Tíminn - 07.08.1983, Side 25
■ Gandhi fastar. Geraldine James í hlutverki Mirabehn hlúir að honum
Og enginn var betur til þess fallinn en
Richard Attenborough. sem sýndi gífur-
lega þolinmæði og mikla skipulagshæfi-
leika við að gera myndina að veruleika.
Og það var ekki svo lítið verk skipu-
lagslega að gera „Gandhi". sem sést
m.a. af því.að hátt á þriðja hundrað þús.
manns koma fram í myndinni. Mestur
fjöldinn er í þeim atriðum myndarinnar.
sem lýsa útför Gandhis. en talið cr að
um 200 þúsund manns hið minnsta hafi
tekið þátt í þeirri athöfn. Og það er
einmitt í slíkum fjöldaatriðum. sem
Attenborough tekst best upp: hann er
snillingur í skipulagningu og leikstjórn
slíkra atriða.
Náin samvinna var höfð við indversk
stjórnvöld við töku myndarinnar. og í
flestum tæknistörfum voru bæði breskir
og indverskir kvikmyndagerðarmenn.
Indverjarnir lögðu margt af mörkum auk
þess sem þeir kynntust því hvernig
..stórmynd" er gcrð. ..Við höfum aldrei
áður séð slíkan tæknibúnað hcr á landi".
sagði indverski lcikstjórinn Govind Ni-
halani, sem vareinn af myndatökustjór-
unum við „Gandhi".
■ Gandhi skömmu áður en hann var ráðinn af dögum
■ Martin Sheen í hlutverki bandaríska blaðamannsins Walkers og Ben Kingsley
sem Gandhi við upphaf saltgöngunnar miklu.
■ í baráttu við stjórnvöld Suður-Afríku.
„Gerðu hann ekki
að dýrlingi“
Attcnborough hcfur sagt frá ráðlcgg-
ingum Pandit Nehrus, sem hann gaf um
leið og hann féllst á áætlanirnar um
kvikmyndagerðina árið 1963: „Hvað
sem þú gerir, þá máttu ekki gcra Gandhi
að dýrlingi í kvikmyndinni - ltann var
alltof mikið stórmenni til þess". Og
Attenborough telur sig hafa fylgt þessu
ráði og lagt mégináherslu á að sýna
manninn Gandhi í myndinni.
Það er þó Ijóst að Attenborough hcfur
lagt áherslu á það jákvæða í lífi Gandhis.
Sumir hafa vakið athygli á því að hann
sniðgangi alveg suma hluti í cinkalífi
Gandhis sem þótt Itafa sérkennilcgir og
ekki í samræmi við hegöan Itans oþinber-
lega. Hefur vcrið bcnt á í því sambandi,
að þótt indversk stjórnvöld liafi á cngan
hátt ritskoðað kvikmyndahandritið áður
en myndin var tckin -cn Indira Gandhi,
forsætisráðherra og dóttir Nehrus. las
handritið yfir og samþykkti það þá
hafi Attenborough og John Briley, sem
skrifaði handritið, stundað nokkurs kon-
ar sjálfsritskoðun og slcppt ýmsuni um-
deildum atriðum úr lífi söguhetjunnar.
Sömuleiðis er ekkert fjallað um æsku og
uppvöxt Gandhis, því frásögn myndar-
innar hefst þegar Gandhi starfar sem
ungur lögfræðingur í Suður-Afríku árið
1893 - fyrir níutíu árum síðan. Þar í
landi dvaldist Gandhi fram til ársins
1915 að hann snéri heim til Indlands. Á
þessum tíma lenti hann í útistöðum við
stjórnvöld í Suður-Afríku vcgna þess
kynþáttamisréttis, scm þar var ríkjandi
m.a. gcgn fólki af indverskum uppruna.
Þegar Gandhi snéri aftur heim til
Indlands fór hann strax að taka þátt í
baráttu fyrir sjálfstæði hcimalands st'ns,
sem var stjórnað af Bretum. og hápunkt-
unum í þeirri baráttu er lýst í myndinni.
sem endar á útför Gandhis cftir að hann
hafði verið myrtur af indvcrskum ofsa-
trúarmanni.
Einstakt leikafrek
Eitt af því, sem vakið hefur mikla
athylgi í kvikmyndinni um Gandhi, er
leikur Ben Kingsleys í aðalhlutverkinu,
en fyrir það afrek hefur hann hlotið
margháttaða viðurkenningum, m.a.
Óskarsverðlaun.
Attenborough leitaði lengi að leikara
í þetta mikilvægasta hlutverk myndar-
innar og það var ekki fyrr en árið 1970
sem hann hcyrði fyrst af Kingsley. Og
þegar hann sá Kingsley leika í „Hamlet"
Shakespeares komst hann að þeirri
niðurstöðu, að Kingsley væri rétti mað-
urinn.
1 aukahlutverkum eru margir þekktir
leikarar, bæði breskir og bandarískir.
Candice Bergen fer með hlutvcrk þekkts
Ijósmyndara frá Life-tímaritinu, Martin
Sheen leikur bandarískan blaðamann,
Walker, sem kynntist Gandhi fyrst í
Suður-Afríku og átti mikinn þátt í að
vekja athygli á honum í Bandartkjunum,
og þekktir breskir leikarar fara með
hlutverk breskra stjórnarerindreka. Og
svo er það indvcrskur almenningur, sem
leikur veigamikið hlutverk í myndinni.
„Gandhi" hefur farið sigurför um
heiminn að undanförnu, og mun vafa-
Iaust einnig hljóta góða aðsókn hér á
landi, eins og hún á skilið.
Þægilegustu vöðlur sem fram-
leiddar hafa verið.
Léttar, sterkar og teygjanlegar.
Vöölurnar eru án sauma og ná hátt upp á brjóst.
fullkomlega vatnsþéttar. Leistinn er formaöur sem
sokkur og hægt er aö nota hvaöa skofatnað sem er
viö þær.
Latex-gúmmiið sem þær eru steyptar ur er afar
teygjanlegt þannig aö vöölurnar hefta ekki hreyfingar
þinar viö veiöarnar og er otrulegt hvaö þær þola
mikiö alag.
Ef óhapp verður, má bæta vöðlurnar
með kaldri límbót.
Viðgerðarkassi fyigír-hverjum vöðlum.
Þær vega aðeins 1,3 kg og þreytast
veiðimenn ekki á að vera i þeim tímun-
um saman.
Fáanlegar í öllum stærðum.
JOPCO HF.
Vatnagöröum 14 —
Simar 39130 og 39140.
Box 4210 — 124 Reykjavík.
Scania er
5CANIA
Þessi bíll er til sölu, Scanía 141 árg. 1979.
Ekinn: 131 þús. í topplagi.
Scania LB 81
árgerð 1981
Ekinn 80 þúsund
Ástand gott
(selst á grindl
Scania LB 81
árgerð 1978
Ekinn 260 þús.
Allur nýyfirfarinn
ÍSARN H.F.
Reykjanesbraut 10, sími 91-20720.
- ESJ.