Tíminn - 22.05.1983, Side 15
SUNNUDAGUR 22. MAÍ1983
SUNNUDAGUR 22. MAl 1983
Helgar-Tíminn hringir í:
Ofi RÆBIR VIÐ ELÍSABETU CUNNARSDÓTTUR; KONU SEH DVELUR
f KVENNAATHVARFINU 06 ÓSKAR NAFNLETNDAR 06
STEINUNNI RJARNADÓTTUR, STARFSKONU f KVENNAATHVARFINU
■ „Samtök um kvennaathvarf voru
stofnuð í byrjun júní á síðasta ári,“ segir
Elísabet Gunnarsdóttir sem starfar með
kynningarhópi samtakanna. „í sumar og
haust fóru kraftarnir aðallega í það að
koma formi á starfið og að leita að
húsnæði, en það var aðal vandamálið.
Ýmsum þótti einum of mikil bjartsýni
að halda að hægt yrði að opna kvennaat-
hvarf fyrir áramót, sérstaklega þegar
haft var í huga að samtökin áttu enga
peninga. Það tókst þó að opna það í
byrjun desember, en aðeins í bráða-
birgða leiguhúsnæði þannig að við urð-
um eiginlega strax að fara að leita að
framtíðarhúsnæði og afla fjár til að
kaupa það.
Athvarfið var opnað með mjög litlum
stofnkostnaði, sjö þúsund krónum. En
margir lögðu okkur lið, fyrirtæki, félög
og einstaklingar gáfu vinnu sína, hús-
gögn o.fl.
Áður en athvarfið var opnað héldu
samtökin námskeið fyrir þá sem vinna
þar. í Kvennaathvarfinu vinna tveir
fastráðnir starfsmenn á dagvöktum, en
konur úr samtökunum sjá um öll kvöld,
nætur og helgar.
Þegar hafa verið haldin tvö námskeið
fyrir starfsfólk og það þriðja er að fara í
gang núna í byrjun júní.
-Hvemig hefur gengið að fjármagna
Kvennaathvarfið?
„Við vorum með fjársöfnun og
merkjasölu 8-9. apríl, sem gekk mjög
vel. Við seldum merkin hérna á höfuð-
borgarsvæðinu, en það hringdu ýmsir í
okkur sem voru að fara út á land og
buðust til að taka með sér merki, þannig
að þau bárust víðar. Allt starfið í
kringum fjársöfnunina var unnið í sjálf-
.
SpP'rí:-
Elísabet Gunnarsdóttir
„Kvennaathvarfið
er varnaraðgerð”
boðavinnu svo að kostnaðurinn var mjög
lítill - innan við 4% af söfnunarfénu.
Fólk í samtökunum, kvenfélögin og
nemendur í framhaldsskólunum á
höfuðborgarsvæðinu unnu þetta allt í
sjálfboðavinnu, það voru engin sölulaun
greidd. Öll undirbúningsvinnavareinnig
unnin í sjálfboðavinnu, það gildir jafnt
um gerð merkisins og prentun þess,
ásamt gerð auglýsinga í blöð og
sjónvarp.
Sölufólkið vann geysilega mikið og
gott starf, gekk um bæinn þveran og
endilangan og norpaði í kuldanunt.
Reynsla okkar er sú að þegar við höfum
beðið um aðstoð þá hefur fólk tekið
okkur ínjög vel. Ofbeldi á heimilum
hefur verið mikið feimnismál hingað til
og það cr eins og fólk sé fegið að gcta
lagt Kvennaathvarfinu lið þegar einhver
hefur loksins kveðið upp úr með það.“
-Hversu mikið fé safnaðist?
„Við fengum rúmlega 1.7 milljónir út
úr söfnuninni. Áður höfðum við leitað
til ríkisins, Reykjavíkurborgar og ná-
grannasveitafélaganna um styrk og þeir
styrkir nema til samans um það bil einni
milljón króna. Þar sem við höfum hvorki
notað söfnunarféð né opinberu styrkina
í reksturinn getum við látið þetta fé
renna óskipt í húsakaupasjóð. Við erum
nú búin að festa kaup á húsnæði sem við
flytjum í á næstunni, en símanúmerið
verður óbreytt.
Þetta er mjög gott húsnæði og heldur
stærra en það sem við erum í núna. Við
vonum bara að peningarnir dugi til að
byrja með.
