Tíminn - 15.05.1983, Qupperneq 26
26
SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1983
Sálarfræði beitt í
þágu réttvísmnar
lið fyrir lið, bendir það til grimmari
persónuleika, manns á þrítugs eða fer-
tugs aldri.
l’að sem morðinginn gerir strax eftir
morðið er jafn mikilvægt. Virðist hann
hafa dvalið eitthvað á morðstaðnum,
skemmt sér við að skoða eigur fórnar-
lambsins og setja líkið í einhvcrjar
ákveðnar stellingar? Eða drepur hann
og hleypur síðan í burtu? Og hefur hann
tekið eitthvað með sér? Morðingjar taka
oft einhvcrn hlut með sér, t.d. armband,
til þess að nota síðar við að endurskapa
reynsluna í huga sér. Ákveðnar tegundir
af morðingjum halda dagbækur eða
úrklippubækur um glæpi sína.
Mótsagnarkenndar
vísbendingar geta
komið að gagni
Jafnvel vísbcndingar sem í fyrstu virð-
ast mótsagnarkenndarog ruglandi geta
verið mjög nytsamar þegar leitað er að
sökudólgi. Fyrir tveimur árum var 22ja
ára gamalli konu rænt kvöld eitt er hún
var við barnagæslu í htilli borg í Pennsyl-
vaníu. Nokkrum dögum seinna fannst
lík hcnnar á öskuhaugum borgarinnar.
Pegar Douglas fékk Ijósmyndirnar og
líkskoðunarskýrsluna sá hann vísbend-
ingar um tvær algjörlega ólíkar mann-
gerðir. Annars vegar benti sú staðreynd,
að fórnarlambið hafði verið myrt með
ofsafenginni skyndiárás og limlest eftir
morðið til óskipulegs, óttaslegins morð-
■ingja sem ekki gat skorið hana fyrr en
hún var látin. Hins vegar var stúlkan
myrt á einum stað og síðan flutt í bifreið
til öskuhauganna, en það áleit Douglas
einungis á færi skipulegs morðingja sem
undirbjó verk sitt fyrirfram. Líkið bar
þess cinnig merki að því hafði verið
nauðgað, þ.c.a.s. eftir að stúlkan var
látin. Af þessu dró Douglas þá ályktun
að verkið væri ekki unnið af óskipu-
legum manni og studdist þá við önnur
mál af svipuöum toga.
Að lokum sagði Douglas lögreglufor-
ingjanum, sem ekki vissi hvaðan á sig
stóð veðrið, að leita fremur að tveimur
morðingjum en cinum. Og það kom á
daginn að hann hafði rétt fyrir sér.
Annar þcirra - sá sem var ábyrgur fyrir
skyndiárásinni - var sambýlismaður
stúlkunnar, en hinn var bróðir hans sem
skipulagði flutning líksins frá morð-
staðnum til öskuhauganna.
Aðferðir FBI við að' túlka morðin
byggja minna á sálfræðilegu innsæi en
tölfræðilegum líkindum, venjulegri heil-
brigðri skynsemi og þeirri reynslu sem
hlýst af því að rannsaka hundruð svip-
aðra mála. Hvað varðar nakta líkið í
Bronx þá var Douglas þcgar næstum því
viss um það að fyrst stúlkan var hvít þá
værimorðinginn það líka.Þá ályktun dró
hann af því að yfirgnæfandi mcirihluti
þeirra morðingja sem limlesta fórnar-
lömb sín eru af sama kynstofni og
fórnarlambið. Douglas giskaði á að
morðinginn væri á aldrinum 25 til 35 ifra,
vegna þess að morðið var framið með
skipulagðri aðferð. Morðinginn hafði
skrúfað eyrnarlokka stúlkunnar úr eyrn-
arsneplum hennar, ekki rifið þá úr, og
lagt þá snyrtilega sinn við hvora hlið
höfuðsins. Líkið hafði verið sett mjög
vendilega í stellingar sem mynduðu
gyðinglegt gæfumerki. Reynslan sagði
Douglas það að slíkrar hegðunar væri
mjög ólíklega að vænta af unglingi eða
manni rétt orðnum tvítugum. En það
var heldur ekki líklegt aö morðinginn
væri eldri maður.farinn aðnálgastfertugt
eða á fimmtugs aldri. Hvötin til þess að
fremja ruddaleg kynferðismorð kemur
yfirleitt fram á unga aldri og litlar líkur
cru til þess að maður gæti framið slík
morð á löngu árabili án þess að upp um
hann kæmist. „Ef hann væri á fimmtugs
aldri,“sagði Douglas, „væri hann senni"
lega kominn undir lás og slá núna.“
Morðingi sem dvelur
lengi á morðstaðnum býr
líklega í grenndinni
Önnur persónueinkenni morðingjans
komu fram við svipaða röksemdafærslu.
