Tíminn - 15.06.1983, Blaðsíða 8

Tíminn - 15.06.1983, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1983 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gísli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjóifsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elías Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrimsson. Umsjónarmaður Helgar-Tímans: Atli Magnússon. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Friðrik Indriðason, Guðmundur Magnússon, Heiður Helgadóttlr, Jón Guðni Kristjánsson, Kristín Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (íþróttir), Skafti Jónsson, Sonja Jónsdóttir. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnssson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Kristín Þorbjarnardóttir, María Anna Þorsteinsdóttir, Sigurður Jónsson. Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar: Síðumúla 15, Reykjavík. Sími: 86300. Auglýsingasimi 18300. Kvöldsímar:86387og 86392. Verð í lausasölu 18.00, en 20.00 um helgar. Áskrift á mánuði kr. 210.00. Setning og umbrot: Tæknideild Timans. Prentun: Blaðaprent hf. Sala samkeppnis- fyrirtækja ríkisins ■ Nokkrar umræöur hafa risið í tilefni af því, að Albert Guðmundsson fjármálaráðherra hefur látið í ljós þá skoðun, að athuga beri vandlega, hvort ekki sé tímabært að ríkið selji eitthvað af þeim fyrirtækjum eða hlut í fyrirtækjum, sem það á nú. Ummæli þau sem fjármálaráðherra hefur látið falla í þessu sambandi, hafa verið túlkuð nokkuð frjálslega. Meðal annars hefur það heyrzt, að Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins sé meðal þessara fyrirtækja og jafnframt muni hún vera það ríkisfyrirtækið, sem mörgum muni þykja ábatavænlegast að festa kaup á! Hið rétta mun, að athugun sú, sem Albert Guðmundsson vill láta fara fram beinist fyrst og fremst að þeim fyrirtækjum, sem rekin eru í samkeppni við einkafyrirtæki og samvinnufyrirtæki. Vissulega gildir allt öðru máli um þessi fyrirtæki en þau, sem rétt hefur verið talið að væru ein um hituna, því að samkeppni hentaði ekki á viðkomandi starfssviði. f þessu sambandi má nefna raforkufyrirtækin, Áburðarverksmiðju ríkisins, Sementsverk- smiðjuna o.s. frv. Um það hefur verið alger samstaða hingað til, að þessi fyrirtæki væru opinber eign og rekin í samræmi við það. Allt öðru máli gegnir um ríkisfyrirtæki, sem eiga í samkeppni við einkarekstur eða samvinnurekstur. Til eignar ríkisins eða sameignar á þessum fyrirtækjum hefur oftast verið stofnað vegna sérstakra ástæðna á sínum tíma - ástæðna, sem eru ekki lengur fyrir hendi. Breyttar aðstæður geta þannig valdið því, að. ekki er lengur eðlilegt, að ríkið eigi þessi fyrirtæki eða hluta í þeim. Þess vegna virðist athugun sú, sem Albert Guðmundsson er að efna til, eiga fullan rétt á sér. Slík athugun hefur reyndar áður farið fram, eða í fjármálaráð- herratíð Matthíasar Mathiesen. Þingflokkur Framsóknarmanna var þá fylgjandi því, að athuguð yrði sala á vissum fyrirtækjum, en þegar til kom strandaði framkvæmdin á ráðuneytunum, ekki sízt ráðuneytum, sem heyrðu undir ráðherra Sjálfstæðisflokksins. Af hálfu Framsóknarflokksins var lögð áherzla á það, að ef til sölu umræddra fyrirtækja kæmi, yrði starfsfólki þess gefinn kostur á að gerast eignaraðili, að öllu leyti eða einhverju leyti, eftir því, sem aðstæður leyfðu. Þessi afstaða Framsóknarflokksins er óbreytt . En það er víðar en hjá ríkinu, sem athuga þarf um sölu á opinberum fyrirtækjum, sem rekin eru í samkeppni við einkafyrir- tæki. Framsóknarmenn hafa t.d. beitt sér fyrir því, að Reykjavíkur- borg hætti rekstri einokunarfyrirtækis, sem vafalítið á sinn þátt í því, að Reykvíkingar búa við óhagstæðari brunatryggingar en ella. Vonandi verður umrætt frumkvæði Alberts Guðmundssonar til þess, að forráðamenn Reykjavíkurborgar taka þetta mál til afgreiðslu. Þinghaldið Um langt skeið var það eitt helzta árásarefni Sósíalistaflokksins á hendur Bjarna Benediktssyni, að hann