Tíminn - 30.07.1983, Page 9
LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ1983 '
9
VÍÐ — UMFERÐIN
— eftir Unni Stefánsdóttur, fóstru
■ Að undanförnu hef ég oft
velt fyrir mér þeirri umferðar-
menningu sem hér ríkir. Okkur
bflstjórum er ætlað að aka eftir
ákveðnum umferðarreglum s.s.
á réttum hraða, stöðva við rautt
Ijós og leggja bflum á ákveðnum
stöðum o.m.fl. Gangandi vegfar-
endum er einnig ætlað að fara
eftir ákveðnum reglum s.s. að
ganga í kantinum, þar sem ekki
eru gangbrautir, en á gangbraut-
um þegar þær eru til staðar,
ganga yfir gatnamót á grænu
ljósi o.s.frv. Hvernig gengur
þetta svo allt hjá okkur?
VERÐBÓLGAN
STRESSAR OKKUR
Ég er hrædd um að stjórnmálamenn
hafi ekki gert sér grein fyrir því, að ein
ástæðan fyrir slæmri umferðarmenningu
er e.t.v. verðbólgan. Oft er talað um að
kuldinn og erfið skilyrði stuðli að aukn-
um umferðaróhöppum, en fleira kemur
til. Fólk virðist alltaf vera að flýta sér og
það er líka eins gott að kaupa fiskinn,
brauðið og bensínið í dag, því það
hækkar trúlega á morgun og mcnn verða
að komast á alla þessa staði fyrir kl.
18.00 í dag, svo menn tapi ekki. Þannig
held ég að stór hluti umferðarslysa starfi
beint eða óbeint af því ástandi sem í
þjóðfélaginu ríkir, einkum þó bein af-
leiðing verðbólgunnar.
ELDRA FÓLKIÐ
Oft hlýtur að vera erfitt að vera gamall
og þurfa að fylgjast með hraðri umferð
t.d. á Reykjavíkursvæðinu. Eldra fólkið
er oft mjög varkátt, en það eru margar
hættur allt í kring. Ég held að meira
þurfi að gera af því að leiðbeina og fræða
eldra fólkið um það hvernig best sé að
haga sér í umferðinni t.d. þá sem
gangandi eru. Þaðer varla hægt að ætlast
til þess að fólk sem er komið á áttræði-
saldur fylgist með öllum umferðarregl-
um. Margt af þessu fólki man þá tíð, er
fyrstu bílarnir óku um óslétta vegi.
Fjöldi ökutækja í umferðinni hefur
margþúsundfaldast, frá því þetta fólk
var á unglingsárunum.
Eftirfarandi frásögn sannar e.t.v. best
hvaða hug fólk hafði til bifreiða í
upphafi 20 aldar. Maður ók á bifreið
sinni og sá hvar kom gangandi maður
með pokaskjatta á bakinu. „Má bjóða
þér far“, sagði bílstjórinn. „Nei, éger að
flýta mér“. sagði sá gangandi.
Mundi ekki fleira eldra fólk ferðast
óhrætt í umferðinni í dag, ef það fengi
markvissa fræðslu og leiðbeiningu um
þessi mál.?
BÖRNIN í
UMFERÐINNI
Oft virðist manni sem yngstu vegfar-
endurnir séu einna varkárastir í umferð-
inni. Af hverju skyldi það nú vera?
E.t.v. vegna þess að börn á öllu landinu
eru í Umferðarskólanum ungir vegfar-
endur, sem er starfræktur á vegum
Umferðarráðs, af miklum myndarskap.
Ég held að sú fræðsla, sem börnin fá í
þeim skóla beri ótvíræðan árangur, sér-
staklega ef foreldrar fylgja fræðslunni
eftir heima. Einnig fer fræðsla um um-
ferðarmál fram á dagvistarheimilum og
f*
í skólum, en hún er mismikil, fer eftir
því hvaða áhersla er lögð á þennan þátt
á hverjum stað. Ég hef að undanförnu
átt þess kost að vera með fimm og sex
ára börnum og ræða við þau um umferð-
arreglur og það er ánægjulegt hvað þau
eru áhugasöm um þessi efni. Ef þau eru
eins dugleg að fara eftir reglunum, eins
og þau virðast skynja þær, þá þurfum við
ekki að kvíða framtíðinni í umferðinni
fyrir þeirra hönd.
