Tíminn - 15.05.1983, Blaðsíða 18
I
■ Auðvitað gengur Norðmönnum
annað og mcira til en grínið eitt, þegar
þeir halda hvert alþjóðlega skákmót-
ið eftir annað. Það vantar nefnilega
hcrslumuninn á að Leif Ögaard nái
stórmcistaratitli. í Gausdal fékk
hann tækifxri til að hreppa titilinn,
en þá kom auðvitað taugaskjálftinn
til sögunnar.
De Firmian: Ögaard.
Paulsen-afbrigðið í Sikileyjarvörn.
1. e4 cS 2. Rf3 e6 3. d4 xcd4 4. Rxd4
Rc6 5. Rc3 a6 6. g3 Dc7 7. Bg2 Rf6
8. 0-0 Bb4 (Þessu er betra að leika
einum leik fyrr. 7. .. Bb4 8. Re2
Be7.) 9. Rb3 Be7 10. a4 0-0 11. a5
Bb4 (Flann er á hálli braut. Hvað
með drottningarvænginn? Hitt verð-
ur þó að viðurkenna, að eftir 11... d6
12. Be3 stendur hvítur einnig betur.)
12. Bg5 Rxa5? (Það varð að reyna
Re8.).
13. e5! Rxb3? (Tapar strax, en sömu
sögu má segja um 13 ... Dxe5 14. Bxf6
(gxf6 15. Dg4t) og 13...Re5 14.
Bxd5. Flóknara er 13... Bxc3eneftir
14. bxc3 Rxb3 15. Bxf6 (hótar Dg4)
gxf6 16. exf6 Kh8 17. cxb3 hefur
hvítur yfirburðastöðu. Önnur tilraun
er 13... Re8, en 14. Rxa5*15. Be7 er
gott fyrir hvítan, og 15. Re4 lítur
jafnvel enn betur út. Leikir eins og
Dh5 og Ha4 liggja í loftinu, og ég
endurtek, hva-me drottningarvæng-
inn?) 14. Bsf6! gxf6(Eða 14. ..Rxal.
15. Dg4 g6 16. Dg5.) 15. Dg4t Kh816.
Dxb4 Rc5 17. Ra4 (Þetta hafði
Leifur ekki séð.) 17... fxe5 18. Rxc5
(16 19. Re4 HdX 20. Rf6 Dxc2 21.
Dh4 Svartur gafst upp.
Frá
PCN
Samtök skákblaðamanna, AIPE,
hafa í nokkur ár gefið út fréttablað.
Ekki veit ég hvort betur gengur í
samvinnunni við „Playcrs Chess
News". En Novrup og Co hafa
a.m.k. losnað undan vinnuálagi, og
PCN má, án sérstakrar undanþágu,
vitna í AIPE-meðlimina. Skák-
skýringarnar koma frá PCN svo og
skákskýrendurnir. Hægt er að skrifa
til Los Angeles og biðja um lcyfi, en
það getur tekið sinn tíma.
PCN kemur út tvisvar í mánuði, og
kennir þar margra grasa. Vandamál-
ið er dreifingarkerfið. Sé notaður
hraðpóstur, þýðir það hærra verð
fyrir AIPE-meðlimina. Hér kemur
skemmtileg skák frá Gausdal mót-
inu, en þar urðu Margeir Pétursson,
Kudrin og de Firmian í 1.-3. sæti.
Nýi stórmeistarinn, Lars Karlsson
scm vann cngin afrek á þesssu móti,
náði sér þó á strik í þessari skemmti-
lcgu skák.Jíg styðst að sjálfsögðu
ekki við skýringar Karlssons og de
Firmian í þcssri skák.
Davies: Karlsson
Sikileyjarleikur
I. e4 c5 2. RI3 Rc6 3. Bb5 Rf6 4. e5
Rd5 5. Rc3 Rc7 6. Bxc6 dxc6 7. h3
h6 8. Re4 b6 9. b3 g6 10. d3 Bg7 11.
I)d2 Re6 12. Bb2 g5 (Þetta er ný
hugmynd. Staða svárts er stirð, og ég
vildi frekar hvítu stöðuna.) 13. Rg3
Rf4 14. 0-0-0 Dd5 (Ekki dugði 14. ...
Rxg2 15. Rh5.) 15. c4 De6 16. Ii4
Dg6 17. Rel Bf5 18. h5 Dh7 19. De3
0-0-0 20. Rxf5 dxf5 21. B Hd7 22. g3.
22.... Rh3!? (Lítur glæfralega út, en
gegn g4 er svarið Df4. Svartur teflir
til vinnings, en það gengur ekki eftir
22. ... Re6 23. De4. Við bætist, að
hvítur cr í tímahraki.) 23. Kc2 e6
(Hótunin var c6. Eftir 24. g4 Df4 25.
