Tíminn - 15.06.1983, Blaðsíða 4
■ Þeir er sátu námskeiðiö. Talið frá vinstri: Guðjón Brynjólfsson prófn. R.vík, Guðjón H. Guðbjörnsson í fræðslunefnd,
Axel Wolfram prófn. Hveragerði, Sigurður R. Guðbrandsson prófn. Keflavík, Jón Kr. Gunnarsson prófn. R.vík, Grétar
Ingvarsson prófn. Akureyri, Jóhann Ingason prófn. Keflavík, Sævar Sigurðsson prófn. Keflavík, Guðmundur Jónatansson
prófn. R.vík, Guömundur Hallgrímss., prófn. Akranesi, Jóhann Baldursson prófn. Hvolsvöllum, Walter Knauf prófn.
Isafirði, Einar Þorsteinsson starfsm. fræðslunefndar, Jónas Sigurðsson fulltrúi Iðnfræðsluráðs, Garðar Erlendsson
fræðslunefnd og Kristján Ottósson formaður fræðslunefndar í blikksmíði.
Námskeið fyrir prófnefndarmenn í blikksmíði
■ Nýlega var haldið í Iðnskólanum í
Reykjavík námskeið fyrir alla próf-
nefndarmenn í blikksmíði og er það í
fyrsta skipti sem slíkt námskeið er
haldið hér á landi.
Efnt var til námskeiðsins að frum-
kvæði Iðnfræðsluráðs og fræðslunefnd-
ar í blikksmíði vegna nýrrar námsskrár
fyrir fagbóklegt nám, sem tók gildi
árið 1980.
■ Frá aðalfundi Sláturfélags Suðurlands í Fólkvangi á Kjalarnesi.
Aldrei eins
lítið til af
nautakjöti
— en búist við mikilli nautgripa
slátrun í haust
Suðurland: Birgðir af nautgripakjöti
hafa sjaldan eða aldrei vcrið eins litlar
og nú, en af kindakjöti voru birgðir
hins vegar með mesta móti eða 5.792
tonn í landinu þann 1. maí s.l., að því
er fram kom á aðalfundi Sláturfélags
Suðurlands sem haldinn var í Fólk-
vangi á Kjalarnesi 7. júní.
í ræðu formanns, Gísla Andrésson-
ar, kom fram að búvöruframleiðslan
minnkaði um 2% á s.l. ári frá árinu á
undan, en það ár hefði hún einnig
minnkað um 3% frá árinu 1980.
Innvegið kindakjöt hjá sláturhúsum
félagsins á s.l. ári var 5,5% minna en
árið áður, eða 2.370 tonn. Á síðasta ári
dró og verulega úr slátrun nautgripa,
en nokkur aukning varð á svínaslátrun
eða 10%. Gísli hvatti fundarmenn
sérstaklega til að leggja áherslu á það
við bændur að koma með nautgripi til
slátrunar sem fyrst því útlit væri fyrir
að mikið framboð verði á nautgripa-
kjöti þegar komi fram á haustið.
Rekstrartekjur SS námu rúmlega
641 millj. króna á árinu. Tæplega 2ja
milljóna króna halii varð á rekstrinum,
í stað um 5 millj. hagnaðar árið áður.
Á árinu var haldið áfram vinnu við
tvær stórframkvæmdir á vegum SS,
sláturhús á Hvolsvelli og vinnslustöð í
Laugarnesi í Reykjavík. Til fram-
kvætrida og tækjakaupa var alls varið
um 11 millj. króna á árinu.
í árslok voru starfmenn SS 659, en
höfðu verið mest 1.277 í sláturtíðinni í
haust.
ísafjörður: Sjómenn á ísafirði hafa
verið aflasælir eftir sjómannadagshá-
tíðarhöldin. ísafjarðartogararnir
komu allir inn um helgina með ágætan
afla, eða 80-100 tonn, mest af þorski.
Rækjubátarnir sem fóru út eftir sjó-
mannadaginn komu sömuleiðis inn s.l.
föstudag og lönduðu 7-9 tonnum af
rækju að meðaltali. Aflafréttir þessar
höfum við frá Guðmundi Sveinssyni á
Agætur
togara-
afli á Breið-
dalsvík
Breiðdalsvík: „Það hefur gengið ágæt-
lega hjá okkur að undanförnu. Við
erum með tvo Iitla togara og þeir hafa
aflað ágætlega. Síðustu túrarnir voru
að vísu heldur lélegir, en þetta er að
glæðast aftur. T.d. var annar þeirra að
landa 70 tonnum af þorski núna áðan“,
sagði Tómas Árdal, verkstjóri í Hrað-
frystihúsi Breiðdælinga, spurður fiski-
frétta af staðnum, m.a. vegna þess að
Hraðfrystihúsið hefur nýlega verið að
auglýsa eftir fleira starfsfólki.