FBI veit það vegna tölfræðilegra upplýs-
inga sinna um glæpi að morðingjar af
þessari gcrð koma oft frá sundruðum
heimilum og eiga erfitt með að mynda
varanlcg tengsl við konur. Þetta leiddi til
þess að ályktað var að morðinginn í
Bronx byggi einn eða með einstæðu
foreldri sínu. Douglas benti á það, sem
lögreglan taldi mikilvægustu vísbending-
una, að morðinginn byggi annaðhvort
eða ynni í nágrenni morðstaðarins. Þá
ályktun dró Douglas af því hvcrnig hann
virtist hafa hegðað sér á staðnum. „Hann
eyddi heilmiklum tíma þar, sem segir
okkur að hann hafi verið þó nokkuð
kunnugur umhverfinu,“ segir Douglas.
„Hann þckkti það nógu vel til þess að
honum fannst hann geta gert allt sem
hann vildi þar án þess að nokkur myndi
trufla hann.“ Og ef morðinginn bjó
nálægt morðstaðnum var mjög sennilegt
að lögreglan hefði þegar talað við hann,
því samkvæmt hefðbundinni rannsókn-
araðferð eru allir íbúar svæðisins yfir-
heyrðir.
Það hvernig FBI nær í hvern hluta
pússluspilsins fyrir sigvirðist ekki ofvaxið
skilningi manns, en hin fullgerða lýsing
getur gert reyndasta rannsóknarlög-
reglumann agndofa. Elstur og þekktast-
ur þeirra sem vinna að gerð slfkra lýsinga
cr Howard Teten, en hann hefurstarfað
hjá FBI um tuttugu ára skeið og stjórnar
nú rannsókna- og þróunarstofnun FBI.
Teten er frægur fyrir það að geta gert
mjög nákvæmar lýsingar af morðingjum,
þó upplýsingarnar scm hann hefur til að
byggja á séu af afar skornum skammti.
Teten byrjaði að semja lýsingar árið
1970, en þá kenndi hann hagnýta af-
brotafræði við lögregluskóla FBI. Nem-
endurnir, sem voru frá hinurn ýmsu
deildum lögreglunnar, báru gjarnan
undir hann þau sakamál sem þeir voru
að glíma við. Einhverju sinni hringdi til
hans lögreglumaður í Kaliforníu vegna
máls sem honum þótti óskiljanlegt, ung
kona hafði verið stungin mörgum sinn-
um til bana. Þegar hann hafði lýst
morðinu stuttlega sagði Teten honum að
hann skyldi leita að unglingi sem byggi í
nágrenninu. Þetta væri horaður, bólu-
grafinn og félagslega einangraður
krakki, sem hefði myrt stúlkuna í
stundaræði. Hann hefði aldrei myrt
neinn áður og væri hræðilega sakbitinn.
„Ef þú gengur um hverfið og bankar að
dyrum muntu sennilega rekast á hann,“
sagði Teten. „Og þegar þar að kemur
skaltu bara standa kyrr og horfa á hann
og segja: Þú veist hversvegnaég er hér.”
Tveimur dögum síðar hringdi lögreglu-
maðurinn aftur og sagðist hafa fundið
unglinginn, cins og Teten hafðisagt fyrir
um. En áður en lögreglumaðurin.n gat
opnað munninn hrökk út úr stráknum:
„Þú náðir mér.“
Ásamt Ijósmyndum frá morðstaðnum
notar FBI upplýsingar sem grundvallar
rannsóknir á morðingjum veita. Á síð-
asta ári fékk Atferlisrannsóknarstofnun-
in styrk að upphæð 2.816.000,- kr. til
þess að koma upp skrá yfir hljóðrituð
viðtöl við a.m.k. 100 alræmda fjölda-
morðingja og aðra launmorðingja og
tölvuskrá yfir það sem sameiginlegt er í
málum þeirra. Þetta er fyrsta vísindalega
rannsóknin sem gerð er á svo mörgum
morðingjum. Stofnunin hefur nú þegar
talað við 36 þeirra, frá Charles Manson
og Richard Speck til David Berkowitz,
Sirhan Sirhan og Arthur Bremer, mann-
inn sem reyndi að myrða George Wall-
ace. Starfsmenn stofnunarinnar hafa
m.a.s. einnig heimsótt Mendota geð-
sjúkrahúsið í Madison Wisconsin, til
þess að hitta hinn 77 ára gamla Ed Gein,
„varúlfinn í Plainfield", en næturheim-
sóknir hans í kirkjugarð smáborgar einn-
ar í Wisconsin blés líklega Alfred Hitch-
cock í brjóst efniviðnum í kvikmyndina
Psycho.
