Tíminn - 14.12.1982, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1982
s
fréttir
Haraldur Guðnasou
Saga Vestmannaeyjabæjar
Í60ár
i
Iðnaðarráðherra um afstöðu framsóknarmanna f álmálinu:
„RÖKRÉTT FRAMHALD AD
BERA FRAM VANTRAUSF
■ „Ég tel raunar að rökrétt framhald á málabúnaði
Guðmundar G. Þórarinssonar og hans nánustu sam-
herja, sem hann virðist hafa haft í vitorði, sé að bera
fram vantraust á mig sem ráðherra,“ sagði Hjörleifur
Guttormsson iðnaðarráðherra í viðtali við Tírnann í
Alþingishúsinu í gær, þegar hann var spurður um stöðu
mála í álviðræðum.
„Ég ítrekaði í svarskeyti mínu til
Alusuisse sáttatillögu mína frá 7. des-
ember sl.,“ sagði Hjörleifur, þegar hann
var spurður hverju hann hefði svarað
skeyti Alusuisse frá sl. föstudegi, þar
sem m.a. var fallist á frestun á kröfu
Alusuisse um Iækkun á kaupskyldu &
■ „í þessu skeyti frá Alusuisse eru
nokkrir þættir, sem benda tii þess að
það sé ekki ólíklegt, ef mín tillaga
hefði verið borin fram, að hún hefði
getað opnað samningaviðræður,“
sagði Guðmundur G. Þórarinsson,
þegar blaðamaður Tímans ræddi við
hann um álit hans á skeyti því sem
iðnaðarráðuneytinu barst frá Alu-
suisse sl. föstudag.
„Það er að sjálfsögðu talsverður
munur á þessu skeyti Alusuisse og
mínum tillögum, því mínar tillögur
voru án nokkurra skuldbindinga fyrir
íslendinga," sagði Guðmundur, „en
mér sýnist, ef vel er á málum haldið,
þá geti á grundvelli þessara hugmynda,
opnast viðræðugrundvöllur.“
Guðmundur var jafnframt spurður
hverjar hann teldi ástæðurnar vera
fyrir ósk Alusuisse að mega selja 50%
hlut í ÍSAL nú: „Það er tiltölulega
einfalt mál. - Staðan í áliðnaðinum er
mjög erfið; ÍSAL skuldar mjög mikið
og Alusuisse vill fá inn sterkan aðila,
en sterkur aðili vildi sjálfsagt aldrei
koma inn í fyrirtækið upp á þau býti
að vera minnihlutaaðili. Stór aðili sem
kæmi inn í fyrirtækið, myndi eflaust
vilja vera jafnrétthár og sá aðili sem
orku. „Itrekun mín var eiginlega
þríþætt," sagði Hjörleifur: „í fyrsta lagi
að á þann grundvöll væri fallist að gömlu
málin yrðu sett í gerð, með nokkrum
breytingum þó; t öðru lagi að þeir féllust
á það viðhorf okkar að nauðsynlegt væri
að leiðrétta raforkuverðið og féllust á
fyrir er, enda er þróunin slík erlendis
nú, að menn í stærri hlutafélögum,
fara meira og meira inn á þá braut að
eiga 50% á móti 50%, en ekki 51% á
móti 49%. Það virðist sem iðnaðarráð-
herra sé á móti því að þessu verði
■ „Það eru niargir sem eru farnir að
velta fyrir sér framtíð fyrirtækisins
ÍSAL og hafa verulegar áhyggjur af
þeirri neikvæðu umræðu sem farið
hefur fram um fyrirtækið undanfarin
tvö ár,“ sagði Jóhann Einvarðsson,
þingmaður Reykjaneskjördæmis, er
blaðamaður Tímans ræddi við hann
um horfurnar í álmálum.
