Tíminn - 10.04.1983, Blaðsíða 22

Tíminn - 10.04.1983, Blaðsíða 22
SUNNUDAGUR 1Q. APRÍL 1983 nútíminn Christopher Cross - Another Page/Steinar ■ Ég vissi hvorki haus né sporð á þessum kappa er ég fékk þcssa plötu í hendurnar annað en hann er banda- rískur og að þctta mun vera önnur plata hans til þessa. Er fyrsta lag hennar „No time for talk“ rann í gegnum græjurnar og inn og út um heiladingulinn voru fyrstu viðbrögðin að þetta væri í meira lagi bragðdauf tónlist, ekkert pepp í henni og þegar annað lagið byfjaði spurði bróðir minn: „Hefur hann ekki veriö í einhverri hljómsveit áður?“ Ég svaraði því til að það mætti andskotinn vita. „Er þetta ekki einn af Bee Gees bræðrunum, sá fimmti eða fjóröi?" spurði þá bróðir. „Tja hann hefur þessa svakaiegu „falsettu“ rödd ef ég man samlíking- una rétt“ kom svarið (alltaf gott að geta gripið til þessara gáfulegu orða við og við) Þriðja lagið rann svo í gegn meðan ég hripaði ofangreint niður og gott ef afgangurinn af plötunni gerði það ekki líka án þess að skilja nokkuð eftir. Fyrir þá sem hafa áhuga hefur Cross mjög háa, og kvenlega rödd P og leikur „melíó'* popp, áferðarfallegt en gersamlega átaka- og' áherslu- laust, gott að hafa það sem bakgrunn dinglandi við eyrum ef ntaður er að hugsa eða gera eitthvað allt annað. - FRI «1» °* ■ Igagnrýniumtónleika Vonbrigða' og Kikk á Borginni þann 20. mars fann ég síðarnefndu hljómsveitinni til foráttu að hún skyldi syngja á ensku og þar með ekki ná til áhorf- enda sem skyldi. Meðal annars sagði ég: „Það er annars synd með jafn- góða hljómsveit og Kikk að hún skuli ekki hafa neitt að segja íslendingum til syndanna eða neitt til að hrósa þeim.“ Trommuleikari Kikk, Sigurður Helgason, hringdi í mig og vildi vinsamlegast benda mér á að þessi ensku textár væru einungis vinnu- textar, hljómsveitin væri ekki nema fjögurra mánaða gömul og nú sem stendur vinnur hún að íslenskum textum. Stefnan var í upphafi, og er enn, að syngja allt á íslensku og var því svolítið kjaftshögg fyrir hljóm- sveitina að vera notuð sem dæmi um íslenskan/enskan bastarð, ef svo má að orði komast. Um leið og við biðjumst afsökunar á e.t.v. of harðyrtri grein, viljum við skora á Kikk að senda okkur texta til birtingar fyrst þeir eru orðnir að umtalsefni. - Bra 99Við höfum jukkað saman í fleiri ár” — Möðruvallamunkarnir líta í heimsókn til Nútímans ■ „Hljómsveitin sem slík var stofnuð í miðjum desember s.l. en það má segja að við höfum „jukkað“ saman í fleiri ár“ sagði Ingjaldur Arnþórsson söngvari Möðruvallamunkanna í samtali við Nú- tímann en skömmu fyrir helgina litu þeir inn í heimsókn til Nútímans, það er 75% þeirra, Hreinn Laufdal trommulcikari var víst veðurtepptur fyrir norðan. Með Ingjaldi voru þeir Rögnvaldur Rögn- valdsson bassaleikari og Sigfús Arnþórs- son píanóleikari. „Jukkið** sem átt er við hér að ofan á við þremenningana Ingjald, Hrein og Sigfús en þeir gerðu garðinn frægan í hfjómsveitum á borð við Flugfrakt og síðar Skarr, sú fyrrnefnda komst víst aldrei lengra en að senda fréttatilkynn- ingar í blöðin, sú síðarnefnda aftur á móti var þekkt „underground** sveit á Akureyri sem kom víst aldrei fram opinberlega. Rögnvaldur aftur á móti er þekktuj um allan Eyjafjörð fyrir þátttöku sína í hljómsveitinni Sýklunum. „Við vorum búnir að vera farand- verkamenn saman í fleiri ár og spiluðum samhliða því“ segja þeir og spyrja svo hver annan hvort það sé ekki eins sannferðug lýgi og hver önnur...