Tíminn - 07.05.1983, Qupperneq 4
4;
LAUGARDAGUR 7. MAI 1983.
Bændur-
Athugið
Heyvinnuvélar á
verksmiðjuverði
f rá 1982
kEtnnEr
Hinir velþekktu og vinsælu Kemper
heyhleðsluvagnar.
Tvær stærðir 24 rúmm. og 28 rúmm.
2 stærðir - vinnsiubr. 135 og 165 cm.
Margra ára reynsla tryggir gæðin.
Mest selda sláttuþyrlan í áraraðir.
Fullkomin varahlutaþjónusta.
Stjörnumúgavél 280 P T
Heyþyrla 440 T - 440 M - 452 T - 452 M
Tvær stærðir - tvær gerðir
VÉIADEILD SAMBANDSINS
BÚVÉLAR Ármúla 3 Reykjavík S. 38 900
ÍSSKÁPA- OG FRYSTIKISTU
VIÐGERÐIR
Breytum gömlum ísskápum
i frystiskápa.
Góð þjónusta.
REYKJAVIKURVEGI 25 Há'fnarfirði simi 50473
útibú að Mjölnisholtí 14 Reykjavfk.
fréttir
SIGLUFJARÐARBÆR
FÆKKAR í EIGIN „KERFI”
— og miðar framkvæmdfr við eigið aflafé en ekki
lán og skuldasöfnun
SIGLUFJÖRUR: Að „kerfið“ ákveði
að skera niður hjá sjálfu sér og fækka
eigin fólki hlýtur að teljast til tíma-
mótaatburða. Frá Siglufirði berast nú
þær fréttir að bæjarstjórn hafi ákveðið
að bregðast við erfiðleikatímum með
því að minnka eigið „kerfi“, fækka á
m.a. bæjarskrifstofu, áhaldahúsi og
dagheimili og miða framkvæmdir við
eigin fjáröflun en hætta að safna
skuldum.
„Við erum að snúa við af vand-
ræðabraut undanfarinna ára, þegar
sífellt var aukið við skuldirnar, og ná
okkur upp úr óráðsíunni. Við náum að
vísu ekki að minnka skuldirnar á þessu
ári, en ætlum a.m.k. að halda í horfinu
svo þær aukist ekki frá því sem nú er.
Þar sem þegar er liðið töluvert á árið
og verður komið fram undir haust
þegar það verður endanlega komið í
gegn sem við erum að gera, fer það
ekki að virka að fullu fyrr en á næsta
ári“, sagði Bogi Sigurbjörnsson, bæjar-
fulltrúi á Siglufirði er við ræddum við
hann um sparnaðaraðgerðir bæjarins.
- Það er sorglegt að þegar loðnan
var hér alveg á toppi í góðærunum
1979-1981 þá söfnuðum við meiri
skuldum en nokkru sinni. Það sem þá
var t.d. gert í varanlegri gatnagerð var
allt framkvæmt fyrir erlent lánsfé. Þá
var gengið á sterlingspundinu 13,58
kr., en nú er það komið í um 35 kr.
tæpum tveim árum seinna. Svona er
hægt að fara illa með peningana sína.
Þetta ætlum við nú að afleggja, þ.e. að
framkvæmdir í gatnagerð og aðrar
slíkar verða ekki gerðar nema fyrir
eigið aflafé bæjarsjóðs, sagði Bogi.
Bogi sagði hafa verið ákveðið að
draga verulega saman, eða um þriðjung
í áhaldahúsi bæjarins. Það komi að
vísu til framkvæmda í áföngum, þ.e.
að engum hafi verið sagt upp í vetur
sem leið og menn geti fengið að vinna
í sumar, en þeim fækki verulega í'
haust þar sem verkefni verði nær
engin. Á bæjarskrifstofunum verði
fækkað um tvö stöðugildi. Að líkind-
um þurfi þó ekki nema einn starfsmað-
ur að hætta störfum þar sem sjúkra-
samlagið færist nú inn á bæjarskrifstof-
urnar, en það sé eitt starf. Einnig
nefndi Bogi hagræðinguábarnaheimil-
inu til að minnka óþarfa vinnu. Börn-
um sem þar eru fyrir hádegi hafa
fækkað úr um 20 niður í 8 án þess að
starfsfólki hafi verið fækkað þar til nú.
„Jú, auðvitað mælist þetta allt illa
fyrir hjá ýmsum a.m.k. í bili. En það
er bara alltaf svo, að ef maður er búinn
að hafa einhverja óstjórn þá mælist
það alltaf illa fyrir í fyrstu þegar verið
er að koma lagi á hlutina aftur. En
þetta er nú búið og gert.“
Bogi sagði fjárhagsáætlun vera mið-
aða við 68% hækkun á kostnaðarliðum
og 58% hækkun á launaliðum milli
ára. „Síðan gerum við annað sem eng-
inn gerir áíslandi. Samb. ísl. sveitar-
félaga ráðleggur mönnum að miða
tekjurnar við 54% hækkun milli ára, en
við sláum af því 20%, þar sem við
vitum að við náum ekki þeim pening-
um. Okkur vantar nú loðnuna og við
það hafa tekjur minnkað geysilega hér
á Siglufirði“, sagði Bogi.