ENDURNÝJUN
ÖKULEYFIS
Á tíu ára fresti endurnýja ökumenn
ökuleyfi sín. Við það tækifæri þarf
viðkomandi að sýna gamla skírteinið,
augnvottorð, sakavottorð og leggja fram
tvær nýjar myndir af sér. En er þetta nú
nægjanlegt? sagði: „Ég hitti mann um
daginn, sem er búinn að hafa ökuleyfi í
18 ár og aka bifreið í 14 ár, hann sagði:
Ég verð að viðurkenna, að ég veit ekki
hvað öll umferðarmerkin þýða“. E.t.v.
eru fleiri ökumenn en þessi annars ágæti
bílstjóri, sem ekki hafa fylgst nægjanlega
vel með þýðingu hinna ýmsu merkja og
merkinga í umferðinni, sem komið hafa
á undanförnum árum.
Ágætu yfirmenn umferðarmála, hafið
þið leitt hugann að því að endurþjálfun
bílstjóra (einhverskonar próf) á 10 ára
fresti er e.t.v. það sem koma þarf hið
fyrsta.
KONUR OG
UMFERÐA-
MÁLAFUNDIR
Klúbbarnir öruggur akstur hafa unnið
mikið og þarft starf á undanförnum
árum og lagt sitt að mörkum til að bæta
umferðarmenningu okkar. Oft heyrir
maður fundi klúbbanna auglýsta í út-
varpi, en aldrei hef ég heyrt konu
auglýsta sem frummælanda á þessum
fundum. Ekki veit ég betur en að konur
séu um helmingur bílstjóra í landinu og
ekki hef ég trú á öðru en að þær hafi
sitthvað fram að færa um þessi mál eins
og karlmenn. Eru þær kannski svona
hógværar, að þeim finnst ágætt'að láta
karlmennina um þessa fræðslu eða hafa
þær gleymst?
NORRÆNT UMFERÐ-
ARÖRYGGISÁR
Þetta ár er helgað umferðinni á
Norðurlöndum og er það vel. Margt
hefur verið gert á liðnum árum til að
bæta umferðarmenningu okkar. En bet-
ur má ef duga skal, segir máltækið. Ég
vona að þetta Umferðaröryggisár verði
sem flestum einstaklingum og félögum
hvatning til að gera stórátak í þessum
málunt. Það er marg sannað, að hægt er
að gera stóra hluti, ef fólk vill og leggur
sig fram. STÖNDUM ÖLL SAMAN,
BÆTUM UMFERÐARMENNING-
UNA.
Unnur Stefánsdóttir
fóstra
Gjaldeyrisskatturinn
frá sjónarmidi ferdamála
— eftir Heimi Hannesson, formann Ferðamálaráds íslands
■ „Það er skylda
stjórnvalda að við-
halda aldrei neinu því
skipulagi eða laga-
setningum, sem
stríða gegn sanngirnis
vitund mikils meiri
hluta borgaranna“.
Það er skylda stjórnvalda á hverjum
tíma að vega og meta, hvort breyttar
forsendur, nýjar aðstæður eða önnur
atriði gera það að verkum, að eðlilegt
má telja að endurmeta gildandi lög. Það
er ekki síður skylda stjórnvalda að meta
það hverju sinni, hvort það sé einhver
sjálfsagður hlutur, að skattar eða önnur
gjöld, sem lögð eru á borgarana, haldist
óbreyttir án þess að tillit sé tckið til
breyttra aðstæðna eða nýrra sjónarmiða.
Ef til vill er þó ein skylda hvað ríkust í
þessum cfnum, en það er sú skylda allra
stjórnvalda að viðhalda aldrei neinu því
skipulagi, hvort sem það er lagasetning
eða skattlagning, sem stríðir gegn skýrri
sanngirnisvitund mikils meiri hluta borg-
aranna.
Að undanförnu hafa farið fram tölu-
verðar opinberar umræður um svokall-
aðan gjaldeyrisskatt á ferðamannagjald-
eyri, og hefur sú skoðun komið víða
fram, m.a. af hálfu Ferðamálaráðs
íslands, svo og af hálfu fjölmiðla, að timi
sé til þess kominn að afnema þennan
skatt, eða a.m.k. minnka hann verulega.
