Tíminn - 21.08.1983, Síða 2

Tíminn - 21.08.1983, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1983 I Kaupmannnahöfn: Umsjón Agnei Bragadöttlr Á faralds- . fæti ALLTAF JAFN- GAHAN ÍTÍVOLÍ ■ Kóngsins Köbenhavn þekkja vel- flestir íslendingar, og þeir sem citt sinn komast upp á lag með að sækja höfuð- borg Danaveldis heim, áneljast henni margir hverjir, og koma aftur og aftur. Alltaf finnst mér til að mynda janfgaman að koma til Köben, og þegar nú viðrar jafnvel og gerði í sumar, þegar ég var þar, þá liggur jú beint við að skreppa í Tívolí - það er sko ekkcrt ferðatívolí - heldur hið síunga, gamla Tívolí Kaup- mannahafnar. Ég má til með að segja ykkur frá því þegar ég rcðst til inngöngu í Tívolí, vopnuð alþjóðlegum blaðamannapassa mínum og myndavél. Veifaði ég passan- um framan í borðum skrýddan vörðinn, og hugðist við svo búið strunsa inn, en nei, takk - því var ekki að heilsa. Danskurinn gerðist hinn valdsmannsleg- asti og sagði að ef ég væri ekki blaðamað- ur frá Norðurlöndum, þá mætti ég takk fyrir, borga mig inn. Himinlifandi dró ég upp íslenska blaðamannapassann, sem yfirleitt hefur reynst mcr heldur gagnslít- ill á ferðum mínum erlendis, og viti menn - Ná, Island er det, sagði Danskur- inn elskulegur, og vék úr vegi mínum og sagði m.a.s. Vær sá god. Danskurinn hefur sem sé þann ágæta hátt á, að leyfa einungis blaðamönnum og ljósmyndur- um frá Norðurlöndunum frían aðgang að Tívolíi sínu - hef ég hreint enga athugasemd að gera við slíkt fyrirkomu- lag, a.m.k. ekki á meðan við teljumst til Norðurlandanna. Nú, nú - innan girðingar,k sem utan var steikjandi hiti, svona 30 gráður, þannig að maður fór nú ekki andskoti mörghundruð metra án þess að þurfa brynningu af Tuborgeða Carlsberg. Það er hreinn misskilningur, þegar menn halda að fólk fari aðeins í Tívólí í Köben, til þess að prófa sem flest leiktækin. Þau eru fyrir flesta, nema börnin að sjálfsögðu, algert aukaatriði. Menn fara í Tívolí til þess að spranga um í góðviðrinu, sýna sig, sjá aðra, hitta kunningja, setjast niður í notalegheitum með einn öllara eða svo, eða setjast ■ Hér fer fram æfing hjá brúðulcikhúsinu - ekki Prúðuleikhúsinu. ■ Fljúgandi teppið þykir hið mesta kostatól, eða svo segja börnin. Tímmyndir-Agnes ■ A góðviðrisdögum í Tívólí í Kaupmannahöfn, er mannlífið iðandi. ■ Slöngulestin hefur alltaf visst aðdráttarafl, þó að sjálfsögðu jafnist það enganveginn á við aðdráttarafl „Rútsjebanans“ ■ Skemmtanirnar á þessu sviði eru iðulega hinar ágætustu, og svo var í þessu tilviki. niður á bekk undir fallegu tré og snæða nestið sitt. Auðvitað varð ég mannorðs míns vegna að fara í öll djörfustu tækin, eins og Fljúgandi teppið, Rútshebanann að ég tali nú ekki um Parísarhjólið hroða- lega, sem alltaf tekur upp á því að stoppa, þegar ég, sú hin lofthrædda er í hæstu mögulegu stellingu. Það er alltaf jafnmikill léttir þegar maður hefur fasta jörðu undir fótum á nýjan Ieik eftir svona svaðilfarir, en það er jafnframt staðreynd að ég hefði ekki viljað missa af einni einustu, því spennan kitlar óneitanlega á meðan á förinni stendur, og eftir á getur maður hreykt sér hátt, bent og sagt, „Sjáðu - þarna fór ég. Þessu þorði ég.