Tíminn - 22.05.1983, Blaðsíða 19

Tíminn - 22.05.1983, Blaðsíða 19
 G/obusf Margar gerðir - Tau- og leður- áklæði. Verð frá kr. 24.900.- ► Húsgögn og _x _ . Suðuriandsbraul 18 'i'^mnrettmgar símise-soo LÁGMÚLI 5, SIMI 81555 Raðuneyti dr. Bjðms Þórðarsonar sem sendill hjá Kaupfélagi Eyfirðinga. Hann verður búðarmaður 13 ára gamall, því næst skrifstofumaður og fulltrúi. 23 ára gamall er Vilhjálmur svo orðinn framkvæmdarstjóri kaupfélagsins. Þegar heimssýningin er haldin í New York 1939 verður Vilhjálmur aðalfram- kvæmdarstjóri fyrir þátttöku íslands í sýningunni. Sama ár er hann skipaður bankastjóri Landsbanka íslands. Vil- hjálmur er forstjóri S.Í.S. 1946-1954 og settur aðalbankastjóri Seðlabanka ís- lands 1957. Þriðji ráðherrann í utanþingsstjórn- inni var Björn Ólafsson. Björn var fæddur á Akranesi 1895. Hann varð póstmaður í Reykjavík og forstöðumað- ur bögglapóststofunnar 1915-1916. Síð- ar varð hann stórkaupmaður og iðnrek- andi í Reykjavík. Einar Amórsson fæddist 1880 á Minna Mosfelli í Grímsnesi. Hann lauk lög- fræðiprófi 1906. Þegar lagaskólinn var stofnaður 1908 varð hann kennari þar og síðan prófessor 1911 við stofnun Háskól- ans. Einar var þingmaður Árnesinga 1914-1919 og ráðherra 1915-1917. Þing- maður Reykvíkinga var Einar 1931- 1932. Fimmti ráðherrann í utanþingsstjórn- inni var Dr. Jóhann Sæmundsson. Hann fæddist árið 1905 og ólst upp að Elliða í Staðarsveit. Jóhann lauk prófi í læknis- fræði árið 1931 og stundaði síðan ýmis lækningastörf í Reykjavík. Stefnumál utanþingsstjórnarinnar í ræðu sem hinn nýi forsætisráðherra flutti í sameinuðu Alþingi 16. desember skýrði hann frá stefnu stjórnarinnar í hinum ýmsu málum. I því sambandi mælti ráðherrann á þessa leið: „Ráðuneytið telur það höfuðverkefni sitt að vinna bug á dýrtíðinni, með því fyrst og fremst að setja skorður við frekari verðlagsbólgu, meðan leitast er við að lækna meinsemdina og vinna bug á erfiðleikunum. Ráðuneytið ætlar sér að vinna að því, að atvinnuvegum landsmanna, sem nú eru margir komnir að stöðvun, verði komið á heilbrigðan grundvöll..." Ráðherra taldi einnig nauðsynlegt að verðlagseftirlit væri látið taka til allra vara sem seldar væru almenningi. Ennfremur gat forsætisráð- herra þess að ráðuneytið mundi leggja sérstaka áherslu á vinsamlega sambúð við Bandaríki Norður-Ameríku og Stóra Bretland. Viðskipti og efnahagsmál Eins og áður er getið óx dýrtíð mjög hér á landi á þessum árum. Orsakir hennar voru margvíslegar. Komu þar m.a. til miklar kauphækkanir 1942. Einnig hafði stríðið mikil áhrif á hækkun verðlags. Erlendar nauðsynjavörur s.s. afhending þeirra dróst til 1945-1946. Verðlag á þessum árum var yfirleitt hagstætt fyrir útflutningsafurðimar og gekk eftir atvikum vel að koma þeim til kaupenda. Lýðveldi endurreist Mikilvægasta málið í stjórnartíð utan- þingsstjómarinnar var endurreisn lýð- veldis 17. júní 1944. Ekki hafði utan- þingsstjórnin þó neina forystu í því máli, því að það var ekki fyrr en l.nóv. 1943 sem forsætisráðherra lýsti því yfir á Alþingi, að ríkisstjórnin væri fylgjandi stofnun lýðveldis 17. júní. Atkvæðagreiðslur um niðurfellingu dansk-íslenska sambandslagasamnings- ins frá 1918 fóru fram dagana 20-23 maí 1944. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar var sú að yfir 97% þjóðarinnar greiddu atkvæði með niðurfellingu samningsins. Stjórnarskrá lýðveldisins Islands var svo tekin í gildi í sameinuðu Alþingi að Lögbergi á Þingvöllum þann 17. júní. Margir hafa litið svo á að það hafi ekki verið vansalaust fyrir Alþingi, að þing- ræðisstjórn skyldi ekki hafa verið við völd er þessi merkisviðburður í sögu íslensku þjóðarinnar átti sér stað, en utanþingsstjórnin var að sjálfsögðu reiðubúin að víkja, hvenær sem unnt hefði verið að mynda stjórn á þingræðis- grundvelli. Þegar Alþingi hafði gengið frá stofnun lýðveldis var fundum þess frestað fram í byrjun september. Utanþingsstjórnin fer frá Þegar Alþingi kom saman í september lagði ríkisstjómin fram nýtt frumvarp til laga um dýrtíðarráðstafanir. Alþingi tók því lítið betur en í fyrra skiptið. En nú tók stjórnin aðra stefnu. Hún óskaði eftir útvarpsumræðum um frumvarpið og dýrtíðina. Umræður þessar fóm fram þann 11. sept. Við þessar útvarpsum- ræður sagði Björn Þórðarson m.a. þetta: „Stjórnin hefur því ákveðið, ef þingið eða meirihluti þess hefur ekki fyrir 15. þ.m. bent á nýja stjórn eða