Tíminn - 24.12.1982, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1982
5
fréttir
erlent yfirlit
■ Magnúsarnir Þórarinsson og Þorláksson sóttu fótanuddtækin í Radiobóóina í
gær. Báðir hafa þeir verið áskrifendur TTmans í yfir 30 ár. Tímamynd Ella
Dregið í jólagetraun
■ Dregið var um tólf Clairol nuddtæki
í jólagetrun Tímans og Radíóbúðarinnar
í fyrradag. Tækin voru send vinnings-
höfum í bögglapósti síðdegis í gær. Þeir
heppnu reyndust vera: Grímur
Grímsson, Miðdalsgröf í Strandasýslu,
Páll H. Jonsson. Áshlíð 3 á Akureyri.
Ása Jóhannsdóttir, Sunnuvcgi 8 á
Skagaströnd, Ævar Þorsteinsson, Enni
Engihlíðarhreppi Aust-Hún., Sigurgeir
Hólmgeirsson, Völlum Reykjadal Suður
Þing., Helgi Bergþórsson, Eystra Súlu-
nesi Melasveit. Guðmundur Bjarnason.
Brennistöðum í Borgarhreppi Mýrar-
sýslu, Örn Þórarinsson, Ökrum Fljótum
Skagafjarðarsýslu, Kristjána Jakobs-
dóttir, Smáratúni 5 í Keflavík, Björn
Mikaelsson, Furulundi 5c Akureyri.
Magnús Þórarinsson, Lcifsgötu 25 í
Reykjavík, og Magnús Þorláksson,
Flókagötu 62 í Reykjavík, hafa þcgar
sótt vinninga sína í Radiobúðina.
Studmenn og Æskulýdsrád
með Jólaknall í Höllinni
■ Æskulýðsráð Reykjavíkur og hljóm-
sveitin Stuðmenn hafa tekið höndum
saman og hafa ákveðið að blása til mikils
jóiaknalls í Laugardalshöll á annan í
jólum. Gífurleg vinna hefur farið í
undirbúning fyrir þessa hátíð og m.a.
hafa u.þ.b. 250 unglingar úr félagsmið-
stöðvunum fimm unnið að ýmiss konar
undirbúningsvinnu.
Þessir unglingar hafa haft unisjón
með skreytingum, en auk þess munu þau
koma fram með ýmisskonar skemmtiat-
riði. Hópar úr tveimur félagsmíðstöðv-
urn, Þróttheimum og Tónabæ eru til að
mynda að vinna að risavöxnum jóla-
sveini sem á að gnæfa yfir hausamótum
gestanna. Hann verður engin smásmíði;
áætlað er að hapn verð um tuttugu
metrar á hæð.
Fjölskylduhátíð
U nglingaskemmtun
Dagskráin verður tvískipt: annars vegar
fjölskylduhátíð um daginn og hins vegar
ungligaskemmtun um kvöldið.
Á fjölskylduhátíðinni munu Stuðmenn
koma fram þrisvar sinnum: kl. 14.30-15;
15.45-16.30; og 17.15.-18.00. í hléunum
milli þess sem Stuðmcnn troða upp -
nánar tiltekið milli 15.15. og 15.45 og
milli 16.30 og 17.15 - verða skemmtiat-
riði af ýmsu tagi og er þessi háttur hafður
á til þess að enginn þurfi að neita góðri
ömniu eða frænku um þátttöku í
fjölskyldujólaboðunum.
Klúbbar félagsmiðstöðvanna hafa tek-
ið að sér allan undirbúning fyrir jóla-
knallið; unglingarnir nrunu annast miða-
söíu, gæslu og veitingasölu og aukinhcld-
ur verða þeir með sitthvað á sínum
snærum, svo scm skemmtiatriði og sölu
á eigin hlutum: höttum. kakói, pipar-
kökum og fleiru.