Hefur fjármálaráðherra gefið til kynna,
að hann kynni að vera fús til endurmats
í þessum efnum, og er þess að vænta, að
afstaða hans og ríkisstjórnarinnar í heild
skýrist hið fyrsta. Það er auðvitað öllum
ábyrgum mönnum ljóst, að sameigin-
legur sjóður landsmanna þarf á sínu að
halda og eftirgjöf skatta í einhverju
tilviki þýðir í flestum tilvikum einhverja
tekjuöflun á móti í einu eða öðru formi
- nema raunveruiegur sparnaður og
niðurskurður komi til. Allt er þetta
nokkuð reikningsdæmi. Það verður þó
að telja, að mörg rök hnígi að því, að
kanna beri í fullri alvöru, hvort ekki eru
tök á því að fella þennan skatt niður, og
ýmis rök hníga ennfremur að því, að
niðurfelling þessa skatts myndi í ákveðn-
um tilvikum koma ríkissjóði beinlínis til
góða. Til upplýsinga má geta þess, að
tekjur ríkissjóðs af þessum skatti voru á
árinu 1981 37,3 millj. króna; á s.l. ári
voru þær áætlaðar 47 millj. króna, en á
þessu ári eru þær áætlaðar 75 millj.
króna.
Hiklaust má telja, að eftirfarandi
atriði mæli með því, að þessi skattur
verði felldur niður:
1. Frekar en hitt, leggst þessi skattur á
þá, sem minna mega sín í þjóðfélag-
inu. Aðilar í viðskiptalífmu og embættis-
menn fá greidda dagpeninga í ferða-
lögum, a.m. k. í viðskipta- og embættis-
erindum, og kemur skatturinn því
ekki við þá í þeim tilvikum.
2. Fjölmargar alþjóðasamþvkktir, sem
ísland er bundið af, hvetja til þess að
ekkert sé gert til að torvelda ferðalög
og önnur sarmkipti trilli bjóða.
Gjaldeyrisskatturinn to«.ek r slík
ferðalög í raun, þó að viðurkenna
beri um leið, að í fjölmörgum þjóð-
löndum - sumum býsna stórum - eru
slíkar alþjóðasamþykktir ekki virtar
í raun.
3. Tvöfalt gengi stríðir gegn margyfir-
lýstri stefnu Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins, sem ísland á aðild að. íslendingar
hafa margs góðs notið hjá þeirri
stofnun, og ekki vantar að íslenskir
ráðherrar í öllum flokkum hafa á
aðalfundum sjóðsins predikað nauð-
syn frjálsra gjaldeyrisviðskipta, m.a.
til að stuðla að auknum hagvexti og
auknum viðskiptum og tengslum
þjóða á milli.
4. Ferðalög íslendinga til útlanda eru'
þegar orðinn sterkur þáttur í lífs-
munstri nútímans. Þau auka skilning,
víðsýni og tengsl. Slík ferðalög eru
hluti af þeirri gagnkvæmu samvinnu í
ferðamálum, sem íslendingar eru
virkir aðilar að - á sama hátt og við
vinnum að því í atvinnuskyni að fá
hingað erlenda ferðamenn til íslands,
þar sem margir þættir í þjóðfélagi
okkar njóta góðs af. Sama má segja
um aukin ferðlög Islendinga um eigið
land og nauðsyn þess að bæta hér alla
móttöku - jafnt fyrir okkur sjálfa, sem
gesti okkar.
5. Ferðalög Islendinga til ýmissa við-
skiptalanda okkar, svo sem Portúgals,
Spánar og Grikklands, svo að einhver
dæmi séu nefnd, hafa beinlínis já-
kvæð áhrif fyrir útflutning okkar til
þessara landa. Gjaldeyristekjur af
íslenskum ferðamönnum eru taldar
okkur til tekna í sambandi við kaup
þessara landa á útflutningsvörum
okkar.
6. Tvöfalt gengi hvetur til rýrari gjald-
eyrisskila, dregur úr trú á gjaldmiðli
okkar, og dregur þannig annars vegar
úr tekjum til ríkissjóðs og rýrir traust
erlendra aðila á íslenskum gjaldmiðli.
7. Á sama hátt verður tvöfalt gengi til
þess, að færri erlendir útsölustaðir
erlendra gjaldmiðla fást til að skrá
íslensku krónuna á gengistöflum
sínum.
8. Vegna legu landsins hljóta ferðalög
héðan og hingað alltaf að vera nokkru
dýrari en t.d. ferðalög frá nágranna-
löndum okkar í Vestur-Evrópu.
