Tíminn - 15.05.1983, Blaðsíða 12
SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1983
12
fólk í listum
■ Robert von Bahr heitir maður
sænskur og rekur stærsta útgáfufyrirtæki
í klassískri tónlist á Norðurlöndum, BIS.
Von Bahr er reyndar ekki aðeins eigandi
fyrirtækisins, heldur stjórnar hann öllum
upptökum á vegum þess og er nánast
fyrirtækið ásamt konu sinni, en saman
vinna þau bókstaflega allt sem gera þarf
til að hljómplata geti orðið til nema
prenta umslögin og pressa plöturnar.
Fyrirtækið BIS dreifir hljómplötum sín-
um víða um heim, um Kanada og
Bandaríkin, flest lönd V-Evrópu, Ástra-
líu, Taiwan og Japan. Um 7-8000 tryggir
kaupendur eru að plötum hans. Von
Bahr tekur upp með digital tækni og
svokölluðu DMM, sem undirritaðan
brestur tækniþekkingu til að útskýra
hvað í felst, en þessi tækni þykir sú
fullkomnasta sem völ er á. BIS hefur
gefið út um 230 hljómplötur, margar
með heimsþekktum tónlistarmönnum,
og má þar nefna söngvarana Birgit
Nilsson og Elisabet Söderström, finnska
hljómsveitarstjórann Okko Kamu, feðg-
ana Ib Lansky-Otto og Wilhelm Lansky-
Otto, kanadíska flautuleikarann Robert
Aitken, Erling Blöndal Bengtson, Tai-
pola kórinn finnska, Utvarpshljómsveit
Vínarborgar og London Simphonic Orc-
hestra. BIS hefur gefið út verk Griegs í
heildarútgáfu og nú er unnið að heildar-
Kór Langholtskirkju ásamt stjórnanda sínum Jóni Stefánssyni organista.
held ég það strangasta sem kórinn hefur
lent í og það að við skyldum þurfa að
flytja okkur austur í Skálholt gerði það
að verkum að við misstum heilan dag úr
upptökunum og setti auðvitað á okkur
enn meiri pressu. En þetta hafðist og
von Bahr var á endanum ánægður með
árangurinn.
Platan mun hefjast á lagi úr Þoriáks-
tíðum, María meyjan skæra, ef menn
þekkja ekki lagið undir því nafni kannast
þeir kannske við það undir heitinu Ó
mín flaskan fríða. Þá kemur Þjóðsöngur-
inn, síðan Lofsöngur eftir Helga Helga-
son, Látum sönginn glaðan gjalla og
Fjallkonan, eftir Sigfús Einarsson, þrjár
þjóðlagaútsetningar, Ég að öllum háska
hlæ, í útsetningu dr. Hallgríms Helga-
sonar og Krummavísa og Sofðu unga
ástin mín í útsetningum Jóns Asgeirsson-
ar, þá Requiem eftir Jón Leifs, Hún var
þaó allt ogHaldið ’ún Gróa hafi skó úr
Kiljanskviðu Gunnars Reynis Sveins-
sonar, Orðskviðir Salomons eftir Jón
Ásgeirsson, The sick Rose eftir Atla
Heimi Sveinsson og loks Davið 92 og
Hósíanna eftir Þorkel Sigurbjörnsson,
en í síðastnefnda verkinu syngur einsöng
Sigríður Gröndal, nýbakaður sigurveg-
ari úr söngvarakeppni sjónvarpsins. -
Von Bahr hannar sjálfur plötuumslagið
og allir textar fylgja með á fimm tungu-
Sænskt útgáfufyrirtæki gefur út og dreifir plötu með flutningi
Kórs Langholtskirkju á íslenskum kórverkum:
Plötunni dreift 1 þúsundum
eintaka ífjórum heimsálfum
úlgáfu á verkuni Sibeliusar hjá fyrirtæk-
inu og hefur það sem út er komiö hlotið
frábæra dóma, sem og Grieg útgáfan.
Nú hefur Kór Langholtskirkju hlotn-
ast sá heiður að syngja inn á hljómplötu,
sem von Bahr mun gefa út og eins og sjá
má af upptalningunni hér á undan eru
kórinn og stjórnandi hans, Jón Stefáns-
son, þar í góðum félagsskap. Upptakan
fór fram í Skálholtskirkju seint í apríl
síðastliðnum. Tónlistin á plötunni verð-
ur íslensk kórtónlist, allt frá upphafi
Þorlákstíða á 14. öld til okkar daga, öll
verkin sungin án undirleiks. Platan mun
bera heitið „An anthology of Icelandic
choirmusic.“
Jón Stefánsson stjórnandi kórs Lang-
hollskirkju sagði á dögunum er við
ræddurn við hann að hér væri, að því er
hann best vissi, um að ræða fyrstu
plötuna tekna upp af erlendum útgef-
enda með íslenskum flytjendum og ætl-
aða til kynningar á íslenskri tónlist,
gamalli sem nýrri. Og með dreifingar-
kerfi BIS fyrirtækisins í huga mætti ætla
að íslenskir flytjendur og íslensk tónlist
hefði adrei komið út á svo stórum
nrarkaði erlendis sem raunin verður á
nú, en platan er væntanleg á markað í
ágúst n.k.
