Tíminn - 01.05.1983, Blaðsíða 19
SUNNUDAGUR 1. MAI1983
19
bandi við fugla, en jafnvel raunsæustu
fuglafræðingar ftnna ekki maklegri orð,
þegar þeir hafa haft tækifæri til að
fylgjast með háttum silfurhegrans. Á
vorin koma þeir í flokkum til Louisiana
í Bandaríkjunum frá Suður-Ameríku,
þar sem þeir hafa haft vetrardvöl. Þegar
þeir nálgast ákvörðunarstað skiptist
flokkurinn í pör og hvert par fer þangað
sem það ætlar sér að reisa bú. En það er
ekki ennþá orðið tímabært að hlaða
niður ómegð. Fyrst þurfa þau að eiga
sína hveitibrauðsdaga, og hamingja
þeirra og ástarsæla er svo mikil, að
næstum gengur yfir mannlegan skilning.
Dögum saman eru hegrarnir tveir
óaðskiljanlegir. Klukkustundum saman
sitja þau á sama tré án þess að hreyfa sig.
Kvenfuglinn sjtur einni grein lægra, svo
að hún geti hallað höfðinu að síðu bónda
síns. En öðru hverju lyfta báðir fuglarnir
vængjunum og vefja þeim hvorum um
annan og heyrast þá frá þeim ástarhljóð.
Hegrinn er svo hálslangur að hann getur
vafið hálsinunt utan um háls unnustunn-
ar og þannig sitja fuglarnir langtímum
saman í faðmlögum.
Síðan taka fuglarnir hver um sig
fjaðrir hins í gogginn og strjúka þær blítt
og gætilega og „kyssa“ þær endilangar.
Þegar þessum atlotum lýkur sitja þeir
lengi í rólegri, hljóðlátri hamingju. Hlið
við hlið sitja elskendurnir, og konan'
hallar höfðinu að brjósti manns síns.
Svona getur heil vika liðið.
Ekki bara fagurt útlit
Oft sést það hjá mönnunum að annað
ræður meira en fagurt útlit - og á það ekki
síst við ástina með öllum hennar afbrigð-
um. Það ereinsmeðástina í dýraríkinu.
Fyrir nokkrum árum var ung sjimp-
ansayrtja í dýragarðinum í Lundúnum.
Hún hét Bóbó. Það var fögur skepna og
stjórnendur dýragarðsins lögðu sig fram
til að finna henni verðugan maka. Fyrst
var hún látin kynnast öllum þeim sjimp-
ansöpum sem þar áttu heima, einum af
öðrum, en hún leit ekki við þeim. Þá
voru fengnir sjimpansar frá öðrum dýra-
görðum vísvegar um England og frá
útlöndum. En allt kom fyrir ekki. Bóbó
hafði alltaf sama íshjartað. Loksins var
dýragarðurinn í Bristol látinn senda
sjimpansinn sinn. Það var aldraður
ýstrubelgur, sem Kókó hét, snjáður á
Iagðinn og ilia hærður á höfði því að þar
hafði hann hlægilega hárleppa. En samt
sem áður varð þarna ást við fyrstu sýn.
Strax og Kókó var kominn inn í búrið til
Bóbó leiftraði blik í augum hennar og
ekki liðu margar mínútur þar til þau
fellust í faðma. Árið eftir bar Bóbó
frumburð sinn í fangi, indælt smábarn og
þar að auki fyrsta sjimpansinn sem
fæddist í dýragarðinum í Lundúnum.
Auglýsing um aðalskoðun bifreiða
í lögsagnarumdæmi Keflavíkur,
Njarðvíkur, Grindavíkur og Gull-
bringusýslu fyrir árið 1983.