Gjaldeyrisskattur gerir því ferðalög
héðan óeðlilega dýr, og ef svo heldur
áfram sem horfir í gengismálum
okkar, er raunveruleg hætta á því, að
utanlandsferðir verði í vaxandi mæli
forréttindi hinna fáu, og því ekki
lengur á færi hins almenna borgara,
nema í mun takmarkaðra mæli.
9. Það er öllum Ijóst, sem þekkja til
markaðsmálá útflutnings og innflutn-
ings, að þar dregur gjaldeyrisskattur-
inn aðila í tvo dilka, þar sem ekki er
setið við sama borð. Innflytjendur
hafa heimild stjórnvalda til að ráð-
stafa t.d. erlendum umboðslaunum
inn á eigin gjaldeyrisreikninga og
nýta þá fjármuni í störfum sínum á
, erlendum vettvangi, og þar kemur
enginn gjaldeyrisskattur til. Útflytj-
endur greiða hinsvegar þennan skatt
að fullu, hafa almennt engin erlend
umboðslaun og er því álag þetta í
raun viðbótarskattur á útflutnings-
starfsemi okkar á erlendum mörk-
uðum, sem árlega nemur háum fjár-
hæðum. Hljóta allir að viðurkenna,
að hér er ekki rétt að málum staðið.
Með tilvísun til þess, sem að framan
er sagt, kom það fáum á óvart, að fyrir
skömmu kom fram í opinberri tilkynn-
ingu bankanna, að verulegur samdráttur
hefur orðið á árinu í sölu á ferðamanna-
gjaldeyri. Tekjur gjaldeyrisbankanna af
þessum þætti í rekstri þeirra hefur
minnkað, og ýmsir kunna að segja, að
fagnaðarefni sé, að dýrmæturgjaldeyrir
hafi nú loksins sparast. En málið er ekki
jafn einfalt. Eins og áður er sagt styður
tvöfalt gengi að minni skilum og þar með
minni gjaldeyrisforða innan banka-
kerfisins og væntanlega minni skatt-
heimtu hins opinbera en annars hefði
verið. Það er því ekki alveg sjálfgefið,
að margrætt 10% álag komi að öllu leyti
hinurn sameiginlega sjóði landsmanna
til góða. Það er reikningsdæmi, sem
aldrei verður reiknað til enda.
En það fylgdi frétt bankanna, að þess
mætti vænta, að gjaldeyrissala færi vax-
andi upp úr síðustu mánaðamótum, þar
sem þá yrðu sendir út reikningar vegna
þeirra greiðslukorta, sem margir íslend-
ingar nota nú í vaxandi mæli og hafa
lengi mótað greiðsluhætti erlendis í
margskonar fcrðamannaþjónustu. Það
verður þó ekki sagt að slík starfsemi hafi
verið nýtt mikið af almenningi á íslandi
til þessa, enda ekki verið grundvöllur
fyrir því - a.m.k. ekki fram að þessu.
Styður framangreind tilkynning bank-
anna að þeirri niðurstöðu, sem reifuð
hefur verið hér að framan, þ.e. að upp
á síðkastið hefur þróunin verið í þá átt,
að tryggja sérstök réttindi hinna fáu á
kostnað hinna mörgu. Það getur varla
verið rétt þróun í þjóðfélagi okkar í dag,
og eitt er víst - þessi þróun stuðlar ekki
að þeirri alþjóðlegu samvinnu í ferða-
málum, sem er hornsteinn allra ferða-
málaviðskipta í dag.
Nú er tími til endurmats - endurmats
á vilja og sanngirnisvitund yfirgnæfandi
meirihluta þjóðarinnar, endurmats á
stöðu okkar í fjölskyldu þjóðanna,
endurmats á því, hvað í raun kann að
þjóna best almannahagsmunum þjóðar-
innar - að meðtöldum sameiginlegum
kassa hennar - ríkissjóði sjálfum.
Niðurstaðan er því sú, að gjaldeyris-
skattinn beri að afnema - hluti hans
kemur ríkissjóði til tekna með afnámi
hans einu saman. Sterk rök mæla með
því, að tekna verði aflað með öðrum
hætti - allt annað mæli gegn eðlilegri
sanngirnisvitund borgaranna - og gegn
almannahagsmunum.
Rcykjavík 26. júlí 1983
Heimir Hannesson
(Aths. grein þessi barst blaðinu til
birtingar áður en ákvörðun var tekin
um niðurfellingu gjaldeyrisskatts-
ins).