Tíminn - 10.04.1983, Blaðsíða 21
SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1983
21
skák
GOÐ
BYRJUN
■ Paö var taugatitringur í einvígi
þeirra Beljavsky: Kasparov, austur í
Moskvuborg. Þegar Kasparov valdi
Tarraseh afbrigðið gegn drottningar-
bragði í fyrsta skifti á sinni stuttu æfi,
féll Beljavsky í þunga þanka og
notaði einn og hálfan klukkutíma til
að velja eina þekktustu leiðina í
teoríunni. En eitthvað fór úrskeiðis.
Frá 20. leik var ljóst að svartur stóð
betur.
Beljavsky: Kasparov 2. einvígisskák-
in.
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 c5!? (Pessi
tákn eru til þes að leggja áher'slu á
hið sálfræðilega gildi leiksins. í ein-
vígi er mikilvægt að koma andstæð-
ingnum á óvart. Tarrasch áleit þetta
hið eina rétta svar gegn drottningar-
bragði, en upp úr aldamótunum fóru
Schlechter og Rubinstein að stilla
biskupunum upp á g2, þaðan sem
hann þrýsti á hið veika peð svarts á
d5.) 4. cxd5 exd5 5. Rf3 Rc6 6. g3
Rf6 7. Bg2 Be7 8.0-0 0-0 9. Bg5 (Hér
er einnig leikið dxc5, Be3, Bf4og b3.
Hægt er að velta því fyrir sér, hvort
allar þessar leiðir höfðu verið rann-
sakaðar ítarlega af hinum nýja Tar-
rasch-áhanganda.) 9.. cxd4 10. Rxd4
h6 11. Be3 He8 12. Da4 Bd7 13.
Ha-dl Rb4 14. Db3 a5 15. Hd2(?)
(Hér er vaninn að leika a4.) 15. . a4
16. Ddl a3! 17. Dbl Bf8 (Opnarfyrir
möguleikann Hxe3, sem t.d. kemur
til álita eftir 18. Hf-dl.) 18. bxa3
Hxa3 19., Db2 Da8 20. Rb3 Bc6 21
Bd4 Re4.
k I ki
r 1 i
■ 1
m /-t %;v
■V7y m
YV h U V ') A A
my
(Svartur hefur frumkvæðið.) 22.
Rxe4 dxe4 23. Hal Bd5 24. Dbl b6
25. e3 Rd3 26. Hdl b5 27. Bf 1 b4 28.
Bxd3 exd3 29. Dxd3 Hxa2. Svartur
hefur færi á báðum vængjum. Þökk
sé frípeðinu á b-línunni, hinum veiku
hvítu rcitum umhverfis g2, þar sem
biskupsins er saknað. Þar fyrir utan
var Beljavsky í miklu tímahraki.) 30.
Hxa2 Dxa2 31. Rc5 Bf332. Hal Dd5
33. Db3 Dh5 34. Rd3 Bd6 35. Rel
BNb7 36. Hcl Df5 37. Hdl Bf8. Hér
féll hvítur á tíma. Staðan var þó í öllu
falli vonlaus.
SUNDUR-
GREINING
S A'
á
(Reynið að reikna eða sundur-
greina stöðuna á borðinuj.
Júgóslavneski stórmeistarinn Ko-
vacevic fékk þessa stöðu upp á
mótinu í Maribo 1980. Hann hafði
sundurgreint hana fyrir rúmum 15
árum, þegar hann var óbreyttur
meistarakandidat. Vlade Kovacevic
er trúlega þekktastur fyrir sigurinn
yfir Fischer í Zagreb 1970, löngu
áður en hann náði stórmeistaratitli.
En á síðari árum hefur hann náð
góðum árangri á mótum. Hann teflir
ekki nýtískulegar byrjanir, enda ger-
ist þess ekki þörf, ef maður kann
bara að tefla skák.
. V. Kovacevic: Ree Drottningarpeðs-
byrjun.
’l. d4 Rf6 2. Rf3 d5 3. Bf4 e6 4.
Rb-d2 c5 5. e3 Be7 6. c3 0-0 7. Bd3
Rb-d7 8. h4!? (Framhaldið ber þess
vitni. að Ree tók þennan leik ekki
alvarlega.) 8.. b69. Re5 Rxe5? (Hið
rétta var Bb7, en hvítur hefur samt
góða sóknarmöguleika með Df3
(sem hindrar Re4) ásamt 0-0-0 og
g4.) 10. dxe5 Rd7 11. Bxh7+! Kxh7
12. Dh5+ Kg8 13. Rf3 f6 (Eða 13. .
g6 14. Dh6 He8 15. Rg5 Rf8 h5 með
afgerandi sókn. Eða 13. . He8 15.
