Tíminn - 07.08.1983, Side 24
24
kvikmyndasjá
, S( >Mj(UC.UR7, A(.L .SI I‘JX.1
i I H II J II t
■ Breska kvik-
myndin „Gandhi“,
sem hirti mörg Ósk-
arsverðlaunin í
Hollywood á liðnu
vori, þar á meðal
sem besta mynd árs-
ins sem leið, verður
frumsýnd hér á
landi á miðvikudag-
inn í Stjörnubíói.
Agóðinn af fyrstu
kvöldsýningunni
rennur til Indlands-
vinasamtakanna,
sem styrkja fátæk
börn á Indlandi.
Það er vel við hæfi
að kvikmyndin um
Gandhi komi þann-
■ Bcn Kingsley í hlutvcrki Mahatma Gandhis,
einum helsta samstarfsmanni Gandhis
og forsætisráðherra Indlands um árabil.
Kothari ákvað að reyna að vekja áhuga
Attenboroughs og gaf honum ævisögu
Gandhis eftir Louis Fischer. „Ég tók
bókina með mér í sumarleyfi til Suður-
Frakklands, og áður en ég var hálfnaður
með hana var ég orðinn sannfærður um,
að þessa kvikmynd yrði ég að gera",
segir Attenborough. Og hann bætir við:
„Það er ekki ofsögum sagt að þessi bók
hafi breytt lífi mínu. Allt frá árinu 1%2
hefur sérhver ákvörðun, sem ég hef
tekið um starf mitt, tekið mið af ást
minni á þessu verkefni. Og bankareikn-
ingurinn minn væri vissulega í betra
ástandi ef Gandhi hefði ckki komið inn
í líf mitt".
Fjármagnsútvegun erfíd
Attenborough snéri sér að grundvall-
aratriðunum fyrst; að fá rétt til að
kvikmynda ævi Gandhis og útvega fjár-
magn til kvikmyndagerðarinnar. Hið
fyrra rcyndist auðvelt, en það síðara tók
nær tvo áratugi. Höfundur ævisögunnar
var svo ánægður með hugmyndina um
að kvikmyndin yrði til, að hann seldi
Attenborough kvikmyndunarréttinn fyr-
ir cinn Bandaríkjadal. Með aðstoð
Mountbatten lávarðar, sern var síðasti
ríkisstjóri Breta á Indlandi áður en
landið hlaut sjálfstæði, fékkst samþykki
Nehrus, sem þá var forsætisráðherra
Indlands', viö hugmyndina um kvikmynd
um ævi Gandhis. En það var erfiðara að
útvega fjármagnið. Hver aðilinn á fætur
jðrum fékk áhuga cn hætti við á síðustu
— kvikmynd Richard Attenboroughs verður
frumsýnd í Sjörnubíó á miðvikudaginn
ig fátækum ind-
verskum börnum að
gagni.
Þótt kvikmynd sé hópvinna, þar sem
margirverðaaðleggjamikiðaf mörkum,
þá er óhætt að fullyrða, að þessi nýja
kvikmynd um leiðtoga indvcrsku sjálf-
stæðisbaráttunnar, Mohandras Karamc-
hand Gandhi, sé fyrst og fremst verk
breska leikarans og leikstjórans Richard
Attenborough, sem nú á skammt í
sextugt. Hann hefur undirbúið og unnið
að þessari kvikmynd í tvo áratugi, og nú
hefur draumur hans orðið að veruleika
með árangursríkari hætti, en hann hafði
nokkru sinni þorað að reikna með.
Fékk áhugann 1962
Það var árið 1%2 sem Attenborough
fékk áhuga á að gera kvikmynd um ævi
Gandhis. Sá, sem vakti þann áhuga hjá
honum, heitir Motil Kothari og var
indverskur embættismaður í London.
Kothari hafði þá þegar reynt að vekja
áhuga annarra breskra kvikmyndaleik-
stjóra á að gera slíka kvikmynd, og m.a.
rætt við David Lean, en ekki haft
árangur af því erfiði sínu. Þegar Kothari
hélt að allar dyr væru lokaðar varð hann
vitni að því, þegar Attenborough mætti
á uppboð og bauð í styttu af Nehru,
■ Við spunarokkinn ásamt (Jandice Bergen, sem leikur Ijosmynuara Lue-iiinariisiiis
stundu, m.a. vegna þess að Attenbor-
ough var ekki reiðubúinn að fallast á
kröfur um að bandarískar kvikmynda-
stjörnur færu með aðalhlutverkið og
fleira af því tagi.
En eftir margra ára tilraunir tókst
Attenborough þó að skrapa saman þær
18 milljónir Bandaríkjadala, sem áætlað
var að kvikmyndin myndi kosta (hún
fór reyndar í 22 milljónir). Kvikmynda-
fyrirtækið Goldcrest/I.F.I. Films lagði
fram tvo þriðju og indverska ríkið einn
þriðja upphæðarinnar. Sú ákvörðun ind-
verskra stjórnvalda olli síðan deilum á
Indlandi, þar sem ýmsir töldu að pening-
unum væri betur varið til þess að styðja
indverska kvikmyndagerð. En hér var
um beina fjárfestingu að ræða, og nú eru
líkur á að hún muni skila arði sent mun
ganga til þess að styðja kvikmyndagerð
á Indlandi.
Á þriðja hundrað
þúsund „Ieikarar“
Margir Indverjar voru mjög hneyksl-
aðir á því að útlendingar skyldu eiga að
gera kvikmynd um þjóðhctju þeirra, og
það Breti í ofanálag! En viðurkenndasti
kvikmyndagerðarmaður Indlands, Sat-
yajit Ray, sagði um það efni: „Á
Indlandi eru enn miklar deilur um
Gandhi sjálfan. Kvikmynd um hann
getur aðeins einhver utanaðkomandi
maður gert."