Tíminn - 12.08.1983, Page 2

Tíminn - 12.08.1983, Page 2
2 FÖSTUDÁGUR 12. ÁGÚST 1983 fréttir Viðamikil dagskrá á Reykjavíkur- viku sem hefst á mánudag: FJÓRAR BORGARSTOfNANIR KYNNTAR NÚ SÉRSTAKLEGA ■ Þau voru í undirbúningsnefnd Reykjavíkurviku. F.v. Ómar Einarsson framkvæmdastjóri vikunnar, Katrín Fjeldsted borgarfulltrúi, Markús Örn Antonsson formaður undirbúninganefndar og Kristín Guðmundsdóttir sem kom inn í nefndina í stað Gerðar Steinþórsdóttur. Markús heldur kynningarspjaldi vikunnar þar sem vakin er athygli á Borgarbókasafninu. Ef blaðamanni skjátlast ekki því meir sýnir spjaldið þau Línu Langsokk, Agötu Christie, Ernest Hemingway, Tómas Guðmundsson, Halldór Laxness og múmínálf ónafngreindan og sýnist fara vel á með þeim. Tímamynd Ari. ■ Á mánudag hefst Reykjavíkurvika, hin þriðja í röðinni sem haldin er. Það var árið 1978, sem borgarstjórn sam- þykkti að efna til þessarar viku annað hvert ár í kringum afmæli borgarinnar 18. ágúst. Þau ár sem listahátíð er ekki á dagskrá. Tilgangurinn mcö Reykjavík- urviku er að gefa almenningi kost á að kynna sér borgarstofnanir og þá starf- semi sem þar fer fram, auk þess að efla lista- og menningarlíf í borginni. Formaður undirbúningsncfndar Reykja- víkurviku 1983, MarkúsÖrn Antonsson, kynnti tilhögun vikunnar á fundi með fréttamönnum í gær. Að þessu sinni verða fjórar borgarstofnanir kynntar sérstaklega, Borgarbókasafnið, scm á 60 ára afmæli á þessu ári, Umfcrðardeild gatnamálastjóra í tilcfni Norræns um- ferðaröryggisárs, Vatnsveitan og Menn- ingarmiðstaðin við Gerðuberg í Breið- holti. Auk þess verður vakin athygli á starfsemi Árbæjarsafns, þar sem verður haldin sýning á gömlum Reykjavíkur- kortum, Æskulýðsráði Reykjavíkur og cinnig vcrða sýningar og tónleikar á Kjarvalsstöðum. Einnig verður efnt til sérstakra sýninga á gömlum Reykjavík- urmyndum eftir Óskar Gíslason kvik- myndagerðarmann. Á vegum Borgarbókasafnsins veröur opið bókasafn á Kjarvalsstöðum og barnadcild í Menningarmiðstöðinni við Gcrðuberg. Á báðum stöðunum verða sögustundir fyrir börn og einnig verða þar fluttar dagskrár í tali og tónum um Rcykjavík fyrr og nú. Bókabíll verður á Lækjartorgi á afmælisdag Reykjavíkur- borgar, 18. ágúst. Þá mun borgarbúum gefast tækifæri til að kynna sér starfsemi safnsins bæði aðalsafnsins í Þingholts- stræti og útibúanna og njóta þar kynn- ingar starfsfólks. Sérstakt kynningar- spjald hefur verið gefið út í tilefni Reykja- víkurviku og er það tileinkað 60 ára afmæli safnsins á þessu ári. Starfsemi Vatnsveitunnar verður kynnt sérstaklega miðvikudaginn 17. ágúst en kl. 16.00 þann dag flytur Þóroddur Th. Sigurðsson vatnsveitu- stjóri erindi um fyrirtækið og starfsemi þess á Kjarvalsstöðum. Að því búnu verður kynnisferð í Heiðmörk að Gvendarbrunnum. Þessi dagskrá verður síðan endurtekin sunnudaginn 21. ágúst en þá fcr íyrirlesturinn fram í Gerðu- bergi. Þriðjudaginn 16. og föstudaginn 19. ágúst kl. 14-16 gefst færi á að kynna sér starfsemi Vatnsveitunnar á Breið- höfða 13, þarsem aðalaðseturhennarer. Umferðardeild gatnamálastjóra efnir til sérstaks umræðufundar um umferðar- öryggismál í Gerðubergi þriðjudaginn 16. ágúst kl. 20.30. Sömuleiðis verður opinn fundur í umferðarnefnd sunnu- daginn 21. ágúst á Kjarvalsstöðum þar sem m.a. verður rætt um hraðatakmark- anir í þéttbýli. í Gerðubergi verður fjölbreytt dagskrá meðan á Reykjavíkurvikunni stendur og sama er að segja um Árbæjar- safn. M.a. verða tónleikar ungs fólks, hljóðfæraleikara og söngvara kl. 20.00 föstudaginn 19. ágúst í Gerðubergi og sunnuítyginn 21. ágúst syngur þar Krist- inn Sigmundsson, sem varð nýlega þriðji í stórri samkeppni ungra söngvara í Vínarborg. Fimmtudaginn 18. ágúst flytur Nanna Hermannsson forstöðu- maður Árbæjarsafns erindi um Árbæjar- safn og sögu