De2 Dg3 kemur upp kynleg staða.
Og bæði drottningin og riddarinn eru
á borðinu, og svartur fær betri
stöðu.) 24. Hh2? g4 25. f4<?) Hh-d8
26. Rg2? (Hann gerir sér ljóst að 26.
... Dxh5?? 27. Rh4 Bf8 28. Dc2 Be7
29. Hxh3 leiðir til taps.) 26. ... Rf2!
27. Gefíð. Nú sér liann að 27. Dxf2
Hxd3 28. Re3 Hd2t 29. Kcl Dc2t 30.
Rxc2 Hdl leiðir bcint til máts!
Bent Larsen stórmeistari
skrifar um skák
Vangaveltur um keppnina
um heimsmeistaratitilinn
■ Hver verður næsti áskórandi
Karpovs?
Þessari spurningu spreyttu 11 banda-
rískir stórmeistarar og 23 alþjóðlegir
meistarar sig á, í könnun sem bandaríska
skákblaðið „CHESS LIFE“ gekkst fyrir.
Hvert útsláttareinvígi var tekið út af
fyrir sig, og ekki hætt fyrr en áskorandi
sérfræðinganna var fundinn.
1 fyrstu umferð var einvígið Kasparov:
Beljavsky hápunkturinn. Þarna reyndist
álit hinna 34ra fara í sama farveg,
afdráttarlaus sigur Kasparovs.
Kortsnoj: Portisch
Þrátt fyrir slakan árangur Kortsnojs
undanfarið, töldu 23 að Sovétmaðurinn
landflótta myndi verða harðari af sér í
keppninni við Portisch. Ungverjinn hef-
ur aldrei náð þeim árangri í heimsmeist-
arakeppnum sem skákstyrkleiki hans
segir til um. Þar hefur taugaspennan
leikið Portisch grátt á mikilvægum augna-
blikum.
Hubner: Smyslov.
Hér reyndust alþjóðlegu meistararnir
hafa mikla trú á Hubner, en stórmeistar-
arnir skiptust í tvo nær jafnstóra hópa. 6
þeirra töldu Hubner sigurstranglegri,
hinir 5 veðjuðu á Smyslov.
Ribli: Torre
Þetta töldu spámennirnir létt verkefni.
Torre hafði vissulega teflt vel á milli-
svæðamótinu í Toluca, en gegn eitilhörð-
um keppnismanninum Ribli, ætti hann
enga möguleika. Þetta var álit 33 sér-
fræðinganna, aðeins einn gaf Torre
sigur.
Þá var komið að næstu lotu undanúr-
slitanna.
Kasparov: Kortsnoj
og Ribli: Smyslov
Gegn Kortsnoj töldu spámennirnir
Kasparov hafa yfirgnæfandi möguleika.
31 þeirra spáði honum sigri, aðeins 3
töldu Kortsnoj hafa einhverja mögu-
leika. í keppni Ribli: Smyslovs var
Ungverjinn talinn hafa alla möguleik-
ana, og hlutföllin voru 10:2, honum í
hag.
Kasparov-Ribli
Nú var komið að lokakeppninni,
Kasparov: Ribli. Alþjóðlegu meistar-
arnir töldu hlutföllin standa 6:1, Kaspa-
rov í hag, en stormeistararnir voru enn
öruggari um sigur Sovétmannsins, því 10
þeirra spáðu Kasparov sigri, aðeins einn
taldi Ribli hafa von um sigur.
Gangi þessar spár eftir, verður það því
Kasparov sem sest niður gegn Karpov
árið 1983, og teflir við hann um heims-
meistaratitilinn. Og sérfræðingarnir
halda áfram að spá. Enn einu sinni kemur
fram greinilegur mismunur í mati stór-
meistaranna og hinna alþjóðlegu. Al-
þjóðlegu meistararnir skiftust í tvo jafna
hópa, annar hópurinn gaf Karpov sigur,
hinn Kasparov. Stórmeistararnir tóku
hiris vegar rækilega af skarið, og töldu
vinningsmöguleikana standa 4:1, Kasparov
í hag. Við látum álit nokkurra meistar-
anna á væntanlegri viðureign Karpovs
og Kasparovs fljóta með:
A. Soltis, stórmeistari: „Eitt er víst, að
Karpov mun verja titil sinn. Kasparov
þarf þrjú ár til viðbótar."
A. Bisguier, stórmeistari: „Ef Kasparov
kemst í lokaeinvígið, verður hann næsti
heimsmeistari. En Karpov mun rústa
alla aðra en Kasparov."
