Tíminn - 30.07.1983, Side 7
LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1983
umsjón: B.St. og K.L.
Upp komast
svik um síðir
■ í 24 ár þóttist Samar La-
oag, sem býr í Sendai í Japan,
vera lögrcgluþjónn. Hann
gekk svo röskiega fram í aö
sekta vegfarendur fyrir of hrað-
an akstur, aö meö tímanum
varð hann vellauöugur. Til
skýringar á velmegun sinni fyr-
ir vinum og vandamönnum,
hækkaði hann sig í tign, og þar
með launum, á 6 ára fresti.
En upp komast svik um
síðir. Samar varð hált á því,
þegar eitt fórnarlamba hans
reyndist vera óeinkennis-
klæddur lögregluþjónn, sem
spurði Samar á hvaða lögreglu-
stöð hann ynni. Samar kvaðst
vera yfirmaður tiltekinnar lög-
reglustöðvar, sem rcyndist ein-
mitt vera vinnustaður fómar-
lamhsins.
Laoag var dæmdur til fjög-
urra ára fangelsis.
■ Hér fylgist heimsmeistarinn í bréfskák, Tonu Oim með skák
á milli L. Pjarnpuu frá Eistlandi og E. Epstein frá Lettlandi.
Heimsmeistari
í bréfskák
■ Það eru ekki allir, sem vita
að til er annar heimsmeistari í
skák en Anatolí Karvop, sem
einnig er af sovésku þjóðerni.
Tonu Oim er 41 árs og býr í
Tallinn, höfuðborg Eistlands.
Hann er heimsmeistari í
bréfskák.
Tonu Oim er alþjóðlegur
stórmeistari og hcfur lokið
námi við Iþróttaháskólann í
Moskvu. Nú er hann þjálfari
við íþróttasamband Eistlands
og skák er bæði starf hans og
tómstundaiðja.
Heimsmeistaramótiö í bréf-
skák tók fimm og hálft ár. Á
þessum tíma vann Eistlending-
urinn 10 skákir, gerði sex jafn-
tefli og tapaði engri skák og
tryggði sér titilinn áður en
keppni var lokiö.
Danmörku en þar var ég svo
heppinn að komast í
töframannaklúbb einn góðan.
Auðvitað er dýrt að standa í
þessu en mér hefur nú einhvern
veginn tekist að öngla saman
fyrir áhöldum. Það kemur sér
því vel að fá svona aukapening
þegarégerað sýna“,sagði Hjalli.
Hefur verið nóg að gera hjá
þér?
„ Já og aldrei meira en á þessu
ári. Ég hef verið í Hollywood og
félagsmiðstöðvunum. Svo fór ég
á Litla-Hraun og þar var mjög
gaman að sýna: Það má geta þess
að Baldur fer alltaf með mér
þegar ég er að sýna. Það er jú 20
ára aldurstakmark í „Holly-
wood", sagði Hjalli.
Hvað finnst vinum þtnum um
velgengni þína?
„Þeir eru alls ekkert öfunds-
sjúkir, ef það er það sem þú
meinar. Þeim finnst baragaman
að þessu, held ég. Ég sýni þeim
líka oft það sem ég er að æfa.
Töfrabrögð eru bara æfing og
afturæfing. Égæfi migáhverjum
degi helst og fer þá í gegnum allt
prógrammið sem ég sýni. Nú er
ég að æfa upp nýtt prógramm og
hyggst notadúfurdálítiðmikið."
Kemst nokkuð annað að hjá
þér en töfrabrögðin?
„Þau taka náttúrlega mikinn
tíma en einnig er ég að læra á
gítar, var í Gítarskóla Ólafs
Gauks, en nú í vetur fer ég í
Tónskóla Sigursveins", svaraði
Hjalli,
Hyggstu einbcita sér að töfra-
brögðunum í framtíðinni?
„Jú ætli þaö ekki. Stefnan er
að verða atvinnutöframaður",
svaraði þessi ungi töframaðurog
sýndi síðan blaðamanni og
ljósmyndara nokkur brögð og
það fór ekki á milli mála að
þarna er gífurlegt efni á ferðinni.
-Jól.