Reykjavíkur. Sunnudaginn 21. ágúst heldur Elín Pálmadóttir blaða- maður erindi í safninu um fólkvang í Elliðaárdal. Að því loknu verður Elliða- árdalsganga á vegum safnsins undir leið- sögn Salvarar Jónsdóttur. Margt fleira verður á dagskrá Reykja- víkurviku sem of langt yrði upp að telja hér, en blaðið mun birta dagskrá vikunn- ar dag fyrir dag meðan á hcnni stendur. -JGK ÍTALSKT SKIP (HEIM- SÓKN Veitingamaðurinn: Med nýtt mat reidslukerfi ■ „Við hyggjumst sannfæra fólk um að mötuneytismatur er fullt eins góður og annar matur, sé nýjasta tækni með í spilinu", sagði Pétur Sveinbjarnarson á fundi með blm. í gær cn Veitingamaður- inn hefur gert samning við franska stórfyrirtækið TRICQULT um fram- leiðsluleyfi og tækjabúnað fyrir mat- reiðslukerfíð R.S. Thermic. Matreiðslu- kerfi þetta er með öllu óþekkt hér á landi, en er hins vcgar notað mikið í V-Evrópu og Bandaríkjunum. „Kerfið grundvallast á venjulegri matseld, sem síðan er fylgt eftir með hraðri kælingu, ekki frystingu, með sérstökum búnaði og því næst geymt við hitastig sem er ofan við frystingu", sagði Lárus Loftsson, en hann er fram- kvæmdastjóri Veitingamannsins. „Við matreiðsluaðferð þessa heldur maturinn næringarefni, bragði og útliti og samanburðarrannsóknir á nýelduðum mat hafa leitt í ljós að flestir réttir eru heitari og ferskari úr R.S. Termic mat- reiðslukerfinu en nýeldaðir í mötuneyti. Með hraðkælingu matarins er dregið úr áhættu á matareitrun", sagði Lárus. Að sögn þeirra Péturs og Lárusar er þetta bylting í mötuneytiseldamennsku og hægt er að búa til mat og geyma í 3 daga og hita svo í R.S. Thermic ofnunum og það kemur engan veginn niður á bragði og gæðum. ■ ítalska beitiskipið CAIO DUILIO kom til Reykjavíkur í morgun og mun verða hér í fjóra daga. Er þetta þáttur í þjálfun liðsforingjanna í sjóliðsskólun- um í Livorno. Skipið er búið eldflaugum og þyrlum og þjónar þeim tilgangi að vcra skólaskip þar sem 150 sjóðliðsfor- ■ ítalska beitiskipið CAIO DUILIO. ingjaefni vinna með hinni reyndu áhöfn þess. Einnig býður ferð sem þessi upp á tækifæri til að heimsækja hafnir N-Evr- ópu og kynnast fallegum borgum sem Reykjavík. Skipið verður til sýnis fyrir almenning á sunnudag og mánudag kl. 15-17 og liggur í Sundahöfn. Sjóliðsfor- ingjaefnin og aðrir úr áhöfninni verða í boði vararæðismanns Itala á veitingahús- inu Broadway kl. 20.00-22.00 í kvöld Þeir sem vilja heilsa upp á ítalina eru velkomnir í Broadway. -Jól. ■ Hér eru bakkarnir hitaðir áður en maturinn er snæddur. Tímamynd: Róbert. Samtök um frjálsan útvarpsrekstur: „RÍKISÚTVARPINU ER ILLA STJÓRNAД ■ „Ríkisútvarpinu er illa stjórnað og það gcldur þcss að vera cinokunarfyrir- tæki“, segir i ályktun frá Saintökum um frjálsan útvarpsrekstur er gerð var í stjörn Samtakanna 10. ágúst s.l. Enn fremur segir: „Stjórn Samtaka um frjálsan útvarps- rekstur telur hækkunarbeiðni ríkisút- varpsins á afnotagjöldum lýsandi dæmi um ógöngur scm ríkis-einokun á rckstri útvarps og sjónvarps er komin í". Þá scgir í ályktuninni að ríkisútvarpið hafi hækkað auglýsingar langt umfram verðlag síðustu tvö árin og ætli nú að gera það sama meö afnotagjöldin. „Rekstur þessarar stofnunar kostar sífcllt meira og meira án þess að neyt- endur finni breytingu til hins betra í dagskránni. Ríkisútvarpið skortir alla hcilbrigða samkeppni; samkcppni sem yrði til aukinnar hagsýni í rekstri stofn- unarinnar samfara bættri dagskrá í sam- ræmi við hinar fjölbreyttu þarfir almenn- ings." Að lokum segir: „Stjórn Samtaka um frjálsan útvarpsrekstur telur óþolandi að ríkisútvarpið fái í skjóli einokunar að hlaupa með útgjöld sín upp úr öllu valdi" Undir þetta skrifa Einar Jónsson. Magn- ús Axelsson, Ólafur Hauksson og Skafti Harðarson. - Jól.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.