Tíminn - 16.02.1983, Page 5
fréttir
Úthlutunarnefnd lista-
mannalauna mótmælir
ónógri f járveitingu:
FLYTUR ENGAN
í EFRI FLOKK
— segir brýna nauðsyn bera til
ad endurskoða fjárveitingar
til listamannalauna
Uthlutunarnefnd listamannalauna á blaðamannafundi í gær. F.v. Halldór Blöndal, Gunnar Stcfánsson, Bessý
Jóhannsdóttir, Magnús Þóröarson, Jón R. Hjálmarsson, sr. Bolli Gústafsson og Sverrir Hólmarsson. Tímamynd Árni.
■ „Deila má um réttmæti þess, hvort
greiða skuli listamönnum laun af al-
mannafé, en meðan Alþingi gerir ráð
fyrir því, verður að ætlast til þess, að
hægt sé að gera þaðfá sómasamlegan
hátt og sambærilegan við aðrar úthlutan-
ir. Vegna þess, hve hlutur listamanna-
launa hefur rvrnað að tiltölu á undan-
förnum árum, meðan listamönnum hef-
ur stóriega fjölgað, virðist Ijóst, að
löggjafarvaldið hefur lítinn áhuga á því,
að launin komi listamönnum að umtal-
sverðu gagni,“ segir m.a. í yfirlysingu,
sem úthlutunarnefnd listamannalauna
afhcnti blaðamönnum í gær, er tilkynnt
var hverjir hefðu fcngið listamannalaun
áriö 1983.
Ennfremur segir í yfirlýsingunni að
ýmiss konar greiðslur til listamanna hafi
komið til sögunnar undanfarin ár og
gildi listamannalaunanna minnkað að
sama skapi. í fyrra hafi fé sem nefndin
hafði til úthlutunar numið 1.500.000
krónum en í ár 1.700.000 krónur sem
þýði raunverulega rýrnun. Nefndar-
menn eru sammála um að starfsskilyrði
nefndarinnar sé óviðundandi og telur
nauðsynlegt að taka fjárveitingar og
fyrirkomulag listamannalauna til gagn-
gerðrar endurskoðunar.
Með þetta í huga ákvað nefndin að
mótmæla ónógri fjárveitingu með því að
færa engan listamann upp í cfri flokk að
þessu sinni eins og tíðkast hcfur á hverju
ári, að undanförnu.
Varðandi úthlutun í neðri flokki var
fylgt sömu vinnureglu og í fyrra. þ.e. að
þeir sem síðast voru í þeim flokki falla
burt og nýir menn koma í staðinn sem
ekki fengu úthlutað listamannalaunum í
fyrra. í neðri flokki eru 43 menn og 23
hafa aldrei fengið listamannalaun áður.
Úthlutunarnefnd listamannalauna
skipa nú eftirtaldir menn: Magnús
Þórðarson framkv.stj. formaður, Jón R.
Hjálmarsson ritari. Bessý Jóhannsdóttir
sr. Bolli Gústafsson, Gunnar Stcfáns-
son. Halldór Blöndal og Sverrir Hólm-
arsson.
135 listamenn hljóta listamannalaun
að þessu sinni, 92 í efra flokki og 43 í
neðra. Launin eru helmingi hærri í þeim
efri. Alþingi veitir sjálft laun í heiðurs-
launaflokki en þau hljóta 15 listamenn.
JGK
„Hönnum ekki fyrir
meira öryggi en
réttlætanlegt er”
— segja verkfræðingar Vegagerðarinnar
um bryrnar sem létu sig í flóðunum
■ „Við tökum ekki nærri okkur að
vegurinn gaf sig við þessar brýr. Sé ekki
um að ræða öryggi mannslífa, þá
verðum við að líta á heildarhagkvæmn-
ina, sem kemur þá - því miður - þannig
út að í aftökum verða tjón. Og þannig
viljum við hafa það“, sagði Guðmundur
Arason, verkfræðingur í brúadeild Veg-
agerðarinnar m.a. er Tíminn ræddi við
hann vegna brúnna fjögurra sem gáfu
sig í Strandaleið í flóðunum miklu, sem
sagt var frá í Tímanum fyrir hclgina.
- Það mætti frekar segja að ef hvergi
hefðu orðið tjón á mannvirkjum í
þessum flóðum - sem við á verkfræð-
ingamáli köllum 50 til 100 ára atburð -
þá hefði verið ástæða til að taka það
nærri sér. Því það þýðir að við hefðum
verið búnir að hanna þessi mannvirki
fyrir miklu meira öryggi heldur en
réttlætanlegt væri frá fjárhagslegu sjónar-
miði. Þegar þú þessvegna heyrir um
eitthvert mannvirki sem staðist hefur vel
aftaka áraun, þá á kannski ekki endilega
að þakka hönnuðinum eða byggingarað-
ilanum fyrir það, því allt eins eru þá
líkur á að hann hafi sóað þar almannafé,
sagði Guðmundur.
Hann kvaðst ekki geta svarað því hver
viðgerðarkostnaðurinn væri við brýrnar
fjórar á Ströndum, enda sé viðgerðum
þar ekki endanlega lokið. „En hann er
hins vegar ekki nema brot af verði
einnar af þessunt brúm. Til að ná fullu
öryggi værum við hins vegar væntanlega
að tala um 50-100% hækkun á bygging-
arkostnaði þessara brúa, þannig að við
stöndum vel fjárhagslega í þessu dæmi
ennþá miðað við að brýrnar hefðu verið
byggðar með „afsalut" öryggi", sagði
Guðmundur.