Við verðum að halda áfram að kosta
rekstur Kvennaathvarfsins með félags-
gjöldum og styrkjum frá einstaklingum
og félagasamtökum en nú eru 300 félags-
menn í samtökunum. Það hefur verið
taísvert um það að fólk styrki okkur og
þess vegna höfum við ekki þurft að
ganga neitt á húsakaupasjóðinn.
í framtíðinni munum við á hinn bóg-
inn fara fram á að reksturinn verði
styrktur af opinberum aðilum, vegna
þess að það hafa verið brotin lög á þeim
konum sem leita til okkar. Hið opinbera
verður því að veita þeim einhverja
raunhæfa aðstoð með því að styrkja
Kvennaathvarfið því að það hefur eng-
inn annar aðili sinnt þessu máli.“
- Hvernig hafa stjómvöld brugðist
við samtökunum?
„Þau hafa brugðist mjög vel við sem
sést best á því áð við vorum komin inn
á fjárlög áður en athvarfið var opnað.
Einnig höfum við átt mjög gott samstarf
við lögregluna og félagsmálastofnun.
En í sambandi við fjármáiin má benda
■ „Maðurinn minn sálugi, eins og ég kalla hann
núna, er álitinn einstaklega prúður, stilltur og
yndislegur maður - í mesta lagi dálítið blautur.
Enda kemur hann ákaflega vel fyrir, myndarlegur,
viðmótsþýður og ákaflega snyrtilegur maður. Þegar
við vorum saman á mannamótum var „konan hans“
alltaf númer eitt - það vantaði ekki. En þó allt virtist
í besta lagi opinberlega gat cg átt von á hinu versta
þegar við komum heim. í þessum eina manni
virðast búa tveir menn, annar fyrir almenning en
hinn til heimabrúks.“
Konan sem svo mælir var flutt í
Kvennaathvarfið á laugardagsmorgni
fyrir hálfum mánuði en starfskonur
Kvennaathvarfsins fóru með hana beint
á slysadeildina þar sem hún var til
sunnudagskvölds. Læknarnir óttuðust
að hún væri sködduð innvortis, en svo
reyndist ekki, sem betur fer.
Hún var handleggsbrotin, með heila-
hristing, marin og blá, skorin og
sprungin um allan líkamann - líklega
eftir skóhæla mannsins sem sparkaði
henni um alla íbúðina. Læknarnir töldu
það kraftaverki líkast að hún skyldi vera
á lífi eftir þessa hroðalegu meðferð. Það
síðasta sem hún man eftir þessa nótt er
það að hún var dregin 'undan hjónarúm-
inu, en þangað hafði hún leitað skjóls.
Síðan missti hún meðvitund.
- Hefurðu búið við þetta lengi?
„Já, alltof lengi, ég hef gengið veginn
á enda. Konur eru svo ótrúlega'þolin-
útidyrunum - ég var þá með sítt ljóst
hár. Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð
veðrið, hélt ég hlyti að hafa gert eitthvað
rangt eða sagt eitthvað vitlaust. Það er
nú eitt: hann hefur alltaf verið að reyna
að troða því inn í hausinn á mér að ég
væri svo heimsk en hann svo voðalega
gáfaður. En það hefur bjargað mér að
honum hefur aldrei tekist að brjóta mig
niður andlega. Ég hef aldrei trúað því að
ég sé heimsk, enda gekk mér alltaf vel í
skóla."
„Kyngdi stoltinu fremur
en að láta börnin svelta“
.Eftir að hann var búinn að slá mig í
fyrsta sinn fylgdu fleiri högg á eftir; sá
maður sem lemur konuna sína einu sinni
gerir það aftur. Rétt eins og hjá alkóhól-
istunum, sem drekka meira og meira og
alltaf lengur í einu, verða barsmíðarnar
stöðugt meiri og tíðari. Og áfengi þarf
„MAÐUR ER ALLT-
AF AÐ VONA
móðar, maður heldur svo lengi í þá von
að þetta hljóti að lagast.
I rauninni byrjaði þetta áður en við
byrjuðum að vera saman. Hann var oft
æstur með víni, en móðir hans gat alltaf
talað hann til. Þá gerði ég mér alls enga
grein fyrir hvers konar skapgerð hann
hefði. Núna held ég að til séu mismun-
andi tegundir af mönnum, alveg eins og
það eru til mismunandi tegundir af
öpum. Og ein tegund manna misþyrmir
eiginkonum sínum. Það kemur í Ijós
þegar maður fer að tala við hinar konurn-
ar í Kvennaathvarfinu að reynsla okkar
er mjög svipuð, atferli mannanna er
mjög líkt, þetta eru sömu einkennin upp
aftur og aftur.