Af skemmtiatriðum má nefna að
ókennilegur gaur. Lcppalúðinn, mun
svífa um Höllina loftleiðis og dreifa
sælgæti, söngkonurnar Ragnhildur
Gísladóttir og Katla María koma fram,
drengjakór úr Keflavík lætur í sér heyra,
dýrin í T yról sýna sig svo og jólasveinn,
púkar og álfar; ennfremur vcrðurTívolí
á staðnum, cftirhermur úr Árscli koma
fram og unglingar úr Fcllahclli sýna
dans.
Verð aðgöngumiða: 75 krónur á
fjölskylduhátíðina og 100 krónur á
unglingaskemmtunina.
■ Gnglingar úr félagsmiðstöðvunum fimm hafa lagt mikla vinnu í undirbúning
Jólaknalisins, en hér á þessari mynd sést hvar verið er að vinna að gerð risajóla-
sveinsins seni rísa niun í Ilollínm.
■ Helmut Schmidt og Klaus von Dohnanyi borgarstjori i Hamborg fagna kosningasigrinum.
Úrslitin í Hamborg
eru áfall fyrir Kohl
Staða stjórnarflokkanna hefur versnað
ÚRSLIT borgarstjórnarkosninganna í
Hamborg á sunnudaginn var komu
talsvert á óvart. Sigur sósíaldemókrata
varð meiri en búizt var við. Þessi
niðurstaða er talin alvarleg áminning til
nýju ríkisstjórnarinnar í Bonn. Það cr
engan veginn tryggt lengur, að hún haldi
velli í þingkosningunum, scnt eiga að
fara fram 6. marz næstkomandi.
Kosningarnar í Hamborg fóru fram
vegna þess, að ekki hafði tekizt að
mynda starfhæfan meirihluta eftir borg-
arstjórnarkosningarnar á síðastliðnu
vori, þá urðu úrslitin þau, að Græni
flokkurinn fékk oddastöðu í borgar-
stjórninni og Kristilegi flokkurinn varð
stærri en flokkur sósíaldemókrata í
fyrsta sinn. Sösíaldemókratar reyndu
cftir kosningarnar að mynda stjórn með
græningjum, en það mistókst. Þess
vegna var efnt til kosninga að nýju.
Kristilegi flokkurinn reyndi að nota
sér þetta ósamkonmulag með því að
halda því fram. að eina leiðin til að
tryggja starfhæfa stjörn væri að efla
hann. Með sigri Itans yrði tryggð ný og
betri stjórn borgarinnar.
Svar kjósenda varð á aðra leið,
Sósíaldemókratar fengu hreinan meiri-
hluta í borgarstjórninni eða 51.3%
greiddra atkvæða. Þeir stóðu sig því
svipað og í borgarstjórnarkosningunum
1978. þegar þeir fengu 51.5%. Síðastlið-
ið vor fcngu þcir ckki nema 42.7%
greiddra atkvæða.
Kristilegi llokkurinn fékk nú 38.6%
greiddra atkvæða, en fékk 43.2% á
síðastliðnu voru. Hann fékk 37.6%
grciddra atkvæða í kosningunum 1978
og stóð sig því aðeins bctur nú en þá.
Frjálslyndi flokkurinn varð fyrir nýju
áfalli. Hann fékk nú ekki nema 2.6%
greiddra atkvæða. en fékk 4.8% á
síðastliðnu vori. í kosningunum 1978
fékk hann 4.9%.
Græni flokkurinn stóð sig betur en
spáð hafði vcrið. Hann fékk 6.8%, en
fékk á síðastliðnu vori 7.7%. í kosning-
unum 1978 fékk hann 3.5%.
Kosningaþátttakan var mun meiri nú
en í vor, eða 84%. í vor var hún 77.6%.
ÞAÐ þykir efalítið, að óánægja mcð
nýju ríkisstjórnina í Bonn hafi átt
verulcgan þátt í úrslitunum nú. Ýmsar
aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa valdið
óánægju, eins og t.d. þær, að leyfa
hækkun á húsaleigu og að brcyta
námsstyrkjum í námslán.
Þá getur það haft sitt að segja, að
einmitt um það leyti. sem kosið var í
Hamborg, var Kohl kanslari að fara í
kringum stjórnarskrána með því að
reyna að efna til þingrofs í fullu
ósamræmi við orðalag hennar og tilgang.