“ Þá er alltaf gaman að setjast fyrir framan Ieiksviðið í Tívolí og reyna að liðka dönskuna sína. Það gerði ég ein- mitt þcnnan eftirmiðdag, en þá var hreint bráðskemmtilegur kómiker, sem ég man ekki hvað heitir að skemmta börnunum með aðstoð sprenghlægilegs trúðs, og svei mér þá, ef mér tókst ekki bara að ná innihaldi svona annars hvers brandara, og þess á milli hló ég bara þegar aðrir hlógu. Það var sko enginn Kóreubragur á Tívolíbörnunum í Kaupmannahöfn, því þegar þau voru í Rútshebananum og Fljúgandi teppinu, þá öskruðu þau eins og þau ættu lífið að leysa, en eins og ég sagði frá í gein minni um Kóreu, þá sátu allir hinir rólegustu í drápstækjunum, og gáfu ekki frá sér múkk. Eg íslenskur barbari, kann betur við háttinn sem við Norðurlandabúar höfum áTívolíferðum okkar, þó sá kóreanski sýni ólíkt meiri sjálfstjórn og stillingu. Ég gekk fram á brúðuleikhús, ég var næstum búin að skrifa Prúðuleikhús, þar sem æfingar voru í fullum gangi, og virtist mér sem brúðustjórnendur væru bara heilmikið leiknir. Þá þótti mér vinalegt að fylgjast með tveimur eldri konum sem sátu á bekk og ræddu lífsins gagn og nauðsynjar, og sú sem eldri var, tottaði um leið, á afar heimspekilegan hátt, þennan líka svaka- vindil, en hin hlýddi á, eins og sú gamla hefði nú lausn heimsgátunnar alveg á hreinu. Slöngulestin er ákaflega vinsælt fyrir- bæri, og mátulega krefjandi hvað hug- rekki snertir, að foreldrar geta farið með börnum sínum í slönguna, en það geta þeir ekki í mörgum öðrum tilfellum, því yfirleitt eru börnin miklu hugaðri en foreldrarnir. Það sem mér finnst einn af „sjörmum“ Tívolís, er að þegar maður er orðinn þreyttur á fólksmergðinni og hávaðanum, sem hvorttveggja var vissulega fyrir hendi þennan heita sumardag, þá er hægastur vandinn að draga sig örlítið útúr skarkalanum og fá sér hressingar- göngu meðfram fallegum tjörnum, á rnilli laufgaðra trjánna. Þar er auðvitað mannfólk einnig, en í sömu erindagerð- um og maður sjálfur, þannig að það er raunveruleg hvíld að skreppa út úr ysnum og þysnum í eins og hálftíma, og svo er hægt að hefja hamaganginn á nýjan Ieik, eða bara gera eins og ég gerði, setjast niður, fá sér einn öl og fylgjast með fólkinu, -það er síbreytilegt og alitaf jafnskemmtilegt skoðunarefni. Mér varð hugsað til þess þennan fallega dag í Tívolí, að Kaupmannahöfn án Tívolís væri miklu fátæklegri borg fyrir Danskinn er að sumu leyti eins og koma farfuglanna fyrir okkur - þegar Tívolí opnar á vorin í Kaupmannahöfn, þá taka borgarbúar því sem ákveðnum vorboða, rétt eins og við lítum á komu fyrstu vorfuglanna okkar, sem mjög svo sterkan vorboða. Ég held ég hætti þessu mali, og láti myndirnar frá Tvívolí í Kaupmannahöfn heldur tala sínu máli. ■ Alltaf fæ ég einhvem ónotafiðring í mallakútinn þegar ég ferðast með París- arhjólinu.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.