Wmmm 7
■ Jablonski forseti að lesa upp í þinginu tilkynningu um afnám herlaga
Övissa ríkir í Póllandi
eftir afnám herlaganna
Enn ekki séð hver afstaða Samstöðu verður
■ Lech Walesa við veiðar ásamt syni sínum, en veiðar eru helzta
tómstundagaman hans.
■ ÞVI HAFÐI verið spáð eftir
heimsókn Jóhannesar Páls páfa
til Póllands, að pólska stjórnin
myndi lýsa yfir afnámi herlaga
ekki síðar en á þjóðhátíðardag-
inn, sem er 22. júlí. Þessar spár
reyndust réttar. Daginn fyrir
þjóðhátíðardaginn eða 21. júlí
tilkynnti forseti Pólands, Henryk
Jablonski á þingfundi, að herlög-
in væru felld úr gildi.
Það á hins vegar eftir að sýna
sig, hvort afnám þeirra er sýnd
veiði, en ekki gefin. Áður en
tilkynningin um afnám þeirra
var lesin upp í þinginu, hafði það
samþykkt; breytingar á stjórn-
skipunarlögum, sem veita ríkis-
stjórninni víðtækt vald til að
bæla niður hvers konar uppþot
eða banna félagsskap, ef það cr
talið nauðsynlegt vegna öryggis
ríkisins.
Ríkisstjórnin getur því gripið
til víðtækra öryggisráðstafana,
án þess að beita herlögum. Að
því leyti er vald hennar víðtæk-
ara en fyrir 13. desember 1981,
þegar herlög voru látin taka
gildi.
Það gefur þó nokkrar vonir
um, að þessi breyting reynist
meira en orðin tóm, að stjórnin
hefur reynt að hafa kirkjuna
með í ráðum. Nokkurt merki um
þetta er það, að hluti frumvarps-
ins um breytingar á stjómskipun-
arlögunum var dreginn til baka
til frekari athugunar og var sagt,
að það væri gert aðósk kirkjunn-
ar. Sá hluti frumvarpsins var til
afgreiðslu hjá þinginu á fimmtu-
daginn. Það bcndir hins vegar
ekki til, að fullt samkomulag
hafi náðst við kirkjuna, að þing-
inu barst á miðvikudaginn bréf
frá öllum biskupum landsins,
þar sem mótmælt var ýmsum
þeirra breytinga, sem hafa verið
gerðar eða voru fyrirhugaðar.
ÞAÐ ÞYKIR heldur góðs viti.
að jafnframt afnámi herlaga og
breytinganna á stjórnskipunar-
lögunum. hefur þingið samþykkt
heimildarlög, sem heimila að
láta lausa þá menn, sem hafa
verið fangelsaðir af pólitískum
ástæðum meðan herlögin voru í
gildi.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Tadeusz Skora dómsmálaráð-
herra gaf nýlega á blaðamanna-
fundi, mun koma til athugunar
að sleppa alls um 800 manns úr
haldi, en ekki er þó víst, að allir
þeirra verði látnir iausir.
Þessir menn skiptast í þrjá
hópa.
í fyrsta hópnum, sem í eru um
400 manns, eru þeir, sem hafa
verið settir í varðhald en mál
hefur ekki verið höfðað gegn
eða þeir bíða dóms.
I öðrum hópnum, sem telur
um 150 manns, eru þeir, sem
hafa veirð dæmdir en hafa enn
ekki fullnægt dómnum.
í þriðja hópnum eru þeir, sem
hafa verið dæmdir og eru nú að
fullnægja dómunum.
Dómsmálaráðherrann taldi
líklegt, að 60 af þessum 190
mönnurn yrði ekki sleppt, en
skilja mátti á orðum hans að
hinir yrðu látnir lausir.
Engum mun verða sleppt fyrr
en dómstóll hefur athugað mála-
vexti og viðkomandi hefur
undirritað loforð um, að hann
muni ekki gerast brotlegur við
ríkið.
Stefnt verður að því að sleppa
öllum, sem eru yngri en 21 árs.
Þá verður konum sleppt. Einnig
mun sleppt þeim, sem hafa fengið
skemmri fangelsisdóm en þrjú
ár. Hjá þeim, sem hafa verið
dæmdir í lengri fangelsisvist.
verður tíminn styttur um
helming.