hefði ekki látið kalla Alþingi saman, þegar gengið var frá varnarsamningnum milli íslands og Bandaríkjanna vorið 1951, heldur látið nægja að kynna sér, að samningurinn hafði yfirgnæfandi þingfylgi. Það þarf ekki að taka fram, að þessi afstaða Bjarna Benedikts- sonar var í alla staði lögmæt og eðlileg. Nú hafa arftakar Sósíalistaflokksins tekið upp svipaðan áróður og krafizt þess, að Alþingi verði kvatt saman vegna bráðabirgða- laganna um efnahagsmálin, enda þótt vitað sé að þau hafa yfirgnæfandi þingfylgi. Vitanlega krafðist Sósíalistaflokkurinn þess ekki af neinni lýðræðisást eða þingræðisást, að Alþingi væri kvatt saman 1951. Krafa arftaka hans er heldur ekki sprottin af þeim rótum. í umræddum ástæðum báðum er tilgangurinn að fá vettvang til aukins áróðurs. Leitt er til þess að vita, að sumir þeirra, sem réttilega vörðu afstöðu Bjarna Benediktssonar 1951, skuli nú hafa viilzt undir fána sósíalista. skrifad og skrafað Hörmungarnar aukast ■ Á sama tíma og dreg- ur úr umferðarslysum í nágrannalöndunum auk- ast þau á íslandi. Fyrir tíu árum var hlutdeild slysa af heildarinn- lögnum á sjúkrahús í Finnlandi 24 af hundraði en er nú ekki nema 10 af hundraði og er þessu svipað farið á öðrum Norðurlöndum. Þetta kemur fram í skýrslu Ólafs Ólafssonar landlæknis sem birt er í síðasta tölublaði sveit- arstjórnarmála. Þótt þrástagast sé á því að hér á landi ríki hin mesta ómenning hvað umferð varðar og að úr- bætur séu náuðsynlegar og aðhald aukið, sígur samt á ógæfuhliðina á sama tíma og aðrar þjóð- ir sem búa við svipuð skilyrði vinna skipulega að því að bæta öryggi í umferð hjá sér með ágæt- um árangri. Gerð var athugun á tíðni umferðarslysa á tímabilunum 1975-77 og 1978-80. Veruleg aukn- ing varð á slysum milli tímabilanna, sérstaklega meðal ungs fólks. Á fyrra tímabilinu voru tæp 50% slasaðra undir 20 ára aldri en á síðara tímabil- inu var rúmur helmingur slasaðra 20 ára og yngri. í ljós kom að ungl- ingum á aldrinum 15-20 ára er 4-5 sinnum hættara að hljóta meiðsl eða bana í umferðarslysum en fólki á aldrinum 25-64 ára. Landlæknir segir: „Með hliðsjón af hinni háu slysatíðni meðal unglinga verður að fara vel ofan í saumana á ökukennslu og þeim reglum, er gilda um veit- ingu réttinda til að aka vélhjólum og bifreiðum. Ljóst er að verulegum hluta unglinga er skilað út á götuna alls ófærum um að stjórna ökutækj- um.“ Kennslu ábótavant Hér kemur landlæknir að máli sem einstaka sinnum hefur'verið impr- að á áður, en yfirvöld skellt skollaeyrum við, að minnsta kosti eru eng- ar úrbætur sjáanlegar, eins og sjá má á síaukinni slysatíðni. Ökukennslu er áreiðanlega mjög ábótavant. þaðgeturver- ið matsatriði hvort öku- kennurum er um að kenna eða meingallaðri löggjöf um ökukennslu og réttindi þeim til handa, er bílum aka eða þeysa um á vélhjólum. Það er óþarfi að vera að leita uppi einhvern söku- dólg í þessu efni. Aðal- atriðið er að svo verði um hnútana búið að ökukennsla og réttindi til að stjórna vélknúnum ökutækjum sé í samræmi við þær kröfur sem hljóta að vera gerðar til þeirra sem fá að stjórna öku- tækjum. Þetta er mál sem þolir enga bið. Úr- bóta er þörf og það strax. Það er óþarfi að málefni af þessu tagi veltist í ráðum og nefndum í lengri tíma. Meðal þess sem land- læknir bendir á að skilji okkur frá nágrannaþjóð- unum í ökuver.jum er að hér á landi nota aðeins 15% ökumanna bílbelti en annars staðar 80-90%, og telur hann miður að viðurlög skuli ekki vera vegna brots á þessu at- riði. í ljós kemur erlendis að með almennri notkun öryggisbelta lækkar dán- artíðni af völdum um- ferðar um 30%. En notkun öryggis- belta er ekki einhlít því hér á landi er tíðni slysa á gangandi vegfarend- um hærri en annars staðar. Bílstjórar kvarta oft sáran yfir því að fólk hlaupi fyrir bíla þeirra og hagi sér stórhættulega í umferðinni, en þeir hinir sömu ásamt með yfir- mönnum lögreglu og um- ferðarskipulags ættu að leggja á sig að fá sér göngutúra