Tíminn - 15.05.1983, Blaðsíða 2
2
SUNNUDAGUR 15. MAÍ1983
■ Hótel Loftleiðir sem í huga vclflestra
þeirra, sem á annað borð þekkja eitt-
hvað til hótela hér á landi, skipar eitt
toppsxtið, xtlar sér greinilega ekki að
fxrast niður á gxðalistanum, því ef svo
má til orða taka um hótel, þá stendur þar
yfir nú og um nánustu framtíð ein
allsherjar andlitslyfting. Verið er að
endurnýja og bxta herbergi hótelsins,
móttakan og anddyrið eru að fá á sig
nýjan svip og svo mxtti lengi telja.
Umsjónarmaður Á faraldsfxti snéri sér
til Emils Guðmundssonar hótelstjóra á
Hótel Loftleiðum og bað hann að upp-
lýsa Tímalesendur um helstu breyting-
arnar sem eru á döfinni hjá Hótel
Loftleiðum.
Stefna að því að gera 40
herbergi upp á þessu ári
„Það stendur til að breyta herbergjun-
um smátt og smátt og erum við nú þegar
búin að breyta 20 herbergjum. Þegar
hótclið var byggt, 1965 til 1966, þá þótti
■ Emil Guðmundsson hótelstjóri á
Hótel Loftleiðum segir landann vera
ánxgðan með þær breytingar sem
verið er að frantkvæma á Hótel
Loftleiðum.
■ Hér sést inn í eitt af hverbcrgjunum sem hafa farið í gegnum breytingar þær sem Emil lýsir í viðtalinu og er meiningin
að á næstunni verði öll hótclhcrbcrgin svona útlítandi.
Tímamynd - G.E.
Hótel Loftleiðir með allskonar endurbætur
yyLandinn fagnar
breytingununis -
segir Emil Guðmundsson, hótelstjóri
það gott og gilt að láta rúmin í tveggja-
manna herbergjunum vera gafl í gafl, en
kröfurnar hafa breyst á þessum 17 árum,
þannig að við höfum nú ráðist í að setja
svokölluð hjónarúm í herbergin, sem
eru að sjálfsögðu ný, auk þess sem við
setjum nýjar sturtur og ný teppi í
herbergin um leið, þannig að þetta eru
eins og ný herbergi eftir að við erum
búin að endurbæta þau. Við ætlum að
taka önnur 20 herbergi t gegn í haust og
síðan markvisst á ári hverju ákveðinn
fjölda herbergja, þangað til við höfum
gert megnið af herbergjunum svona
upp, en við erum með 200 tveggjamanna
herbergi og svo erum við með 17 svítur
og þar að auki erum við með svítuna
Gimli, sem er cinskonar forsetasvíta.
Nú, þá erum við einnig að teppaleggja
gangana á nýjan lcik og höfum við lokið
því verki á fjórðu hæðinni og erum nú
að byrja á þriðju hæðinni. Næsta ár
teppaleggjum við svo ganginn á annarri
hæðinni, þannig að útlitsbætur eru í
fullum gangi hjá okkur. Við verðum
auðvitað að dreifa þessum framkvæmd-
um á talsverðan tíma, því hér er um
kostnaðarsamar framkvæmdir að ræða.“
„Landinn ánægður“
Hvernig hafa þessar breytingar ykkar
fallið gestum hótelsins í'geð? „Gestir
hafa verið mjög ánægðir með þessar
breytingar og það er nú kannski einkum
landinn sem lætur í sér heyra og lýsir
hrifningu sinni, á því að þurfa ekki
lengur að sofa til fóta hjá konunni!
En að öllu gamni slepptu, þá hafa
undirtektirnar sem við höfum fengið
<verið okkur ótvíræð hvatning að halda
áfram á sömu braut."
- Hvað með breytingar niðri - hvað
hafið þið helst gert þar? „Við erum búin
að stækka flugafgreiðsluna talsvert og
það stendur til að bæta hana eins og hægt
er. Plássið fyrir flugfarþegana hefur
aukist mikið við þessa stækkun og við
ætlum einnig að breyta „lobbyinu“ setja
upp skilveggi, blóm og fleira, til þess að
gera það meira aðlaðandi og ég reikna
með að þessar breytingar verði afstaðnar
eftir svona hálfan mánuð.“
Emil sagði að það sem væri helst á
döfinni hjá Hótel Loftleiðum í þessum
mánuði, svona fyrir utan hefðbundna
hótelstarfsemi, væri að á hvítasunnudag
myndi Stina Britta Melander verða stödd
í Blómasalnum og syngja fyrir gesti eina
kvöldstund og svo myndi „Dönsk vika“
í samvinnu við danska sendiráðið hefjast
26. þessa mánaðar og standa til l.júni.