“ Ég hef ekki verið það síðan 1979, hef verið með fasta vinnu síðan" segir Ingjaldur... „Það breytir engu segir félagi hans Sigfús. Þar sem undirritaður hefur ekki heyrt í þeim félögum áður spyr hann hvernig tónlist þeir séu með. „Þetta er svona keyrslurokk með dreifbýlisívafi, alls ekki gamaldags samt og hljómurinn nokkuð sérstakur þar sem við erum með rafmagnsflygil í staðinn fyrir gítar'* segja þeir. Það kemur ennfremur fram hjá þeim að um páskana hafa þeir unnið að áb0rðiðfýrirNótímann. löðruv aUamunkarnir, >ða750/°t>e,tta upptökum á fyrstu plötu sinni... „tókum 12 lög á 64 tímum og vöktum svo í sólarhring við að hljóðblanda þau. í það fóru einir 20 lítrar af kaffi og ein og hálf rúlla af skeinipappír'*. Upphaflega ákváðu þeir að gefa út plötuna sjálfir en nú hafa þeir „koksað“ á því og lýsa hér með eftir útgefenda... „Það yrði alfarið hans mál í hvaða formi þessi 12 lög, eða hluti þeirra, yrði gefinn út,“ segja þeir. Tónlistarlíf á Akureyri í spjallinu komum við inn á tónlistarlíf Akureyringa um þessar mundir. „Það má segja að þessi bylgja sem kom upp hér í Reykjavík fyrir einum tveimur árum, hafi skotið upp kollinum ári seinna fyrir norðan og nú er mikið í gangi þar, hljómsveitir eins og 1/2 7, Odds og Des, en alls eru um 8 hljóm- sveitir starfandi þar, fyrir utan ca. 7 sveitaballagrúppur, þetta er orðið gott partý“, segja þeir. Þeir eru sammála um það að engan veginn sé hægt að lifa af tónlistinni fyrir norðan, nema maður sé vinsæll á sveita- böllum, Sjallinn sé þá staðurinn sem hægt sé að skjótast inn á. Þeir félagar eiga eigin rútu og eru á henni hér fyrir sunnan, héldu upp á Skaga eftir spjallið, verða í Klúbbnum í kvöld, laugardagskvöld og jafnvel með eina aukatónleika á sunnudag ef ekki verður fært norður. Og að lokum, þar sem Tíminn er framsóknarblað vill Sigfús taka það fram að hann samdi eitt lag fyrir Upplyftingu, „Endurfundir'* en vill taka það skýrt fram að tónlist þeirra sjálfra er í engri líkingu við það. -FRI SATT- tónleikar í Klúbbnum ■ Helgartónleikar SATT í Klúbbn- um hófust í gærkvöldi er Baraflokkur- inn og Q4U tróðu þar upp en í kvöld, laugardagskvöld mun önnur Akureyr- arsveit koma þar fram, Möðruvalla- munkarnir, og er þctta í fyrsta sinn sem þeir leika hér fyrir sunnan. Sú sveit spilar. að sögn, keyrslurokk með dreifbýlispönktvafi en þeir hafa nýlok- ið upptökum fyrir plötu, eins og fram kemur í viðtali við þá hér á opnunni. Ásamt „munkunum" koma fram t kvöld Bergþóra Árnadóttir og Pálmi Gunnarsson og heiðursgestir kvöldsins verða hjónin Bjarni Hjartarson og Anna Flosadóttir frá Búðardal með frumsamið efni. Bjórkjallarinn er opinn að vanda og fjörið