Tíminn - 07.08.1983, Page 23
SUNNUDAGUR 7. ÁGUST 19X3
23
■ „Það er hægt að gera margt hér
heima. ef menn vilja það.“
(Tímamynd Ari)
■ „Þá var kúnstin sú að fara ekki yfir
um, beita ekki kröftunum um of og slaka
á, en virkja samt þá orku sem er fyrir
hendi."
(Tímamynd Ari)
og margt, en ég kom með því hugarfari
að einbeita mér að öllum þeim litlu
punktum sem ég hafði tamið mér, en
ekki að horfa á þáog velta fyrir mérhvað
þeir væru að gcra. Menn þurfa að
einbeita sér að þessum punktum sínum
og láta sem minnst annað ónáða sig.
Þetta hefur mér ekki alltaf tekist, en ég
hcf þjálfast mikið á þeim keppnum sem
ég hef tekið þátt í þetta árið."
Og næst er það HM mótið í Helsinki?
„Jú. þaðer núna á miðvjkudaginn. Jú.
veðrið hefur verið mjög leiðinlegt i
sumar hérna og kannske andlega niður-
drepandi á sinn hátt, en það er sanit
margt hægt að gera hér. ef menn aðeins
vilja það.
Auðvitað eru þessir HM leikar
markmið, en eigi að síður hefur öll
þjálfun hjá mér í ár miðast við Olympíu-
leikana í Los Angeles á næsta ári, því
þeir cru jafnan meiri vettvangur og
rneira mót. En ég reyni auðvitað að gera
mitt besta á HM leikunum og þarna
verða allir þeir stærstu í frjálsum íþrótt-
um saman komnir, þar á meðal allir þeir
11 menn sem kastað hafa yfir 90 metra í
ár. Einnig er urmull af mönnum sem
kastað hafa yfir 85 metra og það þarf
ekki mikið að gerast til þess að breyta
röð hjá mönnurn.
A miðvikudagsmorguninn þann 10.
ágúst verða menn að kasta 82 metra til
þess að komast inn á aðalleikvanginn
hinn 12. ágúst. Þcgar þangað er komið
munu allir fá þrjú köst, og að því búnu
verða átta efstu teknir áfram. Fá þeir
þrjú köst strax á eftir og þar ráðast hin
endanlegu úrslit. Þcss má þó geta að ef
einhver kastar mjög langt í undanúrslit-
uin, þá gildir það kast út mótið og hann
kann að komast í hóp hinna átta. En í
undanúrslitunum hefur það sýnt sig að
ekki fleiri en svo sem 16 menn hafa náð
að kasta yfir 80 metra, þótt kannske hafi
200 manns gert þetta einhverntíma
ársins... Þetta sýnir spennuna.
Ég tel að ég eigi að vera í það góðri
þjálfun núna að ég kasti yfir þessa 82
metra og komist inn á aðalleikvanginn,
en þegar þangað er komið er ekki um
annað að ræða en að bíta á jaxlinn.
Ég hef ákveðið að reyna núna nýja
aðferð að fara ekki á mótsstað fyrr en
tveimur dögum áður en keppnin hefst, í
stað þess að ganga dögum saman um
svæðjð, eins og margir gcra, Eg ætla að
Italda mínu striki þangað til og reyna að
vcra í sem bestu jafnvægi fyrir vikið." .
Hvernig gengur að samræma svona
stranga þjúlfun við læknisfræðinámið?
„Þetta hcfur gengið bærilega, cn það
hefur kostað geysilcga niikla sjálfsögun
og nýtingu á tíma og reglusemi náttúru-
lega. Þctta veröur á köflum nokkuð
þreytandi, enda er mikil samkeppni á
báðum sviðum. en ef ntenn skipuleggja
tíma sinn vel, þá er þetta ekkert krafta-
verk, en ströng vinna, eins og við öll á
íslandi þekkjum.
Læknisnáminu þarna ytra er skipt
niður í tvö fjögurra ára tímabil og ég er
í þessum fyrri hluta og er búinn mcð tvö
ár af fjórum. Þetta er fornám í læknis-
fræði, þar sem viðkomandi velur sér
einhverja sérgrein til BS-prófs. Ég er
því í þcssu almenna læknanánti með
lífeðlisfræði sem sérgrein og cftir fyrri
hlutanna eru mjög ntiklir möguleikar
íyrir hendi með seinni hlutann.-almennt
læknanám, einhver sérgrein eða einhver
sérsvið innan læknavísinda eða náttúru-
vísinda... Ég hef ekki tekið ákvörðun
um það endanlega, en vil þó nota mér
reynslu mína í íþrótlum og hyggst koma
út með próf í einhvers konar íþrótta-
lækningum."