Rg5 Rf8 15. Dxf7+ Kh8 16. h5 Bxg5
17. hógxhó 18. B xg5 Dxg5 19. Dxe8.
Eftir 0-0-0 rennur hvíta sóknin
áfram, en þetta er þó eina leiðin þar
sem svartur nær einhverju andsvari.
Gegn 13. . Ba6 leikur hvítur ekki
0-0-0 (Be2!) heldur 14. Hdl, eða
jafnvel 14. Kd2 með framhaldinu 14.
. He8 15. Rg5 Rf8 16. Dxf7+ Kh8
17. h5 Bxg5 18. h6 gxh6 19. Hxh6+
Bxh6 20. Hhly 14. Rg5! fxg5 15. hxg5
Hf5 (Eftir 15. . Bxg5 16. Bxg5 Dc7
17. f4 er svartur varnarlaus, og enn
verra væri 15. . Hxf4? 16. Dh8+ Kf7
17. g6+.) 16. Dh7+ Kf717. g6+ Ke8
18. Dxg7 Bf8 19. Dh8! Hg5 20. Dg8
Rxe5 21. Bxe5 Kd7 22. Hh8! Bb723.
Dh7+ Svartur gafst upp.
De7 er nefnilega svarað með 24.
Bf6! og 23. . Kc6 með 24. g7. Allt
þetta, fram til síðasta leiks hafði
Kovacevic þekkt frá barnæsku þegar
hann rannsakaði þessa stöðu forðum.
Og í ofanálag mundi hann allar
leikjaraðirnar.
Bent Larsen,
stórmeistari skrifar
um skák wA
Á meðan Fisch
er var og hét
■ Eftir að Fischer vann heimsmeist-
aratitilinn af Boris Spassky árið 1972,
spáðu sumir kunningja hans því, að
meistarinn myndi ekki tefla frantár opin-
'berlega. Þessir spádómar virðast því
miður ætla að rætast, þó ýmislegt hafi
verið reynt til þess að fá Fischer aftur að
taflborðinu. Um 1975 ræddu Fischer og
Karpov möguleika á einvígi sín í milli,
i og hittust þrisvar til fjórum sinnum.
Fyrirhuguð keppni rann þó út í sandinn,
þegar Fischer hélt fast við að sá sigraði
sem fyrr ynfti' 10 skákir, jafntefli ekki
talin með. Af og til hafa heyrst furðu-
sagnir um leynilega taflmennsku
Fischers. Hann átti að hafa teflt einvígi
við Húbner og sigraði með yfirburðum.
Þá átti stórmeistarinn Peter Biyiasis að
hafa teflt 17 hraðskákir við Fischer og
tapað þeim öllum. Síðasta.tilraun í þá átt
að draga Fischer út úr híði sínu, var
framtak hollenska blaðsins De Tele-
graaf. Meiningin var að Fischer mætti
fremsta skákmanni Hollands, Jan Timm-
an í einvígi. Fischer hafnaði þessu ekki
alfarið, en krafðist 1.5 milljón dala (308
millj. ísl. krónaþog auk þess að hann
myndi tefla sem viðurkenndur heims-
meistari. Fischer telur heimsmeistaratitil
Karpovs markleysu eina, hann sé ein-
ungis skákmeistari FIDE, en því sent
stjórnað af kommúnistum.
Fyrir nokkru barst mér í hendur bók
júgóslavneska blaðamannsins Bjelicka
sem inniheldur allar markverðustu
skákirnar frá óopinberu heimsmeistara-
keppninni í hraðskák, sem haldin var í
Júgóslavíu árið 1970. Þá var nýlokið
keppni Sovétríkjanna og heimsliðsins,
þannig að allir fremstu skákmenn heims
voru þarna samankomnir. Þeirri snjöllu
hugmynd skaut þá upp, að nú væri cinstakt
tældfæri til að láta snillingana reyna með sér
í hraðskák. Hugmyndinni var óðara hrint í
framkvæmd, og tóku 12 skákmenn þátt í
keppninni. Fischer vann þarna yfir-
burðasigur, fékk 19 vinninga af 22 og
tapaði aðeins einni skák, fyrir Kortsnoj.
Næstir á eftir Fischer komu Tal 14'/i,
Kortsnjo 14,Petrosian 13!6ogBronstein
13. Fischer þótti sýna fádæma öryggi,
lék t.d. aldrei af sér manni, á meðan
aðrir keppendur „léku af sér heilu sett-
unum“, eins og Tal orðaði það. Af
skákum Fischers frá mótinu verður ekki
greint að hann sé hér að tefla hraðskákir,
heldur kappskákir með fullum umhugs-
unartíma. En lítum á tvö sýnishorn frá
keppninni:
Hvítur: V. Kortsnoj
Svartur: R. Fischer
Kóngsindversk vörn. 10. umferð.
