Tíminn - 19.08.1983, Side 1
Dagskrá rlkisfjölmidlanna — sjá bls. 12
Fjárlaga -
dæmið:
GAHÐ ER NÚ
TVEIR
MILUARÐAR
KRÓNA
■ Gat það scm ríkisstjnrnin
er aö giíma við í fjárlagadæm-
inu þcssa dagana inun vcra
einir 2 milljarðar króna, sam-
kvæmt góðum heiinildum
Tímans. Miðað við að fjárlög
yfirstandandi árs voru um 13
milljarðar má gera ráð fyrir að
þctta 2ja milljarða gat þýði að
skera þurfi niður um tíundu
hverja krónu, þ.c. 10% af
fjárlagadæminu, eða vel það,
svo Ijóst er að víða verður að
beita sparnaðarhnífnum.
Vandamálið sem menn cru að
glíma við mun ekki síst vera í
því fólgið, að skera niður fram-
kvæmdir, en þó þannig að ekki
komi til samdrát tar í atvinnulíf-
inu þar sem síst skyldi.
- HEI
Evrópumót
knapa á
íslenskum
hestum:
HALDIÐA
ÍSLANDI
1985?
■ „Við hyggjumst sækja um
að halda Evrópumót knapa á
islcnskum hestum hér á íslandi
árið 1985 og ég býst við að við
fáum að halda þetta mót ef
þeim hjá Evrópusambandinu
líst á okkar plan‘% sagði Gunn-
ar Bjamason, hestaútflutn-
ingsráðunautur í spjalli við
Tímann.
■ Það var mikið fjölnienni samankomið á Lækjartorgi síðdegis í gær, þegar þar var á Reykjavíkurviku efnt til útitónleika í samvinnu við S.A.T.T., samband alþýðutónskálda
og tónlistarmanna. Hér er hljómsveitin KIKK, á fullri ferð.
Tímamynd Ari
FJÖLBREYTTARA
0G BETRA BLAÐ!
Föstudagur 19. ágúst 1983
190. tölublað - 67. árgangur
Siðumula 15 - Postholf 370 ReyKjavik - Ritstjorn 86300- Augtysingar 18300- Atgreiðsla og askritt 86300 - Kvöidsimar 86387 og 86306
Er umferðarmenning íslendinga að batna:
VERULEG FÆKKIIN UMFERMR-
SLYSA UNDANFARINIVÖ AR
■ Umferðarslysum í júlímán-
uði hefur fækkað verulega ef
miðað er við tvö undanfarin ár.
í bráðabirgðaskráningu Umferð-
arráðs um umferðarslys kemur
fram að umferðarslys í nýliðnum
júlímánuði urðu 573 en árið 1982
urðu þau 606. í júlí í ár urðu 52
slys með meiðslum, þar af eitt
dauðaslys og 1981 urðu 70 slys
með meiðslum, þar af eitt dauða-
slys. í júlí 1983 slasaðist 71
maður í umferðinni, árið 1982
slösuðust 90 manns, og árið 1981
slösuðust 103 í júnímánuði.
Nokkur fækkun hefur orðið á
umferðarslysum með meiðslum
fyrstu sex mánuði ársins 1983
miðað við síðasta ár. 1 ár hafa
255 slasast í umferðinni og þar af
hafa 8 látist en fyrstu sex mánuði
ársins 1982 slösuðust 298 manns
og 12 létust af slysförum.
Óhöpp í umferðinni þar sem
einungis eignatjón hefur orðið
eru fleiri fyrstu 7 mánuði ársins
1983 en 1982 eða 4159 á móti
3853. I frétt frá Umferðarráði
kemur fram að þar muni mest
um janúarmánuð þegar ófærðin
var sem mest.
í frétt frá Umferðarráði er
bent á að slys með meiriháttar
meiðslum eru hlutfallslega mörg
í ár. Á fyrstu sex mánuðum
ársins slösuðust 284 í umferðinni
og þar af voru 140 með það sem
talið var meiriháttar meiðsl. Um-
ferðarráð bendir á að þetta sé
hrein vísbending um að draga
mætti úr þessum meiðslum með
notkun bílbelta.
- GSH
Stórbruninn á Hellissandi:
RANNSÚKNARNEFND SKIPUB AÐ
BEIBNI RANNSÓKNARLDGREGLU
■ Brunamálastofnun hefur að
beiðni Rannsóknarlögreglu
ríkisins skipað sérstaka rann-
sóknarnefnd til að rannsaka
upptök og útbreiðslu brunans á
Hellissandi. Nefndin er skipuð
tveim sérfróðum mönnum,
slökkviliðsmanni og verkfræð-
ingi og þessir menn munu fara á
staðinn í dag til að athuga að-
stæður og taka sýni.
í samtali við Tímann sagði
Þórir Hilmarsson brunamála-
stjóri að það væri regla að skipa
sérstaka rannsóknarnefnd þegar
stórbrunar verða. Þórir sagði að
I íklega myndu nokkrar vikur líða
þar til nefndin gæti skilað áliti.
Rannsóknarlögreglan hefur
gert frumrannsókn á bruna-
staðnum en ekkert ákveðið hefur
komið fram sem bendir til hver
eldsupptök hafi verið.
- GSH
„Þetta hefur verið þó nokk-
uð rætt i Evrópusambandinu á
síðustu árum og strax áð loknu
Evrópumótinu sem nú fer fram
í Þýskalandi í september,
hyggjumst við sækja um þetta
á aðalfundi sambandsins",
sagði Gunnar.
„Eg hafði hugsað mér að
keppt yrði í Mosfellssveitinni
þar sem aðstæður eru ákaflega
æskilegar, völlurinn fagur og
umhverfið fallegt. Fyrir keppn-
ina myndum . við velja sem
besta og jafnasta hesta til að
láta knapana keppa á. Ætli það
yrðu ekki u.þ.b. 100 knapar
sem kæmu þá hingað frá 10-12
þjóðum", sagði Gunnar að
lokum. i .
1 -Jól