Tíminn - 07.05.1983, Page 24
Opið virka daga
9-19
Laugardaga 10-16
H
HEDD
Skemmuvegi 20 Kopavogi
Simar (91(7 75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikið úrval
Sendum um land allt
Ábyrgð á öllu
Kaupum nylega
bíla til niðurrifs
SAMVINNU
TRYGGINGAR
8e ANDVAKA
ARMULA3 SIMI 81411
abriel
HÖGGDEYFAR
GJva ra h I u11 r sírTS!
Hamarshöfða 1
MENNVERMAD GERA UPP HUG
SINN UM EM UPPÚR HELGINNI
— segir Steingrímur Hermannsson um vidrædurnar um stjórnarmyndun
■ „Ég held að það sé ekki eftir
neinu að bíða. Um eða uppúr
helginni, verða menn að gera upp
hug sinn um tvö eða þrjú mjög
stór og mikilvæg grundvallar-
atriöi," sagði Steingnmur Her-
mannsson, formaður Framsókn-
arflokksins að loknum viðræðu-
fundi nefnda Framsóknarflokks
og Sjálfstæðisflokks síðdegis í
gær.
„Þessi atriði eru auðvitað um
leiðir í efnahagsmálum, þ.e. útúr
þessari verðbólgu - svo sem það
hve langur hjöðnunartíminn á
að vera, - hvað á að gera á þeim
tíma til að vernda kaupmátt
lægstu launa og treysta atvinnu-
lífið,“ sagði Steingrímur, „og ég
tel að það sé ekki ágreiningur
um þessi atriði, heldur ágreining-
ur um leiðir. Við framsóknar-
menn leggjum ofurkapp á þetta,
en viljum fremur fara aðeins
varlegar í hlutina, heldur en
hætta alltof miklu t.d. með at-
vinnu og kaupmátt lægri launa.
Ég hugsa að menn hafi mismun-
andi mikla trú á því hversu hratt
er hægt að fara í svona aðgerðir."
Þegar Steingrímur var spurður
hvort Alþýðuflokkurinn væri
ennþá inni í myndinni varðandi
stjórnarmyndun, sagði hann:
„Já, það vona ég.“
Steingrímur sagði það alveg
Ijóst að ef holskefla 20% launa-
hækkana skylli yfir 1. júní nk.
myndi það þýða stöðvun fjöl-
margra fyrirtækja, því pening-
arnir væru frystir inni í Seðla-
banka.
„Við höfum farið yfir þau
vandamál sem við blasa og gert
okkur grein fyrir því að þau eru
á ýmsan hátt alvarlegri en áður
var talið, auk þess sem við höfum
reynt að átta okkur á því hvort
við getum samræmt skoðanir
okkar á því hvernig leysa megi
þessi mál,“ sagði Geir Hallgríms-
son, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins eftir fundinn í gær, og bætti
við: „«n við erum ekki komnir
að niðurstöðu um það.“
Steingrímur sagði jafnframt í
gær, að upplýsingar þær sem
borist hefðu frá Þjóðhagsstofnun
um stöðu sjávarútvegsins væru
hvergi nærri nógu ítarlegar, því
það vantaði uppgjör frá vertíð-
inni, auk þess sem varasamt væri
að taka aðeins fyrir'einn hluta
landsins. Þegar Steingrímur var
spurður um afstöðu þingflokks-
ins til viðræðna við Sjálfstæðis-
flokkinn, cn þingflokkurinn hélt
fund síðdegis í fyrradag, sagði
Steingrímur: „Við teljum að
mikinn ábyrgðarhlut að gefa
ekki kost á því að halda við-
ræðum áfram, og ákváðum því
að halda viðræðunum við sjálf-
stæðismenn áfram og vorum við
sammála um það. Vissulega er
ekki nema gott eitt um það að
segja, ef það næst samstarf á
milli flokkanna -AB
Þyrilsmálið:
VHNUSIfKW-
IIN AFLÉTT
— skipið átti að sigla í nótt
I"
•r ^>1, ■ ■" * .
A, ■ % •$-, *
.
.. i—-
■ ÞegarTiminnhafðisamband
við Þórð Árelíusson skipstjóra á
Þyrli seint í gærdag var búið að
aflétta vinnustöðvuninni við
skipið og undirbúningur hafinn
fyrir losun. Ef ekkert óvænt
hefur komið til ætti skipið því að
hafa siglt s.l. nótt.
Eigandi skipsins, Sigurður
Markússon, ogsjómennirnirsem
höfðu gengið frá funduðu í gær í
London með fulltrúa bresku
verkalýðssamtakanna og þegar
við ræddum við Þórð skipstjóra
hafði hann fengið boð um að
sjómennirnir ásamt Sigurði væru
á leiðinni um borð. Þórður
kvaðst ekki vita hvernig hefði
samist um en væntanlega hefði
verið fallist á þá tryggingu sem
Farmanna og fiskimannasam-
bandið hafði sett.