Hefur afreksferill föður þíns orðið þér
hvatning?
„Já vissulega, en þó einkum vegna
þess sem ég hef heyrt ættingja og aðra
sem þekktu til hans segja. Sjálfur hefur
hann aldrei reynt að ýta okkur út í eitt
eða neitt, eða sagt að eitt skipti meira
máli en annað, þótt hann hvetti til að við
stunduðum íþróttir sem tómstundagam-
an."
Nokkuð að lokum?
„Ég vildi aðeins koma á framfæri
þökkunt til margra innan íþróttasambands-
ins og sérsambandanna og þá einkum til
þeirra í Borgarfirði. þeirra sem haldið
hafa þar uppi íþróttalífi. Þessi störf eru
öll unnin í sjálfboðavinnu og oft fá mcnn
meiri skammir en þakkir fyrir það sem
þeir gera. Það eru þessir aðilar sem veitt
hafa unga fólkinu þá tillitssemi og aðhald
sem það þarf á að halda og ekki kostar
fé, en getur skipt miklu máli, þegar að
því kemur að þetta starf á að skila
uppskeru."
- AM
■ „Við núðum að þroska þessa lilið
verulega með hugleiðslu."
(Tímamynd Ari)
■ „Þarna voru menn ú borð við Petra-
noff, Olsen Roggi og fleiri af þessum
stærstu..." (Timamynd Ari)
Sænsk-íslensk
samvinna
Með sérstökum samningum við Anebyhús, sem er einn stærsti
framleiðandi einingahúsa á Norðurlöndum, getur Eignamarkaður-
inn boðið fjórar tegundir húsa á sérstöku kynningarverði.
Húsin sem hér um ræðir eru öll einlyft og eru afhent til upp-
setningar miðað við múrsteinshlaðna útveggi, með steinflísum á
þaki, þreföldu gleri í gluggum og öðru því efni sem gerir húsið til-
búið til innréttingar.
í samvinnu við JL byggingarvörur, Kalmar innréttingar og
Gunnar Ásgeirsson getum við boðið kaupendum Anebyhúsa mjög
hagstætt verð og greiðslukjör á byggingarvörum, innréttingum og
tækjum sem þessir aðijar hafa á boðstólum.
Anebyhús hafa gert samkomulag við
lánastofnun um sérstakt safnlán í því
skyni að auðvelda fólki fjármögnun til
A B
Söfnun í
12 mánuði 240 - 400 -
Lán 360 - 600 -
Samtals 600 - 1.000 -
Sctd cign 1.500 -
Húsnæðis-
m.stj.lán* 389 - 389 -
Ráðstöfunar-
fé 2.489 - 1.389 -
•Miðað er við 4ra manna fjölskyldu.
húsakaupanna.
Við pöntun á Anebyhúsi er stofnaður
veltureikningur sem lagt er inn á í
ákveðinn tíma — annað hvort ákveðin
upphæð reglulega, eða ef til vill, misháar
upphæðir. Að sparnaðartíma loknum á
kaupandinn rétt á Iáni sem er 50% hærra
en innistæðan. Lánið greiðist síðan á jafn-
löngum tíma og söfnun hefur staöið.
Á töflunni hér að neðan eru tvö dæmi
sem sýna þetta nánar. í dæmi A er gert
ráð fyrir að viðkomandi eigi fasteign og
jafnframt að hann geti búið í henni fram
til þess tíma er hann flytur. Dæmi B gerir
aftur á móti ráð fyrir að viðkomandi sé að
kaupa sér fasteign í fyrsta sinn.
Verðið á húsunum er fast í sænskum krónum næstu 10 mánuði
og er ekki vísitölubundið. Verð þau
sem eru uppgefin hér að neðan; reiknuð
á gengi frá 27/5, stóðu nær óbreytt í lok
júlí. Þau miðast við hús tilbúin til af-
greiðslu í Reykjavík og eru aðflutnings-
gjöld, frakt og söluskattur innifalin.
EOK 99 m2 855.800 kr.
EOK 123 - 1.061.300 -
EOK 132 - 1.230.850 -
EOK 138 - 1.247.700 -
BÍLSKÚR 32 - 219.150 -
>4NEBXHUS
Söluumboð Eignamarkaðurinn
Hafnarstræti 20, 101 REYKJAVÍK
Pósthólf 56
Sími 91-26933
Vélaleiga E. G.
Höfúm jafnan til leigu:
Traktorsgröfur, múrbrjóta,
borvélar, hjólsagir; vibratora,
slípirokka, steypuhrœrivélar,
rafsuðuvélar, juöara, jarð-
vegsþjöppur o.fl.
Vagnhöfða 19. Sími 39150. Á kvöldin 75836.
Eyjólfur Gunnarsson