Tíminn - 07.05.1983, Page 10

Tíminn - 07.05.1983, Page 10
ia__________ menningarmál LAUGARDAGUR 7. MAl 1983. Maðkar í mysunni „Úr lífi ánamaðkanna^ eftir Per Olov Enquist Leikfélag Reykjavíkur sýnir Ur lífi ánamaðkanna cftir Per Olov Enquist Stefán Baldursson þýðir Lýsing Daníel Williamsson Leikmynd, búningar Steinþór Sigurðs- son Leikstjóri Haukur J. Gunnarsson ■ Nú til dags munu vera grasmaðkar í mysu fjölskyldunnar; um miðja nítjándu öldina voru það ótíndir ánamaðkar, ef marka má þctta nýlega verk sænska leikskáldsins Per Olov Enquist. Undir- tifill þess er Fjölskyldumálverk frá 1856, og það eru orð að sönnu. Eitt kvöld, og fram á nótt, skyggnumst við áhorfendur inn á heimili metktarhjónanna Heiberg í Danmörku, og það væri vitanlega fánýt iðja ef ekki væri pottur brotinn og dramatísk spcnna í loftinu. Það vcrður Ijóst þegar H.C.Andersen kemur í heim- sókn, niðurbrotinn maður eftir að hafa misst út úr scr gervitennurnar og kysst fótinn á greifaynju Danner. Heiberg-hjónin voru á sínum tíma mikils metin í dönsku leikhús- og mcnn- ingarlífi. Hann var leikritahöfundur, ritstjóri og um hríð leikhússtjóri Kon- unglega leikhússins; hún var vinsælasta leikkona Dana á öldinni sem leið, en fékkst einnig við skriftir og leikstjórn. Þau voru afar áhrifamikil og áttu scr óvildarmenn í samræmi við það. Sumir, eins og til dæmis H.C. Andersen í upphafi leiksins, töldu hjónaband þeirra fullkomið dæmi um fagra og göfuga ást, en aðrir voru nú aldeilis ekki á því. Athyglin beinist einkum og s'ér í lagi að frú Heiberg, Jóhönnu Lovísu, og tveimur gerólíkum þáttum í hennar persónu. Annar þátturinn hefur mótast af eðli hennar og umhvcrfi í æsku; hún er af fátæku foreldri, faðirinn drykk- felldur ruddi, og móðirin verður að sýna hörku til að fjölskyldan skrímti. En svo gerist það að „velgerðarmenn" taka hana upp á sína arma; fyrst hinn ólánlegi og gæfusnauði Hermann, og síðar Hei- berg sem giftist henni. Heiberg lítur á hana sem efni í listaverk er hann geti sjálfur búið til og mótað; hún er að sínu leyti reiðubúin að taka kennslu cf það getur orðið til þess að hún komist upp úr forarvilpunni þar sem hún er fædd. Listaverkið verður á endanum of fallegt; kennslan heppnast allt of vel. Þegar hér er komið óttast hún að hluti hennar sé að eilífu dáinn og hún óskar þess að hún geti fundið sársaukann upp á nýtt, því sársaukinn fylgir lífinu. Hún fer aö rita endurminningar sínar til að reyna að skilja hvað hafi komið fyrir. Einn er þó enn verr staddur en Jóhanna Lovísa; nefnilega kennari hennar og eiginmaður, herra Heiberg leikhússtjóri. Hér á árum áður samdi hann skemmtilega gamanleiki flutti og vaudivilluna inn til Danmerkur; nú er hann fastur orðinn í „góðum smekk“ og lítur svo á að steingeldar leikgerðir danskrar kellíngar á verkum Shakesp- eares séu til muna fullkomnari en hin upprunalegu, ogóhefluðu, leikrit. Hann hefur sett sér háleitt takmark fagurker- ans; nú er hann einmana, hjarta hans ísilagt, og eina huggun hans er að stjörnurnar, sem þó skína svo bjart, eru að líkindum flestar jafn steindauðar og hann. H.C.Anderscn, barnalegur og klaufalegur snillingur, vekur næstum ótta hans. Bara hamingjusamur... H.C.Andersen á margt sameiginlegt með frú Heiberg. Hann er alinn upp í skítnum en vill leita upp á við; heldur að markinu sé náð ef hann getur samlagast gerisneyddu hákúltúrlífi Danmerkur, og semur í þeim tilgangi hræðileg leikrit og skáldsögur. Ævintýri sín semur hann „bara" af því að hann er hamingjusamur, og áttar sig ekki á því að þau munu lifa ■ Fjölskyldumálverk frá 1856 þegar önnur verk hans eru blessunarlega gleymd. En H.C.Andersen er að vísu ekki jafn góður nemandi og Jóhanna Lovísa Heiberg var á sinni tíð; saklaust barnið er of ríkur þátttur pcrsónuleika