Tíminn - 09.01.1983, Síða 6
SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1983
innlendir leigupennar
STUÐMANNAJÓL
— Eða: Þegar barnabörnin verða orðlaus
■ Ekki laust við að árið 1982 hafi vcrið
alvcg cWenjulcga lciðinlcgt ár: fyrir
mína parta. Óttalegt vesin, en undir
árslokbirtist svolítið Ijós íöllu myrkrinu.
I>að bólar ckkcrt á barnabörnunum
ntínum cnnþá, cn þegar þau verða
komin lil sögunnar og farin að hafa
gaman af popptónlist áranna 2020-30
ætla cg að scgja iss; ég Itafi nefninlega
farið á konsert með Stuðmönnum á
Þorláksmessu árið 1982. l>á verða þau
orðlaus og að vonum.
Það var gcðvondur kvikmyndagagn-
rýnandi scm spurði í fyrirsögn í Ilelgar-
pcístinum hvað væri svona merkilegt við
það að vera Stuðmaður. Spyr sá sem
ekki veit. Það er kannski ekkert mcrki-
lcgt; hins vegar þori cg að veðja að það
er ansi hreint gaman. Minnsta kosti fyrir
áhorfendur, hlustendur. nú unt jólin.
l>að er sagt, og ég sannreyndi það
meðan ég var blaðamaður á Vísi sáluga,
að allir þeir sem komnir voru til vits og
ára árið 1963 muni í smáatriðum hvar
þeir voru staddir og hvað að gera þegar
fréttist að J. Fitzgerald Kennedy, forseti
sambandsríkisins í Norður-Ameríku,
hefði verið myrtur. Þá var ég að sönnu
ekki kominn til vits og því síður ára og
verð að sætta mig við að muna nokkuð
vel hvenær ég hlustaði fyrst á hljóm-
plötur með óþekktri hljómsveit sem
kallaði sig Stuðmenn. (Sama gildir um
hljómplötur Mcgasar - cr lífið þá svona
léttvæg't?) Auðvitað var ekki minnst um
vert að vita ckki hverjir léku og sungu í
þessari dularfullu hljómsveit, en allra
mestu skipti þó að tónlistin var skemmti-
leg. Muna menn enn hvernig komið var
fyrir íslenskri popptónlist á þessum
árum kringum 1975? Mjög, mjög illa
minnir mig. Ekkert hafði komið í
staðinn fyrir gömlu Bítlakynslóðina, en
svo kom Megas og svo komu Stuðmenn.
(Það er fáránlegt að taka sér þetta nafn
í munn: Stuð-menn!) Lííið allt fékk
annan svip, örvaðist kraftur stuðsins...
Eg ætla að leyfa mér að vona að aldrei
verði skrifaðar mjög lærðar ritgerðir um
hversu mikla rullu tónlistin leikur í lífi
og mcnningu „unga fólksins nútildax".
Þetta er að vísu andvana fædd von og
vísast er þcgar farið að skrifa slíkar
ritgcrðir því eitthvað verða félags-
fræðingar og aðrir slíkir að hafa að gera.
(Er það satt? Er hann Valgeir virkilega
félagsfræðingur?) Eg ætla alla vega
(fyrir utan að halda áfram að nota „alla
vega" fyrir „að minnsta kosti“) aldrei að
lesa það bull. Nægir að hafa nokkurt
gaman af. Ekki vil ég vita af hverju ég
skemmti mér vel þegar Stuðmenn spil-
uðu á jólaballi Menntaskólans í Reykja-
vík cn annars varla. Né heldur af hvcrju
hinir virðulcgustu menn, ráðsettir og
fullir af hinni ógurlegu sjálfsvitund,
slcpptu fram af sér beislinu á fyrrnefnd-
um Þorláksmcssukonsert sömu hljónt-
sveitar.
Því það gerðu þeir einmitt, þessir
sjálfsvissu. og ég víst þar á meðal.
Fyrrum hef ég ekki leyft mér að segja
múkk á tónleikum og í mesta lagi slegið
nokkra takta mcð eins og einni löpp.
Núna - það var alla vega annað uppá
teningnum. (Sko til, þarna kom „alla
vega“ aftur.) Börnin; þessir tvítugu börn
og þar uppúr, skemmtu sér konunglega.
Gaman, gaman! Og á nýársdag, nýárs-
dagskvöld. þá var álíka gaman. Senni-
lega er það bara býsna merkilegt - að
vera Stuðmaður.
Á Austurbæjarskólaplaninu síðastlið-
ið suntar, þá hljómaði þetta cinhvern
veginn ekki nógu vel. Skemmtilegast þá
var eiginlega hvað maður var orðinn
gamall. Þarna var heil kynslóð fyrir
neðan mann sem vissi ekki hvaðan á sig
stóð veðrið. Engir „bubbískir pönktón-
ar“; hverjir voru þessir gömlu menn? Nú
munu víst unglingarnir vera búnir að
læra að meta Stuðmenn og hvað þeir
standa fyrir; Stuðmenn sjálfir orðnir
töluvcrt markvissari. Það var ekki
seinna vænna, því nú er eins víst að þeir
komi ekki saman í alltof mörg ár.
Ekki veit ég af hverju Valgeir Guð-
jónsson hætti í tónlist í svo og svo mörg
ár og fór - af öllunt hlutum sem til greina
komu - að félagsfræða unglingana.
Hann virðist hafa langmest gaman af
þessu; það er náttúrlega ástæðan, að
hann er búinn að vera fjarri lengi.