Mánudaginn 2. maí Ö-1801-0-1900
þriðjudaginn 3. maí Ö-1901 -Ö-2000
miðvikudaginn 4.maí Ö-2001 -Ö-2100
fimmtudaginn 5. maí Ö-2101 -Ö-2200
föstudaginn 6. maí Ö-2201 -Ö-2300
mánudaginn 9.maí Ö-2301 -Ö-2400
þriðjudaginn 10. maí Ö-2401 -Ö-2500
miðvikudaginn 11. maí Ö-2501 -Ö-2600
föstudaginn 13.maí Ö-2501 -Ö-2700
mánudaginn 16. maí Ö-2701 -Ö-2800
þriðjudaginn 17. maí Ö-2801 -Ö-2900
miðvikudaginn 18.maí Ö-2901 -Ö-3000
fimmtudaginn 19. maí Ö-3001 -Ö-3100
föstudaginn 20. maí Ö-3101 -Ö-3200
þriðjudaginn 24. maí Ö-3201 -Ö-3300
miðvikudaginn 25. maí Ö-3301 -Ö-3400
fimmtudaginn 26. maí Ö-3401 -Ö-3500
föstudaginn 27.maí Ö-3501 -Ö-3600
mánudaginn 30. maí Ö-3601 -Ö-3700
þriðjudaginn 31.maí Ö-3701 -Ö-3800
Skoðunin fer fram aö Iðavöllum 4, Keflavík milli kl. 8-12
og 13-16.
A sama stað og tíma fer fram aðalskoðun annarra skráningarskyldra ökutækja s.s. bifhjóla og á eftirfarandi
einnig við um umráðamenn þeirra.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram
fullgild ökuskírteini Framvísa skal og kvittun fyrir
greiðslu bifreiðagjalda og gildri ábyrgðartryggingu.
í skráningarskírteini bifreiðarinnar skal vera árit- un um að aöalljós hennar hafi verið stillt eftir 31. júlí
1982.
Vanrækti einhver að færa bifreið sína til skoðunar
á auglýstum tíma, verður hann látinn sæta ábyrgð að lögum og bifreiðin tekin úr umferð, hvar sem til
hennar næst. 20. apríi
Lögreglustjórinn í Keflavík
Njarðvík, Grindavík og
•» Gullbringusýslu
ImmiIiiiIU Ej
Mest seldu áburðardreifararnir hér á landi um árabi I
Éi
Bögballe 600 fyrir tilbúinn áburð
DREIFIBÚNAÐUR ÚR RÝÐFRÍU STÁLI Nákvæm stillanleg dreifing. Auðveld stilling. Örugg tenging. Lítið viðhald. Sömu varahlutir og í eldri gerðir. Dönsk gæðaframleiðsla.
^ VÉIADEILD SAMBANDSINS BÚVÉLAR Ármúla 3 Reykjavik S. 38900
CHF
Mikil gæði á ótrúlegu verði
Já þú færö mikið fyrir krónuna þegar þú kaupir SONY CHF kassettur.
Og viö fullyröum aö gæöin eru langt fyrir ofan hiö hagstæöa verö:
JAPIS hf.
BRAUTARHOLTI 2 - SÍMI 27133
REYKJAVIK: Japis, Hljóöfærahús Reykjavíkur, Grammiö, Stuð, SS - Hlemmi, Hagkaup,
Gallerý. KÓPAVOGUR: Tónborg. HAFNARFJÖRÐUR: Kaupfélagiö, Músík og Sport.
KEFLAVÍK: Studeo. AKUREYRI: Kaupangur, Tónabúöin. VESTMANNAEYJAR: Músíkog
Myndir. NESKAUPSTAÐUR: Bókaverslun Höskuldar Stefánssonar. HÚSAVÍK: Bóka-
verslun Þórarins Stefánssonar. REYÐARFJÖRÐUR: Kaupfélagiö. SEYÐISFJÖRÐUR:
Kaupfélagið. ÍSAFJÖRÐUR: Eplið. BOLUNGARVÍK: Einar Guöfinnsson. AKRANES:
Studeoval, Bókaverslun Andrésar Níelssonar. SAUÐÁRKRÓKUR: Radio og Sjónvarps-
þjónustan. HELLA: Mosfell. VOPNAFJÖRÐUR: Bókaverslun Steingríms Sæmundssonar.
SELFOSS: Radio og Sjónvarpsþjónustan.