hefst rétt fyrir kl. 22. -FRI Metro ■ Nýtt fyrirtæki í þágu tónlistar- bransans hefur verið sett á stofn. Það heitir Metro Music og bak við það standa Hailvarður Þórsson og sam- starfsmaður, en hans nafn er á huldu. Helsti tilgangur þess er að standa fyrir tónleikahaldi og í undirbúningi er stórkonsert í Höllinni í maí þar sem erlend hljómsveit mun koma fram. Þegar hefur verið haft samband við Kraftwerk og Roxy Music sem ekki hafa séð sér fært að koma, en Hallvarð- ur sagðist vera bjartsýnn á að Siouxsie and the Banshces skryppu yfir. Auk þcssa er á döfinni í sömu herbúðum konsert með fsfirsku hljómsveitinni Grafík sem bráðlega mun gefa út sína aðra piötu. Sá konsert er ráðgerður seint í apríl á Borginni R _ The Fall undanfarið í Englandi og tvær plötur hljómsveitarinnar, Room to love og hljómleikaplatan Part of Ame- rica sem tekin var upp í ýmsum fylkjum Steits, »hafa sctið lengi á independant listunum. Bra Ebe ■ Fyrir nokkrum dögum var staddur TheFall spila hér 7. maí ■ Nú er búið að ganga frá heintsókn ensku hljómsveitarinnar The Fall þótt enn sé ekki ákveðið á hvaða stað þeir spila né hverjir spila með þeim. Hún mun aðeins halda eina tónleika hér sem vcrða að öllum líkindum laugar- daginn 7. maí. Mikið hefur kvcðið að hér á landi danskur náungi að nafni Ebe. Sá maður kom I þeim göfuga tilgangi að kynna sér íslenska rokk- tónlist fyrir danska tónlistartímaritið MM (Musik Magasin) og er Bkki sá fyrsti sem kemur í þeim erindagjörð- um. Þótt ekki hafi borið mikið á áhuga Skandinava á íslensku rokki er hann víst talsverður og jafnvel eru (slenskar plötur nokkuð algengar í plötubúðum á Norðurlöndum. En það er bara eitt próblem sem kemur líklega til með að hindra frekari samskipti íslands og Skandinavtu í þessu sambandi: þeir skandinavísku aðilar sem kaupa af okkur plötur vilja jafnan losa sig við eitthvað af þeirra útgáfu í staðinn, og það eigum við erfitt með að meðtaka. Tungumál þeirra hljóma einfaldlega ankannalega í okkar eyrum í fylgd með rokktónlist. Enskan er mun þægi- legri. Trúðurinn í Danaveldi ■ Trúðurinn, sem skipaður er Val. Gautasyni, Haraldi Karlssyni, Þór Stiefel og Sigurði Guðmundssyni, er nýkominn frá Danmörku þar sem hann hljóðritaði tónlist sína. Eftir bestu heimildum á að gefa hana út á kassettu. Undanfarið hefurTrúðurinn verið duglegur við að koma frani og tvímælalaust er kominn tími til að festa hann á band. Bra Bunnymen ■ Mikill áhugi er á Bretlandseyjum á tónleikum Echo and the Bunnymen sem hérlendis verða í júít, og ljóst er að hljómsveitin á þar harðan kjarna aðdáenda sem fullan hug hafa á að fylgja henni til fslands. Þannig hefur Nútíminn fregnað að þegar sé byrjað að hringja í kollega okkar á Mogganum, ssv. að biðja um að miðar séu fráteknir m.a. hringdi einn ákafur Skoti og vildi sinn miða og ekkert múður og þær fregnir berast frá umboðsmönnum Echo að mun meira sé spurt um tónleikana hér á íslandi hjá þeim en um aðra tónleika sem sveitin er með vfðsvegar um Bretland f sumar. -FRI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.