annað slagið til að kynnast af eigin raun hversu gróflega eru brotin lög á gangandi vegfarendum, sem alltof margir bílstjórar virðast álíta að eigi sér engan rétt til að komast leiðar sinnar þótt lággíraðir séu og fari sér hægt. Þeir sem skipuleggja gatnakerfi og umferð ættu einnig að taka tillit til þeirra sem potast leið- ar sinnar á tveim jafn- fljótum, en hugsa ekki nær eingöngu um að bíla- umferð geti gengið sem greiðlegast. Almennt andvara- og skipulagsleysi Landlæknir segir að fleira mætti telja en minni notkun öryggis- belta hér á landi saman- borið við nágrannalönd- in að umferðarslys eru tíðari hér. Hann segir beinlínis að almennt and- vara- og skipulagsleysi sé einn höfuðorðsaka- valdurinn. í þessum málum verða allir að taka á honum stóra sínum til að lækka slysatíðnina. það eróþol- andi að menn horfi að- gerðarlausir upp á þá öfugþróun sem hér á sér stað. Á sama tíma og umferðarslysum fækk- ar verulega í nágranna- löndunumm aukast þau hér og það er engu líkara en að menn, sem ætla mætti að væru ábyrgir, telji þetta eitthvert nátt- úrulögmál sem ekkert er við að gera nema taka með þolinmæði. En um- ferðarslys eru af manna völdum og það er hægt að koma í veg fyrir þau. Rannsóknir sýna að meðal svokallaðra þró- aðra þjóða fækkar slys- um í umferð, en fjölgar meðal þróunarþjóða. Að þessu leyti eru ís- lendingar greinilega van- þróuð þjóð. í greinargerð sinni leggur landiæknir fram tillögur til úrbóta: 1. Notkun öryggisbelta, ör- yggisstóla fyrir börn og hjálma í umferð verður að auka. Gagnslaust er að lögleiða notkun þess- ara öryggistækja, nema einhver viðurlög komi til, ef viðkomandi fer ekki að lögum. 2. efla þarf til muna alla umferðarfræðslu í skólum. Eftir að hafa kynnt mér námsefni í grunnskólum nágranna- landanna, er ljóst að við erum eftirbátar nágranna okkar á þessu sviði. Taka þarf upp kennslu í reið- lijóla- og mótorhjóla- akstri í grunnskólum. I sumum löndum fá ung- lingar ekki leyfi til þess að aka mótorhjólum, nema þeir hafi fengið „ökuskírteini" frá skól- anum. Stofna ætti slysa- nefnd í hverjum bekk, er kanna skal nánar öll slys, er bekkjarfélagar verða fyrir. í framhaldsskólum ber að taka upp kennslu í bifreiðaakstri. Líklega er tími til kominn að efla mjög starf námsstjóra í umferðarfræðum og fyrirbyggjandi slysafræði við grunn-og framhalds- skóla. Efla þarf kennslu meðal heilbrigðisstétta á orsökum slysa. Síðastlið- in þrjú ár hafa lækna- nemar á 6. ári fengið nokkra tilsögn um þetta efni í sambandi við fé-1 lagslæknisfræðikennslu. 3. Endurskoða þarf reglur, er gilda um öku- réttindi. Vitað er, að hingað koma unglingar frá nágrannalöndum til þess að fá ökuréttindi, þar eð kröfur eru minni hér en þar. Nauðsynlegt er, að Umferðarráð og ökukennarar taki hönd- um saman og geri róttæk- ar tillögur til úrbóta hið bráðasta. 4. Umferðarráð verður að efla og gera starfsemi þess fjölbreyttari. Nú starfa t.d. engir fulltrúar lækna eða annarra heil- brigðisstétta í ráðinu. Sú ráðstöfun er með öllu óskiljanleg, þegar þess er gætt, að fáir kynnast betur afleiðingum um- ferðarslysa en heilbrigð- isstéttir. Það skal að vísu viðurkennt, að læknar hafa verið heldur af- skiptalitlir í umræðum um umferðarslysavarnir. 5. Skipulagsmál gatna og bygginga þurfa að vera í stöðugri endur- skoðun. Sú regla að byggja og reka skóla og dagheimili við fjölfarnar götur getur ekki talizt heppileg m.t.t. slysa- varna. Greinilegt er, að mun verr er búið að gangandi fólki og hjól- reiðamönnum í umferð hér en í nágranna- löndum. 6. Tryggingafélög mega ekki sofa á verðinum. Annars staðar á Norður- löndum hefur ljóslega komið fram, að slysa- greiðslur tryggingafélaga hafa lækkað verulega, eftir að öryggisbelta- notkun jókst þar. Það er því skylda þessara félaga gagnvart viðskiptavinum sínum að berjast af alefli fyrir bættum öryggisráð- stöfunum, þ.á.m. örygg- isbeltanotkun.“ O.Ó

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.