Tíminn - 10.04.1983, Blaðsíða 23

Tíminn - 10.04.1983, Blaðsíða 23
SUNNUDAGUR 1«. APRÍL 1983 ■ Þorvar í léttri sveiflu „ÞAB SEM LIGG- DR FYRIR ER AÐ KDMA UPP RANDI í NEW YORK” - rætt við Þorvar fyrrum söngvara og saxafónleikara Jonee Jonee ■ Ég var svo heppinn að rekast á Þorvar, fvrrum söngvara og saxafón- lcikara JONEE-JONEE, en hann er nú í smá leyfl frá skóla sem staðsettur er í New York City og ber nafnið Institute of Audio Research. Hvað sem það nú merkir þá er Þorvar í námi í hljóðupp- tökum og alls kyns tæknilegum brelli- brögðum sem almenningur vill helst ekki kannast við að hafa mikið vit á. Þar sem ég treysti mér ekki tU að spyrja gáfulegra spurninga í því sambandi lét ég Þorvar leysa frá skjóðunni. „Námið gengur einkum út á tæknilegu hliðina við hljómplötugerð, þ.e. allt frá því að koma mikrafónum fyrir í upp- tökuherbergi, síðan upptaka og mix og að síðustu skurður og pressun hljóm- plötunnar. Námið í þessum skóla tekur 1 ár, eða fjórar annir, en svo liggur beint við að fara í New York University, en í N.Y.U. er svo aftur tekið fyrir það sem snýr meira að hljómlistarmanni og útgefanda,. þ.e. hljóðfæraleikur, tónfræði, rekstur útgáfufyrirtækis o.s.frv. Allt í allt kemur þetta til með að taka 5-7 ár, eða allt eftir því hversu hátt markið er sett í síma- skránni: BA, MA. Ástæðan fyrir því að ég ákvað að fara út, var sú að mér fannst ekki nóg um fagmennsku í íslenskri hljómplötu- vinnslu, hérna er of mikið gert af því að læra af mistökum sem ekki er nógu gott, því það getur hæglega orsakað móður- sýkiskast og jafnvel uppgjöf hjá við- kvæmum sálum.“ En hvað heldurðu að þú komir til með að gera á næstunni í músik? „Það sem liggur fyrir á þessu ári er að koma upp bandi í New York, að vísu hefur ekki gengið neitt alltof vel að finna mannskap, en það er verið að leita á fullu núna. Að vísu leita ég ekki mikið á meðan ég hangi hérna heima, en ég var byrjaður að æfa með bassaleikara áður en ég kom heim og hann er að leita að mannskap sem gæti fittað inní það sent við höfum komið okkur saman um að gera." Og hvað í ósköpunum á þetta eftir að verða? „Sá tími er liðinn að viðskipti voru treyst með handabandi. Þess vegna vil ég ekki tala um það sem ég kem til með að gera á næstunni, því að það eru of miklar líkur. á því að vond augu sjái og skemmd eyru heyri. Sjálfur hlusta ég mjög lítið á músik annara, því að með því finnst mér ég eiga best með að einbeita mér' að mínu og vera sjálfum mér samkvæmur.“ Hvernig er að vera í NYC, er hún jafnspennandi og því fólki finnst sem gengur með I love New York skiltin? „New York er frábær borg, svo frama- lega, sem fjárráð eru næg, en fyrir námsmenn erfið, hrísgrjón og spaghetti. Það sem sennilega er hvað mest spenn- andi við borgina, er sennilega hversu ólíkum hlutum er blandað saman svo sem ólík þjóðarbrot og lifnaðarhættir frá öllum heimshornum, peningar og fátækt, geðveiki og góðmennska, alveg eins og í Glæsibæ „Allt á sama stað“ (Just name it)“ „Ég læt Andy Warhol um það:“ A: „It’s nice out, should we walk?“ B: „No“ A: „O.K.