Fór aftur á morðstaðinn
til að endurskapa
atburðinn í huga sér
Með þessum viðtölum vonast stofnun-
in til þess að geta komist að því hvernig
glæpamenn standa að verkum sínum -
bn það hafa fræðilegar rannsóknir á
afbrotum ekki getað leitt í Ijós. Hvernig
nálgast morðingjarfórnarlömbsín? Um
hvað tala þeir við þau áður en þeir
myrða þau? Hvernig hegða þeir sér strax
eftir morðið? Hvernig fór maður, sem
rændi börnum frá verslunarmiðstöðvum,
og myrti þau síðan, að því að fá þau til
að koma með sér? Svarið er svohljóð-
andi: Hann vafði handlegg sinn í sára-
umbúðir og setti hann síðan í fatla og
fékk börnin svo til að hjálpa sér með
plastpoka fulla af varningi að bifreið
sinni, sem hann hafði lagt á afviknum
stað á bílastæðinu.
„Þegar við fórum til New York til að
tala við „Son Sáms“, David Berkowitz,"
segir Robert K.Raessleryfirmaður rann-
sóknarinnar, „sagði hann okkur að þau
kvöld sem hann fann ekkert fórnarlamb
til þess að drepa, hafi hann farið aftur á
einhvern af þeim stöðum, þar sem hann
hafði áður myrt eitthvert fórnarlamba
sinna, til þess að endurskapa atburðinn
í huga sér. Þessar upplýsingar eru mjög
mikilvægar ef vera kynni að fleiri glæpa-
menn höguðu sér á sama hátt.“
Þegar starfsmenn FBI skrifa niður
lýsingar sínar láta þeir sálarfræðileg heiti
lönd og leið og nefna hlutina sínum réttu
nöfnum á venjulegri ensku. Vegna þess
m.a. að lögreglumenn eru almennt fullir
efasemda í garð geðheilbrigðisstéttanna
og tungumál sálarfræðinnar er ekki sér-
staklega vel til þess fallið að hafa hendur
í hári glæpamanna. „Það er lögreglunni
mun notadrýgra að vita aldur mannsins,
af hvaða kynþætti hann er og til hvaða
hjúskaparstéttar hann telst, helduren að
lesa einhverja nákvæma skýrslu um
sálgreiningu," segir Dietz, sálfræðingur
og prófessor við háskólann íVirginíu.
Auk þess hcfur FBI engan sérstakan
áhuga á sálrænunt eiginleikum oghvöt-
um morðingjanna. „Viðeinblínumekki
á hvers vegna morðinginn gerir það sem
hann gerir," segir Roy Hazelwood starfs-
maður FBI. „Það sem við höfum áhuga
á er það að hann skuli gera það og að
hann geri það á ákveðinn hátt sem leiðir
okkar á slóð hans.“
FBI varar lögreglumenn hinna ein-
stöku borga við því að taka lýsingar
sínar of hátíðlegar og hvetur þá til þcss
að takmarka rannsóknir sínar ekki við
fólk sem sýni þau persónueinkenni sem
fram koma í lýsingunni. Lýsingunni er
ætlað að gera grein fyrir ákveðinni
manngerð en hún á ekki að benda á
ákveðinn einstakling. Og það er ævin-
lega hugsnlegt að lýsingin frá FBI sé
alröng. Hazelwood á t.d. vafasaman
heiður af því að hafa gert ónákvæmustu
lýsingu sem sögur fara af hjá FBI. Það
var í máli nokkru sem lögreglan í
Georgíu vann að og snerist um það að
ókunnugur maður birtist skyndilega
heima hjá konu nokkurri og kýldi hana
í andlitið án nokkurs tilefnis, að því er
séð varð, og skaut unga dóttur hennar í
magann, þó ekki til bana svo sem síðar
kom í Ijós. Hazelwood sagði lögreglunni
í Georgíu að leita að manni sem kæmi
frá uppflosnuðu heimili, hefði ekki lokið
gagnfræðaskólanámi, væri ófaglærður
verkamaður, héngi á vafasömum búllum
og byggi langt frá árásarstaðnum. Þegar
loksins náðist í sökudólginn reyndist
hann alinn upp af báðum foreldrum
sínum, sem höfðu verið gift í fjörtíu ár.