Þingroi er því -aðéins heimilt aó
■ Helmut Kohl
samþykkt sé vantraust á stjórnina eöa
traustyfirlýsing fclld og ekki sé hægt að
mynda nýja stjórn. Kohl fór þá
krókaleiö að láta fella trtiustsyfirlýsingu
á stjórnina nteð hjásetu stjórnarþing-
manna, enda þótt stjórnin hafi traustan
meirihluta. Carstcn forseti hefur nú til
athugunar, hvort hann metur þetta gilda
ástæðu til þingrofs.
Þá bætir það ekki stöðu stjórnarinnar
að horfur í efnahagsmálum hafa frekar
vcrsnað síðan hún kom til valda.
Einkum hefur óttinn við vaxandi at-
vinnuleysi aukizt. Margir óttast, að
stjórn Kohls muni sporna síður gcgn
atvinnuleysinu en stjórn Helmuts
Schmidts. Hér gildir það, að cnginn vcit
hvað átt heíur fyrr cn misst hefur.
Þá getur staðan í utanríkismálum
orðið stjórninni erfið. Kohl hefur tckiö
enn afdráttarlausari afstöðu ntcð Banda-
ríkjunum cn Schmidt gerði. í Vestur-
Evrópu eykst sá uggur, að Reagan
forseti muni' ekki gera sitt ýtrasta í
viöræöum við Sovétríkin um takmörkun
meðaldrægra eldflauga í Evrópu. Reag-
an muni telja þaö ávinning fyrir Banda-
ríkin að láta þessar viðræður stranda.
svo aö Bandaríkin geti komiö lyrir
eldflaugum í Evrópu í stað MX-eldflaug-
anna, sent valasamt er að fáist staösettar
í Bandaríkjunum.
Sósíaldemókratar eru þegar farnir aö
ala á þeim áróöri, aö Kolil hafi cngin
áltrif á Reagan, Iteldur lylgi honum hlint
í einu og öllu. Meöal annarra hefur
Helmut Sehmidt tekiö undir þennan
áróöur.
örö Helmuts Sehmidts munu hafa
mikil áhrif í þessu sambandi. Hann er
enn virtasti stjórnmálaleiötoginn í
Þýskalandi. Þaö sýndi sig í kosntngabar-
áttunni í Hamborg, en hann haföi sig
þar mjög í Irammi.
ÞOTF útslitin í Hamborgværuóhagstæð
fyrir stjórnarflokkana í Bonn, er ekki
hægt að byggja á þeimd óm þess efnis,
aö þeir muni tapa í þingkosningunum.
Sé [ttið lagt til grundvallar, að svipuð
úrslit yrðu í öörum fylkjum Vestur-
Þýskalands og í Hamborg og miðaö við
fyrri kosningatölur, ættu kristilegu
flokkarnir að fá meira fylgi en sósíal-
dcmókratar.
Þeir ættu því aö hata möguieika á
hreinum þingmeirihluta, cf Frjálslyndi
flokkurinn og Græni flokkurinn týndu
tolunni. Annars er líklegt, aö Græni
flokkurinn fái oddastöðu á þinginu.
Eltir kosningarnar í Hamborg á
sunnudaginn þykja enn líkur á því, að
Græni flokkurinn komist yfir 5% markið
í þingkosningunum. Minni líkureru hins
vegar taldar á þvf, að Frjálslynda
flokknum takist það, jafnvcl þótt hann
fái hjálp frá kristilegu flokkunum. Þeir
mega hcldur ekki mikið ntissa, cf
sósíaldemókratar eiga ekki að fara fram
úr þeint.
Franz Josef Strauss mun nú berjast
enn harðara cn áður gegn því, að
Frjálslynda flokknum verði veitt hjálp.
Urslitin í Hantborg urðu viss signr fvrir
Strauss Þau gefatilkynna.aðheppikgra
hefði verið fyrir kristilegu flokkana að
kjósa strax í haust, eins og hann vildi.
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
i