hans til að hann geti bælt það niður. í þessu leikriti eiga hlutirnir sér orsakir sem vlð getum komið auga á. Sjálfar og einstakar sálarkvalir persónanna hef ég þó grun um að séu höfundinum ekki ýkja hugstæðar; það eru persónurnar í heild sinni sem hann er að fjalla um; sem sé þau Heiberghjónin og H.C.Ander- sen. Sem slíkt er leikritið afar listilega samið og vel að merkja ekki eintóm dramatík; þvert á móti er það með köflum mjög fyndið, annars staðar áhugaverður skáldskapur og lýsandi. Fyrirtaks leikur leikaranna í Iðnó hjálp- ar svo ekki lítið til að gera sýninguna minnisstæða. Guðrún Ásmundsdóttir er frú Hei- berg, kona sem talar tvö tungumál. Guðrún var mjög sannfærandi í þeim atriðum þar sem frúin hafði fulla stjórn á sér, samkvæmt lærdómi og sjálfsögun uppvaxtaráranna; .stundum var eins og skortj eilitla grimmd eða grófleika í önnur atriði, en í heild þótti mér Guðrún góð. Þórsteinn Gunnarsson stóð sig fjarska vel sem H.C. Andersen og var oft lllugi Jökulsson ífl skrifar um leikhús glettilega álappalegur, bæði í tali og hreyfingum. Fyndnasta sena sýningar- innar var forkostulegt ævintýri hans um svokallaðan „staðal-gagnrýnanda", sem ætíð er samur og jafn, en þetta flutti Þorsteinn með miklum bravúr. Ekki stóð hann sig síður vel í annarri frásögn af því er hann sá frú Heiberg í fyrsta sinn; þár var annar tónn í máli hans. Steindpr Hjörleifsson var hæfilega stífur í hlutverki Heibergs leikhússtjóra; dap- urlegur óg rammvilltur frá öðru fólki. Fjórða hlutverkið lék Margrét Ólafs- dóttir; það er gömul kona sem situr nær hreyfingarlaus á sviðinu allan tímann og segir harla fátt; þó er þetta mikilvægt hlutverk sem Margrét leysti vel af hendi. Forarplöntur til skrauts Haukur J. Gunnarsson sýnist mér hafa unnið þessa sýningu af mikilli smekkvísi (þetta orð er ætlað sem hrós!) og skilningi á eðli leikritsins. Hann leggur hvergi út í tilgerð eða ofdramatis- eríngu, heldur sýnir öllum þáttum og öllum persónum jafnan ogfullan trúnað. Leikmynd Steinþórs Sigurðssonar var fallegt verk, og vert er að vekja athygli á förðun Guðrúnar Þorvarðardóttur á Þorsteini Gunnarssyni í hlutverki ævin- týraskáldsins. Þýðing Stefáns Baldurs- sonar var vandaður og góður texti en mátti ekki „hitt málið" sem frú Heiberg og H.C. Andersen lærðu í barnæsku vera allmiklu kjarnyrtara? Skal fúslega taka fram að ég hef ekki lesið leikinn á frumntálinu, svo ekki veit ég hvernig Per Olov Enquist hefur þetta, en „skaufi" er ekki mjög ruddalegt orð - nema fyrir pent fólk af borgarastétt. Ég hafði gaman af þessari sýningu. Hún fjallar, kannski, um ástina, kannski um fólk sem reynir að bæla niður eðli sitt og tilfinningar, kannski um deyjandi fólk. Fyrst og fremst fjallar hún um fólk. Ánamaðka sem orðnir eru hreinir; forar- plöntur sem búið er að setja til skrauts í stofu. Revíuleikhúsið sýnir Islensku revíuna eftir „Geirharð Markgreifa", Gísla Rún- ar Jónsson og leikhópinn Leikmynd Steinþór Sigurðsson Ingvar Björnsson sá um lýsingu Tónlist Magnús Kjartansson Leíkstjóri Gísli Rúnar Jónsson ■ í leikskrá segir Þórir Steingrímsson, sem myndi kallast framkvæmdastjóri,leik- hússtjóri, prímus mótor Revíuleikhússins hann segir sem sé: „Til þess að revían lifi, þá þarf hún að hafa sínar lífvænlegu aðstæður. Helst mega þær ekki vera of góðar og alls ekki of frjálsar. Það verða að vera til hlutir sem ekki má segja ncma með revíuforminu einu, eða réttara sagt að revíuformið eitt getur stungið á því kýli sem vill grafa um sig í þjóðfélaginu." Ojá, ojá og það er nú það. Þetta með að stinga á kýlum; íslenska revían svo- kölluð sem nú hefur verið sett upp í Gamla bíói mun ekki stinga á neinum kýlum. (Ekki nema veriðsé aðsneiða að jafnvægisskyni fólks; leikendurnir eru sífellt að detta.) Það