„Mér finnst að það sé mál sem þarf
að skoða mjög vel,“ sagði Jóhann,
hvort ráðherra og jafnvel fleiri eru
áfangahækkun strax; Og í þriðja lagi að
öll þau atriði sem varða framtíðarsam-
skipti þyrfti að ræða í samningavið-
ræðum. Ég bíð nú svars og viðbragða
Alusuisse við þessu skeyti mínu.“
Hjörleifur var spurður hvað hann
teldi felast í því að Alusuisse vildi nú fá
leyfi íslenskra stjórnvalda til þess að
mega selja 50% hlut í ISAL: „Ástæða
þess er sú, að ef þeir fá að selja helming
hlutabréfanna, þá hverfur öll skuldasúp-
an sem á ÍSAL hvílir, út úr heildarupp-
gjöri samsteypunnar og hún er hreint
ekki svo lítil. Það er það sem virðist vera
Alusuisse-mönnum kappsmál, til þess
að rétta hag sinn gagnvart bönkum og
viðskiptaaðilum sínum. Við munum að
sjálfsögðu kanna þessa kröfu þeirra
breytt að ósk Alusuisse, sem er raunar
illskiljanlegt, því að fyrir einu ári eða
svo, gerði hann eiginlega kröfu um það
sjálfur að nýr hluthafi yrði fenginn að
fyrirtækinu. Auk þess myndi maður
nú ætla að tveir eignaraðilar veittu
ekki með þessari neikvæðu umræðu,
sérstaklega að valda því, að menn fara
að efast um hag þess að vinna hjá
svona stóru fyrirtæki, sem hingað til
hefur verið mjög áhugaverður vinnu-
staður vegna samstöðu starfsmanna úr
'hinum ólíku hagsmunahópum innan
fyrirtækisins.“
Jóhann var spurður hvort hann
hefði orðið var við áhyggjur þess efnis
að ef gripið yrði til einhliða aðgerða af
hálfu íslenskra stjórnvalda, þá yrði
gaumgæfilega og reyna að átta okkur á
hvaða stöðu slíkt myndi gefa okkur í
málinu."
Hjörleifur var að því spurður hvort
hann teldi að svo gæti farið, að Alusuisse
myndi fegins hugar loka álverinu í
Straumsvík, ef íslensk stjórnvöldu gripu
til einhliða aðgerða: „Ég hef enga trú á
því. Ég held að þessi álbræðsla sé svo
arðgæf, og hafi verið á undanförnum
árum að ráðamenn fyrirtækisins hugsi
síður en svo til lokunar. Ef við lítum á
þær 13 álbræðslur sem Alusuisse á
hlutdeild í, þá er meðalverð til þeirra
um 20 mills. Það lýsir hinsvegar ákveðn-
um þrengingum fyrirtækisins núna að
það vilji selja hlut í fyrirtækinu.“
-AB
hvor öðrum frekar aðhald, en þegar
einn eigandi er. Hjörleifur virðist
hinsvegar eingöngu vilja eiga við þá
menn núna, sem hann hefur áður lýst
yfir að séu þrjótar."
-AB
Alusuisse ánægt með þá ákvörðun, og
væri þar með búið að fá afsökun til
þess að loka fyrirtækinu, enda væri á
því bullandi taprekstur: „Óneitanlega
velta menn því fyrir sér að ef ekki næst
neitt samkomulag á milli íslenskra
stjórnvalda og Alusuisse, þá hljóti
Alusuissemenn að hugsa sem svo að
það sé eins gott að loka þessu fyrirtæki
og beina kröftum sínum að öðru
fyrirtæki, þar sem ekki er allt logandi
í deilum." -AB
Saga Vest-
mannaeyja-
bæjar
komin út
■ Á 60 ára afmæli Vestmannaeyja-
kaupstaðar fyrir þrem árum var ákveð-
ið, að láta taka saman sögu kaupstað-
arins og var Haraldur Guðnason
skjalavörður, fenginn til verksins. Nú
er komið út fyrra bindi þess, „Við
Ægisdyr, saga Vestmannaeyjakaup-
staðar í 60 ár. “ Þar er fjallað um
aðdragenda þess að Vestmannaeyja
sýsla varð kaupstaður, rakinn annáll
helstu atburða í 60 ára sögu bæjarins
og gerð rækileg grein fyrir heilbrigðis-
þjónustu f eyjunum og rakin bygging-
arsaga sjúkrahúsanna þar. Hefur Örn
Bjarnason fyrrum héraðslæknir í Vest-
mannaeyjum og núverandi forstjóri
Hollustuverndar ríkisins lagt hönd á
plóg við gerð þess kafla.