Hann veittist síðan í fyrsta sinn að mér
þegar ég gekk með elsta son okkar, sem
nú er tvítugur. Ég var að hengja upp
þvott þegar hann reiddist mér svo heift-
arlega að hánn sló mig utan undir og dró
mig á hárinu frá snúrustaurunum að
ekkert endilega að vera með í spilinu,
hann barði mig alveg jafnt hvort sem
hann var drukkinn eða ódrukkinn. Hann
gat alltaf fundið sér einhverja ástæðu,
alveg eins og hann gat alltaf fundið ein-
hverja ástæðu fyrir drykkjunni: ef ég
sagði já barði hann mig fyrir að segja
ekki nei, segði ég nei var viðbúið að
hann lemdi mig fyrir að segja ekki já og
ef ég þagði var ég barin fyrir að virða
hann ekki svars.
Við bjuggum uppi í sveit um tíma,
þcgar strákarnir okkar þrír voru litlir.
Þá lá hann iðulega í þunglyndi, las á
næturnar og svaf á daginn en ég þurfti
að hugsa bæði um börnin og skepnurnar.
Þá var oft þröngt í búi,-því það var
takmarkað sem ég gat gert með þrjú lítil
börn. Þá reyndist fólkiðí sveitinni mér
rnjög vel, sérstaklega hjónin sem bjuggu
á næsta bæ. Það var mjög erfitt að þurfa
að taka þá ákvörðun að betla, en ég
kyngdi stoitinu fremur en að láta börnin
Texts: Sonja B. Jónsdóttir. Myndir: G.E.
svelta. Síðan þurfti ég að búa til alls
konar sögur um það hvernig ég hefði
fengið þennan mat, hann hefði barið mig
til óbóta ef hann hefði vitað að ég hefði
farið og betlað á bæjununi. Þessi bú-
skapur var sem martröð og ég veit að
fólkið á næstabæ verður fegið að vita að
ég sé nú loksins búin að losa mig út úr
þessu.
Ástandið skánaði svo fyrsta árið eftir
að við fluttum aftur í bæinn. Við bjugg-
um þá í kjallaranum hjá vinnuveitanda
hans og ég geri ráð fyrir því að hann hafi
ekki viljað láta hann vita af þessu. En
eftir að við fluttum svo út á Seltjarnarnes
í leiguíbúð fór allt í fyrra horf, hann
braut oft allt og bramlaði og ég gekk um
með glóðaraugu.
Ég hef alltaf reynt að leyna þessu fyrir
sonum okkar en það var ekki hægt
endalaust og þegar elsti strákurinn ætlaði
eitt sjnn að ganga á milli okkar - hann
var þá fjórtán ára - þá sló pabbi hans
hann líka. Síðan hefur hann alltaf verið
á verði.
-Fyrir nokkrum árum skildi ég við
hann í sex mánuði og flúði þá upp á
Akranes til bróður míns. Maðurinn elti
mig þangað og ætlaði víst að tala um
fyrir mér en skildi þá að mér var alvara
og fór og fékk sér herbergi. Síðan hellti
hann sér út í drykkju og kvennafar en
þegar hann var orðinn leiður á því fór
hann að koma aftur, helgi eftir heigi,
undir því yfirskini að hann ætlaði að tala
við yngsta strákinn sem var alltaf dálítið
pabbabarn. Hann vildi koma heim aftur
og lofaði bót og betrun og einnig því að
hann skyldi aldrei leggja á mig hendur
aftur. Þetta kalla ég væluskeiðið, þá er
maður besta og yndislegasta kona í
heimi, hann hefur aldrei fyrirhitt jafn
dásamlega konu, og hann ætlar aldrei að
gera þetta aftur. Og þá tekur sjálfsblekk-
ingin yið og vorkunnsemin: maður vor-
kennir þessu greyi. Auk þess er eitthvað
tilfinningarugl eftir og þeir Hafa‘ sko
alveg örugglega lag á því að slá á þá
dýpstu strengi hjartans. En þegar sú litla
Sjá næslu síðu
■ „Við reynum að hafa Kvennaat-
hvarfið eins og venjulegt heimili,“ segir
Steinunn Bjarnadóttir, starfskona
Kvennaathvarfsins. „Dagurinn markast
af því sem konurnar er þar dvelja þurfa
að gera. Við byrjun á því að fá okkur
morgunkaffi, en um níuleytið byrjum
við á því scm gera þarf, hvort sem það
er að fara til lögfræðings, félagsráðgjafa
eða annað.
