Tíminn - 07.05.1983, Blaðsíða 17

Tíminn - 07.05.1983, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 7. MAI 1983. 17 bridge Uppskeruhátíð tvímenn ingsspilara framundan ■ Eins og komið hefur fram í blaðinu unnu Jón Baldursson og Sævar t>orbjörnsson Port- orozmótið unrsíðustu helgi .með nokkrum yfirburðum. Fyrir síðustu umferð voru þeir 25 stigum á eftir Jóni Andréssyni og Ragnari Björnssyni en í síðustu umferðinni skoruðu þeir 220 stig (meðalskor var 156) á meðan Jón og Ragnar fengu „aðeins" 178. Jón og Sævar fengu 3ja vikna ferð til Portoroz með Samvinnuferðum að launum; Jón og Ragnar fengu ílugfar til Kaupmannahafnar fyrir annað sætið. Einnig voru veitt peningaverðlaun fyrir 3.-5. sætið og eins fyrir bæstu skor í B- og C-riðli í síðustu umferð. Vilhjálmur Pálsson og Pórður Sigurðsson frá Selfossi urðu í 3ja sæti, Ragnar Magnússon og Rúnar Magnús- son í 4rða og Bragi Erlendsson og Ríkharður Steinbergsson lentu í 5ta sæti. Runólfur Pálsson og Egill Guðjohnsen og Aðalsteinn Jörgensen og Stefán Pálsson fengu riðlaverð- launin. Pað er ekki hægt að skilja við þetta mót án þess að minnast á vandamál sem kom upp við framkvæmdina. Mótið var opið og spilarar gátu tilkynnt þátttöku símleiðis. Þegar þátt- tökufrestur var útrunninn höfðu 48 pör skráð sig og mótið þar með fullt. Síðan fóru menn að fá bakþanka og einnig spiluðu veikindi inní og þegar mótið átti að hefjast á laugardagsmorgunn voru aðeins 39 pör eftir. Þá voru settir upp þrír 14 para riðlar með yfirsetu, sem var auðvitað nógu slæmt í sjálfu sér. Síðán létu 2 pör ekki sjá sig á mótsstað og þá var komin upp ómöguleg staða því ekki var hægt að spila í þrem 14 para riðlum með 2 yfirsetum í tveimur og 1 yfirsetu í einum. Til að bjarga málunum bauðst eitt parið til að hætta við og þá var hægt að spila í þrem 12 para riðlum. Við þetta riðluðust auðvitað allar tímasetn- ingar en sem betur fer tóku flestir þessum óþægindum með skilningi. En þetta mál er rakið hér til að benda á vandamál sem því miður kemur of oft fyrir á opnum bridge- mótum. Auðvitað er ekki hægt að gera að veikindum en spilarar ættu að minnsta kosti að geta sýnst þá kurteisi að skrá sig ekki í mót án þess að vita hvort þeir geta tekið þátt í þeim vegna atvinnu eða annarra einkamála. Ég tala nú ekki um að láta ekki einu sinni vita að þeir séu hættir við. Kannski ætti að skikka þessa spilara til að sjá um eitt svona bridgemót í refsingarskyni. 20 ára afmælismót Bridgefélags Stykkishólms Bridgefélag Stykkishólms er 20 ára á þessu ári og í tilefni af því hefur það ákveðið að halda afmælismót helgina 28.