„Það var í rauninni Þorkell Sigur-
björnsson tónskáld sem kynnti kórinn
fyrir von Bahr,“ sagði Jón „Upphaflega
var hugmynd hans að gefa út plötu með
verkum Þorkels, en við höfum einmitt
flutt mikið af kórverkum hans. Svo
þróaðist hugmyndin smám saman út í
þetta sem nú er orðið að veruleika, að
gefa út yfirlitsplötu með íslenskri kór-
tónlist. þetta er reyndar búið að vera
nokkur ár til umræðu.
Fyrst var ætlunin að taka upp plötuna
í Langholtskirkjunni nýju og við byrjuð-
um raunar þar og von Bahr var afar
hrifinn af hljómnum í kirkjunni, en því
miður truflaði umferðargnýrinn upp-
tökurnar svo að við urðum að flytja
okkur austur í Skálholt. Því má skjóta
inn að einn af leyndardómunum á bak
við þessa makalausu hæfni von Bahrs
sem upptökumanns liggur einmitt í því
að hann er afar kröfuharður á það
húsnæði sem tekið er upp í, hann tekur
gjarna upp í tónleikahúsum eða kirkjum
sem uppfylla ströngustu kröfur um
hljömburð, fremur en í stúdíóum.
Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því
fyrr en ég fór að vinna með von Bahr
hvað felst í því að vera góður upptöku-
maður. Hann er óhemjulega nákvæmur
og hikaði ekki við að láta endurtaka
sama lagið 20-30 sinnum, ef hann var
ekki ánægður. Og það fór sko ekkert
framhjá honum. Ég get nefnt sem dæmi
að það kom tvisvar fyrir að ég hreyfði
fótinn meðan á upptöku stóð og við það
brakaði i ökklanum á mér og það þýddi
að endurtaka varð upptökuna. Þetta er
málum.
Það er ástæða til að vekja athygli á
því“ sagði Jón, „að ágæt verk gátu ekki
verið með á þessari plötu af þeim
ástæðum að sungið er án undirleiks. Ég
nefni sem dæmi að ekkert af kórverkum
Páls ísólfssonar kom til greina vegna
þess að þau eru samin með undirleik,
gjarna hljómsveitarundirleik."
Og þá er ekki annað eftir en að minna
á að í dag kl. 17.00 mun Kór Lang-
holtskirkju halda tónleika í nýju kirkj-
unni í Langholtinu og þar gefst okkur
kostur á að heyra þá efnisskrá sem
sungin var inn á plötuna á dögunum. Til
hamingju Jón Stefánsson og kór Lang-
holtskirkju. -JCK
CHF
Mikil gæöi á ótrúlegu verði
Já þú færð mikið fyrir krónuna þegar þú kaupir SONY CHF kassettur.
Og við fullyrðum að gæðin eru langt fyrir ofan hið hagstæða verð:
JAPIS hf.
BRAUTARHOLTI 2 - SÍMI 27133
REYKJAVlK: Japis, Hljóðfærahús Reykjavíkur, Grammið, Stuð, SS - Hlemmi, Hagkaup,
Gallerý. KÓPAVOGUR: Tónborg. HAFNARFJÖRÐUR: Kaupfélagið, Músík og Sport.
KEFLAVÍK: Studeo. AKUREYRI: Kaupangur, Tónabúöin. VESTMANNAEYJAR: Músíkog
Myndir. NESKAUPSTAÐUR: Bókaverslun Höskuldar Stefánssonar. HÚSAVÍK: Bóka-
verslun Þórarins Stefánssonar. REYÐARFJÖRÐUR: Kaupfélagið. SEYÐISFJÖRÐUR:
Kaupfélagið. ÍSAFJÖRÐUR: Epliö. BOLUNGARVÍK: Einar Guðfinnsson. AKRANES:
Studeoval, Bókaverslun Andrésar Níelssonar. SAUÐÁRKRÓKUR: Radio og Sjónvarps-
þjónustan. HELLA: Mosfell. VOPNAFJÖRÐUR: Bókaverslun Steingríms Sæmundssonar.
SELFOSS: Radio og Sjónvarpsþjónustan.