Tíminn - 15.05.1983, Qupperneq 5
SUNNUDAGUR 15. MAÍ1983
5
Miðilsfyrirbæri
samþýðanleg sjónhverfingum
í annan stað er ástæða til að hafa í huga að á
andafundum fer fram sefjun og sjálfsefjun, vísvit-
andi eða óafvitandi, og hún brenglar dómgreind
viðstaddra. Viljinn til að trúa, ekki síst í kjölfar
ástvinamissis, skiptir einnig miklu máli í þessu
sambandi.
Dásvefn miðils er ýmist tilbúningur hans, eða
eins og William Sargant bendir á í bókinni The
Mind Possessed (1973), um er að ræða ákveðið
stig sefjunar eða dáleiðslu þar sem t.d. ýmislegt
það rifjast upp óafvitandi sem gleymt var.
Það mikilvægasta í sambandi við miðilsfyrirbæri
er að þau eru öll samþýðanleg sjónhverfingum.
Miðlar geta ekkert það gert sem hæfir sjónhverf-
ingarmenn geta ekki leikið eftir. Sama gildir
raunar um öll „dulræn fyrirbæri" sem unnt er að
rannsaka með aðferðum vísinda.
Andatrú nærir órökvísa hugsun ogvekurfalskar
vonir. Til allrar hamingju fer henni hnignandi hér
á landi, og kannski verður hún öll innan fárra ára.
- G.M.
CfMfVS
Öryggi í fóðuröflun
SUÐURLANDSBRAUT 32 • REYKJAVlK • SÍMI 86500
Gáta „sálrænnar ljós-
myndar” ráðin
Af svikahrappnum Hope og
viðskiptum hansvið íslendinga
■ í fyrra bindi safnritsins Öldin okkar
þar sem greint er frá minnisverðum
tíðindum úr blöðum hér á landi á
árunum 1901-1930 er m.a. að finna
athyglisverða frásögn frá árinu 1928
undir fyrirsögninni „Mynd af Haraldi
Níelssyni?"
Þar segir orðrétt:,,30/10. Þau hjónin,
Sveinn M. Sveinsson og kona hans,
Soffía, dóttir Haralds heitins Níelssonar,
voru nýlega á ferð á Englandi, og komu
þau við í Crewe, en þar er maður, Hope
að nafni, er fengist hefur við það í mörg
ár að taka svonefndar sálrænar myndir.
Þegar fólk lætur Hope taka myndir af ■
sér, er fyrst haldin eins konar guðsþjón-
usta. Þegar plöturnar eru framkallaðar,
koma svo oft ýmsar aukamyndir fram á
þeim. Telja margir sig hafa þekkt látna
ástvini sína á myndum þessum.
Hjónin létu Hope taka mynd af sér,
og þegar þau fengu myndina, kom í Ijós,
að á bak við þau var mynd af Haraldi
Níelssyni. Þykjast þau fullviss um, að
^ myndasmiðurinn hafi ekki vitað nein
deili á þeim, og þess vegna hafi hann
ekki getað haft nein brögð í tafli. -
Línuin þessum fylgir mynd, er Hope tók
af þeim hjónum.“
Lýkur þar frásögninni í Öldinni okkar.
■ „Megnið af spíritistunum trúa og
(trúðu) án verulegra heilabrota, þeir
bera barnalegt traust til “fyrirbæranna ,
og eru gjörsneyddir skilningi á ströngum
sannanakröfum vísindanna,, skrifar
norski sálfræðingurinn Harald
Sch jelderup í bókinni Furdur sálarlífsins
(AB 1963). Ljósmynd af “útfrymi,, hjá
miðlinum Einari Nielsen. Þaðerprófess-
or Haraldur Níelsson sem heldur um
vinstri hönd miðilsins.
blekkingum byggð. Keene beitti öllum hinum
hefðbundnu aðferðum sjónhverfingarmanna á 13
ára mtðilsferli sínum: Jas spurningar úr lokuðum
umslögum og svaraði þeim síðan „að handan":
fann týnda hluti; vissi ótrúlega mikið um einkahagi
fólks sem „enginn annar en það sjálft gat vitað1',
o.s.frv.. I þessu skyni notfærði hann sér brögð
sjónhverfingarmanna, og spilaði til hins ýtrasta á
trúgirni og einfeldni viðstaddra. Engum datt í hug
að væna hann um svik, og játningar hans komu
andatrúarmönnum í opna skjöldu.
Líkamningar og útfrymi á andafundum hljóta
líka að flokkast undir svik. Þegar efasemdarmenn
hafa kveikt ljós í óleyfi kemur í Ijós að „líkamn-
ingarnir" eru starfsmenn miðlanna í dulargervi,
og útfrymið jarðneskt efni. Prettir af þessu tagi
hafa verið afhjúpaðir hér á landi. Það er ekki
tilviljun að samhliða vaxandi efasemdum um
miðilsfyrirbæri, og aukinni gagnrýni á andatrú,
hafa líkamningar og útfrymi dottið upp fyrir.