Margar gömlu brýrnar sagði Guð-
mundur byggðar af mikilli íhaldsemi,
sérstaklega gagnvart flóðum. Oft liggi
þær hins vegar niðri í gljúfrum og
krappar beygjur að þeim, t.d. eins og
við Selá í Hrútafirði (þar sem nýja brúin
fór úr sambandi um daginn) og nánast
enginn kostur að gera frambærilega
veglínu að þeim. Því hafi verið leitað
niður með ánum, á jafnara land, til að
fá betri veg. En það þýðir að brýrnar
þurfa að vera miklu lengri og þar af
leiðandi dýrari eigi að halda sama
öryggi. Yfirleitt sé því ekki stefnt að því
að vcgirnir við brýrnar haldi hvað sem
á dynur.
-HEI
135 hlutu
listamannalaun
■ Eftirtaldir listamenn hlutu lista-
munnaiuun fyrir árið 1983. í neðri
flokki eru þcir feitletraðir sent aldrci
Itafu þegið listamunnalaun áður.
15.000 krónur hver
(92 menn).
Agnar Þóröarson, Alfreð Flóki, Atli
Heimir Svcinssón, Ágúst Petersen,
Ármann Kr. Einarsson. Árni
Björnsson, Árni Kristjánsson. Bene-
dikt Gunnarsson, Björn J. Blöndal.
Björn Ólafsson, Bragi Ásgcirsson,
Bragi Sigurjónsson. Einar Bragi,
Einar Hákonarson, Eiríkur Smith,
Eyþór Stelánsson. Gísli Halldórs-
son, Gísli Magnússon, Gísli Sigurðs-
son, Gréta Sigfúsdóttir, Guðbergur
Bergsson, Guðmunda Andrésdóttir.
Guðmundur L. Friðfinnsson. Guð-
mundur Frímann, Guðmundur
Jónsson, Guömundur lngi Kristjáns-
son, Guðrún Á. Símonar, Gunnar
Dal, Gunnar Eyjólfsson, Gunnar M.
"Magnúss, Hallgrímur Helgason,
Hannes Sigfússon, Heiðrekur
Guömundsson, Hringur Jóhannes-
son, Ingimar Erlendur Sigurðsson.
Jakobína Sigurðardöttir, Jóhann
Briem, Jóhann Hjálmarsson, Jó-
hanncs Geir, Jóhannes Helgi, Jó-
hannes Jóhannesson, Jón Ásgeirs-
son, Jón Björnsson, Jón Dan, Jón
Helgason, Jón Nordal, Jón Óskar,
Jón Þórarinsson, Jón úr Vör, Jónas
Árnason, Jónas Guðmundsson, Jór-
unn Viðar. Karcn Agnete Þórarins-
son, Karl Kvaran. Kjartan Guðjóns-
son, Kristinn Rcyr, Kristján Alberts-
son, Kristján Davíðsson, Kristján
frá Djúpaiæk, Leifur Þórarinsson,
Manucla VViesler, Matthías Jo-
hannessen, Oddur Björnsson, Ólöf
Pálsdóttir, -Óskar Aðalsteinn, Pétur
Friörik, Ragnheiöur Jónsdóttir, Ró-
bert Amfinnsson, Rúrik Haraldsson,
Rögnvaldur Sigurjönsson, , Sigfús
Daðason, Sigfús Halldórsson, Sig-
urður A. Magnússon, Sigurður Sig-
urðsson, Skúli Halldórsson, Stefán
Hörður Grímsson. Stefán Júlfusson,
Steinþór Sigurðsson, Sveinn
Björnsson, Svcrrir Haraldsson, Thor
Vilhjálmsson. Tryggvi Emilsson,
Valtýr Pétursson. Veturliði Gunn-
arsson, Vésteinn Lúðvíksson, Vil-
borg Dagbjartsdóttir, Þorkell Sigur-
björnsson, Þorsteinn frá Hamri,
Þorsteinn Ö. Stephensen. Þóroddur
Guðmundsson, Þuríður Pálsdóttir,
Örlygur Sigurðsson.
7.500 krónur hver
(43 menn)
Andrés Imlriöason. Anton Helgi
Jónsson, Áslaug Kagnars, Baltazar,
Birgir Engilberts, Birgir Helgason,
Eggert Guðmundsson, Einar Már
Guöimmdsson, Einar Þorláksson,
Filippía Kristjánsdótúr (Hugrún),
Guöniundur Karl Áslijörnsson,
Guömundur Emilsson, Guðmundur
Steinsson, Guðný Guðmundsdóttir,
Guðrún Svava Svavarsdóttir, Gunn-
ar Örn Gunnarsson, Halldór Vil-
helmsson, Helgi Sæmundsson,
Hjálinar llelgi Ragnarsson, Hjörtur
Pálsson, Hrafn Gunnlaugsson, Jón
Kristinssun frá Lainbey, Jón Stefáns-
son, Jónas Svafár, Jónina Guðna-
dóttir, Karólína Eiríksdóttir, Karó-
lína Lárusdóttir, Kristján Guð- '
mundsson. Kristján Jóhannsson,
Lára Rafnsdóttir, Ragnar Páll Ein-
arsson, Rtighar Þorsteinsson Ragn-
hildur Gísladóttir, Rut Ingólfsdóttir,'
Sigurður l’álsson, Steingerður Guð-
mundsdóttir, Steinþór Marinú
Gunnarsson, Svava Jakobsdóttir,
Sveinbjörn Beintcinsson, Séra Sverr-
ir Haraldsson, Þorsteinn Antonsson,
Þörður Hall, Þórunn Elfa Magnús-
dóttir.
Ævintýraheimurinn
Erum með: VHS - og 2000 með ogántexta
VIDEO SPORT
Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 S 33460.
Opiðailadaga
kl. 13.00-23.00