Viktor Borge verður gestur kvöldsins
eitt kvöldið á „Dönsku vikunni“,
Danskur matsveinn, frá Lange linje
Pavilionen sér um matreiðsluna á
„Dönsku vikunni" og er það Daninn
Louis Maagaard. Auk þessa verður
dönsk vörusýning á hótelinu þessa viku
og eru það íslensk fyrirtæki sem flytja
inn vörur frá Danmörku, sem munu
standa að þessari sýningu.
Umsjón Agnes Bragadóttir
Helsta nýbreytnin hjá Flugleidum,
millilandaflngið í sumar:
Beint flug milli Akur-
eyrar og Kaupmannahafnar
Gylfi greinir jafnframt frá því að
mikill áhugi sé á beina fluginu til
Kaupmannahafnar norðanlands og séu
bókanir í flugið þegar orðnar margar.
Flogið verður frá Keflavík til Kaup-
mannahafnar að morgni á fimmtu-
dögum í sumar og þaðan til Akureyrar
kl. 15.45 og lent á Akureyri kl. 16.50.
Brottför frá Akureyri verður svo kl.
17.50 og komið til Kaupmannahafnar
kl. 22.50. Vélin verður síðan komin
aftur til Keflavíkur um kl. 2 eftir
miðnætti.
■ Helsta nýbreytnin í millilandaflugi
Flugleiða í sumar verður beint flug á
milli Akureyrar og Kaupmannahafnar,
en að öðru leyti verður sumaráætlun
félagsins með svipuðu sniði og í fyrra,
cn auk beina flugsins þá verður einnig
ferðum vestur um haf fjölgað.
Gylfi Sigurfinnsson í markaðsdeild
Flugleiða segir í samtali við „Við scm
fljúgum" að Flugleiðir geri ekkir ráð
fyrir að Islendingar verði mikið á
faraldsfæti næsta sumar og segir hann
að þeir miði þá spá sfna við ástandið í
þjóðfélaginu.
Sumaráætlim Flug-
leiða í sumar
Tæp 200 þús-
und sæti
boðin fram
innanlands
Velkomin um borð. Guðjón Guðnason, flugþjónn, tekur á móti farþega um borð í Fokkerinn.
■ Flugleiðir bjóða fram 187.956 sæti í
sumaráætlun innanlands í sumar. Þetta
kemur fram í nýjasta hefti af Við sem
fljúgum, sem Flugleiðir gefa út. Suntar-
áætlunin tók gildi 1. þessa mánaðar og
samkvæmt henni verða jlognar hvorki
meira né minna en 1972 ferðir. Það er
Sverrir Jónsson, svæðisstjóri sem annast
undirbúning innanlandsáætlunar félags-
ins. •
Þrátt fyrir þennan mikla fjölda flug-
ferða í innanlandsfluginu í surnar, þá er
um nokkurn samdrátt að ræða frá því í
fyrrasumar og kemur hann einkum fram
í fækkun ferða til Vestmannaeyja, Pat-
reksfjarðar og Þingeyrar, auk þess sem
þrjár af fimm vikulegum ferðum til
Sauðárkróks verða sameinaðar fluginu
til Húsavíkur. Samdrátturinn kemur
þannig fram tölulega séð, að á tímabilinu
l.mai til l.september verður sætafram-
boð á innanlandsflugi Flugleiða 2774
sætum minna en á sama tímabili í fyrra.
Segir í Við sem fljúgum að ástæða þessa
sé annars vegar reynslan frá í fyrra og
hins vegar eínahagsástand í landinu.
I Við sem fljúgum kemur einnig fram
að Twin-Otter leiguvélin sem Flugleiðir
hafa verið með á leigu frá Flugfélagi
Norðurlands hefur verið skilað til eig-
endanna og munu Fokker-Friendship
vélar Flugleiða nú verða notaðar í öllu
áætlunarflugi félagsins innanlands. en
þær eru fjórar talsins.