Tíminn - 22.05.1983, Blaðsíða 23

Tíminn - 22.05.1983, Blaðsíða 23
SUNNUDAGUR 22. MAÍ1983 23 Umsi6n: FrlArfk iadriftason oc Bn(i ÓWww Lionel Hampton í Háskólabíói ■ Á þriðjudaginn kemur hefst forsala aðgöngumiða að tónleikum Lionel Ham- ptons og sautján manna stórsveitar hans. Forsalan verður í Fálkanum að Lauga- vegi 24 en tónleikarnir í Háskólabíói þann 1. júní. Óhætt er að fullyrða að þetta er mesti viðburður í jazztónleikahaldi á íslandi síðan Louis Armstrong kom hingað með stjörnuhljómsveit sína 1965 Lionel Hampton stendur nú á sjötugu og heyrst hefur að þetta verði síðasta Evrópuför hans. Hann er þó enn í fullu fjöri og hefur aldrei dregið af sér á sviðinu og lagt alla sál sína í leikinn. Hljómsveitin er skipuð ungum piltum og gömlum refum og mun trommarinn Frankie Dunlop þeirra þekktastur, en hann lék lengi með Thelonius Monk. Að sjálfsögðu er víbrafónninn höfuð- hljóðfæri Hamptons, en hann er vanur að taka nokkra trommusólóa, leika á píanóið með hinni sérstæðu tveggja- fingraaðferð sinni og syngja á hverjum tónleikum. Það er oft orðið nokkuð heitt í kolunum þegar gamli maðurinn tekur að syngja Hey ba ba-re-bop og salurinn tekur undir svo allt ætlar um koll að keyra. Enginn núlifandi tónlistarmaður getur látið sveifluna bulla og sjóða eins og Hampton. Lionel Hampton var upphaflega trommari og lék fyrst á víbrafóninn aðalhljoðfæri hans og hann varð heims- frægur er hann lék með Benny Goodman 1936-40. Þá stofnaði hann eigin stórsveit sem varð brátt geypivinsæl og verk eins og Flying Home og Hamp's Boogie Woogie seldust í risaupplögum. Hampton er alltaf jafn vinsæll og það á hann tvennu að þakka. Tónlist hans er tær list þegar best lætur og hann kann einnig þá list að fá áheyrendann til að taka þátt í tónleikunum af lífi og sál. Það situr enginn kjurr á Hampton tónleikum og hann er einn hina örfáu sem getur sameinað á einum og sömu tónleikunum listatónlist og dúndursjó. íslendingar eiga þess tæpast kost að hlýða á einn af meisturum sveiflunnar öðru sinni - þeir safnast óðum til feðra sinna. JAZZVAKNING ■ Lionel Hampton, Mezzoforte með tónleika í Hollandi — nýja platan Rockall komin út í Englandi svo og safnplatan Catching up with Mezzoforte ■ Hljomsveitin Mezzoforte hélt utan til Englands í byrjun þessarar viku og nú um helgina heldur hún yfir til Hollands þar sem áformaðir eru þrennirtónleikar. Plata þeirra Surprise surprise hefur átt mikilli velgengni að fagna í Hollandi undanfarið og er hún í 7. sæti vinsælda- listans þar þessa vikuna. í ráði er einnig að skreppa yfir til Belgíu en þar fór litla platan úr 18. sæti og í það 9. í þessari viku. Og samkvæmt því sem við höfum frétt er litla platan komin í 7. sæti vinsældalistans í Portú- gal. í Englandi eru nú komnar út tvær nýjar plötur með Mezzoforte, annars- vegar Rockall sem er lítil plata og hinsvegar safnplatan Catching up with Mezzoforte sem er efni af plötum þeirra fyrir plötuna 4. -FRI Poppbókin ■ Fyrir skömmu birti Tíminn frétt um væntanlega útgáfu íslenskrar poppbók- ar. í fréttinni óskuðu aðstandendur bókarinnar eftir samstarfi við hina ýmsu aðila er tengjast poppinu. Þeir aðilar voru m.a. beðnir um að senda upplýsing- ar um sig og aðra í pósthólf 14 Reykjavík merkt „Poppbók“. Svo slysalega vildi til að vegna mistaka voru öll bréf merkt Poppbókinni endur- send. Hlutaðeigandi eru því vinsamleg- ast beðnir um að senda áðurnefndar upplýsingar aftur í sama pósthólf með sömu utanáskrift. Þeir eru jafnframt beðnir góðfúslega afsökunar á mistöku- num.Um leið eru aðrir sem ekki enn hafa sent upplýsingar beðnir um að gera það nú þegar ef þeir vilja vera með í bókinni. CLAAS WM 20C Sláttuþyrla m/knosara Sama sláttuþyrla aö grunni til, hefur heyknosara að auki Verð kr. 69.300 CLAAS WSDS 280 Stjörnumúgavél Lyftutengd, ein stjarna með 8 örmum Verð kr. 39.600 CLAAS W 450 Heyþyrla Dragtengd, 4. stjörnu með 6 örmum hver Verð kr. 48.300 CLAAS LWG 24m3 Heyðhleðsluvagn. Sterkbyggður og lipur. Stórir hjólbarðar (11.5x15) Söxunarbúnaður fyrir þurrhey og vothey. Stillanleg dráttarbeisli. Þurrheysbygging fellanleg. Hleðslutími er 5 mín. og losunartími allt niður í 2 mín. Nær upp allt að 1.60 m breiðum múga. verð kr. 121.000 CLAAS Markant 51 Heybindivél Vinnubreidd 1.65 m Stillanleg baggalend frá 0.4 m - 1.10 m. Geymsla fyrir 4 garnrúllur. Þyngd 1.210 kr. Verð kr. 142.000 CLAAS Baggakastari á heybindivélar. Fylgir vagninum eftir í beygjum. Stillanleg kastlengd. Stillanlegt vökvastreymi Verð kr. 35.600 •ShP/aíg" áfíósf CLAAS rúllubindivél Rollant 34, sópari 1.55 m Verð kr. 209.000 riHIIS Öryggi í fóðuröflun - . .. Claas-menn eru vel heima í heyverkun og nú bjóðum við rúllubindivélar, knosaraþyrlur og fjölhnífavagna í auknu úrvali. Minnum bændur t.d. á: CLAAS WM 20 Sláttuþyrla Vinnubreidd 1.65 m. 6 hnífar, 2 tromlur Verð kr. 38.900 Kaupfélögin og Suðurlandsbraut 32 • Sími 86500 Reykjavík

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.