Tíminn - 22.05.1983, Síða 27

Tíminn - 22.05.1983, Síða 27
■ Darth Vadcr eða Svarthöfði heyr sína lokabaráttu í „Return of the Jedi.“ ■ Chewbacca, See-Threepio og Leia prinsessa ráða ráðum sínum. ■ Leikstjóri þriðju Stjörnustríðsmyndarinnar, Richard Marquand, ræðir við See-Threepio p Föndrað við eina af ófrcskjum Jabba. (Anthony Daniels) fyrir töku. Að sjálfsögðu er hann ekki enn opin- ber nema að takmörkuðu leyti. En þó er vitað,.að myndin hefst þar sem þeirri síðustu lauk. Þá var ein helsta söguhetj- an, Han Solo (Harrison Ford), frystur og gefinn glæpamönnum, og í upphafi nýju myndarinnar er hann notaður sem veggskraut í kastala myrkrahöfðingjans Jappa á eyðiplánetu, sem Tatooine heit- ir. Einn af öðrum koma vinir Han Solo, oft í dularklæðum, til plánetu þessarar til þess að reyna að bjarga honum. í þeim hópi eru þær helstu söguhetjur, sem áður hafa verið nefndar; Luke (Mark Hamill), Leia (Carrie Fisher), Chewbacca, vélmennin tvö og svo Lando Calrissian (Billy Dee Williams). En áður en þeim tekst að bjarga Han Solo lenda þau í margháttuðum átökum við alls konar ófreskjur, þar á meðal eina sem gleypir fórnardýr sín, sem deyja síðan á langdreginn og fremur óskemmtilegan hátt. En þetta er aðeins upphafið. Megin- efni myndarinnar er barátta uppreisn- armanna og heimsveldisins, og það verð- ur að lokum öðru fremur að baráttu á milli Luke, síðasta Jedans, og Darth Vader. Þeirra er barátta milli góðs og ills en jafnframt á milli föður og sonar. En á meðan þeir feðgarnir berjast um borð í nýrri Dauðastjörnu, sem komið hefur í stað þeirrar sem Luke sprengdi í loft upp í „Stjörnustríðum", eiga her- sveitir heimsveldisins og uppreisnar- manna í mikilli orrustu og njóta upp- reisnarmenn þar stuðnings Ewokka, sem svo eru nefndir, en það eru lágvaxnir, loðnir bardagamenn. Sú orrusta er að sögn þeirra, sem séð hafa myndina, hin magnaðasta og þar njóta tæknibrellurnar sín til fulls. Flóknar tæknibrellur Og fyrst minnst er á tæknibrellur, þá er ljóst, að þær leika enn stærra hlutverk í þessari mynd en hinum fyrri. í fyrstu myndinni voru 545 tæknibrellur, 763 í miðmyndinni en 942 í þessari. „Tækni- brellurnar í þessari mynd eru í raun og veru eins og ég vildi hafa þær í „Stjörnustríðum", en þá hafði ég ekki tæknina til þess að gera þær allar. Geimorrustan í þessari mynd er til dæmis tíu sinnum flóknari en sú, sem er í Stjörnustríðum," segir George Lucas. Og einn aðstoðarmanna hans bætti við: Ég get ekki hugsað mér neitt það, sem við kunnum, sem við notuðum ekki í þessari mynd.“ Atriðin sem gerast eiga í geimnum eru mjög flókin í vinnslu. Hvert einstakt brot slíkra atriða í myndrammanum er tekið sérstaklega og þau síðan lögð ■ Han Solo í haldi hjá Ewokk- um. Georges Lucas innan um öll módelin, sem hann notar í Stjörnustríðsmyndum sínum, í vörugeymslu fyrirtæk saman hvert ofan á annað. Sem dæmi má nefna, að fyrst er tekin mynd af geimskipi heimsveldisins, þá farkosti uppreisnarmanna og þetta lagt saman nánast eins og lög í köku. I sumum geimorrustuatriðunum þurfti að setja saman 67 slík lög til að fá út þá mynd, sem síðanbirtist á hvíta tjaldinu og sem virðist svo lifandi og full af hreyfingu. Lucas orðinn þreyttur George Lucas er nú 39 ára að aldri. Kona hans, Marcia, sem er 37, hefur unníð sem klippari og m.a. fengið Oskar fyrir frammistöðu sína á því sviði. Þau eiga eina fósturdóttur, Amöndu, sem er tveggja ára. Lucas segir að nú, þegar , þrennunni um stjörnustríðssöguna sé lokið, ætli hann að slappa af og dvelja meira með fjölskyldu sinni. „Stjörnustríð" og allt sem því hefur fylgt, hefur