Tíminn - 19.05.1983, Síða 20
Fálegar undirtektir vid málaleitan Svavars:
„EKKI AÐALATRHHÐ AÐ FA í
HENDUR SVONA GAFNAPRÖF’
— segir Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins
■ „Það hefur náttúrlega reynst
ákaflega erfitt fyrir Alþýðu-
bandalagið, að hafa forystu um
stjórnarsamstarf," sagði Stein-
grímur Hermannsson, formaður
Framsóknarflokksins, er Tíminn
spurði hann í gær hvort hann liti
á tilraunir Svavar Gestssonar til
stjórnarmyndunar sem tímasóun.
Steingrímur sagði að hann
myndi hitta Svavar að máli síð-
degis í dag, þannig að Svavar er
ekki alvcg á lciðinni að skila
umboði sínu til stjórnarmyndun-
ar, eins og margir viðmælendur
Tímans töldu í gær að Itann
myndi gera strax árdegis í dag. ^
Steingrímur sagði jafnframt,
er hann ræddi þessar tilraunir
Svavars: „Frá hcndi okkar fram-
sóknarmanna, þá er ekki aðal-
atriðið að fá í hendur svona
gáfnapróf, eins og þennan spurn-
ingalista Svavars, heldur er aðal-
atriðið hvað Alþýðubandalagið
leggur til í efnahagsmálum. Það
er ekki enn komið fram, en ég
vænti þess að ég fái að sjá það á
fundinum á morgun.“
„Ég skal engan dóm fella um
það, hvort þessar viðræður Sva-
vars eru tímasóun eða ekki,“
sagði Geir Hallgrímsson að-
spurður í samtali við Tímann í
gær.
„Ég hef tjáð Svavari," sagði
Geir, „að ég telji ekki ástæðu til
þess að svara þessum spurninga-
lista hans, fyrr en hann hefur
svarað sínum eigin spurningum
sjálfum.
-AB
Ölvaður
ökumaður á
stolnum bíl:
Ók á 5
bíla og
eitt hus
■ Ölvaðurökumaðurástoln-
um bíl ók utan í fimm bíla og
eitt hús við Vcsturberg í Breið-
holti í gærmorgun. Atburður
þessi átti sér stað um 7 leytið
og var ökumaðurinn að koma
akandi eftir Vesturberginu er
hann missti stjórn á bílnum, ók
yfir umferðareyju og utan í
eina fimm bíla sem stóðu á
bílastæði. hvern á fætur öðrum
auk þess að ökumaðurinn
skcllti bílnum utan í húsið að
Vesturbergi 1.
Engin slys urðu á fólki við
þetta en eignartjón er mikið •
-FRI
Menntamálaráðherra um
tillögurnar um nýskipan
fræðslumála í Reykjavík:
„Mun ekki
samþykkja
tillögur
■ Ingvar Gíslason menntamálaráðherra sendi Davíð
Oddssyni borgarstjóra orðsendingu í gær, þar sem segir að
tillögur þær um breytta tilhögun á stjórn fræðslumála séu
að hans mati óaðgengilegar bæði formlega og ekki síður
efnislega. Kveðst menntamálaráðherra því ekki samþykkja
þær, og lýsir þeirri von sinni að borgarstjóri athugi
tillögurnar nánar áður en hann leggur þær fyrir borgar-
stjórn, enda breyti samþykkt borgarstjórnar engu, þar
þurfí lagabrcytingar af hálfu alþingis að koma til.
Ennfremur segir menntamála-
ráðherra að hann sakni þess úr
tillögum nefndarinnar að þar sé
ekki minnst á brýn úrlausnar-
efni, svo sem nýtingu skóla-
húsnæðis borgarinnar og
húsnæðisþörf ýmissa skóla, svo
og skipulagsgrundvöll þeirra og
nefnir þar til Myndlista- og
handíðaskólann og Tónlistar-
skólann. Ennfremur segir mennta
málaráðherra í orðsendingu
sinni:
„Ég harma það hversu gagn-
VÉLSKÓFLA ÓK ÖF-
AN Á FÓLKSBÍL
■ Alvarlegt umferðarslys varð
á horni Miklubrautar og Grens-
ásvegar er vélskófla ók aftan á
fólksbíl, lagði hann á hvolf og
endaði ofan á honum.
Tildrög slyssins voru þau að
fólksbíllinn ók austur Miklu-
braut og staðnæmdist við beygju-
ljósin inn á Grensásveg. Kom
vélskófla á eftir honum niður
akgreinina og mun ökumaður
hennar hafa misst vald á vélinni
með fyrrgreindum afleiðingum
en fólksbíllinn lagðist að mestu
saman við slysið.