er auövitað laukrétt sem „Geirharður Markgreifi", höfundur upprunalegrar gerðar revíunnar, segir í leikskránni að aðrir miðlar, og ekki síst sjónvarpið og kjaftadálkar blaðanna, hafa tekið við stóru hlutverki revíunnar; stjórnmálamenn herma bcst eftir sér sjálfir, frásagnir af öllum voðalegum „hneykslum" eru strax komin í blöðin - nógir um hituna í kýlabransanum. Auk þess erum við orðin svo skelfing umburð- arlynd; er það ekki ? Þurfum við ádeilu- revíuna sem bæði hneykslar og hlægir? (Raunar er ég ekki viss um að grínið í Gamla bíói geti með sæmilegum rétti kallast revía, þetta er samansafn af sketsum; ekki svo að skilja að það skipti verulegu máli.) v Þurfum og þurfum ekki. Var íslenska- revían fyndin? Þar er smekkurinn mis- vitrastur sent lýtur að húmor; svari nú ■ Magnús ■ Örn Áraason Kjartansson hver sem bctur getur fyrir sig. Formið var sniðugt; hópur af vondum leikurum er að basla við að setja upp hitt og þefta undir stjórn vonds leikstjóra. Flestum spjotum er beint að menningarlífi bæjar- ins; margir nafngreindir. Áhorfendur hlógu þegar þeir könnuðust við eitthvað upp á sviði; það þurfti ekki að vera svo fyndið. (Mig grunar að íslendingar séu ekki mjög fyndin þjóð.) Og þá fellur nú víst allt í ljúfa löð; úr því við hlæjum. Tilganginum náð. En var hún fyndin? En var revían fyndin? Nei, ekki mjög. Sumt var auðvitað sniðugt og stöku atriði meira að segja mjög fyndin en annað þótti mér fjarska leiðinlegt. Þetta segir nú að vísu ekkert annað en það að sumt hafi akkúrat mér þótt sniðugt, stöku atriði mjög fyndin cn annað fiarska leiðinlegt. Ekki er þetta nú ■ Guðrún ■ Þórhallur Alfreðsdóttir Sigurðsson merkiiegri dómur. Aftur á móti get ég leyft mér að halda því fram, og byggt þaö á öðru en minni prívat kímnigáfu, að flest atriðin hafi verið ívið of löng, ekki síst óperuatriðið sem þó var býsna sniðugt; að litlar eða engar tengingar milli atriða hafi orsakað tilfinnanlegt spennu- fall í hlátursvöðvunum; að lítilfjörleg leikræn útfærsla söngvanna hafi gert hið sama. I þessari revíu er sömuleiðis alltof mikið um endurtekningar; samanber fyrrnefndar dettur. Flestallt skrifast á reikning leikstjórans; aukin sjálfsgagn- rýni hefði gert þessari revíu mjög gott. ■ Kjartan ■ Guðrún Bjargmundsson Þórðardóttu- Lcikarar eru sjö, auk þess sem Magn- ús Kjartansson, píanóleikari, tekur virk- an þátt í sýningunni. Flestir eru frentur lítt þekktir; Guðrún Alfreðsdóttir. Guðrún Þórðardóttir, Kjartan Bjarg- mundsson, Pálmi A. Gestsson, Saga Jónsdóttir og Örn Árnason. Öll sýna. ágæta gamanleikarahæfileika en lognast svolítið út af inn á milli; enn hefði beittari leikstjórn sennilega ráðið bót á því. Annars snýst revían að talsverðu leyti kringum Þórhall Sigurðsson, Ladda. en hann er ýmist í hlutverki leikstjórans eða Ladda. ■ Pálmi A. ■ Saga Jónsdóttir Gestsson I stuttu máli sagt; maðurinn er skop- leikari af guðs náð. Skulda- fangelsi? Steinþór Sigurðsson gerði flókna leik- myndina, hún erskemmtilegt verk. Ingv- ar Björnsson hélt uppi klaufalegri lýs- ingu, vísvitandi. Eitthvað er Gerard... nei, Geirharður Markgreifi að barma sér í leikskránni; segist eiga von á því að lenda í skulda- fangelsi með öllum hópnum ef fólk kemur ekki að sjá revíuna. Ég get nú satt að segja ekki ímyndað mér að svo illa fari. Þótt deila megi um hversu fyndið þetta eða hitt atriðið er, þá fann ég ekki betur en að á frumsýningu skemmti fólk sér hið besta, jvo sem til var ætlast. Það kæmi mér hreint ekki á óvart þó þjóðin kæmi aftur í næstu viku með afa gamla og frænku frá Ólafsfirði - eins og markgreifinn hvetur til... Illugi Jökulsson skrifar um revíuleikhús Frænka frá Ólafs- firöi kemur nokk! — „íslenska revían“ I Gamla bíói

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.