Þær eru ekki margar konurnar sem
fara til vinnu frá okkur, heimavinnandi
húsmæður eru í miklum meirihluta.
Ástæða þess er hugsanlega sú að eigin-
menn eigi auðveldar með að kúga heima-
vinnandi konur vegna þess að þær eru
fjárhagslega ósjálfstæðar - þær eru oft
alveg peningalausar þegar þær koma,
eiga jafnvel ekki fyrir daggjaldinu. Það
er einnig hugsanlegt að útivinnandi kon-
ur eigi auðveldara með að leita til
annarra vegna þess að þær eru ekki eins
einangraðar og heimavinnandi konurn-
ar. Auk þess eru þær ekki háðar eigin-
mönnum sínum fjárhagslega og hafa því
frekar færi á að leigja sér herbergi eina
og eina nótt.
Við segjum þeim konum sem hringja
að þær geti komið á hvaða tíma sólar-
hringsins sem er, en ef þær kjósa frekar
að leigja sér herbergi þá vísum við þeim
á gistiaðstöðu á Flókagötu 5.“
- Hvað hafa margar konur leitað til
ykkar?
„131 hefur hringt en 58 konur hafa
dvalið í Kvennaathvarfinu um lengri eða
skemmri tíma, ásamt 63 börnum.
Þær konur sem til okkar leita eru
beittar ofbeldi, andlegu eða líkamlegu
eða hvoru tveggja. Þær eru oft í mjög
miklu uppnámi þegar þær hringja og Iýsa
Steinunn Bjamadóttir
yyErfitt að draga
mörkin milli
og andlegs ofbeldis’
stöðu sinni, og spyrja hvort þær megi
koma. Stundum dregst svo af einhverj-
um ástæðum að þær komi, en stundum
koma þær strax. Þær þurfa oft að bíða
eftir því að komast í síma til þess að geta
tjáð sig. Stundum eru þær búnar að gera
ráð fyrir þessu fyrirfram, jafnvel búnar
að taka saman föt og annað til að hafa
meðferðis og þá hringja þær bara, spyrja
hvort þær megi koma og birtast svo
innan stundar.“
- I hverju birtist andlegt ofbeldi
c-inkuin?
„Það er oft erfitt að draga mörkin á
milli ofríkis og andlegs ofbeldis. Þetta
byrjar oft með því að konur eru beittar
ofríki sem eykst síðan og endar í
andlegu ofbeldi - þannig að konan getur
hvorki setið né staðið svo eiginmannin-
urn líki. Þessu fylgja ógnanir sem stund-
um er fylgt eftir með líkamlegu ofbeldi
ef ógnunin dugar ekki. Þetta er oft eins
og víxlverkandi og konumar eru oft
gjörsamlega ráðþrota í þessum aðstæð-
um. Fyrir nú utan það að þær eru iðulega
alveg peningalausar og geta sig því
hvergi hrært.
Vín eða aðrir vímugjafar eru stundum
með í spilinu, en þó alls ekki alltaf.
Vínið er ekki orsök heldur virðist það
fremur vera hvati sem ýtir geðrænum
vandamálum og ofbeldishneigð upp á
yfirborðið.
Það sem einnig gerir konum oft mjög
erfitt um vik er það að fjölskyldur
þeirra, kunningjar og vinir leggja oft
mjög hart að þcim að halda fjölskyldunni
saman. Fólk á erfitt með að trúa því að
ástandið sé eins slæmt og konan lýsir því
og þó konan geti enga björg sér veitt þá
ætlast fólk samt til þess að hún bjargi
börnunum og manninum.
Við höfum orðið varar við það að,
konur láta oft undan þessum þrýstingi,
þær snúa aftur fyrir fortölur ættingja
sinna.
Margar konur hafa sagt okkur að í
Kvennaathvarfinu fái þær loksins næði
til að hugsa og taka sjálfstæðar ákvarð-
anir. Þar er enginn að ivvna að hafa áhrif
á þær og við hlevpi . heldur engum
símtölum í gegn ner, sjálfar taka þau. konurnar vilji
Konunum gengur etur að gera
sér grein fyrir vanda / sínum þegar
þær geta talað við . sur sem búa
við sömu aðstæður. nrnefnilega
í Ijós að mál þessar: eru furðu-
lega lík. Ofbeldi ilum virðist
dreifast nokkuð ja illar stéttir
þjóðfélagsins. Ef I er þó of
Sjá næs; síðu
V-