-HEI
Bæjarstarfsmenn á Siglufirði:
Verða nú sjálf ir að
borga brauðið sitt
SIGLUFJÖRÐUR: Bæjarráð Siglu-
fjarðar samþykkti á fundi sínum
þann 13. apríl s.I. að frá og með 15.
apríl mundi bæjarsjóður ekki greiða
annað en kaffi, mjólk og sykur fyrir
kaffistofur bæjarstarfsmanna og
skóla. En í síðustu kjarasamningum
bæjarins við Starfsmannafélag Siglu-
fjarðarkaupstaðar var m.a. sam-
þykkt að greiða starfsmönnum fæð-
ispeninga scm nú ncma 515 krónum
á mánuði, að sögn Boga Sigurbjörns-
sonar, bæjarfulltrúa á Siglufirði.
Að undanförnu hafa starfsmenn á
stofnunum bæjarins keypt kaffibrauð
á kostnað bæjarsjóðs, án þess að
nokkru sinni hafi í raun verið samið
um slíka hluti. Bogi sagði það ein-
hvem veginn hafa komið af sjálfu sér
- byrjað auðvitað á bæjarskrifstofun-
um og færst síðan út í skólana og
fleiri deildir á vegum bæjarins, þang-
að til allir hafi verið komnir rneð
brauð.
- Urðu starfsmenn ekki súrir yfir
að missa brauðið sitt?
- Það er auðvitað eitthvert nudd í
fyrstu. En ég heid að menn virði
stjórnun ef að hún er af einhverju viti
- að fólk vilji láta stjórna hlutunum
j en ekki láta allt reka á reiðanum.
I - Voru „tcrtukaupin“ orðinn stór
útgjaldaliður?
- Ef til viil ekki mjög stór -
| kannski 100-200 þúsund. En margt
smátt gerir eitt stórt", sagði Bogi.
-HEI
Vaxandi áhugi á byggrækt i Kirkjubæjarhreppi
Rækta kjarn-
fódrið sjálfir
KIRKJUBÆJARKLAUSTUR: „Það
er afskaplega lítið farið að vora - rétt
að við sjáum orðið græna nál svona í
rásum í úthaga og aðeins græna nál í
túnum. Annars er þetta afskaplega
dautt ennþá. Jörðin ætti þó ekki að
verða afskaplega sein til, þ.e.a.s. ef við
fáum ekki kuldakast í maí, eins og við
höfum oft fengið“, sagði Hörður
Davíðsson, bóndi í Efrivík, spurður
um vorkomu. Hvort um kal sé að ræða
kvað Hörður ekki séð ennþá.
Hann kvað mikinn hug í bændum á
þessum slóðum að fara að koma niður
byggi. Hann sagði þó nokkra bændur
hafa byrjað smávegis í þessu í fyrra og
ætla að fara að sá nú næstu daga og þá
heldur meiru en í fyrra. Jafnframt
muni líklega fleiri sá byggi þetta vorið,
en í fyrra. Sjálfur kvaðst Hörður ætla
að sá í 7 hektara. Bændurnir sá hver
heima hjá sér, en hafa nokkra sam-
vinnu um vélakostinn.
Eftir þreskingu sagði Hörður að
kornbændurnir hafi súrsað kornið í
tunnur og gefið skepnum það yfir
vetrarmánuðina.
- Þið ætlið sem sagt að rækta ykkar
eigin ifóðurbæti og spara þar með
fóðurbætiskaup og þar með gjaldeyri
fyrir þjóðina?
- Já það er ætlunin. Þetta hefur
vérkast alveg Ijómandi vel og skepn-
urnar eru æstar í kornið.
-HEI
Leikhópur
Eiðaskóla
heimsækir
Norðurland
DALIR: Leikhópur Eiðaskóla hyggst
leggja land undir fót í næstu viku og
heimsækja ýmsa staði á Norðurlandi
með nýtt leikverk sem hópurinn hefur
að undanförnu sýnt á ýmsum stöðum á
Austurlandi. Þetta nýja verk er eftir
Sólveigu Traustadóttur og heitir “Ham-
ingjan býr ekki hér - hún er á hæðinni
fyrir ofan“. í frétt frá leikhópnum segir
að verkið hafi hvarvetna hlotið hinar
bestu viðtökur.
Fyrsta sýningin á Norðurlandi verður
að Breiðumýri mánudaginn 9. maí.
Næstu sýningar verða: í Freyvangi
þriðjudaginn 10. maí, Hofsósi miðviku-
daginn 11. maí og að síðustu á Hótel
Höfn á Siglufirði fimmtudaginn 12. maí.
Allar sýningarnar hefjast kl. 21.00.
Leikhópur Eiðaskóla vakti athygli á
síðasta vori með sýningu á verki er bar
yfirskriftina: „Enginn veit sína æv-
ina...“, hvaryetna við góðau orðstír.
-HEI