“ -bra ÍS'Í'ÍÍÍÍ! Fyiiitivggja í ferðamálum Þú getur byrjað strax í SLferðaveltunni SL-ferðaveltan gerir farþegum okkar kleift að búa nú þegar í haginn fyrir nœsta sumar, safna á auðveldan hátt álitlegum farareyri og skapa sér þannig ánœgjulegt sumarleyfi, laust við hvimleið- ar fjárhagsáhyggjur. SL-ferðaveltunni svipar til venjulegrar spariveltu, - nema í einu grundvallaratriði - sem einmitt gerir gœfumuninn. Líkt og í spariveltunni leggur þú mánaðarlega inn ákveðna upphœð á Ferðaveltureikning í Samvinnu- bankanum og fœrð upphœðina síðan endurgreidda í einu lagi að 3ja til 9 mánaða sparnaði loknum, ásamt láni frá bankanum jafnháu sparnaðarupphœð- inni. Þú hefur þannig tvöfalda upphœð til ráðstöíunar að ógleymdum vöxtunum. Sérstaða SL-ferðaveltunnar er siðan fólgin í því að þú greiðir lánið á 5-11 mánuðum, 2 mánuðum lengri tíma en venja er til. Samvinnuferðir-Landsýn fjármagnar framlengijigu endurgreiðslu tímans, hver greiðsla verður léttari og sumarleyíió greiðist upp án fyrirhafnar. Þökk sé SL-ferðaveltunni og fyrirhyggju þinni. Þú þarft ekki að hugsa þig tvisvar um, -tryggðu þér tvöfaldan ferðasjóð strax. Samvinnuferdir-Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 SL-ferðavelta - nýr lánamöguleiki SPARNAÐAR- TÍMABIL MÁNAÐAR- LEGUR SPARNAÐUR SPARNAÐUR1 LOK TÍMABILS LÁN FRÁ SAMVINNU- BANKA RÁÐSTÖFUN- ARFÉ MEÐ VÖXTUM MÁNAÐARLEG ENDURGR. ENDURGR. TÍMI 3 mánuðir 1300.00 2600.00 3900.00 3900.00 7800.00 11700.00 3900.00 7800.00 11700.00 7974.00 15948.00 23922.00 865.70 1731.50 2597.20 5 mánuðir 5 mánuðir 1300.00 2600.00 3900.00 6500.00 13000.00 19500.00 6500.00 13000.00 19500.00 13512.50 27040.00 40552.50 1066.20 2132.50 3198.70 7 mánuðir 7 mánuðir 1300.00 2600.00 3900.00 9100.00 18200.00 27300.00 9100.00 18200.00 27300.00 19233.00 38481.00 57729.00 1200.60 2401.20 3601.80 9 mánuðir 9 mánúðir 1300.00 2600.00 3900.00 11700.00 23400.00 35100.00 11700.00 23400.00 35100.00 25150.50 50301.00 75451.50 1305.50 2611.00 3916.50 11 mánúðir Gert er ráð fyrír 42% innlánsvöxtum og 42.964% útlánsvöxtum svo og lántökukostnaði (stimpil- og lántökugjaldi). Vaxtakjör eru háð ákvörðun Seðlabankans. Framangreind vaxtakjör gilda frá 1.11. 1982. o It Efni í bogaskemmur með eða án gafla Hentugar fyrir véla- og verkfærageymslur, heyhlöður, gripahús o.fl Klæðning galvaneseruð eða með innbrenndri Ijósgrænni málningu. Útvegað með stuttum fyrirvara. Útvegum ennfremur klæðningar á boga- skemmur galv. eða m/innbrenndri máln- ingu, fyrir þá sem þurfa að endurnýja eldri klæðningar FJALAR HF. SNOEI bogaskemma viö Sultartanga ÆgÍSgÖtU SÍmÍ 17975/76 Sveitastörf — Barnagæsia Duglegir og heilbrigðir krakkar, drengur 13 ára og stúlka 10 ára óska eftir að komast á góð sveitaheimili i sumar. Þarf ekki að vera á sama heimili. Vinsamlega hringið í síma 91-54862 á kvöldin. Umboðsmaður óskast í Garðabæ óskum eftir umboösmanni fyrir dreifingu blaðsins í Garðabæ. Vinsamlegast hafið samband við afgreiðslu blaðsins sími 86-300 Tíminn Síðumúla 15 * UMFERÐIN -VIÐ SJÁLF S______________r yU^FERDAR NÝIR KAUPENDUR HRINGIÐ* BLADID KEMURUMHÆL SÍMI 86300

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.