Ökumaður fólksbílsins var
fluttur á slysadeild mikið slösuð
en er ekki í lífshættu. Rjúfa
þurfti þak bílsins til að ná henni
út. _FR|
dropar
barnahorn
„Vorharðindin
ekkiþað
versta...“
■ Dagur á Akureyri birti ný-
lega viðtal við Ágúst Guð-
röðarson bónda á Sauðanesi á
Langanesi og var umræðuefnið
að vonum hið harða vor, en á
Langanesi er aðeins smákragi
með ströndinni auður. En
Ágúst hefur samt ekki mestar
áhyggjur af þessu. Hann segir:
„Þetta ástand kemur illa við
okkur, en við erum vanir and-
byr hér um slóðir. Vorharðindi
eru heldur ckki verstu harðind-
in sem leggjast á bændur. Þau
eru náttúruleg og ganga yfir.
Astandiö í efnahagsmálum
þjóðarinnar leggst þyngra á
okkur, þar sem t.d. 33% af
tekjum bænda fara í vexti og
verðbætur, svo ég nefni dæmi.
Það yrði því mikill léttir fyrir
okkur ef ráðamönnum tækist
að finna brúldega peninga-
stefnu...“
formaður Alþýðubandalagsins
sé ekki ókunnur þeirri tilfinn-
ingu sem þarna er lýst, meðan
hann hleypur úr einni blindgöt-
unni í aðra í stjórnarmyndun-
artilraunum sínum.
Krummi
... heyrir að menn séu sammála
um að Svavar viti ekki svarið!
Opiö virka daga
9-19
Laugardaga 10-16
HEDDf
Skemmuvegi 20 Kopavogi
Simar (91)7 75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Ábyrgö á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
abriel
HÖGGDEYFAR
\j QJvarahIutir sSf1
Ljót aðkoma að slysstað eftir að ölvaður ökumaður ók utan í fimm bfla og eitt hús.
Tímamynd Róbert
Hann ratar
ekki
Litli maðurinn þarna á myndinni þarf eiginlega
að komast til borgarinnar sem þið sjáíð þarna uppi
í horninu á myndinni. En eins og þið sjáið er hann í
hálfgerðu völundarhúsi og biður ykkur þess vegna
að hjálpa sér að fínna réttu leiðina. Hann á að fara
eftir einhverri leiðinni sem liggur í áttina að þorp-
inu, en hann má alls ekki fara yfír strik.
Völundarhúsið
■ Þeir á Þjóðviljanum eru
oft meinfyndnir, svo ekki sé
meira sagt og grunar menn að
umsjónarmaður „Barnahorns-
ins“ í blaðinu hafi haft flokks-
formanninn í huga, þegar hann
valdi mynd handa ungum les-
endum blaðsins að glíma við.
Þar er sýndur „litli maðurinn“,
sem nú er staddur í undarlegu
völundarhúsi og kemst ekki
lönd né strönd, alveg áttavillt-
ur. Gera menn að þvi skóna að
5AMVINNU
TRYGGINGAR
8e ANDVAKA
ARMULA3 SIMI 81411
rýnislaust virðist af sumra hálfu
þrýst á um breytingar á Fræðslu-
skrifstofu Reykjavíkur og án
þess að leitað sé samráða við þá,
sem þetta níál varðar með einum
eða öðrum hætti, s.s. samtök
kennara og skólastjóra, og án
þess að gengið hafi verið frá
samkomulagi milli aðilja málsins
á viðhlítandi hátt“.
Þetta mál verður tekið til um-
ræðu á fundi borgarstjórnar, sem
haldinn verður í dag.
-JGK
FJORIR FLUTTIR
Á SJÚKRAHÚS
■ Hörkuárekstur varð
skammt sunnan Botnsár í
gærmorgun, á móts við Hlað-
hamar á sýslumörkunum. Tvær
bifreiðar sem komu úr sitt
hvorri áttinni rákust saman í
beygju sem þama er á vcginum
og voru fjórir farþeganna flutt-
ir á sjúkrahús, mismikið
meiddir en segja má að allir
hafi sloppið vel miðað við á-
•stand bifreiðanna á eftir en þær
-eru sennilega gjörónýtar.
Við óhappið lokaðist vegur-
inn fyrir umferð á þessum slóð-
uni þar til búið var að flytja
bílana á brott.
-FRl