Hann hafði lokið stúdentsprófi með
einkunnum yfir meðallagi. Hann hafði á
hendi stjórnunarstarf í stórum banka,
kenndi við sunnudagaskóla og fór reglu-
lega í kirkju, drakk aldrei dropa af
áfengi og bjó í nágrenni árásarstaðarins.
„Ég hef þessa lýsingu fyrir framan mig,“
sagði Hazelwood, „til að minna mig á
það að við erum enn á því stigi þar sem
lýsing af þessu tagi er fremur listræn en
vísindaleg."
Sumir leggja blóm á
grafreiti fórnarlambanna
Um leið og lýsingarnar hjálpa lögregl-
unni að þrengja rannsóknimar eru þær
oft notaðar til þess að blekkja morðingj-
ana og nýtur hún þá oft aðstoðar dag-
blaðanna á staðnum. Þegar starfsmenn
FBI álíta að morðinginn sé undir miklu
álagivegna glæpsins eðaað fara á taugum
hvetja þeir lögregluna á staðn«m til þess
að birta frásagnir um það í dagblöðunum
að rannsókninni miði vel áfram og
lausnin sé í sjónmáli - jafnvel þótt
hvorki gangi né reki. „Maður verður að
taka náungann á sálarfræðinni,“ segir
Douglas. „Ef hann er nógu aðþrengdur
fer hann hugsanlega að hegða sér á
annan hátt og þá er mögulegt að maður
komist á sporið.“
Þegar lýsingin gerir ráð fyrir því að
sökudólgurinn þjáist af sektarkennd get-
ur verið árangursríkt að rifja morðsög-
una upp í tilefni þess að svo og svo
langur tími sé nú liðinn frá morðinu og
fjalla þá jafnvel á samúðarfullan hátt um
fjölskyldu fórnarlambsins. „Það sem
vakir fyrir okkur með þessu er að draga
morðingjann sálfræðilega aftur að fórn-
arlambinu,“ segir Douglas. Lögreglan
ætti þá ef til vill að fylgjast með kirkju-
garðinum þar sem fórnarlambið er grafið
og jafnvel kóma hlustunartækjum fyrir
á minnisvarðanum. Nokkrir morðingjar
hafa náðst þegar þeir fóru í kirkjugarð-
inn til þess að leggja blóm á grafreiti
fórnarlamba sinna.
Sumir sérfræðingar innan geðheil-
brigðisstéttanna eru dálítið viðkvæmir
fyrir því að sálarfræðilegum aðferðum
sé beitt við að íþyngja fólki sálarlega í
stað þess að hjálpa því til að líða betur.
Dietz hefur t.d. stöku sinnum aðstoðað
FBI við að semja lýsingar á mögulegum
morðingjum og hann hefur einnig samið
greinar um glæpi í félagi við starfsmenn
FBI, sem birst hafa í sérfræðilegum
tímaritum. En þegar kemur að því að
' beita sökudólgana sálrænum þrýstingi
kærir hann sig ekki um að vinna með
þeim vegna þess að sú aðferð gæti valdið
því að afbrotamaðurinn fremdi
sjálfsmorð. „Það er yfir höfuð ósiðlegt",
segir hann, „af sérfræðingi að nota
þekkingu sína til þess að skaða mannlega
veru.“
Almenn viðbrögð lögreglunnar við
þeim möguleika að sökudólgurinn fremji
sjálfsmorðer: „Farið hefurfébetra". Og
lögreglan réttlætir notkun þessarar að-
ferðar með því að hún komi hugsanlega
í veg fyrir morð. En sé lögreglan ekki
varkár getur aðferðin einnig reynst
hættuleg, eins og kom í ljós þegar
lögreglan í einu af vesturríkjunum birti
lýsingu frá FBI á morðingja.sem drap
stúlku með 84 hnífsstunguny sjónvarps-
þætti ásamt mjög skýrum myndum frá
morðstaðnum. Lögreglan hafði þó ekki
hugsað út í það að setja vörð við heimili
stúlkunnar. Skömmu eftir að þættinum
lauk sireri morðinginn aftur til heimilis
stúlkunnar og ataði veggina í herberginu
hennar blóði. Hefði móðirin veriðheima
er hugsanlegt að hún hefði hlotið sömu
örlög og dóttir hennar.