Meðal þeirra, sem ekki verður
sleppt úr haldi fyrst um sinn,
munu vera sjö leiðtogar Sam-
stöðu og fimm leiðtogar Kor-
samtakanna svonefndu. Þeireru
bornir sökum fyrir glæpsamlega
verknaði, m.a. óhróður um vin-
veitt ríki. Þar mun m.a. átt við
gagnrýni á stjórnarfar Sovétríkj-
anna.
Vcrulegur ágreiningur er um
það ntilli ríkisstjórnarinnar ann-
ars vcgar og kirkjunnar og fylg-
ismanna Samstöðu hins vegar,
hversu margir hafi verið hand-
teknir af pólitískum ástæðum.
ÝMSAR breytingar hafa verið
boðaðar, sem eiga að gefa til
kynna, að herlög hafi verið fclld
úr gildi. Þannig verður hömlum
Iétt af ferðalögum innanlands og
gert auðveldara að ferðast til
útlanda. Þar munu þó gjaldeyris-
hömlur standa áfram í veginum,
nema ferðazt sé til austantjalds-
landa.
Það mun mikið fara eftir við-
brögðum kirkjunnar og fylgis-
mönnum Samstöðu, hvort afnám
herlaganna leiðir í reynd til auk-
ins frjálsræðjs. Vafalítið mun
kirkjan gera sitt bezta til að gera
ástandið friðvænlegra og stuðla
þannig að auknu frjálsræði.
Walesa hefur þegar lýst sig
andstæðan nýju öryggislögunufn
og hefur boðað baráttu gegn
þeim á friðsamlegum grundvelli.
Þá hefur hann hvatt til þess, að
baráttunni fyrir cndurreisn Sam-
stöðu verði haldið áfram.
Frá þeim foringjum Sam-
stöðu, sem farið hafa huldu
höfði, hefur það frétzt, að þeir
ætli að bera saman ráð sín í
byrjun næsta mánaðar, en ýmis-
legt bendir til, að þeir hafi meiri
samráð við kirkjuna en Walesa.
Það er talið, að þeir vilji sjá,
hvernig ríkisstjórnin stendur við
fyrirheit sín um náðun fanga áður
en þeir taka endanlega ákvörð-
un.
Það getur skipt miklu um af-
stöðu þeirra, hvaða föngum
verður haldið áfram. Mcðal ann-
ars munu þeir leggja áherzlu á.
að félagsmönnum hinna svo-
nefndu Kor-samtaka, sem hafa
verið í haldi, verði sleppt.
Sérstaklega gildir þetta þó um
formann samtakanna, Jacek
Kuron. Hann er sagður heilsu-
veill og þurfa á spítalavist að
halda.
Þá munu þeir vilja fá úr því
skorið, hvort þeim foringjum
Samstöðu, sem hafa farið huldu
höfði, verði refsað, ef þeir gefa
sig fram.
Stjórnin mun telja sér erfitt að
náða meðlimi Kor-samtakanna,
því að þau hafa gagnrýnt stjórn-
arfar Sovétríkjanna og hafa Sov-
étmenn því haft horn í síðu
þeirra.
Það hafði verið gefið í skyn af
hálfu vestrænna ríkja, að þau
myndu aflétta viðskiptaþvingun-
um, sem þau hafa beitt Pólverja,
ef herlög væru felld úr gildi,
enda voru þessar þvinganir tekn-
ar upp til að mótmæla þeim.
Þessar þvinganir voruþó ekki
verulegar, nema af hálfu Banda-
ríkjanna.
Reagan forseti hefur tilkynnt,
að þvingununum verði ekki af-
létt að sinni, heldur beðið átekta.
Flestum fréttaskýrendum kemur
þó saman um, að þessar þvingan-
ir hafi gert meira ógagn en gagn,
því að pólska stjórnin hafi kennt
þeim um margt það, sem miður
hafi farið. Þess vegna væri heppi-
iegt að aflétta þeim sem fyrst, en
vel megi tengja það einhverju
öðru cn afnámi herlaganna.
Þórarinn
Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar