Tíminn - 18.09.1983, Síða 4

Tíminn - 18.09.1983, Síða 4
4 SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 198Í ■ Forsíðan á „Grænlandsvininum". Einkunnarorð blaðsins eru í hægra horni efst: „Með lögum skal land byggja...og þeir er vart hafa til Grænlands... i orum lögum.“ Þegar Islendingar vildu eignast nýlendu: „A Grænlandi eru framtíðar skilyrði fyrir hrausta og har ð fenga menn” ■ Grænlendingar sjálfir gleymdust að mestu í umræðunni... Meí Bjom $k»l Und'brMR- ... *k þeir. er «Mt hafi Nl Grcfttods... ... i inun I6sam. tnkigdlunr nfime atúngiveKaoK. -kaládlit sujumut maKÍgitsel inugtut inunek pigiuminaKaoK. naperaaé iauma Kaleritse \ 3íöum ei lengur. vort boðotð er start; nú beint til verka Grænlendingar rísum. og heimtum vorn lifsrétt, vorn helgasta arf og hindrun allri af einhug frá oss vtsum. ■ „Eins og fyrr greinir má engan veginn slá því lengur á f rest að í slendingar krefjist réttar síns á Grænlandi, hinni fornu nýlendu vorri og láti til skarar skríða. Rétturinn er vor, hvort sem litið er á fornstöðu eða nýstöðu landsins i sambandi við rjkjandi réttarhugmyndir nú- tímans.“ Þessi orð eru niðurlag á tillögu sem flutt var á Alþingi íslendinga á þinginu í nóvember 1954. Flutningsmaðurinn var Fctur Ottesen.alþingismaður og miðaði tillagan í sem skemmstu máli að því að þegar yrði gerð gangskör að því að viðurkenndur yrði réttur íslendinga til aívinnurekstrar á Grænlandi og við strend ur þess. Þessi krafa var vissulega ekki ný af nálinnLPétur hafði margsinnis flutt hana. Ýmsir Islendingar höfðu rannsakað hin fornu tengsl íslands og Grænlands og komist að þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir langa undirokun íslands af hálfu er- lendra þjóða og þá staðrcynd að Græn- landr var svo gott sem týnt land öldum saman, hefði staða Grænlands sem ís- lensks „amts“ eða nýlendu ekki breyst réttarfarslega. Deilt um yfirráð á Grænlandi Einar Benediktsson, skáld, viðraði oft þá hugmynd að íslendingar gerðu kröfu til Grænlands og árið 1931 færðust þessi mál í brennidepil, þegar Norðmenn tóku sig til og námu land á Austur- Grænlandi. Spruttu þá upp hatrammar deilur milli Norðmanna og Dana og Alþingi íslendinga ályktaði að skora á ríkisstjórnina að gæta hagsmuna Islands í sambandi við þá togstreitu. Deilu þessari var skotið til Fasta alþjóðadóm- stólsins, sem árið 1933 dæmdi landnám Norðmanna ólöglegt, vegna þess að hinn forni yfirráðaréttur, er á 13. öld komst í hendur Noregskonungi hafði tekið til alls Grænlands og væri því enn í gildi. Var litið svo á að Dönuni bæri yfirirráðarétturinn eftir sem áöur. Innlimun Grænlands Eftir stofnun Sameinuðu þjóðanna urðu Danir að skila skýrslu um stjórnun sína á Grænlandi til verndargæslunefnd- ar samtakanna. Árið 1953 gekk hins vegar í gildi ný stjórnarskrá í Danmörku, þar sem ákveðið var að Grænland skyldi ekki lengur teljast nýlenda Dana. heldur sérstakt „amt" í kóngsins viðlenda ríki. í samræmi við þetta fóru Danir fram á að þurfa ekki lengur að skila skýrslum til verndargæslunefndarinnar um stjórnun sína. Nú vöknuðu Grænlandsmálin á ís- landi til nýs lífs og vildu ýmsir þingmenn að (slendingar héldu eftir mætti opnum leiðum til þess að krefjast ítaka og réttinda á Grænlandi, með því að mót- mæla því að Dönum yrði heimilað að hætta skýrslugerðinni. Ríkisstjórnin lagði aftur á móti fram sína eigin tillögu sem lagði til að fulltrúum íslands hjá S.Þ. yrði skipað að sitja hjá við atkvæða- greiðsluna. Urðu úrslit þau að tillaga ríkisstjórnarinnar var samþykkt með 30 atkvæðum gegn 20. Kristinn Guðmundsson utanríkisráð- herra vísaði til þess er hann gerði grein fyrir tillögum ríkisstjórnarinnar að nefnd sem Bjarni Benediktsson hafði sett á laggirnar í fyrri stjórn, til þess að rannsaka réttarkröfu íslands til Grænlands, hefði komist að neikvæðum niðurstöðum, sem síst styrktu aðstöðu íslendinga til þess að greiða atkvæði öðru vísi en nefndin lagði til. Mótmæli Ekki voru þessi úrslit öllum að skapi og sannarlega má segja að nýlendurveld- isdraumar hafi blundað í brjóstum ólík- legustu manna og samtaka á þessum tíma. Þannig sagði í samþykkt frá stjórn Farmanna og fiskimannasambands Islands: „Stjórn FFSÍ leyfir sér hér með að minna hæstvirta ríkisstjórn á samþykktir undangenginna þinga FFSÍ um að ríkis- stjórnin og Alþingi beiti sér fyrir því að leita á alþjóðavettvangi úrskurðar um forn réttindi íslendinga til Grænlands. Vér skorum því fastlega á ríkisstjórnina og Alþingi það er nú situr að notfæra sér nú tækifærið hjá S.Þ. til að koma þessum óskum á framfæri á grundvelli tillagna hr. alþingismanns Péturs Ottesen og að mótmæla þá um leið aðgerðum Dana í Grænlandsmálinu og ’þá sérstaklega inn- limun Dana á landinu. án þess að réttur Islendinga sé reyndur..." Sama daginn og atkvæðagreiðslan fór fram á Alþingi stóð þing Alþýðusam- bands íslands yfir. Þar báru fuiltrúar allra sjómannafélaganna fram svohljóð- andi ályktun sem samþykkt var einróma: „24. þing ASI mótmælir innlimun Grænlands í danska ríkið, þar sem það telur að íslendingar eigi þar réttar og hagsmuna að gæta. Þingið skorar því á alla sanna íslendinga að standa vel á verði og vernda þessi og önnur réttindi sín. — sagði Pétur Ottesen á Alþingi árið 1954 í skeleggri tillögu með fræðiriti dr. Jóns Dúasonar að bakhjarli Þá krefst þingið þess að fulltrúar íslands á þingi S.Þ. greiði atkvæði gegn innlimun Grænlands í Danmörku," Grænlandsvinurinn Um það leyti sem þessi umræða fór fram á Alþingi og í fjölmiðlum hóf göngu sína tímaritið „Grænlandsvinur- inn." Útgefandi hans og ábyrgðarmaður var Ragnar V. Sturluson. í ávarpsorðum til lesenda segir hann m.a.: „í hugum allra þjóðhollra íslendinga á vitundin um Grænland sér djúpar rætur. Allt frá þeim dögum er harmsaga Snæbjarnar Galta, finnanda Grænlands og félaga hans gerðist á tíundu öld sem og sigling landnámsflotans með Eirík rauða í fararbroddi tii þessara nýju átthaga í skjóli „várra laga", hefur saga Grænlands verið samofin vitundarlífi íslenskra „sögu“-manna, engu síður en saga íslands sjálfs." Blaðið er skelegg krafa um það að krafa íslendinga til auðlinda Grænlands á landi og við strendur þess verði

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.