Einbeittur drengur, Valgcir, eins og þeir
eru raunar allir. Það hefur líka verið
þægilegt að fá þessa prýðis staðfestingu
á hvað E. Ólafsson er fyrirtaks söngvari;
röddin án nokkurs vafa hin besta í
bransanum. Þegar Bubbi Morthens tók
eitt lag með Stuðmönum á nýársdag
(auðvitað Svarta Pétur) þá stóð það
heima að Egill söng það viðkunnan-
legar seinna um kvöldið. (En þetta var
heldur ekki músíkin hans Bubba.) Svo
hann Tomrni - óborganlegur með öllu,
og söng meira að segja Jón var kræfur
karl og hraustur á Þorláksmessu og var
borinn á gullstól af félögum sínum fyrir.
Jakob Magnússon; á sinn hátt óað-
skiljanlegur partur, og þó minna beri á
Þórði og Ásgeiri skulu þeir ekki láta sig
vanta. Ekki reyna það einu sinni þegar
Stuðmenn koma saman næst. Helst að
það sé nokkur skortur á Sigurði Bjólu,
en mér skilst þeir hafi hann jafnan í
pokahorninu.
Það þarf ekki að segja neinum að
undanfarin eins og tvö ár hafa orðið til
á óteljandi popphljómsveitir hér á þessu
landi og cru flestar duglegar að halda
hljómleika. Það er eins og gengur;
sumar eru góðar, aðrar vondar, en eitt
eiga næstum allar sameiginlegt. Þær líta
stórt á sig, einhverra hluta vegna, sem
meðal annars kemur fram í því að á
hljómleikum neita þær að spila „gömlu
Illugi Jökulsson
skrifar
lögin“. Hljómsveitin Vonbrigði spilar til
að mynda ekki lengur lagið Ó Reykjavík
sem hún á þær vinsældir sem hún hefur
að þakka. Þetta þykir mér vera óþarfa
hroki gagnvart aðdáendum og áhorfend-
um sem vilja fá- að heyra gömlu
uppáhaldslögin sín, alla veg (þriðja
sinni) öðru hvoru. Satisfaction er víst
enn þann dag í dag uppklapplag Stóns
og ekkert nema gott um það að segja.
Stuðmenn eru líka of veraldarvanir
ungir piltar til að detta í þessa gryfju.
Þeir spila gömlu lögin sín af innlifun og
gleði; þau eru ekkert gömul fyrir vikið.
Fljúgðu útá stoppistöð í bláum skugga,
þetta er allt voða gaman. Svo koma nýju
lögin.
Má ég færa þakkir fyrir loksins fram
komna lofgerð til íslenskra karlmanna?
Stuðmönnum var Itklega einum trúandi
til að balda uppi vörnum fyrir þetta
hrjáða kyn sem nú er sótt að úr öllum
áttum. Nú, þegar ekki aðeins hinn forni
karlmennskumórall á undir högg að
sækja, hcldur sjálft kynferðið - sem við
getum ckki gert að - og íslenskum sem
öðrum karlmönnum sagt að þeir séu
ekki aðeins til trafala hcldur beinlínis
ónauðsynlegir, nú er ekki ónýtt að vera
minntur á að eftir allt saman þá er
tæplega helmingur landsmanna „við
menn". Ég hef séð ættartölu því til
stuðnings að ég sé kominn af Agli
Skallagrímssyni, og piltungur nokkur
sem ég þekki tók söng Stuðmanna svo
bókstaflega að á gamlárskvöld foraktaði
hann hlý og mjúk rúm en hljóp út og
vildi grafa sig í fönn. Og enn ein
staðfesting á ósvikinni hetjulund ís-
lenskra karlmanna var á nýársballinu
þegar Eggert Þorleifsson (sem stal sem
kunnugt er senunni í Stuðmannamynd-
inni) lét ekki fótbrot og tvær hækjur á
sig fá, heldur klöngraðist uppá stól eins
og aðrir gestir á Hótel Borg og dillaði
sér í takt við músíkina. Ójæja, við erum
sko alls engar gungur...
Það var eitt í sambandi við þessar tvær
skemmtanir Stuðmanna á Hótel Borg
(sem ég skal aldrei, aldrei kalla Veitinga-
húsið Borg) sem mig langar að nefna. Á
Þorláksmessu voru Stuðmenn að sjálf-
sögðu klappaðir upp í snarheitum og
léku tvö lög (annað var Jón var kræfur
karl og hraustur, sællar minningar), en
síðan klappaði, stappaði, hrópaði og
öskraði áhorfendaskarinn (aldrei meiri)
í ábyggilega tuttugu mínútur eða lengur
en ekki létu Stuðmenn sjá sig. Nú hef
ég heimildir fyrir því að Stuðmenn vildu
gjarnan koma til móts við aðdáendur
sína og spila eitt tvö lög í viðbót en fengu
ekki. Lögreglustjóri sveif yfir vötnunum.
Sama gerðist á nýársdag nema þá
tilkynnti Jakob strax, og var gráti nær,
að því miður gæti það ekki orðið að
Stuðmenn spiluðu meira. Lögreglu-
stjóri. Þetta fór mjög í taugarnar á
áhorfendum. Litla félagið okkar er eins
og menn vita fullt af hvers konar boðum
og bönnum sem enginn veit af hverju
eru tilkomin og virðast ekki þjóna
neinum tilgangi. Og svo mikið er víst að
það er ekki snefill af votti að ástæðu fyrir
því að hljómsveit sem er að skemmta
sér með áhorfendum megi ekki taka
örfá aukalög ef allir vilja. Hvern særir
það? Þetta er svolítið idjótískt - eins og
fleira.
En allt um það. Það var sem sé
ljósglæta í myrkri síðasta árs og þetta
hefst bara vel. Viö. höfum aldrei áður
séð, aðra eins gommu af Stuðmönnum.
Nú er að láta ekki staðar numið: gerum
öll jól að Stuðmannajólum!
-'j