Tíminn - 09.01.1983, Side 14
14
SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1983
■ Þá hefjum við elleftu kennslu-
stundina í lófalestri. Þeir sem vel hafa
fylgst með þessum greinum hafa eflaust
getað skemmt vinum og kunningjum um
hátíðarnar með því að segja þeim
sitthvað um skapgerðareink’enni þeirra
og framtíðarhorfur, en sá sem kann
eitthvað fyrir sér í lófalestri þarf sjaldn-
ast að óttast um vinsældir sínar í
samkvæmum. Þó er rétt að vara fólk við
því að lófalesarinn getur verið svo
upptekinn allt kvöldið að hann missi af
allri annarri skemmtun í samkvæminu!
En nóg um það. í dag eru það ýmsar
sjaldgæfari línur í lófanum sem við
skoðum. Flestir hafa eina eða tvær
þessara lína, en fáir hafa þær allar.
Þessar línur gefa vísbendingu um ein-
hverja alveg sérstaka eiginleika sem
ekki geta kallast algengir.
Dulræna línan er til dæmis sjaldgæf.
Villast mætti á dulrænu línunni og
bogalaga heilsulínu, - en heilsulínan er
aldrei bogalaga. Dulræna línan, sem er
á Mánafjallinu (sjá kort) er hins vegar
alltaf bogalaga.
Þessa línu má oftast sjá í sálrænu
hendinni, sem er mjög löng og grönn,
eins og við munum. Hún sýnir að
eigandinn hefur dulrænar gáfur og mikið
innsæi. Hann er oft skyggn og er mikill
tilfinningamaður. Þessa línu er einkum
að finna í lófa kvenna.
Þá er það Marslínan, - einnig nefnd
„innri líflínan," en það nafn bendir í
senn til legu hennar og eðlis. Við rnegum
ekki rugla henni saman við „áhrifalín-
urnar“ sem við minntumst á í síðasta
blaði, því Marslínan er miklu stærri og
skýrari en þær, stundum jafn stór og
glögg og líflínan sjálf. Þessi lína liggur
sem sé innan við líflínuna og rennur
meðfram henni og er oft tengd henni í
byrjun. Marslínuna getum við séðhér á
kortinu.
Þessi lína styrkir og eflir líflínuna. Sé
sjálf líflínan veik eða slitin, þá sýnir
Marslínan að viðkomandi einstaklingur
■ Hér á kortinu má sjá þau teikn á lófanuin sein við fjöllum uni í dag. Flestir hafa eitt eða tvö þessara merkja en fæstir fleiri, því sum eru heldur sjaldgæf.
Av'mboná
SITTHVAÐ UM LÓFALESTUR - ELLEFTA GREIN
Kappsamur í ástnm og rúmförum
— Ýmis minni og
sjaldgæfari tákn
í lófanum eru
tekin til
meðferðar í dag
er nógu sterkbyggður til þess að komast
yfir alla sjúkdóma eða áföll. Marslínan
kemur ekki í veg fyrir sjúkdóma þá sem
slitin líflína sýnir að vænta megi, en hún
tryggir góðan bata.
Þegar Marslínan er í lófa þar sem
líflínan er sterk og góð, ber hún merki
um að viðkomandi er kappsamur í
ástum og rúmförum, gæddur prýðis-
heilsu, sést lítt fyrir í málefnum sem eiga
huga hans allan og er talsverður bar-
dagamaður í eðli sínu. Hrifningarákaf-
inn er nógur. Þessa línu er oftast að finna
í fcrstrendu eða spaðalaga hendinni.
Hálsmen Venusar ci ekki neins staðar
nærri Venusarfjallinu við þumalfingur-
inn, eins og einhver hefði ætlað vegna
nafnsins. Þetta er hálfhringlaga lína
sem sem lykst utan um Satúrnusarfjallið
og Sólarfjallið. Oft er línan mjög slitin,
eða þá skýr í aðeins annarri hendi en
slitrótt í hinni. Sjá mynd.
Á fyrri tíð var sagt um þá sem þessa
línu höfðu að þeir byggju yfir ýmsum
óskemmtilegum eiginleikum. En þeir
öfgafullu spádómar sem margir hafa
lesið úr þessu merki eru sjaldnast réttir.
Nú munu flestir lófalesarar geta fallist á
að þeim sem hefur þetta merki sé best
lýst með því að kalla þetta merki mikilla
geðbrigða. Viðkomandi er eirðarlítill,
mjög taugastrekktur, listrænn í eðli og
kann vel að meta skemmtanir. Honum
er hætt við svartsýnisköstum.