f næsta bindi verður greint frá
hafnargerð, samgöngum, bæjarútgerð,
hitaveitu og fleiru.
Við Ægisdyr, er 340 bls. og prýða
bókina margar myndir frá því tímabili
sem um er fjallað. Vestmannaeyjabær
sér um útgáfuna en dreifandi er
bókaútgáfan Setberg.
Finnsk vika f
Reykjavík á
næsta ári
■ Sendiráð Finnlands og samtök
útflytjenda í Finnlandi munu halda
„Finnska viku“ í Reykjavík í lok apríl
1983. Á sama tíma munu verzlanir í
miðbænum í Reykjavík hafa venju
fremur mikið af finnskum vörum á
boðstólum, t.d.: klæðnaðurfyrirkonur
og karla, skór, vefnaðarvörur, gler-
vörur, íþróttavörur, útbúnað til ferða-
laga og matvörur.
Ennfremur verður kynning á ofan-
greindum vörum á Hótel Loftleiðum
27. til 29. apríl n.k.
Sýningin verður opin innflytjendum
og almenningi. Þá verður og tískusýn-
ing í sambandi við vörusýninguna.
Þá er fyrirhugað að þessa viku muni
margar veitingastofur í Reykjavík
hafa finnska rétti á boðstólum.
Þessa daga mun starfsemi Norræna
hússir.s verða fyrst og fremst helguð
Finnlandi.
,TILLAGA MÍN HEFÐI GET-
AÐ OPNAÐ VIÐRÆÐURNAR’
— segir Gudmundur G. Þórarinsson, alþingismaður,
um tilboð Alusuisse til iðnaðarráðherra
Starfsmenn álversins í Straumsvík:
,Hafa áhyggjur af nei-
kvæðri umræðu um ÍSAL’
— segir Jóhann Einvarðsson, alþingismaður
ROKK GEGN VIMU
í HÁSKÓLABÍÓ 17. DES. 09 2!
Þ«ir sem taka þátt í hljómleikunum eru:
Bubbi Morthens og EGO
Kimiwasa-bardagalist:
Haukur og Hörður.
Kynnir:
Þorgeir Ástvaldsson.
Trommur:
Sigurður Karlsson
Gunnlaugur Briem -
Mezzoforte.
Bassi:
Jakob Garðarsson -
Tíbrá.
Gítar:
Tr.yggvi Hiibner
Friðryk,
Björn Thoroddsen
H.B.G.
Eðvarð Lárusson - Start.
Hljómborð:
Hjörtur Hauser - H.B.G.
Eyþór Gunnarsson
- Mezzoforte
Eðvarð Lárusson - Start.
Blásarar:
Sigurður Long, Einar Bragi,
Rúnar Gunnarsson,
Ari Haraldsson, Ágúst
Elíasson,
Þorleikur Jóhannesson,
Konráð Konráðsson.
Söngvarar:
Pálmi Gunnarsson, Ellen Kristjánsdótt-
ir, Sigurður K. Sigurðsson, Sverrir
Guðjónsson, Björk Guðmundsd.
Kór:
Magnús Þór Sigmundsson, Jóhann
Helgason, Birgir Hrafnsson, Sverrir
Guðjónsson, Björk Guðmundsdóttir.
Allur ágóði rennur til byggingar sjúkrastöðvar SÁA
Miðar fást í öllum hljómplötuverslunum
Kamabæjar. Miöaverö 150.-
STYRKTARFELAG SOGNS