- Þettaerekkinema 200-300 manna
pláss svo það er mikið fyrir okkur að
taka kannski á móti 50-70 tonnum af
fiski á viku. En við reynum að hafa
undan. Einnig höfum við miðlað
nokkru af fiski í aðra firði, sagði
Tómas.
Hann kvað frystihúsið ekki taka við
humar nú í sumar, heldur sé meiningin
að leggja meiri áherslu á togaraaflann
þetta árið. Einn bátur frá Breiðdalsvík
hafi farið á humarveiðar, en leggi upp
aflann annarsstaðar, enda sé óheppi-
legt að vera með humarvinnslu af
aðeins einum bát.
ísafirði.
Á Isafirði var komið glampandi sól-
skin á ný, eftir snjókomuna um helg-
ina. En þrátt fyrir það sagði Guðmund-
ur hitann ekki fara nema upp í 4-5 stig,
sem þýðir að snjórinn bráðnar ekki úr
fjöllunum og gróður er lítill. T.d. sagði
hann tré hvergi farin að laufgast í
görðum þar vestra.
-HEI
-HEI -HEI
ísafjörður:
Trén laufgast
ekki vegna
kulda
■ Classix Nouveaux.
Classix Nouveaux:
Tónleikar
á morgun
— undirbúningur í fullum gangi
■ Tónleikar bresku „nýrómantíkur1'
hljómsveitarinnar Classix Nouveaux eru
á morgun, fimmtudag, í Laugardalshöll
og hefjast þeir kl. 21, en undirbúningur
er nú í fuilum gangi.
Á blaðamannafundi sem Hallvarður
E. Þórðarson umboðsmaður efndi til í
tilefni tónleikanna kom fram að byggt
verður sérstakt svið í Höllinni fyrir þessa
tónleika, en það er Geir Óttar Geirsson,
sem hefur umsjón með því verki. Hann
vann m.a. að gerð sviðsmyndarinnar í
kvikmyndinni Á hjara veraldar.
Auk sviðsmyndarinnar verður veiga-
mikið „ljósasjów" í Höllinni á svipuðum
nótum og varþegarThe Human League
kom hingað til lands, en Classix koma
með eigin ljósamann.
Classix skipa þeir Sal Solo, Mik
Sweeney, B.P. Hurding, Jimi Sumen og
S. Paul Wilson og hingað koma þeir að
nýloknu tónleikaferðalagi þeirra til
Póllands. Áætlað er að þeir leiki í
klukkutíma en prógrammið gæti haldið
áfram í tvo tíma, ef stemmningin er góð
og var Hallvarður ekki í neinum vafa um
að svo yrði.
Með Classix koma fram hljómsveitirn-
ar Iss og Q4U. Miðaverð er 420 kr. og
eru miðar seldir í flestum hljómplötu-
verslunum á höfuðborgarsvæðinu.
- FRI.
Skóli fatlaðra lýkur
sinni fyrstu námsönn
■ Nýlega lauk fyrstu námsönn Skóla
fatlaðra sem hófst í janúar sl. Þá hófu 16
fatlaðir nemendur tölvu- og bókhalds-
nám ásamt kjarnagreinum, og luku 13
námi.
Að stofnun skólans stóðu Rauði kross
fslands, Öryrkjabandalagið, Félag við-
skipta- og hagfræðinga, Félag löggiltra
endurskoðenda, Stjórnunarfélag
íslands, Skýrslutæknifélag íslands og
Samtök endurhæfðra mænuskaddaðra
(SEM)
Margir hafa lagt Skóla fatlaðra lið og
peningagjafir víða borist að. Iðnskólinn
í Reykjavík hefur lagt til húsnæði og
kennslutölvur endurgjaldslaust og kenn-
arar við Skóla fatlaðra gáfu kennsluna,
næstum 300 stundir. Styrktarsjóður
Sjálfsbjargar og Tryggingastofnun ríkis-
ins bættust fyrir skömmu í hóp þeirra
sem styrkja rekstur skólans, en starfsem-
in hefur gefið það góða raun að fyrirhug-
að er að halda starfi hans áfram.
