Tíminn - 23.09.1983, Side 5
FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1983
5
■ „Aðalávinningurinn með þessum
breytingum er sá að þrátt fyrir allan
þennan samdrátt í þjóðfélaginu og niður-
skurð á fjárlögum og víðar, þá hefur
tekist samstaða um það í ríkisstjórninni,
að auka verulega hlut húsbygginganna,
því það er gert ráð fyrir sama byggingar-
magni, en hækkandi lánum. Það má því
gera því skóna að byggingariðnaðurinn
mun ekki dragast saman að þessu leyti,
og menn eiga nú möguleika á því að geta
haldið áfram að eignast húsnæði,“ sagði
Alexander Stefánsson félagsmálaráð-
herra í viðtali við Tímann í gær, er hann
var spurður hvern ávinning hann teldi að
því að ríkistjórnin samþykkti tillögur
hans í húsnæðismálum á fundi sínum í
gærmorgun.
Alexander sagði að þessi samþykkt
tryggði jafnframt ýmsar nýjungar og
breytingar sem hann vænti að kæmu
fram með nýjum húsnæðislögum. Þar á
meðal væru byggingarsamvinnufélög,
■ Frá fundi félagsmálaráðherra með fréttamönnum í gær. Frá vinstri eru Sigurður
E. Guðmundsson hjá Húsnæðismálastofnun, HaHgrímur Dahlbert ráðuneytisstjórí,
Magnús Torfi Ólafsson blaðafulltrúi ríkisstjómarínnar, Alexander Stefánsson
félagsmálaráðherra, Jóhann Einvarðsson aðstoðarmaður ráðherra og Hilmar Þóris-
son hjá Húsnæðismálastofnun.
Tímamynd Róbert
Húsnædismálastofnun og Veðdeild Landsbankans sameinuð f einn Húsnæðisbanka?
„ÞAÐ VÆRI SKYNSAM LEGT AÐ
LATA SKOÐA ÞAÐ í ALVÖRU”
— segir Alexander Stefánsson, félagsmálaráðherra, ium breytingar á húsnæðislánum o.fl.
HliSNÆÐISMÁIA T1L-
LÖGUR ALEXANDERS
— sem samþykktar voru á fundi
ríkisstjórnarinnar í morgun
■ Tillögur félagsmálaráðherra um
breytingar á útlánareglum Byggingar-
sjóðs ríkisins frá 1. janúar 1984.
1. Öll lán hækki um 50%
2. Nýbyggingarlán til þeirra, sem
byggja eða kaupa í fyrsta sinn,
skulu greidd í tveimur hlutum þ.e.
fyrri hlutann mánuði eftir fokheld-
isstig og seinni hlutann sex mánuð-
um frá útborgun fyrri hlutans. Út-
borgun lána til annarra skal vera
óbreytt frá því sem nú er.
3. Lánstími nýbyggingarlána lengist
úr 26 árum í allt að 31 ár.
4. Lánstími lána til kaupa á eldra
húsnæði lengist úr 16 árum í allt áð
21 ár.
5. Öll lán verða afborgunarlaus fyrstu
tvö árin.
6. Gjalddögum húsnæðislána verði
fjölgað í 4 á ári.
Tillögur félagsmálaráðherra til
lausnar vanda húsbyggjenda sem fengu
frumián til nýbygginga og lán til kaupa
á eidra húsnæði á árunum 1982 og 1983
úr Byggingarsjóði ríkisins.
1. Ofangreindum aðilum skai gefinn
kostur á viðbótarláni ailt að 50% af
upphaflega láni þeirra.
2. Samkomulag hefur verið gert við
innlánsstofnanir um skuldbreytingu
til 8 ára.
sem þyrfti að efla, þá sagðist hann telja
það mikinn ávinning og mikilsverðan,
að samstaða skyldi hafa tekist um það í
ríkisstjórn, að rétta hlut húsbyggjenda
sem hefðu verið að byggja s.l. tvö ár, og
hefðu vissulega verið í miklum vanda
staddir.