Sé línan veikari í hægri hendi en þeirri
vinstri hefur manneskjan þó aó miklu
leyti sigrast á þessum þáttum.
Drykkjulínan (Via Lasciva) er enn ein
línan sem er sjaldgæf. Eins og naínið.
bendir til þá var hún á fyrri tíð talin
vera mjög vont merki. Hún hefur
mismunandi legu í lófanum. Stundum
myndar hún hálfhring sem tengir Venus-
arfjallið og Mánafjallið. Stundum renn-
ur hún beint frá neðsta hluta Mánafjalls-
ins og í átt niður að úlfnliðnum. (Sjá
kortið).
Fólkið sem hefur þessa línu býr yfir
svo mikilli orku að það á í erfiðleikum
með að nota hana alla. Þar af sprettur
tilhneiging til þess að sóa henni í
drykkju, eiturlyfjaát og fleiri slæma
lesti. En þctta er aðeins tilhneiging, sem
ekki þarf að koma fram í líferni manna.
Þessu fólki skyldi ráðleggja að nota orku
sína í mikla vinnu eða í íþróttaiðkanir
og þá mun vel fara, - einkum ef höndin
er hörð.
Armböndin eru nefndar línur þær sem
liggja yfir úlfnliðinn. Þessar línur, glögg-
ar og óslitnar, sýna að eigandinn mun
lifa fram á elliár og verða vel efnaður.
Sé fjórða armbandið fyrir hendi er ekki
vafi á að hér er komin persóna sem
verður hundrað ára. Stundum má sjá í
hönd kvenna að armbandið sem næst er
lófanum svcigist upp í boga við endann
og er þá líklegt að sú kona muni ekki
eignast börn.
Ferðalínurnar eru ekki óáþekkar gift-
■ Hálsmen Venusar var talið slæmt tákn hér áður fyrr, en nú vilja menn ekki kveða
alveg jafn sterkt að orði.
ingarlínunum að lögun, en þetta eru
láréttar, stuttar línur sem liggja úti á
handarjaðrinum á Mánafjallinu. Þær
eru lengri en giftingarlínurnar og því
lengri sem þær eru, því lengri verður sú
ferð sem þær tákna. Mjög stuttar línur
eru varla annað en stutt sumarleyfi
erlendis. Hins vegar hafa farmenn og
þeir sem stöðugt eru í siglingum eða á
ferðalögum oft ekki nema eina eða tvær
ferðalínur og þá á því svæði sem vísar
til æskuára. Síðar verða ferðalög það
algeng í vitund þeirra að engin merki
festast í hendinni. Slíkir menn hafa
vanlega örlagalínu, sem byrjar úti á
Mánafjallinu. Tíma ferðanna ber að lesa
á sama hátt og við lesum giftingarlínurn-
ar. (Sjá áður).
Ef ferðalína tengist hjartalínunni mun
einhver ástvinur verða til þess að ferðin
er farin eða þá að hún tengist á einhvern
hátt ástamálunum.
Hringur Salómons er sjaldgæft hálf-
hinglaga merki sem lykst utan um
Júpíterfjallið. (Sjá kortið). Sá sem þetta
merki hefur er mjög vel til þess fallinn
að fást við ýmsa dulspeki og sálarfræði,
en þetta merki hefur lengi verið talið
tákn um visku.
Ferhyrninginn köllum við bilið á milli
hjartalínunnar og höfuðlínunnar. Sé
það breitt og laust við ýmsar smálínur
er eigandi handarinnar veglyndur og
umburðarlyndur, heiðarlegur og skyn-
samur. Þegar ferhyrningurinn er mjór
vegna þess hve hjarta og höfuðlínur
liggja nærri hvor annarri er eigandi
handarinnar óákveðinn og kjarklítill.
Mjög stórt bil ber vott um nokkra
ófyrirleitni og tilhneigingu til að láta
vaða á súðum, og sé mikið um smálínur
þvers og kruss á ferhyrningnum má gera
ráð fyrir margvíslegum áhyggjum og
hvíldarlitlu amstri.
Þetta látum við gott heita í dag. Næst
munum við ræða um ýmis smámerki í
lófanum, - eyjur, krossa, stjörnur og
fleira, sem allt hefur sína merkingu. Enn
unum við fjalla sérstaklega um aldurinn
á línunum, svo við eigum hægara með
að átta okkur á hvenær ævinnar þau
teikn koma fram sem línurnar sýna.