„Ef ekkert kemur upp getum
við siglt í nótt,“ sagði Þórður, en
það er samt ekki að vita nema
eitthvað babb eigi enn eftir að
koma í bátinn. Eftirlitið hefur
verið að fetta fingur út í það að
tvær dælur sem eiga að dæla sjó
í ballestartanka séu bilaðar og
maður veit ekkert hvað þeir ætla
að gera í því. En það bíður
farmur eftir okkur í Esbjerg í
Danmörku og við þurfum að
losna strax ef við eigum ekki að
missa af honum. -JGK
HÁHYRNINGARNIR FÓRU TIL KANADA
■ Háhyrningarnir þrír, sem
verið hafa í Sædýrasafninu í
Hafnarfirði síðan í haust, hafa
nú verið seldir úr landi. Fóru
þeir með flugvél áleiðis til Vict-
oria, sem er á Vancouver Island
á vesturströnd Kanada, en þar
verður þeim komið fyrir í dýra-
garði.
„Meðan við liggjum undir á-
sökunum um þjófnað og annað
slíkt vil ég ekkert upplýsa um
hvað fæst fyrir háhyrningana,"
sagði Jón Kr. Gunnarsson, for-
stöðumaður Sædýrasafnsins í
Hafnarfirði í samtali við Tímann
í gær.
Jón sagði að verðið á dýrunum
kæmi fram þegar reikningar
safnsins fyrir þetta ár yrðu lagðir
fram og fyrr væri engin ástæða til
að gefa upp tölur.
—Sjó.
■ Nei, það lcynir sér ekkl að
vorið er komið, - tími gróand-
ans og ungviðisins. Hér má sjá
hana Katrínu Heiðbrá Harðar-
dóttur frá Efrivík í SkaftafelLs-
sýslu með dagsgamalt folald,
sem Katrín hefur þegar skírt
og heitir það Tinna.
(Tímamynd Hörður Daviðs-
son)
dropar
Morgunblaðið
undirbýr jarð-
veginn?
■ Illgjarnar tungur herma að
Morgunblaðiö undirbúi nú
jarðveginn fyrir stjómarmynd-
un Geirs Hallgrímssonar með
því að birta dag hvern nú á
baksíðu viðvörun til þeirra sem
hugsaniega ætla að flýja land,
og segir í viðvörununni að
menn skuli láta það ógert að
rjúka til Svíþjóðar, þar bíði
ekkert annað en hungur og
atvinnuleysi - hér sé miklu
betra að vcra, og má að sjálf-
sögðu lesa á milli línanna að
hér sé betra að vera, alveg
burtséð frá því hvers konar
ríkisstjórn veröi mynduö.
Bekkjar-
myndin
■ Bekkjarmynd hafði veriö
tekin í Flensborgarskóla og
kennarinn var að hvetja nem-
endurna til að kaupa eíntak.
- Hugsið ykkur hvað það
verður gaman að skoða mynd-
ina eftir nokkur ár. Þá getið
þið sagt: Nei, sko. Þarna er
Árni. Hann er orðinn banka-
stjóri. Og þarna er Anna - hún
er gift Ameríkana. Og Friðrik
greyið. Hann er í fangelsinu,
blessaður...
- Já, bætti Friðrik við. - Og
þarna cr kcnnarinn. Hann er
dauður!
Sjálfstæðis-
menn ekki á
einu máli um
Geir
■ Flestir sjálfstæðismenn
virðast á einu máli um að ef
Geir Hallgrímsson formaður
flokksins nær litlum sem eng-
um árangri í stjórnarmyndun-
artilraunum sinum um helgina,
þá muni hann skila umboði
sínu fljótlega í næstu viku. Nái
Geir hins vegar árangri, þá eru
sjálfstæðismenn enn ekki alveg
reiðuhúnir til þess að sætta sig
við hann sem forsætisráðherra-
efni flokksins, a.m.k. ekki
sumir þeirra. Heyrs( hefur tU
að mynda til cins áhrifamikils
þingmanns í þingflokksliði
sjálfstæðismanna þar sem hann
sagði að þó Geir næði árangri
Framtíd
Sædýra-
safnsins:
.Mrðun
VERÐUR TEKIN
IIM HLGINA”
— segir
Jón Kr.
Gunnarsson
■ „Ég reikna með að ákvörðun
um framhaldið verði tekin á
fundi stjómar safnsins núna um
helgina,“ sagði Jón Kr. Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri Sæ-
dýrasafnsins í Hafnarfiröi, í sam-
tali við Tímann í gær.
Jón sagði, að síðan ljós hefði
verið neikvæð afstaða mennta-
málaráðherra til þess að Sædýra-
safnið fengi starfsleyfi, hefðu
framkvæmdir til undirbúnings
opnunar legið niðri, en eins og
greint hefur verið frá í Tímanum
var áætlað að gera úrbætur fyrir
um 1,5 milljónir króna í safninu
nú í vor, og opna það síðan.
Jón vildi engu spá um hver yrði
niðurstaða fundarins.
-Sjó.
nú um helgina, þá væri ekki
þar með sjáifgefið að Geir væri
forsætisráðherraefni Sjálf-
stæðisflokksins. Hvaða kandi-
dat skyldi þessi þingmaður
hafa í huga?
Krummi
... er ekki frá því að ástæða
væri til að reyna að koma enn
fleiri þorskhaúsum til Níger-