Tíminn - 01.05.1983, Page 2
2
\
SUNNUDAGUR 1. MAÍ1983
ISiIÍlliiLÍ
faralds
fæti á
Umsjém Agnes Bragadóttir
Austur-
risk
vika
Austurrískir
ferðamálafröm-
uðir kynna Týról
í máli, myndum,
matreiðslu og
listum á
Hótel Esju
■ Þessa viku er Austurríki statt
á íslandi ef svo má aö orði komast.
Hótelumboðið Stanzer og ýmis
ferðamálasamtök ásamt Austur-
rísku ríkisferðaskrifstofunni í
Danmörku halda í samvinnu við
Flugleiðir sölukynningu í Reykja-
vík og samtímis er Hótel Esja með
Austurríska viku þar sem sérstak-
lega er boðið upp á austurríska
rétti, auk þess sem austurríska
hljómsveitin „Die Ennstaler
Buben“ leika austurríska tónlist,
og að sjálfsögðu jóðla hljómsveit-
armeðlimir af hjartans list, eins og
austurrískum tónlistarmönnum er
einum lagið.
Eins og vænta má, er þessi
kynning tilkomin til þess að auka
ferðamannastreymi á milli íslands ”
og Austurríkis. Austurríkis-
mennirnir hafa gert ýmislegt til
þess að gera þessa kynningu sem
glæsilegasta úr garði - m.a. er
hingað kominn þekktur mat-
reiðslumeistari frá Áusturríki, sem
mun annast matargerðina á Hótel l
Esju, en það er Willi Thaler, og I
þar að auki verður sýning á mál-
■ Á kynningunni var einnig staddur
ræðismaður Austurríkis á Islandi, Lúð-
vík Zímsen.
Tímamynd - G.E.
verkum hins þekkta listmálara frá
Týról, Adolfs Luchner, en hann
hefur unnið til fjölda verðlauna á
listamannsferli sínum og haldið
fjölmargar einkasýningar í Aust-
urríki, Sviss, Ítalíu og Þýskalandi.
Sýningin á verkum hans verður á
Hótel Esju í tengslum við Austur-
rísku vikuna.
Ef lýsa á því sem einkennir verk
Luchner í einni setningu, þá má að
líkindum segja að það sem ein-
kenni verk hans sé aðdáun hans á
náttúrunni og mannverunni.
Auðvitað er það Austurríki í
heild sinni sem austurrísku ferða-
málafrömuðirnir vilja kynna okkur
íslendingum, en leggja þó einkum
áherslu á fögur, lítil Týrólþorp,
þar sem njóta má sumarsins í blíðu
og fegurð og vetraríþróttanna,
þegar vetur konungur er við völd.
Benda þeir sérstaklega á þorp eins
og Aich og Assach sem liggja í
i fm
■ Þetta er eitt sýnishorn af verkum Lúchner, sem nú sýnir úrval verka sinna á Hótel
Esju.
■ Fcgurðin íTýról fer ekkert á milli
mála, og skiptir þá ekki máli hvaða árstíð
á í hlut, því hver þeirra um sig á sinn
ákveðna sjarma.
Dachstein-Tauern, og veit um-
sjónarmaður þessarar síðu af eigin
raun, að þar er óumræðilega
fallegt.
Þar að auki benda þeir á þorpin
Schaldming og Rorhmoos, sem
einnig liggja í Dachstein-Tauern,
og er sömu sögu að segja af
þessum þorpum - þau eru paradís
á sínu sviði, hvort sem um sumar
eða vetur er að ræða. Á sumrin
nýtur þú útivistar í fögrum
skógum, skoðar fallegt umhverfi,
ferð í skoðunarferðir um nágrenni,
en á veturna geysist þú um hliðar
týrólsku alpanna á skíðum, Á
báðum þessum svæðum er ótölu-
legur fjöldi skíðalyftna og til marks
um það má geta þess að skíðasvæð-
ið Schaldming-Rorhmoos getur
flutt 25 þúsund manns í lyftum eða
strengjavögnum á klukkustund.
En það segir að líkindum meira
að láta myndirnar tala sínu máli.
Sleðaferðir og hvers kyns vetrarleikir eru vinsælir í þessum þorpum á veturna,
þannig að það er fleira sem fólk gerir sér til skemmtunar en renna á skíðum.
■ Hljómsveitin „Die Ennsthaler Buben“ sýndi fréttamönnum að sjálfsögðu listir sínar er Austurríska vikan var kynnt.
Tímamynd - G.E.