„Ég er vissulega mjög hreykinn af því
að okkur skyldi takast að ná samstöðu
um að koma til móts við þetta fólk, í
þessum erfiðleikum sem nú blasa við í
fjármálum ríkisins. Það verður kannski
ekki í þeim mæli, sem fólkið hefði kosið,
en er samt sem áður gífurlega mikið
átak,“ sagði Alexander, og bætti við:
„Nú, þegar ég les Þjóðviljaforsíðuna í
dag, þar sem yfirskriftin er „Loforðin
svikin" þá verður mér óneitanlega hugs-
að til fyrrverandi félagsmálaráðherra.
Það hefði kannski verið ástæða til þess
að Þjóðviljinn og þeir sem að honum
standa, hefðu rekið upp svona kvein
fyrir ári síðan, eða rúmlega það. Vissu-
lega þurfti að koma til móts við þetta
fólk og skilja hversu vandamálið var
stórt. Ég vona að þessi áfangi sem við
höfum nú ákveðið komi þessu fólki að
verulegum notum.“
Verður stofnaður
Húsnæðismálabanki?
- Lítur þú svo á, að með þessum
tillögum, sem nú hafa verið samþykktar,
þá sé úrbótum á sviði húsnæðismála
lokið í bili?
„Nei, síður en svo. Ég geri ráð fyrir
að það þurfi að takast á við þennan
málaflokk ennþá meira og hyggst því
láta vera í gangi frekari endurskoðun á
þessu, bæði hvað varðar Húsnæðismála-
stofnunina sjálfa og kerfið í heild. Það
getur vel komið til greina að við þurfum
að gera stórtækar breytingar þarna á, og
þá er ég bara að miða við reynslu
annarra þjóða. Ég er t.d. þeirrar skoðun-
ar, að það væri skynsamlegt að láta
skoða það í alvöru, hvort ekki væri rétt
að sameina Húsnæðismálastofnunina og
Veðdeild Landsbankans og láta gera úr
þessum tveimur stofnunum Húsnæðis-
banka. En almennt hvað snertir bank-
ana, þá tel ég að það þurfi að tengja
bankakerfið í landinu meira inn í hús-
byggingaþáttinn heldur en gert hefur
verið. Það er m.a. verkefni næstu ára,
auk þess sem við verðum að vinna að því
að setja upp skipulag á þessi mál, svo við
lendum ekki í því sem nágrannalöndin
hafa sum hver lent í, þ.e. að fara að
offjárfesta í húsbyggingum."
- Nú hefur komið fram í máli ykkar
ráðherranna, að m.a. muni verða útveg-
að nægt fjármagn í þennan svokallaða
húsnæðismálapakka, með því að fá
lífeyrissjóðina til þess að standa við
skuldbindingar sínar um 40% greiðslur í
framkvæmdasjóðina af ráðstöfunarfé -
hvað munt þú sem félagsmálaráðherra
gera, ef ekki tekst að afla þeirra 1200 til
1400 milljóna frá lífeyrissjóðunum, sem
um er talað?
„Ef ekki næst samkomulag útúr þeim
viðræðum sem ég vona að fari af stað nú
um mánaðamótin, við lífeyrissjóðina,
þá mun ég .ekki hika við að standa við
lagasetningu um þessi efni, en ég vil
jafnframt segja, að ég tel að öllum sé
fyrir bestu, að góð samvinna verði um
þessi mái. Það má einfaldlega ekki horfa
framhjá þeirri staðreynd, að þarna er
mikið fjármagn, sem að vissu marki þarf
að stýra.“
„Mikill munur á því hvort þeir
sem eru að byggja í fyrsta sinn
eða allir sem fá aðstoð“
- Nú hafa gagnrýnisraddir heyrst,
þess efnis að þið hafið stefnt að því að
lána 50% staðalíbúðar, en nú er Ijóst að
lánið um áramót verður um 30% af
staðalíbúð. Hvað vilt þú segja við slíkri
gagnrýni?