-29 maí í samvinnu við Hótel Stykkishólm. Mótið verður í tvímenningsformi og líklega miðað við 36 pör með 3 spilum í umferð. Verðlaunin á mótinu verða 12.000 krónur fyrir 1. sætið, 8.000 krónur fyrir annað sætið og 5.000 krónur fyrir það þriðja en einnig verða aukaverðlaun fyrir hæstu skor í einni setu. Keppnisgjaldið verður 1.100 kr. á mann en í því er innifalin gistin og fullt fæði. Mótið verður auglýst betur síðar en þeir sem hafa áhuga geta haft samband við skrifstofu Bridgesambandsins í síma 18350. íslandsmótið í tvímenning Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig í Íslandsmótið í tvímenning en skráning líkur á hádegi næsta miðvikudag. Mótið verður spilað í Domus Medica og hefst klukkan 13.00 á fimmtudag 13. maí. Þá verða spilaðar 2 umferðir í undankeppni en síðasta umferð- in hefst á föstudag kl. 14.00. Úrslitin hefjast síðan kl. 13. á laugardag en þá keppa 24 efstu pörin úr undankeppninni.. Keppnisstjóri verður Agnar Jörgensen. Einnig má minna á að hægt er að skrá sig í Bikarkeppnina til 15. maí. Bridgeferð með Eddunni Samvinnuferðir/Landsýn hafa svo sannar- lega lagt sitt að mörkum og vel það til að efla bridgelífið hérlendis. Þegar sölustjóri Sam- vinnuferða, Helgi Jóhannsson, setti Portoroz mótið um síðustu helgi tilkynnnti hann að í undirbúningi væri vikufefð með MS Eddu í haust sem aðallega yrði miðuð við þarfir bridgespilara. Áætlað er að ferðin verði í byrjun september og m.a. verði komið við í Newcastle og Rotterdam. Um borð verða skipulögð bridgemót og jafnvel bridge- kennsla og einnig verður reynt að koma á keppni við enska spilara á leiðinni. Þessi ferð verður auglýst nánar bráðlega. Bridgefélag kvenna Nú er lokið 1 umferð af 5 í árlegri parakeppni félagsins. Alls taka 42 pör þátt í mótinu og þeim er skipt í 3 14 para riðla. Efstu pör eftir 1. umferð eru: Guðrún Bergsdóttir - Eggert Benónýsson 198 Esther J akobsdóttir - Svavar Björnsson 195 Sigríður Pálsdóttir- Óskar Karlsson 192 Gerður ísberg - Sigurþór 184 Guðbjörg Þórðardóttir - Valdemar Jóhannsson 180 Næsta umferð verður spiluð í Domus Medica á mánudagskvöld. Frá Bridgefélagi Reykjavíkur S.l. miðvikudag lauk butler keppni félags- ins með því að sex efstu pör úr hvorum riðli í undankeppninni spiluðu til úrslita. Þeir Hörður Blöndal og Jón Baldursson sigruðu í mótinu eftir harða keppni við félaga sína Sigurð og Val, en lokastaða efstu para varð þessi: Hörður Blöndal - Jón Baldursson 137 Sigurður Sverrisson - Valur Sigurðsson 133 Guðmundur Sveinsson - Þorgeir Eyjólfsson 126 Helgi Sigurðsson - Sigurður B. Þorsteinsson 122 Jón Ásbjörnsson - Stefán Pálsson 122 Jakob R. Möller - Runólfur Pálsson 121 Aðrir spilarar, sem mættu til leiks, spiluðu sveitakeppni þriggja sveita. í þeirri keppni sigraði sveit skipuð þeim Birni Eysteinssyni, Guðmundi Hermannssyni, Hallgrfmi Hall- grímssyni og Sigmundi Stefánssyni. Þetta var-síðasta spilakvöld hjá félaginu á þessu starfsári og þakkar stjórn félagsins öllum félagsmönnum fyrir þátttökuna í vetur og bridgefréttariturum blaðanna fyrir sam- starfið. Aðalfundur féiagsins verður haldinn í fyrrihíuta júní og verður nánar tilkynnt um hann síðar. Bridgefélag Selfoss Nú er lokið aðalsveitakeppni félagsins og lokastaðan varð þessi: Sigfús Þórðarson 199 Þórður Sigurðsson 172 Gunnar Þórðarsson 160 