Tíminn - 19.05.1983, Síða 3

Tíminn - 19.05.1983, Síða 3
„ÞETTA GERÐIST ÓTRÚLEGA HRATT’ Allir sem vettlingi geta valdið prjóna með MILWARD prjónum enda er heilnæmt að hafa ávallt eitthvað á prjónunum. MILWARD býður uppá hringprjóna, fimmprjóna, tvíprjóna, heklunálar og margt, margt annað. Og nú er einmitt rétti tíminn að hafa eitthvað á prjónunum með MILWARD. segir Ivar Magnússon, sem varð eldsins var fyrstur manna ■ Agnar Þorkelsson, verkstjóri, tók þátt í umpökkuninni af miklu kappi. ■ „Þetta gerðist ótrúlega hratt. Ég var að koma heim úr vinnu og sá að reyk lagði út um glugga á gafli frystihússins. Mér datt fyrst í hug að hann kæmi frá ammoníaki, en fór á og aðgætti og komst þá að raun um að svo varekki. Ég rauk beint inn, hringdi í lögregluna, fór út aftur og þá var reykjarmökkurinn orðinn hreint ofsalegur,“ sagði Ivar Magnússon, starfsmaður í áhaldahúsi Keflavíkur, en hann varð eldsins í Hraðfrystihúsi Keflavíkur var fyrstur manna. „Eftir þetta leið dágóð stund þar til eldtungurnar fóru að gægjast upp úr þakinu og síðan dreifðist eldurinn um það á örskammri stundu," sagði ívar. ívar býr í húsi sem stendur aðeins örfáa metra frá hraðfrystihúsinu ásamt eiginkonu og aldraðri tengdamóður. „Það var fljótlega sýnt að ekki var þorandi að vera í húsinu svo að við yfirgáfum það fljótlega. Reyndum þó fyrst að loka gluggum svo að reykur kæmist ekki inn. Það dugði þó ekki alveg til því að allt tau, gardínur og fatnaður, angar af reykjarlykt. Hvort tekst að hreinsa það veit ég ekki,/ en það eru hreinsunarmenn heima núna og ég bara vona það besta,“ sagði ívar. -Sjó Eins og sjá má var eldsmaturinn nógur. AMMONUKKUTURINN HÉKK Á l£WSUINUM EINUM SAMAN’’ sagdi Marteinn Sigurðsson, vélstjóri í frystivélasal ■ ívar Magnússon varð eldsins var fyrstur manna. ■ „Það var mesta mildi að ekki kom gat á ammoníakkútana. Einn þeirra hékk uppi á leiðslunum einum saman - allar festingar voru brunnar i sundur,“ sagði Marteinn Sigurðsson, vélstjóri í frystivélasal, þegar Tíminn hitti hann í sótsvörtum salnum í gær. ”Ef leiðslurnar hefðu rifnað hefði það getað skipt sköpum í slökkvistarfinu, því ekki var á óloftið bætandi," sagði Marteinn. Aðspurður um skemmdirnar í frysti- vélasalnum sagði hann þær í raun ótrú- lega litlar. Að vísu væri sót yfir öllu og gólfin flóandi í vatni, en vélarnar sjálfar virtust næstum óskemmdar. - Sjó. ■ Efst til vinstri getur að líta ammon- íakkútinn sem hékk á leiðslunum einum saman mcðan slökkviliðsmenn voru að berjast við eldinn. ■ Marteinn Sigurðsson, vélstjóri.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.