A. Kakc, alþjóðlegur meistari: „Ég held
að Karpov muni halda titli sínum, hver
svo sem áskorandinn verður. Reynsla
hans vegur þungt, og þungt jafnvel fyrir
hinn unga Kasparov, sem Sovétmenn
vonast til að verði arftaki Karpovs."
Larry Kaufman, alþjóðlegur meistari:
„Kasparov mun verða yfirburðamaður í
skákheiminum næsta áratuginn."
Boris Spassky, fyrrum heimsmeistari:
„Ég tel Kasparov líklegasta áskorand-
ann. En ég efa, að hann standist loka-
prófið. Hann er of ungur, og Karpov
gamall krókódíll sem býr yfir öhemju
reynslu. En í þar næstu heimsmeistara-
■ Karpov - Kasparov
- Menn eru ekki í vafa um að einvígið verður á milli þeirra.
keppni held ég að ungi krókódíllinn
muni rífa þann gamla í sig.“
Við sláum botninn í þetta spjall, með
þeirri skák sem „Chess Life“ taldi bestu
skák ársins 1982. Skákin var tefld á
stórmótinu í Hamborg.
Hvítur: Seirawan, Bandaríkin
Svartur: Karpov. Sovétríkin.
Drottningarbragð.
1. Rf3 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 d5 4. d4 Be7
5. Bg5 h6 6. Bh4 0-0 7. Hcl (Nýjung frá
Kortsnoj sem fyrst lék þessu í heims-
meistarakeppninrii 1981). 7... b68. cxd5
Rxd5 9. Rxd5 exd5 10. Bxe7 Dxe7 11.
g3 (Einfaldar er 11. e3, og losna þar með
við allan þrýsting svarts eftir hálfopinni
e-línunni.) ll...He8! 12. Hc3 (Ef 12.
Bg2 Ba6.) 12...Ra6 13. Da4 (13. He3?
Db4t 14. Dd2 Hxe3 var ekki gott fyrir
hvítan.) 13...b5! (I skák Seirawan:
Karpovs, Philips og Drew mótinu
1982, var leikið 13... c5? 14. He3Be615.
Dxa6 cxd4 16. Hb3 Bf5 17. Bg2 Bc2 18.
Rxd4 Bxb3 19. Rxb3 og hvítur vann
auðveldan sigur. Nú endurbætir Karpov
afbrigðið.) 14. Da5? (Hvítur varð að
leika 14. Dc2.).
14.. .De4! 15. Kd2 He616. b3 b417. He3
Dbl 18. Hxe6 Db2t 19. Kdl
STÖÐUMYND.
19.. . Bxe6! (Eftir þessa glæsilegu fórn,
er hvítur glataður.) 20. Dxa6 (Ef 20.
Rd2 Dalt 21. Kcl Dxd4 22. Dxa6 Bf5t.
Eða 20. e3 Bg4 21. Dxd5 Dblt 22. Kd2
c6 23. Dxc6 Hc8 og vinnur.)
20.. .Dalt 21. Kd2 Dc3t 22. Kdl Bf5 23.
Rel Hb8! (Hrókurinn skundar í sókn-
ina.) 24. Dxa7 (Eða 24. e3 Hb6 25. De2
Dalt 26. Kd2 Hc6.)
24.. .11.ri 25. e3 Hc6 Bc4 (Fyrsta færsla
biskupsins er beint í dauðann.)
26.. .Dalt 27. Kd2 (Ef 27. Ke2 Db2t 28.
Kf8 Bh3t 29. Rg2 Hf6). 27...Db2t 28.
Kdl dxc4! 29. Da8t Kh7 30. Dxc6 c3 og
hvítur gafst upp, enda mátið skammt
undan. 31. Rf3 Dblt 32. Ke2 Bd3 mát.
Jóhann Öm Sigurjónsson
Jóhann Öm Siguijónsson
skrifar um skák
Verkakvennafélagið
Framtíðin Hafnarfirði
Tillögur stjórnar og trúnaðarmannaráðs félagsins
um stjórn og aðrar trúnaðarstöður fyrir árið 1983
liggja frammi á skrifstofu félagsins Strandgötu 11
frá og með sunnudeginum 15. maí - þriðjudags-
ins 17. maí til kl. 17. Öðrum tillögum ber að skila
fyrir kl. 17 þriðjudaginn 17. maí og er þá
framboðsfrestur útrunninn. Tillögum þarf að fylgja
meðmæli 20 fullgildra félagsmanna.
Verkakvennafélagið Framtíðin
Auglýsing
Sumar- og haustbeitarland óskast leigt júní-des-
ember fyrir 15-16 hesta ekki með öðrum. Innan
80 km. frá Reykjavík. Tilboð merkt „Skjólgott"
sendist Tímanum fyrir n.k. miðvikudag.