Tíminn - 09.01.1983, Qupperneq 2
2
SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1983
Skíðaferðir til Austnrrikis
og sólarferðir til Kanaríeyja
— Það sem vinsælast er á þessum árstíma
Þó fæstir hafi enn tekið eftir því, þá
er það staðreynd að nú fer sól hækkandi.
í því tilefni, svo og vegna óska lesenda
ætlar Tíminn nú að fara af stað með síðu
í Helgar Tímanum, sem mun birtast
hálfsmánaðarlega og fjalla um efni sem
tengjast ferðamálum á einn eða annan
hátt..
gistingu í hóteli með hálfu fæði, eða á
litlum pensjónötum.
Sigríður sagði að það hefði aukist
mikið undanfarin tvö þrjú ár, að fólk
færi í svona skíðaferðir til annarra
landa. Hún sagði að mikið væri um að
íþróttahópar færu saman í svona ferðir,
einnig að fólk tæki sig saman og færi í
vikuferðir til London og Amsterdam, en
þær eru alltaf vinsælar, og sagði Sigríður
að mjög góð þátttaka hefði verið í
þessum ferðum í haust.
Flórídaferðir
Það virðist vera mikið til það sama
sem ferðaskrifstofurnar bjóða upp á, á
þessum árstíma, því þegar Tíminn hafði
samband við ferðaskrifstofuna Úrval,
þá kom í Ijós að Kanaríeyjaferðir,
skíðaferðir til Austurríkis og ferðir til
Saint Petersburg, Flórída eru það helsta
sem ferðaskrifstofan býður upp á, að
undanskildum vikuferðum til London
h«a.
mvnd, þ'i hún er
uiidir cða í hvcrr.
Hefur verið ákveðið að nefna þessa
síðu“ Á faraldsfæti.“ Er meiningin að
fjalla bæði um það sem er að gerast í
ferðamálum á innlendum og erlendum
vettvangi - um það hvað er vinsælast,
hvaða staðir eru nýjr ferðamannastaðir
og svo framvegis.
Fæstir eru í nokkrum ferðahug á
þessum árstíma - vilja helst kúra inni í
stofu með góða bók þcgar þeir eiga frí,
eða skella sér kannski á skíði um helgar,
ef vel viðrar. Þó eru alltaf einhverjir, og
jafnvel talsvet margir sem vilja nýta
þann möguleika sem þeir hafa á að taka
sér vetrarfrí og fara þá gjarnan til
sólarlanda, til þess að ná sér í sumarauka
í skammdeginu, eða þeir sem fara til
landa eins og AusturríkisogSviss til þess
að skellá sér á skíði og ná sér jafnframt
í fjallasólina, sem er jú hvað sterkust.
Tíminn hafði samband við nokkrar
ferðaskrifstofur nú í vikunni og forvitn-
aðist um það hvað væri helst á döfinni í
starfsemi þeirra á þessum árstíma:
Skíðaferð-
irnar verða
æ vinsælli
A
faralds
fæti
Umsjón Agnes Bragadóttir
Hjá Samvinnuferðum Landsýn hf.
fengust þær upplýsingar að þriggja vikna
Kanaríeyjaferðirnar sem Samvinnuferð-
ir Landsýn bjóða upp á í samvinnu við
Flugleiðir og 2 aðrar ferðaskrifstofur eru
mjög vinsælar á þessum árstíma. Er
janúar hvað daufasti tíminn í svona
ferðum, en strax þegar komið er fram í
febrúar, var Tímanum tjáð að nánast
væri orðið fullbókað í ferðir frá þeim
tíma. Það er, að sögn Sigríðar Ámadótt-
ur, hjá Samvinnuferðum Landsýn mest-
megnis eldra fólk, sem vill ná sér í
þennan sumarauka á Kanaríeyjum.
Verðið á þessum Kanaríeyjaferðum er
svona frá 20 þúsund krónum og þá er
miðað við þriggja vikna ferð, með
gistingu í íbúð. Ef hins vegar er búið á
hóteli mcð hálfu fæði, er verðið í
kringum 27 þúsund krónur.
Þá bjóða Samvinnuferðir Landsýn
upp á skíðaferðir til Sölden í Austurríki.
Eru fjórar ferðir áætlaðar nú eftir
áramót. Það var fullbókað í jólaferðina
og Sigríður sagði að Samvinnuferðir
Landsýn hefðu einnig boðið upp á
skíðaferðir til Sölden, sem er stærsta
skíðasvæði Austurríkis í fyrra, og hefðu
farþegar í þeim ferðum verið afskaplega
ánægðir með staðinn og það sem upp á
var boðið. í Sölden er boðið upp á
hópferð á skíði, ár eftir ár. Verðið á
þessum tveggja vikna ferðum liggur nú
í kríngum 10 þúsund krónur. Samvinnu-
ferðir Landsýn hafa einnig verið með
skíðaferðir til Sviss, á skíðastaðinn
Grindelvald, en þær hafa ekki náð
jafnmiklum vinsældum enn sem komið
er, og Söldcn ferðirnar.