ekki aðeins fært honum auð og frægð; það hefur einnig kostað gífur- lega vinnu, og George Lucas segist nú vera orðinn þreyttur. Það eru aðeins tíu ársíðan hann gerði „American Graffiti“, sem sló í gegn og gerði honum fjárhags- lega kleift að gera kvikmyndadrauma sína að veruleika í „Stjörnustríðum". Á vinsældum þeirra mynda, og annarra sem fylgt hafa á eftir (The Empire Strikes Back, Ránið á týndu örkinni) hefur hann byggt upp voldugt kvik- myndafyrirtæki, Lucasfilm, og fram- sækna tæknibrellnaverksmiðju, Industr- ial Light and Magic, sem einnig hefur tekið að sér verkefni fyrir aðra, svo sem við gerð mynda eins og „Star Trek H“ og „E.T.". Hann leikstýrði sjálfur „Stjörnustríð- um“, en hefur verið framleiðandi hinna tveggja. Þótt hann hafi ekki leikstýrt seinni myndunum eru hugmyndirnar hans, og öll vafaatriði eru borin undir hann. Því fyrir George Lucas er sá heimur, sem þessar myndir sýna, raun- veruleg veröld, þar sem hann þekkir hvert smáatriði. „Ég hef fórnað meiru fyrir stjörnu- stríðsmyndirnar en ég ætlaði mér“ segir hann. „Þær hafa stjórnað lífi mínu. Nú ætla ég sjálfur að ráða lífi mínu - áður en það er orðið of seint“. Hann segist þannig ætla að taka sér tveggja ára frí frá yfirstjórn fyrirtækis síns, Lucasfilm, og sinna fjölskyldunni, slappa af og fara í bíó. Áður ætlar hann þó að Ijúka starfi sínu sem einn af framleiðendum myndar númer tvö um Indiana Jones. Fyrri myndin - „Ránið á týndu örkinni" - sló í gegn sem kunnugt er og er í fimmta sæti yfir þær bandarísku kvikmyndir, sem halað hafa inn mesta peninga í aðgangs- eyri (það er athyglisvert að þeir félagar Lucas og Spielberg hafa gert fjórar af þeim fimm kvikmyndum, sem erú í efstu sætum þessa lista). Önnur myndin heitir „Indiana Jones: The Temple of Doom,“ og er nú m.a. unnið að upptökum á þeirri mynd á Sri Lanka. Næstu myndir Þegar George Lucas tekur sér tveggja ára frí frá yfirstjórn fyrirtækja sinna, þá mun hann vafalaust nota þann tíma að einhverju leyti til þess að þróa áfram eftirlætisviðfangséfni sitt - geimsöguna sem stjörnustríðsmyndimar eru hluti af. Lucas segir, að ef fleiriynyndir verði gerðar um þann söguþfáð, þá verði þær allt öðru vísi en þessi þrenna, sem nú er lokið. Og hann hyggst þá byrja á þeim atburðum, sem gerðust löngu áður en Luke og félagar komu til sögunnar - þ.e. lýsa því hvernig hið forna lýðveldi leið undir lok og einræðisheimsveldið tók við. í þeim myndum verða þeir Obi-Wan Kenobi, gamli Jedinn sem Alex Guinn- ess leikur, og Darth Wader eða Svart- höfði, ungir menn, en Lofce mun hugsan- lega birtast í síðustu myndinni af þeim þremur, sem Lucas hefur hugsað sér um þessa atburði, og þá sem nýfætt barn. Lucas er hins vegar enn tiltölulega óklár á því, hvernig þrjár síðustu mynd- irnar - þær sem eiga að gerast á eftir þeirri mynd sem frumsýnd verður vestra nú á miðvikudaginn - muni líta út. Þær yrðu heldur ekki gerðar fyrr en einhvern tíma á síðasta áratug þessarar aldar; það er því nægur tími fyrir Lucas að velta þeim fyrir sér. „Mikið af því, sem birtist í stjörnu- stríðsmyndunum, er mjög persónulegt", segir Lucas. „Það er meira af sjálfum mér í „Stjörnustríðum", en ég hef verið reiðubúinn að viðurkenna. Ég hef verið að reyna að segja á mjögeinfaldan hátt, þar sem vitað er að myndirnar eru einkum ætlaðar ungum áhorfendum, að það sé til Guð og að það sé til bæði góður og slæmur málstaður. Þú getur valið þar á milli, en heimurinn verður betri ef þú velur þann góða. Svo einfalt er það.“ - ESJ tók saman - eiukum byggt á Time.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.