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6
5. Be2 0-0 6. Rf3 e5 7. 0-0 Rc6 8. d5 Re7
9. Rd2 c5 (Þannig tefldi Fischer í 4.
einvígisskákinni gegn Larsen í Denver
1971. Framhaldið varð 10. Hbl Re8 11.
b4 b6 12. a4 f5 13. f3 Rf6. Þessa skák
vann Fischer eins og reyndar hinar 5.) .
10. a3 Re8 11. b4 b6 12. Hbl f5 13. f3 f4
14. a4 g515. a5 Hf6! (Hrókurinn skundar
rakleitt í kóngssóknina. Hvítur á í
nokkrum erfiðleikum með að ná mót-
spili, og næsti leikur drepur cndanlega
niður horfurnar á drottningarvæng.) 16.
bxc5? („Hræðileg mistök" sagði Korst-
snoj sjálfur um þennan leik.) 16. . bxc5
17. Rb3 Hg6 18. Bd2 Rf6 19. Khl g4 20.
fxg4 Rxg4 21. Hf3 (Meiri vörn fólst í 21.
Bf3.) 21. . Hh6 22. h3 Rg6 23. Kgl Rf6
24. Bel Rh8! (Slíkan leik hefðu fæstir
fundið í venjulegri kappskák, en Fischer
sá ýmislegt sem öðrum var hulið.) 25.
Hd3 Rf7 26. Bf3 Rg5 27. De2 Hg6 28.
Kfl (Ef 28. Kh2 Dd7 með hótuninni 29.
. Rxh3.)
28. . Rxh3! 29. gxh3 Bxh3+ 30. Kf2
Rg4+ 31. Bxg4Bsg4 og hvíturgafstupp.
Hvítur: R. Fischer
Svartur: B. Ivkov
Pirc vörn. 2. umferð.
1. e4 d6 2. d4 g6 3. Rf3 Bg7 4. c3 Rf6
5. Bd3 04) 6.04) Rc6 7. De2 e5 8. h3 Rh5 9.
Bg5 Bf6 10. Be3 (Það er svörtum í hag
að fá uppskifti á svörtu biskupunum, því
að f4 reiturinn yrði þá höfuðverkur hvíts.)
10.. Bg7 11. Rb-d2 He8 12. d5! (Mótspil
svart byggist á f7-f5, og því grípur hvítur
tækifærið þegar hrókurinn víkur sér til
e8.) 12. . Re7 13. c4 Rf4 14. Bxf4 exf4
15. Ha-bl Rf5 16. b4 a5 17. bxa5 Hxa5
Hxa5 18. Rb3 Ha8 19. c5 h620. Bb5 Bd7
21. a4 Bxb5 22. axb.S Rh4 23. cxd6 cxd6
24. Rxh4 Dxh4 25. Rd2 Bd426. Df3 Ha2
27. Rc4 Df6 28. Hb-dl Bc5.
(Eftir tíðindalitla líðsflutning^ hefur
svartur náð, að því er virðist álitlegri
stöðu. Næsti leikur hvíts leiðir annað í
Ijós.)
29. e5! dxe5 30. d6 e4 31. d7! Hd8 32.
Dxe4 f3 (Ef 32.... b6 33. Re5 De7 34.
Dd5 og vinnur.) 33. Dxf3 Dxf3 34. gxf3
Hc2 35. Ra5 Be7 36. Rxb7 Hc7 37. Rxd8
Bxd8 38. Hf-el Gefið.
Jóhann Öm Sigurjónsson.
Jóhann Örn Sigurjónsson p
skrifar um skák
ZAGA
áburðardreifarar
Tvær stærðir: 375 kg. og 450 kg.
Verð frá kr. 7.350.-
Til afgreiðslu strax.
jd! ARMÚLA11
!■! Felagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
W
Fósturheimili
óskast á stór-Reykjavíkursvæðinu fyrir 10 ára
gamlan dreng talsvert heyrnarskertan.
Nánari upplýsingar eru veittar á Félagsmálastofn-
un Reykjavíkurborgar sími 74544.
Til sölu
Massey Ferguson 70 ha með framhjóladrifi
árgerð 1982 ekinn 170 vinnustundir.
Ennfremur Dodge vörubíll smíðaár 1972, með
bensínvél.
Upplýsingar í síma 99-5659.