Auk áður taldra ferða er að sjálfsögðu
boðið upp á ferðir eins og helgar og
og helgarferðum til London og Kaup-
mannahafnar.
í Flórídaferðirnar eru vikuleg
brottför, og er yfirleitt miðað við tveggja
vikna ferð, en þó er það ekki bundið,
og hægt að vera eins lengi og maður
óskar. Verð í Flórídaferðina er nú milli
15 og 20 þúsund, ailt eftir því hvað valið
er í gistingu og svo framvegis Úrval
býður upp á skíðaferðir til fjögurra staða
í Austurríki, í samvinnui við Flugleiðir
og ferðaskrifstofuna Útsýn. Þessir skíða-
staðir eru Kitzbuhel, Zillertal, Lech og
Badgastein. Eru þetta allt tveggja vikna
ferðir, og flogið til Innsbruck. Fengust
þær upplýsingar hjá Úrval að nú þegar
væri mikið búið að bóka í þessar
skíðaferðir.
Ferð til
Kenya
í janúar
Kristín Aðalsteinsdóttir, hjá ferða-
skrifstofunni Útsýn tjáði Tímanum að á
þessum árstíma væru það mestmegnis
sömu ferðir sem ferðaskrifstofurnar
byðu upp á, enda væri samvinna um það.
Nefndi hún fyrst Kanaríeyjarferðirnar
sem Útsýn, Flugleiðir, Samvinnuferðir
Landsýn og Úrval selja saman, og
skíðaferðir sem sömu aðilar seldu.
Kristín sagði jafnframt að eina ferðin
sem Útsýn byði upp á nú í janúar, sem
skæri sig úr sökum sérstöðu, væri ferð
til Kenya. Verður lagt í þá ferð 22.
janúar, og sagði Kristín að þessi ferð
væri nú skipulögð vegna þess hve vel
hefði tekist til með Kenyaferðina sem
farin var á vegum Útsýnar í október í
haust. Kristín sagði að skipulagning
þessarar ferðar væri öll fremur frjáls,
því fólk getur valið um það hvort það
verður hálfan mánuð, þrjár vikur eða
fjórar vikur. Sagði hún að í þessari ferð
væri boðið upp á dvöl í Nairobí,
Safariferð mismunandi laga, eftir því
hvað fólk vill og dvöl á ströndinni niður
við Mobasa. Verð á þessari ævintýraferð
verður í kringum 33 þúsund krónur.
Auk þessa býður Útsýn, eins og aðrar
ferðaskrifstofur upp á ferðir til London,
bæði helgarferðir og vikuferðir.
Af því sem hér hefur verið skrifað má
sjá að í megindráttum er það mjög
svipað sem ferðaskrifstofurnar bjóða
upp á, á þessum árstíma. Aðalstarfsemin
er í kringum skíðaferðir og Kanaríeyja-
ferðir. í sambandi við Kanaríeyjaferð-
irnar, er ekki úr vegi að benda eldri
borgurum, sem hugsanlega gætu hugsað
sér að komast í sólina í einhvern tíma,
á sérstök fargjöld sem ferðaskrifstofurn-
ar bjóða eldri borgurum uppá, til
Kanaríeyja. Er þar um umtalsverðan
afslátt að ræða, og þeir sem hafa nægan
tíma, geta flúið úr vetarhörkunni sem
herjar nú á okkur hér í öllu sínu veldi
(a.m.k. þegar þetta er skrifað) gætu
hæglega brugðið sér til Kanaríeyja í sex
vikur - þ.e. keypt tvær þriggja vikna
ferðir og notið sólar og blíðu í sex vikur,
og fengið seinni þrjár vikumar með
umtalsverðum afslætti. Þó skal það tekið
skýrt fram hérna, að undirrituð telur
ekki að hér sé um nein vildarkjör að
ræða, því hún hefur reiknað út, að fyrir
eldri hjón, segjum 67 ára eða eldri, þá
myndu slíkar sex vikur á Kanaríeyjum
kosta hvorki meira né minna en tæpar
57 þúsund krónur, og þá er búið að
draga frá afslátt þann sem öldruðum er
veittur, svo og afsláttinn af seinni
þremur vikunum, sem er tilkominn
vegna þess að þá sparast flugfargjaldið.
En hvaða ellilífeyrisþegar geta snarað út
6o þúsund krónum fyrir sex vikum í
sólinni, og er þá ótalin sú upphæð sem
þeir þurfa að hafa til eigin nota þennan
tíma?
AB