Tíminn - 19.05.1983, Blaðsíða 15

Tíminn - 19.05.1983, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 19. MAÍ1983 15 4084 Krossgáta Lárétt I) Logann. 5) Gubba. 7) Lægð. 9) Kona. II) 999. 12) Peningar. 13) Óþrif. 15) Fæðu. 16) Kveða við. 18) Félausu. Lóðrétt 1) Leiftur. 2) Þæg. 3) Gangþófi. 4) Tók. 6) Spurðu. 8) Leiði. 10) Pjálfa. 14) Verkfæri. 15) Ambátt. 17) Baul. Ráðning á gátu No. 4083. Lárétt 1) Danska. 5) Ása. 7) Arð. 9) Læk. 11) Ná. 12) Ra. 13) Gný. 15) Att. 16) Rás 18) Virkin. Lóðrétt 1) Drangs. 2) Náð. 3) SS. 4) Kal. 6) Skatan 8) Rán 10) Ært 14) Ári. 15) Ask. 17) Ár. ■ Það mátti sjálfsagt tala um meistara- heppni hjá Jóni Baldurssyni og Sævari Þorbjörnssyni í spili 30 á íslandsmótinu í tvímenning. En hún verður að vera til staðar svo 115 spila Barómetir vinnist. Norður. S. 10863 H.A106 T. 97 L. AG43 A/Enginn Vestur Austur S. 3 S.G97 H.KD975 H. 43 T. 8 T. DG643 L.1087652 L.KD9 Suður S. AKD42 H.G82 T. AK1052 L,- Jón og Sævar sátu ÁV og suður opnaði á sterku laufi. Sævar kom inná á 1 grandi sem lofaði hjarta og laufi, norður dobl- aði, ^ón stökk í 3 lauf og suður sagði 3 spaða. Sævar sagði nú 5 lauf, norður doblaði, suður sagði 5 tígla og norður stökk í 6 spaða. Nú doblaði Jón, bæði til að Sævar færi ekki að fórna og eins til að reyna að koma andstæðingunum úr jafn- vægi. Sævar spilaði út hjartakóng sem suður tók á ás í borði. Eins óg spilið liggur er varla hægt að fara niður á slemmunni en suður valdi ekki bestu leið þegar hann tók nú laufás og henti hjartagosa heima. Það hefði verið betra að henda tígli en best að geyma laufásinn til betri tíma. Eftir laufásinn tók sagnhafi tvisvar tromp og síðan ás og kóng í tígli og trompaði tígul í borði. Þegar hann trompaði lauf heim kom drottning og enn var tígull trompaður í borði. Nú gat sagnhafi unnið spilið með því að trompa lauf heim. Þegar hann svo tekur síðasta trompið er vestur í einskonar þvingun og 12ti slagurinn kemur á hjarta. En í stað þess að spila litlu laufi úr borði bað hann um laufgosa og nú átti Sævar tvo síðustu slagina á hjartadrottningu og lauftíu. Þetta spil gaf 20 stig af 22 mögulegum en 3 pör enduðu í 7 spöðum 2 niður. Valur Sigurðsson fór einnig niður á 6 spöðum en það var af því að hann var svp óheppinn að hafa Jörund Þórðarson í vörninni. Þar komu AV ekkert inná sagnir en útspil Jörundar gegn 6 spöðum var hjartanía! Valur stakk auðvitað upp ás í borði og eftir það var ekki möguleiki á að vinna spilið.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.