Fundur orkuráðherra
Norðurlanda í Stokkhólmi
■ Sverrir Hermannsson iðanaðrráð-
herra sat á miðvikudag fund sem orku-
ráðherrar Norðurlanda héldu í Stokk-
hólmi. Þar voru rædd ýmis samstarfs-
verkefni í orkumálum og ráðherrarnir
greindu frá stöðu mála hver í sínu landi.
í frétt frá iðnaðarráðuneytinu kemur
fram að Norðurlönd veita nú um 900
milljónum danskra króna af opinberu fé
til orkurannsókna. Til að nýta þetta fé
sem best hefur samvinna þjóðanna verið
aukin og rannsóknarverkefni hafa verið
tölvuskráð og þannig tiltæk þeim sem á
þurfa að halda innan Norðurlandanna.
Á fundinum var greint frá ýmsum
rannsóknarverkefnum sern lögð verður
áhersla á á næstunni, s.s. vindorku,
varmadælur og brennslutækni. Einnig
var lögð áhersla á að miðla reynslu þeirri
sem áunnist hefur í orkusparnaði í
iðnaði á milli Norðurlanda. Lögð var
fram skýrsla um orkugjafa í stað bensíns
en sérstök nefnd mun fylgja þróuninni á
þessu sviði. Loks ræddu ráðherrarnir
skýrslu um forsendur samvinnu um sam-
eiginlegan innflutning kola til Norður-
landa.
Norrænt
æskulýðsmót 1983
■ Norrænt æskulýðsmót verður haldið
á eynni Venö við Limafjörð í Danmörku
dagana 30. júlí til 7. ágúst, en þessi mót
eru haldin árlega til skiptis á Norður-
löndunum á vegum æskuiýðsdeilda
Norrænu félaganna.
Mótsstaðurinn í ár er lítil eyja með
100 íbúum, sem flestir eru fiskimenn og
bændur. Þar er einnig fjölbreytt fugla-og
dýralíf.
Dagskrá mótsins verður fjölbreytt,
m.a. útivist, náms- og kynnisferðir, lista-
og bókmenntakynningar og kvöldvökur.
Auk þess gefst þátttakendum kostur á
dvöl á dönskum heimilum við lok
mótsins.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur verði
rúmlega 100 frá öllum Norðurlöndun-
um, þar af gefst 10 íslendingum á
aldrinum 16-20 kostur á þátttöku.
Umsóknir þurfa að hafa borist skrif-
stofu Norræna félagsins, Norræna hús-
inu v/Hringbraut, fyrir 7. júní næstkom-
andi.
(Fréttatilkynning).
Frímerkjasýning verður
haldin nú í september
■ Dagana 22.-25. september í haust
gengst Landssamband íslenskra frí-
merkjasafnara (LÍF) fyrir frímerkjasýn-
ingu undir nafninu FRÍMERKI '83.
Sýning þessi verður í tilefni af 16.
landsþingi LÍF og verður hún haldin í
sýningarsalnum Háholti að Dalshrauni
9B í Hafnarfirði. Sýning þessi er með
hefðbundu sniði og er rúm fyrir allt að
170 sýningarramma í salnum. Fyrirhug-
að er að hafa ákv. keppnisdeild innan
sýningarinnar fyrir þá sem hug hafa á
því að taka þátt í samnorrænu sýning-
unni NORDIA '84 sem haldin verður á
næsta ári.
Til þess að auka fjölbreytni sýningar-
innar FRÍMERKI '83 mun sýningar-
deildin reyna að fá til hennar söfn
erlendis frá. Þá verður pósthús opið á
sýningunni og í notkun þar sérstakur
stimpill með mynd af húsi Bjarna ridd-
ara, elsta húsi Hafnarfjarðar. Einnig
verður í tengslum við sýninguna haldið
frímerkjauppboð og verða þar boðin
upp 300-350 númer. Sérstök sýningar-
blokk verður gefin út í takmörkuðu
upplagi með mynd af frímerki úr Alþing-
ishátíðarseríunni frá 1930.
Sýningarnefndin vill að lokum hvetja
alla frímerkjasafnara til þes að taka þátt
í sýningunni FRÍMERKl '83, og afla sér
réttinda til að mega sýna á samnorrænu
sýningunni NORDIA '84 í Laugardals-
höll næsta sumar.