lýst yfir því eða samþykkt það að gera þær ráðstafan- ir í dýrtíðarmálunum, sem núverandi stjórn telur eftir atvikum, að við megi hlíta, að leggja fyrir forsetann lausnar- beiðni sína, sem væntanlega verður tekin til greina“. Þar sem Alþingi benti hvorki á nýja stjórn né samþykkti stefnu stjórnarinnar í dýrtíðarmálum fyrir til- skilinn tíma lagði ráðuneytið fram lausn- arbeiðni sína á ríkisráðsfundi 16. sept. Samþykkti forseti hana, en bað ráðherra að gegna störfum áfram þar til ný stjórn hefði verið mynduð. _ Þannig lauk tímabili hinnar einstæðu stjórnar sem kölluð hefur verið utan- þingsstjórnin. Annað ráðuneyti Ólafs Thors tók svo við völdum 21. október. V/M. v/v V/M?. V/?r. XW' XW.XV ■Hhoward HOWARD jarðtætarar eru nú aftur fáanlegir á íslandi. Tekist hefur að ná mjög hagstæðum samningum við verksmiðj- urnar og verða HOWARD HR 30 jarðtætarar fyrirliggjandi 60“-70“-80“ breidd með fjögra hraða Heavy Duty gírkassa. ítölsk sófasett olía, salt o.fl. hækkuðu í innkaupi og örðugt varð að fá ýmsar vörur. Fyrsta verk utanþingsstjórnarinnar var að stöðva alla verðhækkun til febrú- arloka 1943. Ennfremur var komið á nýskipan innflutningsmála og meðferð gjaldeyris með stofnun viðskiptaráðs í stað gjaldeyris og innflutningsnefndar áður. í viðskiptaráði áttu sæti fimm menn. Verkefni þess var fyrst og fremst að hafa með höndum innflutnings og gjaldeyrismál, ráðstafa farmrými í skipum, sem fluttu vörur til landsins á vegum innlendra aðila. Einnig fór við- skiptaráð með verðlagsákvarðanir og verðlagsstjóra, er skyldi gera tillögur til viðskiptaráðs um verðlagsákvæði og hafa með höndum framkvæmd þeirra og daglega stjórn verðlagseftirlitsins. Þegar viðskiptaráðið tók til starfa 26. janúar 1943 var innkaupastarfsemi sú er svokölluð viðskiptanefnd hafði annast lögð niður. f stað hennar skipaði Vil- hjálmur Þór utanríkis- og viðskiptaráð- herra Samninganefnd Utanríkisvið- skipta. í skipunarbréfi nefndarinnar seg- ir að starf hennar skuli vera „að hafa með höndum samninga um verslunar og viðskiptamál við fulltrúa erlendra ríkja eftir nánari fyrirmælum ráðuneytisins og í samráði við önnur sem málefnin heyra til“. í febrúarlok voru lagðar fyrir Alþingi tillögur ríkisstjómar í dýrtíðarmálum. Fjölluðu þær m.a. um afnám varasjóðs- hlunninda, viðreisnarskatt, eignaauka- skatt, lækkun dýrtfðaruppbótar og verð- lækkun landbúnaðarvara. Gegn þessum tillögum risu mörg verkalýðsfélög þar sem þau töldu hinn gamla grundvöll vísitölu rangan og launþegum í óhag. Frumvarp þetta var alllengi til meðferðar á Alþingi og lauk því máli þar þannig að frumvarpið varð að lögum hinn 14. apríl en þá var þingið búið að gerbreyta því frá sínni upprunalegu mynd. Dr. Jóhann Sæmundsson læknir og félagsmálaráð- herra vildi ekki una þeim málalokum sem frumvarpið fékk og sótti því um lausn. Honum var veitt lausn á ríkisráðs- fundi 19. apríl 1943. í lögunum var ákveóið að nefnd sex manna er skipuð væri af hagstofustjóra skyldi reyna að koma heildartekjum þeirra er ynnu að landbúnaði í sem nánasta samræmi við tekjur annarra vinnandi stétta. Nefndin skyldi einnig reyna að finna grundvöll fyrir vísitölu framleiðslukostnaðar land- búnaðarafurða. Verðlækkunarskattur var og í lögun- um og átti að verja tekjum af honum til niðurgreiðslna landbúnaðarafurða en það var á þessum árum sem niður- g.eiðslur úr ríkissjóði hófust að verulegu leyti til framleiðslu landsmanna. Almennur viðskiptasamningur var undirritaður milli íslands og Bandaríkj- anna í ágúst 1943. f samningnum voru ákvæði um gagnkvæmar tollaívílnanir. Bandaríkin lækkuðu tolla á síldarlýsi, harðfiski, saltsíld, grásleppuhrognum, niðursoðnum fiski og sútuðum skinnum, auk þess sem þau skuldbundu sig til að halda þorskalýsi, síldarmjöli og fiski- mjöli tollfrjálsu. Á mótikomu tollalækk- anir á ávöxtum o.fl. og tollbinding á nokkrum vörum. í febrúarmánuði 1944 voru gerðir viðskiptasamningar um sölu helstu afurða. Samið var um sölu á öllu freð- kjöti og saltkjöti til Bretlands öðru en því magni sem fór á innanlandsmarkað. Aðrar landbúnaðarafurðir fóru ýmist til Bretlands eða Bandaríkjanna. Megnið af fiskframleiðslunni fór hins vegar til Bretlands eins og áður. Þess má einnig geta að árið 1943 samdi utanþingsstjórn- in um smíði 45 fiskibáta í Svíþjóð en V/M?. V///??. Y///7Z \\\\w WVxV \\\\VV \\\\V

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.