Tíminn - 27.03.1983, Blaðsíða 4
SÚNNÚDAGÍIR 27. MARS 1983
■ Yfirlitsmynd úr ödrum sýningarsalnum. Hér getur að líta verk eftir ýmsa af þekktustu myndlistarmönnum samtímans.
■ Upplýsingar um myndirnar eru fengnar úr sýningarskránni. Tímamyndir Árni Sæherg.
■ Steindur gluggi í stafnglugga Bústaðakirkju eftir Leif Breiðfjörð.
■ Kristslíkneski eftir Ríkharð Jónsson, hefur staðið í Bessastaðakirkju frá tíma
Sveins Björnssonar forseta.
Sýning trúarlegrar og kirkjulegrar
■ Utimundlaug frá Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd. f»að var til siðs a
miðöldum að slíkir steinhöggnir bollar stæðu utandyra við kirkjur með vígðu vatni í,
svo kirkjufólk gæti signt sig áður en guðsþjónusta hæfist.
■ Þegar 100 ára afmæli Selárdalskirkju nálgaðist fór fram á henni
gagnger viðgerð. Samúel Jónsson vinnumaður á staðnum sem lengi
hafði fengist við málverk málaði þá þessa altaristöflu og gaf kirkjunni
en henni var hafnað, gamla manninum til sárra vonbrigða. En hann
lét ekki hugfallast, heldur reisti af eigin rammleik nýja kirkju, bar
sjaljur til hennar það efni sem til þurl'ti úr fjörunni og þáði enga hjálp.
Þegar kirkjan var fullbúin kom hann þar fyrir altaristöflu sinni.
Kirkja Samúels var óupphituð enda ónotuð nema hvað hún hýsti
altaristöflu höfundar síns. Taflan fór illa og lá undir skemmdum þar.
Hannibal Valdimarsson fyrrum ráðherra og forseti ASI hóf búskap
í Selárdal, en þá tók hann töfluna úr kirkjurústinni og afhenti
Listasafni alþýðu að gjöf. Hér sést altaristaflan ásamt mynd af
kirkjunni sem hýsti hana.
Samúel Jónsson lést árið 1969, áttræður að aldri.
■ Um þessar mundir stendur yfir á
Kjarvalsstöðum „Sýning kirkjulegrar og
trúarlegrar listar á vegum Kirkjulistar-
nefndar.“ Að sýningunni hefur unnið
Kirkjulistarnefnd sem skipuð var af
biskupi íslands árið 1981 og skipa hana
Björn Th. Björnsson listfræðingur, dr.
Gunnar Kristjánsson sóknarprestur og
Jóhannes S. Kjarval arkitekt. Á sýning-
unni eru gamlir kirkjumunir, altaris-
töflur, predikunarstólar, messuklæði og-
ýmis vefnaðar en stór hluti sýningarinnar
er byggður upp með verkum samtíma-
listamanna, eða listamanna sem hafa
lifað og starfað á þessari öld. Eru þar á
meðal hefðbundnar altaristöflur eftir
menn eins og Ásgrím Jónsson og Jó-
hannes Kjarval svo dæmi séu nefnd, en
einnig glermyndir, vefnaðarlist, skúlp-
túrar og málverk sent með einum eða
öðrum hætti tcngjast trúarlegum við-
fangsefnum að tilvistarlegum,' og eru
sprottin upp af ýmsum minnum úr
heilagri ritningu.