Tíminn - 07.05.1983, Page 14

Tíminn - 07.05.1983, Page 14
LAUGARDAGUR 7. MAÍ1983. 14 heim ilistím in n Umsjón: A.K.B. Hollustu- eftirlit með eggjum er nauð- synlegt t* Wm < Jhi Lifur er hollustufæða ■ Yfirdýralæknirinn í Reykjavík hefur bent á eftirfarandi atriði í sambandi við viðræður um dreifing- arstöð og eftirlit með eggjum: 1. Par sem egg eru viðkvæm matvara er ekki óeðlilegt að með henni s6 haft eftirlit, bæði að því er varðar hollustuhætti og gæði, en vart er siíkt eftirlit framkvæmanlegt með góðu móti nema söluegg fari gegn um dreifingarstöð eða dreifingar- stöðvar. 2. Eftirlit með eggjum er nauðsyn- legt að mínu mati vegna þess að með því einu móti er hægt að gripa í taumanagagnvartcinstöku framleiðendumv verði þeim eitthvað á viljandi eða óviljandi. . Ég tel lítinn vafa leika á því að dreifingarstöð með góðum tækja- kosti og geymsluaöstöðu ætti þegar til lengri tíma er litið að geta tryggt neytendum jafnbetri vöru heldur en nú er. Auk þess ætti slík stöð eða stöðvar að geta kontiö í veg fyrir eggjaskort sept cr nú nær árlegt fyrirbæri eins og neytendur þekkja. ■ Nú er lambalifur á sérstaklega góðu verði eins og sagt var frá hér á síðunni á miðvikudag. Forsvarsmenn Stéttar- sambands bænda og Framleiðsluráðs landbúnaðarins buðu blaðamönnum að smakka á ljúffengum lifrarréttum í Brauðbæ og sögðu frá hvers vegna þessi lækkun væri á lifur. Aðalástæðan er sú að umframmagn af lambalifur er nú í landinu vegna þess að lokað hefur verið fyrir sölu til Bretlands, en þangað höfum við selt lifur í 60 ár. Nýjar reglur gengu í gildi þar fyrir ári síðan. Ekki er leyfilegt að selja þangað lifur nema að hausarnir fylgi með. Dýralæknar skoða þá og leita að sérstökum kirtlum, þar sem sést, hvort dýrið er með vissan sjúkdóm, sem að vísu mun ekki til hér á landi. En vegna þess að við íslendingar borðum sviðahausana er ekki hægt að verða við þessum nýju kröfum. Hér hefur alltaf verið umtalsverð sala í lifur, en nú eru það 300 tonn af lifur, sem boðin eru á þessu sérstaka kynning- arverði eða 20 kr. afslætti frá heildsölu- verði. Gefinn hefur verið út sérstakur bækl- ingur með góðum uppskriftum 4 mat- reiðslumanna að lifrarréttum og fylgja tvær þeirra hér með. Einnig er í bækl- ingnum umsögn Dr. Jóns Óttars Ragn- arssonar um lifrina og hann segir m.a. Hvers vegna er lifur holl? Vegna þess að hún er að jafnaði bætiefnaríkari en flestar, ef ekki allar aðrar algengar matvörur, sem á boðstólum eru. Lifurer frábær uppspretta fyrir þau efni, sem við þurfum mest á að halda við myndun blóðrauða, en það eru m.a. járn og kopar, fólasín og B 12 vítamín. Einnig er lambalifur ein besta A-víta- mínuppspretta, sem völ er á. Lifrin er fremur fitusnauð og því mikið notuð í megrunarfæði. Henni er stundum fundið til foráttu að vera auðug af kólesteroli, en þá gleymist að samsetn- ing fitunnar er tiltölulega hagstæð gagn- vart æðakölkun og kransæðasjúkdóm- um. Verður dreifingarstöð eggja til bóta fyrir neytendur og framleiðendur? Eidhúshornið Lifur í krydd- sósu (matreiðslumaður: Har- aldur Benediktsson, Hótel Loftleiðum) 500 g lambalifur, 25 g hveiti, 40 g smjör, 4 stk. laukur, skorinn í sneiðar, 4 stk. tómatar, afhýddir og skornir í sneiðar, 300 ml. kjúklingasoð, eða vatn og kjötkraftur, 2 matsk. tómat puré, 'A tsk. tabasko sosa, 1 stk. hvítlauksgeiri, marinn 'h tsk. oregano, 'h tsk. thyme, 150 ml. rjómi, sait og pipar, niðurskorinn rauður pipar í skreyt- ingu. Skerið lifrina í þunnar sneiðar og veltið upp úr krydduðu hveiti. Hitið smjörið í eldföstu móti og brúnið laukinn varlega, þar til hann er orðinn mjúkur. Fjarlægið laukinn. Brúnið lifrina, þar til hún cr orðin Ijósbrún. Látið laukinn, tómatana, tómat puré, tabasco sósuna, hvít- laukinn og kryddið í eldfast mótið ásamt lifrinni, Hitið í ofni við 180° C í 10 mínútur. Bætið svo rjómanum út í. Kryddið ef þarf. Með þessu er borið fram spaghetti og rauð paprika ofan á. ■ Á blaðamannafundi með nefndar- mönnum frá Sambandi