FBI hefur að undanförnu notað sál-
rænar lýsingar á öllum stigum rannsókn-
anna. frá upphafi til enda. Stofnunin
ráðleggur lögreglunni í einstökum borg-
um að beita mismunandi aðferðum við
yfirheyrslur, allt eftir því hverskonar
persónuleika hinn grunaði hefur að
geyma, hvort á t.d. heldur að fara með
hann á stöðina að degi til, nota skær ljós,
ganga harkalega að honum eða nálgast
hann á mjúklegri hátt.
Munu tölvurnar
benda á morðingjann?
Starfsmenn stofnunarinnar eru einnig
farnir að vera saksóknurum til ráðgjafar
við réttarhöld um það hvernig yfirheyra
beri hinn ákærða á sakabekknum. Við
réttarhöldin yfir Wayne Williams vegna
tveggja af morðunum í Atlanta sat
Douglas við hlið Jack Mallards saksókn-
ara nær allan tímann. Vandamál sak-
sóknarans var það að til að byrja með
virtist Williams of rólegur og öruggur -
það var varla hægt að ímynda sér að
slíkur maður gæti framið ofsafengin
morð. „Við höfðum áhyggjur af því,“
segir Douglas, „að kviðdómurinn sæi
hann sem trúverðugan mann.“ Douglas
ráðlagði Mallard því að reyna að halda
Williams á sakabekknum eins lengi í
einu og mögulegt væri og dæla á hann
nákvæmum spurningum um morðin.
„Það er erfitt fyrir hann að halda ró sinni
hér í réttarsalnum, þar sem hann hefur
enga stjórn á aðstæðum og allar veilurn-
ar í skapgerð hans koma smám saman
fram í dagsljósið. Því lengur sem þú
getur yfirheyrt hann því órólegri verður
hann og því meiri líkur eru á því að hann
missi stjórn á sér,“ útskýrði Douglas.
Og það er einmitt það sem gerðist.
Þegar Mallard endurtók í sífellu spurn-
ingar sínar um það hvernig fórnarlömbin
hefðu verið kyrkt - „Hvernig leið þér
Wayne, þegar þú þrýstir höndum þínum
að hálsi þeirra,“ spurði hann. „Misstirðu
stjórn á þér, Wayne,“ - varð Williams
stöðugt órólegri. Allt í einu greip hann
fram í fyrir saksóknaranum, benti á
hann og kallaði hann „fífl.“ Síðan flæddi
upp úr honum sundurlaus orðaflaumur
og talsmáti hans breyttist úr fágaðri
ensku í ruddalegt götumál. „Maður sá
kviðdóminn stara á hann í forundran,"
segir Douglas, „þau voru þrumulostin,
þarna sýndi hann á sér allt aðra hlið.“
I framtíðinni verða lýsingar af þessu
tagi unnar fyrir tölvur, þannig að lög-
reglumenn vítt og breitt um Bandaríkin
geta matað tölvu á einkennum tiltekins
morðs og fengið til baka marktæka
tilgátu um það hver morðinginn er.
Morðinginn verður flokkaður eftir því
hvort hann er „skipulegur", „óskipu-
legur“ eða ■ „blandaður” persónuleiki.
Önnur persónueinkenni hans, eins og
aldur, kynþáttur og hversu nálægt morð-
staðnum hann býr. verða merkt með
tölum, eftir því hversu algeng þau eru í
svipuðum glæpum sem áður hafa verið
framdir. Að sjálfsögðu vill enginn segja
neitt um það hvernig tölvan getur bætt
innsæisþættinum inn í greininguna. En
sá dagur virðist ekki langt undan, þegar
lögreglan getur þekkt glæpamann af
þeim sálrænu vísbendingum sem hann
skilur eftir á morðstaðnum jafn fljótt og
örugglega og ef hann hefði atað heilu
veggina fingraförum sínum.
Þýtt úr Psychology Today