Brynjólfur Gestsson 155 Hrannar Erlingsson 135 Páil Árnason 95 Aðalfundur og árshátíð félagsins var hald- in laugardaginn 30.apríl. Kjörin var stjórn og er hún þannig skipuð: Formaður: Valgarð Blöndal, Gjaldkeri: Eygló Gráns, Ritari: Gestur Haraldsson, Varastjórn: Sigfús Þórð- arson, Valey Guðmundsdóttir og Halldór Magnússon. NÝIR KAUPENDUR H.RINGIÐU£\ BLAÐID KEMUR UM HÆL SIMI 86300 SPENNUM i BELTIN sjálfra okkar vegnal \ tímarit Iceland Review ■ Fyrsta tölublað þessa árs af lceland Review er komið út og er efni þess að vanda hið fjölbreytilegasta - bæði í máli og myndum. Meðal efnis í blaðinu má nefna grein um laxarækt og hafbeit eftir Magnús Bjarnfreðs- son, - umfjöllun Aðalsteins Ingólfssonar um fimm íslenskalistmálaraafyngri kynslóðinni, - samantekt Don Brandts um „Gullskipið" margfræga á Skeiðarársandi og grein eftir Pál Magnússon um hinar athyglisverðu fornleifar í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum. Með þeirri grein fylgja áður óbirtar litmyndir frá upp- greftrinum. Auk þess má nefna litmyndaraðir bæði frá „Scandinavian today", og þætti Vigdísar Finnbogadóttur í þeim hátíðarhöldum, og höfnum á íslandi. Ýmislegt annað efni er að finna í blaðinu og að venju er það prýtt miklum fjölda litmynda og hið vandaðasta varðandi útlit og frágang. Iceland Review kemur út ársfjórðungslega og sem fyrr er Haraldur J. Hamar ritstjóri þess og útgefandi. FERMINGARGJAFIR BIBLÍAN OG Sálmabókin Fást í bókaversiunum og hjá kristilegu félögunum. HIÐ ÍSL. BIBLÍUFÉLAG (fuibbraiitjsötofu Hallgrimskirkja Reykjavlk simi 17805 opi6 3-5e.h. PÓSTSEIMDUM SPORTVÖRUVERSLUN INGÓLFS ÓSKARSSONAR Klapparstíg 44, sími 11783 Þroskaþjálfaskóli Islands Þroskaþjálfaskóli íslands auglýsir inntöku nemenda skólaárið 1983-1984. Nemendur skulu hafa lokið a.m.k. 2ja ára námi í framhaldsskóla. Æskilegt er að umsæk[endur hafi starfað 4-6 mánuði á stofnun, þar sem þroskaheftir dveljast. Samkvæmt heimild í reglu- gerð fyrir skólann (9. gr. 3.) verða haldin stöðupróf í íslensku, dönsku og ensku fyrir þá umsækjendur er ekki fullnægja skilyrðum um bóklegt nám. Umsóknarfrestur er til 8. júní n.k. Umsóknareyðublöð eru afhent í skólanum milli kl. 10-12 alla virka daga. Umsóknir skal senda til Þ.S.Í. pósthólf 261, 212 Kópavogi. Forstöðumann vantar á leikskólann v/Hlíðarveg á ísafirði, fóstru- menntun áskilin. Umsóknarfrestur er til 20. maí 1983. Umsóknir sendist til undirritaðs, sem einnig veitir nánari upplýsingar. Félagsmálafulltrúinn ísafirði, Austurvegi 2, sími 94-3722, 400 ísafirði. r Islandsmeistaramót í hárgreiðslu og tiárskurði veröur haldið í BROADWAY sunnudaginn 15. mai ’83. Keppnin hefst kl. 10 f.h, og lýk- urkl. 17. „Galadinner11 um kvöldið. Miðapantanir í síma 27667. 5 efstu í hvorri iðngrein fá rétt til keppni á Norðurlandamóti. Erlendirdómarar. Fjölmenniðog sjáið skemmtilega keppni. Samband hárgrei&siu-og hárskere.eistara.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.