eggjaframleið- enda, þcim Jóni Gíslasyni, Guðbirni Guðbjörnssyni, Jóni Guðmundssyni og Inga Tryggvasyni, formanni Stéttar- sambands bænda, kom fram, að ýmislegt það, sem fram hefur komið í umræðum undanfarið um huganslega stofnun eggjasölusamlags og væntanlega veit- ingu heildsöluleyfis til Sambands eggja- framleiðenda, er á misskilningi byggt. Nefndin vill því eyða þessum misskiln- ingi og skoða málið í ljósi staðreynda. Aðdragandi þessa mál erorðinn nokk- uð langur. Á fundi í Sambandi eggjaframleið- enda þann 4. febrúar s.l. var haldinn almennur félagsfundur í Sambandi eggjaframleiðenda og þar kosin 5 manna nefnd til að fylgja eftir eftirfarandi tillögum, sem samþykktar voru á fundin- um: 1. Fundurinn samþykkir að Samband eggjaframleiðenda óski eftir við Framleiðsluráð landbúnaðarins að það taki að sér verðskráningu á eggjum skv. heimild í 45. gr. laga um Framleiðsluráð landbúnaðarins og hafi um hana fullt samráð við Sam- band eggjaframleiðenda. 2. Fundurinn samþykkir að komið skuli á stjórnun á framleiðslu á eggjum samkvæmt 2. gr. laga Samband eggja- ■ Ingi Tryggvason og nefnarmenn úr Sambandi eggjaframleiðenda ræða málin við blaðamenn. Nefndarmennirnir eru frá vinstri talið Jón Gíslason, Hálsi Kjós, Guðbjörn Guðbjörnsson, Helguvík, Bessastaðahreppi og Jón Guðmundsson, Reykjum. framleiðenda sem miðist við að full- nægja eftirspurn þeirri sem fyrir hendi er í landinu, og tryggð verði eðlileg afkoma vísitölubús eins og það er á hverjum tíma. Eggjafram- leiðsla verði bundin framleiðslu- leyfum. 3. Fundurinn samþykkir að Samband eggjaframleiðenda komi á félags- bundinni sölu og dreifingu á eggjum samkvæmt 1. lið 2. gr. og 4. gr. laga Sambands eggjaframleiðenda og og samkvæmt 36. gr. laga um Fram- leiðsluráð landbúnaðarins. 4. Fundurinn samþykkir að Samband éggjaframleiðenda óski eftir við Framleiðsluráð að það veiti fjárfram- lag úr kjarnfóðursjóði til stofnunar dreifingarstöðvar sámkvæmt fyrri ákvörðun þess 1980. Nefndarmenn töldu að það væri algjör misskilningur að um einokunarsölu á eggjum yrði að ræða með tilkomu dreif- ingarstöðvarinnar eins og haldið hafi verið fram bæði í ræðu og riti að undanförnu. Með slíkri dreifingarstöð eggja myndi fást fram mikil hagræðing bæði fyrir bændur og neytendur. Fram- boð yrði jafnt á eggjum allt árið um kring og eggjum yrði dreift um allt land, en eins og fyrirkomulag á eggjasölu er nú, hafa ýmsir staðir orðið útundan hvað varðar eggjasölu. Ef af stofnun eggjasölusamlags verður mun þar verða öflugt gæðaeftirlit og egg flokkuð eftir stærðum. Öll egg verða skoðuð og ónýt og sprungin egg tekin frá. Einnig verður nákvæmt eftirlit með eggjunum að því er varðar hollustu- hætti. Tilgangur slíks samlags sagði Ingi Tryggvason að væri að framleiðendur gætu rekið bú sín og fengið laun fyrir vinnu sína og neytendur vöruna á sanngjörnu verði. 119 eggjaframleiðendur hér hafa 100- 2000 fugla hver, samtals 58 þús. fugla, 23 framleiðendur hafa 2000-10000 fugla hver, samtals 104 þús. fugla, en 4 framleiðendur hafa meira en 10000 fugla hver, samtals 108 þús. Auk þess eru svo 20 þús. fuglar hjá bændum, sem hafa innan við 100 hænur. Lifrar- spjót (matreiðslumaður: Hilmar B. Jónsson, Gestgjafanum) 1 pk. lambalifur (2 lifrar) 12 stórar beikonsneiðar (án pöru), 12 nýir sveppir, soyasósa, 4-6 matsk. olía til steikingar, 100 g smjör, soðin hrísgrjón. Snyrtið lifrina og skerið í 2Vi cm jafna teninga. Þerrið teningana. Helmingið beikonsneiðamar og vefj- ið þeim utan um lifrarbitana. I>ræðið bitana upp á 6 grillspjót um 6 bita á hvert spjót. Hitið olíuna á þykkbotna 4>önnu og brúnið lifrarspjótin í ca. 4-6mín. á hvorri hlið. Látiðbeikonið liggja í olíunni. Takið spjótin upp úr og haldið heitum. Hellið feitinni af pönnunni og bræðið smjörið. Þegar það freyðir eru niðursneiddir svepp- imir settir á pönnuna og fljótlega á cftir 1 dl. af soyasósu. Borið fram með soðnum hrísgrjónum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.