
Íslendingar eiga það
sem aðra vantar núna
Öllum standa opnar dyr
andans kraft skal virkja
þá er best að borða skyr
búkinn til að styrkja
H
ÍV
T
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA