Tíminn - 22.05.1983, Blaðsíða 22

Tíminn - 22.05.1983, Blaðsíða 22
SUNNUDAGUR 22. MAÍ1983 nútíminn heldur hér tvenna tónleika sem verða þeir emu er þessi þekkta söngkona heldur í allt sumar ■ Hin þekkta söngkona Grace Jones er væntanleg hingað til lands í júníbyrjun og mun hún halda tvenna tónleika hér, þá fyrri í Sigtúni þann 3. júní og hinn seinni í Safari þann 4. júní n.k. Báðir tónleikarnir hefjast kl. 22.30. Óhætt er að segja að þessi skvísa sé hvalreki á fjörur íslenskra poppáhuga- manna en Grace á sér dyggan hóp aðdáenda hér og seljast plötur hennar vel. Þetta mun nókkru hafa ráðið um að hún kom hingað, svo og að henni þótti víst „fríkað“ að koma til íslands. Tónleikarnir hér verða þeir einu sem Grace heldur í allt sumar en þennan tíma mun hún einbeitasérað upptökum, bæði á plötu og vídeó. Eins og alltaf er hún kemur fram er hún með segulband með sér og hingað koma með henni, hljóðmaður, ljósa- maður og lífvörður en sá síðastnefndi mun einnig vera ástmaður hennar þessa stundina. Grace Jones er vinsælasta klúbbsöng- kona heimsins um þessar mundir og seljast plötur hennar í risaupplögum, en hérlendis hefur hún notið mikillar hylli á dansstöðum enda tónlistin með „frum- stæðum" takti seiðandi og framandi. Sem fyrr segir mun hún starfa nokkuð að vídeóþáttagerð í sumar en hún hlaut fyrstu verðlaun í keppni í Bandaríkjun- um á síðasta ári fyrir vídeóþátt sem hún gerði. Sviðsframkoma hennar er óvenju- leg svo ekki sé meira sagt og ætti enginn sem áhuga hefur á tónlist hennar að láta þessa skemmtun framhjá sér fara. Miða- verð er 380 kr. sem mun vera um 40% ódýrara en almennt kostar á skemmtanir hennar í New York. -FRI ■ Grace Jones. ■ Merkis tónlistarviðburður mun reka á fjörur íslenskra tónlistarunnenda næst- komandi þriðjudag 24. maí. Þá mun bandaríski tónlistarmaðurinn David Thomas halda hér sólótónleika, ekki samt alveg einn því í förinni með honum er segulbandstæki. Margir gætu kannast viðnafnið David thomas þó það hringi ekki stórri bjöllu, hætt er þó við að nafnið Pere Ubo hringi stærri bjöllu í þessu sambandi. Thomas er einmitt söngvari þeirrar ágætu hljómsvcitar. Pere Ubu hefur nú um nokkurra ára skeið verið með virtustu og vinsælustu hljómsveita Breta og annarra sem til þeirra þekkja. Hvað einkenndi þó Pere Ubu frá upphafi var hinn sérstæði söng- stíll Thomas, við getum raunar sagt einstaki. Nú á síðustu misserum hefur Thomas brugðið sér einn útum víða veröld í tónleikahald. Hann hefur unnið þó nokkuð með Lindsey Cooper og Chris Cutler, reyndar nýverið gefið út plötu saman sem tríó. Hingaðkoma David Thomas verður að teljast merkisviðburður, langt er síðan við höfum fengið jafn sérstæðan gest sem David Thomas er í raun og veru. Með Thomas á tónleikunum mun auk hans spila Þorsteinn Magnússon. Heldur hljótt hefur verið um hann síðustu mánuði, en ekki er hægt að efast um í þögninni hefur Þorsteinn sótt og endur- nýjað kraft sinn. Brainar er ný hljóm- sveit sem reyndar hefur gefið út eina kassettu í tuttugu eintökum, segja verð- ur að valinkunnir menn séu þar í hverju rúmi og koju. David Thomas, Þorsteinn Magnússon og Brainar undir sama þaki á tónleikum 24. maí. Nýjar íslenskar plötur Hljómsveitin ÞEYR hefur nýlega sent frá sér nýja smáskífu en hún hefur að geyma lögin The Walk, Positive Affirm- ations og Lunaire en upptökur á þessum lögum fóru fram í júní á s.l. ári. Ill£ WtjlK fviT:/£ fyf'iwisj Luif ■ Þótt vertíð sé nú lokið fyrir skömmu þá er ein áhöfn sem siglir ótrauð áfram á „rniðin" en það er áhöfnin á Halas- tjörnunni og „trollið" að þessu sinni er ný plata „Ég kveðju sendi - herra". Hljómplötuútgáfan Geimsteinn gefur plötuna út en á henni koma fram 6 söngvarar, Hermann Gunnarsson, Mag'nús Ólafsson, Páll Hjálmtýsson, Ruth Reginalds, Rúnar Júlíusson og María Baldursdóttir. Öll lög og textar eru eftir Gylfa Ægisson en útsetningar og hljóðfæraleika önnuðust þeir Þórir Baldursson og Rúnar Júlíusson. Þetta er fjórða plata áhafnarinnar. JUNt' 'tl Kiy t.c.am Öll lög og textar eru samin af meðlim- um hljómsveitarinnar og annast þeir allan hljóðfæraleik nema í einu lagi þar sem þeir njóta aðstoðar saxófónleikar- anna Sigurðar Flosasonar og Þorleifs Gíslasonar. Hljómsveitina Grafik skipa: Rafn Jónsson, trommur og ásláttarhljóð- færi, Ramó, söngur, Rúnar Þórisson, gítar og söngur, Vilberg Viggósson, hljómborð og söngur og Örn Jónsson, bassi. Graf s.f. gefur plötuna út en Steinar h.f. annast dreifingu. J ■ Nýverið kom út ný hljomplata með hljómsveitinni Grafik og nefnist hún „Sýn“. Þetta er önnur plata hljómsveit- arinnar en fyrri plata þeirra „Út í kuldann“ kom út haustið 1981. „Sýn" var tekin upp í stúdíó Graf, en blönduð í stúdíó Stemmu. Ný plata hjá Purrk Pillnikk ■ I*ótt hljómsveitin Purrkur Pillnikk hafi „legið í gröfinni“ nú um fleiri mánaða skeið virðist enn bærast iífsmark með sveitinni því út er komin ný plata með þeim „Maskínan“ 12 tonunu 33 sn þar sem er að finna efni af hljómlcikum og önnur sjaldgæf og illfáanleg lög. Tónlistin á plötunni spannar allt frá þriðju fónlcikuni þeirra og til þeirra síðustu, þc. Melarokkstónleikanna en á plötunni er að finna ein fimin lög af þeim tónleikum, lög sem cinungis voru leikin þetta kvöld, en það er mál manna að hljomsveitin hafi aldrei verið betri á ferli sínum en eimnitt þá. Auk þess munu vera lög á plötunni af tónleikum þeim sem Purrkur Pillnikk lék á í Englandi mcð bresku hljómsveitinni The Fall sejn hér var nýverið, en í tilkynningu frá þeim köppum segir að þessar upptökur gefi sveitinni nýjar víddir. -FRI DAMD THOMAS í TJARNARBÍÓI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.