Ljósmyndarinn í Crewe hét fullu nafni
William Hope, og hafði er hér var komið
sögu þegar verið afhjúpaður fyrir svik og
pretti við ljósmyndaiðju sína, og frá
óheilindum hans greint í blöðum, tíma-
ritum og bókum. Edward Bush, félagi í
Breska sálarrannsóknarfélaginu, stóð
hann að verki árið 1921, og greindi frá
því hvernig hann falsaði myndir sínar í
sérstökum bæklingi og Lundúnablaðinu
Trulh. Ýtarleg rannsókn þriggja manna
í sama félagi leiddi hið sama í Ijós, og
var greint frá afhjúpuninni í skýrslum
Sálarrannsóknarfélagsins árið 1933. Þar
kom m.a. fram að íljósmyndasafni Hopes
voru yfir 3000 Ijósmyndir af aðskiljan-
legum persónum sem hann virtist nota
þegar bæta þurfti „öndurn" inn á mynd-
irnar sem hann tók sjálfur í myrkraher-
bergi sínu.
Bandaríski sjónhverfingarmaðurinn
Harry Houdini fjallar einnig um svika-
starf Hopes í bók sinni A Magican
Among the Spirits, einni frægustu ádeilu
á andatrú og sálarransóknir á fyrri hluta
aldarinnar. Sjálfur hafði hann reynt að
fá Hope til að taka af sér „sálræna
Ijósmynd" en hann kom sér undan því.
Loks ákvað Houdini í desember 1921 að
senda á fund hans vin sinn DeVega frá
Glasgow. hæfan sjónhverfingarmann
sem sjálfur var Ijósmyndari. í bréfi sem
DeVega skrifaði Houdini eftir heim-
sóknina, og birt er á bók Houdinis,
skýrir hann frá því hvers hann hafi orðið
vísari og hvernig Hópe fari að því að
bæta aukamyndum inn á ljósmyndir
sínar.
Nú er næsta auðvelt að skýra hvernig
mynd af Haraldi Níelssyni komst í
hendur Hopes. Frá því ergreint í Agripi
af sögu sálarrannsóknanna og spíritism-
ans eftir séra Jón Auðuns að Haraldur
hafi haft kynni af „ljósmyndamiðli" á
Englandi og latið hann taka af sér mynd.
Væntanlega hefur það verið Hope í
Crewe, en annars var samband á milli
„ljósmyndamiðlanna". Sá sem tók
myndina af Haraldi Níelssyni vissi auð-
vitað að þar var á ferð leiðtogi andatrú-
armanna á íslandi, og þegar svo nokkr-
um mánuðum eftir að Haraldur var
láfinn, aðitvo íslendinga bar að garði í
Crewe þurfti Ijósmyndarinn ekki einu
sinni að spyrja þá til nafns til þess aðláta
sér detta í hug að setja mynd af Haraldi
inn á myndina sem hann tók af þeim.
Það sem er forvitnilegast er hins vegar
að prettir af þessu tagi skuli vera svo
auðveldir sem raun ber vitni, og maður
sem hefur verið staðinn að verki við
svindl skuli komast upp með að halda
iðju sinni áfram óárcittur. Að mennta-
fólk, eins og íslendingarnir tveir, skuli
láta blekkjast er enn eitt undrunarefnið.
Trúgirni mannfólksins virðast litil tak-
mörk sett. - GM
Myrnl af
Haraldx NíelmynÍ?
3°/,«. Þau hjt'min, Svcion M.
Sveinsson og kona hans, Soffia,
ilóitir Haralds hcitins Níclssonar,
voru nýlega á fcrð á Englandi, og '
koinu þau við í Crewe, en ]>ar er
maður, Hopc að nafni, er fcngizt
hefur við jþað i mörg ir að taka
svonefndar sálra-nar tnyndir, ;
Þegar fólk la'tur Hope taka j
myndir af sér, cr fyrst lialdin eins j
konar guðsþjónusta. Þegar plöt- i
urnar eru fratnkallaðar, korna svo ;
oft ýmsar aukamyndir fram á þeim. I
Telja margir sig hafa þekkt látna '
■ Frásögn í ÖLDINNI OKKAR, bls.
264, af Ijósmyndinni dularfullu af Har-
aldi Nielssyni.
Gcænfoour
heyog
vothey
Rúlluvél frá CLAAS skarar framúr, einföld, örugg og bindur í fasta og vel gerða
og jafna bagga, en það er sérstaklega þýðingarmikið.
CLAAS baggarnir verða vel lagaðir og þéttir.
Fyrirliggjandi R-34 baggastærð 1,2 x 0,9 m
R-44 baggastærð 1,2 x 1,2 m.