“Auðvitað stefnum við að því að
lánshlutfallið verði hærra, - við höfum
það sem markmið að hægt verði að lána
80% af byggingarkostnaði. En þaðverð-
ur að hafa það í huga, þegar hvað mest
var rætt um 50% staðalíbúðar, að þá var
eingöngu rætt um lán til þeirra sem væru
að byggja eða kaupa í fyrsta sinn. Þegar
hins vegar ljóst var orðið, að vandi
þeirra sem voru ekki í þeirri stöðu var
svo mikill að nauðsyn bar til þess að
veita þeim einnig aukin lán, þá lá það að
sjálfsögðu ljóst fyrir um leið að minna
kæmi i hlut hvers um sig.
Ég vil hins vegar undirstrika að þessi
áfangi, sem við náum núna 1. janúar nk.
hann gerir það að verkum að við getum
lánað 50% byggingarkostnaðar miðað
við vísitöluíbúð."
Alexander greindi í þessu sambandi
frá því, að verð á staðalíbúð væri hærra
en verð á nýrri íbúð í fjölbýlishúsi, og
þannig væri ef til vill vafasamt að nota
staðalíbúðina sem viðmiðun. Sagði hann
að staðalíbúð fyrir tveggja til fjögurra
manna fjölskyldu, væri áætluð um 2
miiljónir, og að nú væri lánað 389
þúsund til slíkra húsbygginga eða kaupa,
sem væri 19.4% kostnaðar. Eftir að nýju
reglurnar tækju gildi, þá yrðu lánaðar
583 þúsund, sem þýddi að lánið hækkaði
um 194 þúsund, eð aum 50%.
„Full ástæða til þess að taka
fasteignamarkaðinn til gagngerr-
ar endurskoðunar“
- Má ef til vill reikna með því að
fasteignaverð hér á markaðnum, hækki
í einhverju hlutfalli við hækkun lán-
anna?
„Ég ég tel að það megi alveg reikna
með því, eins og fasteignamarkaðurinn
er rekinn hér hjá okkur. Það er að mínu
mati nauðsynlegt að taka þessi mál
föstum tökum, og nýta í einhvers konar
endurskoðun á þessum málum hæfustu
menn og starfskrafta, eins og til dæmis
Stefán Ingólfsson, sem hefur að mínu
mati ýmislegt gott til málanna að leggja
á þessu sviði. Hann hefur t.d. bent á að
þessi mikla útborgun sem á sér stað á
markaðnum hér hjá okkur, frá 60% og
allt upp í 80%, sé stór hluti þess mikla
vanda sem húsa- og íbúðakaupendur
eiga við að stríða.
Annars staðar tíðkast ekki að útborg-
un sé hærri en 20 til 30%, þannig að ég
tel fulla ástæðu til þess að taka fasteigna-
markaðinn hér til gagngerrar endur-
skoðunar."
Annað sem má benda á í þessu
sambandi, er hið gífurlega ósamræmi
sem er milli fasteignamats og brunabóta-
mats. Ég vona að athugun sú sem ég læt
framkvæma leiði til þess að þessar tvær
stofnanir verði gerðar að einni, þar sem
samræmi er á rnilli."
- Ertu bjartsýnn á
að fjármagn fáist?
- Nú er greinilegt að til þess að leysa
gamlan vanda, þ.e. vanda ca. 6000
íbúðaeigenda frá tveimur sl. árum, þá
vantar a.m.k. 200, ef ekki 250 milljónir
króna í það dæmi, sem er jú alveg fyrir
utan 1600 milljónirnar sem þið gerið ráð
fyrir í húsnæðismálin í gegnum fjárlög,
og lánsfjáráætlun - Ertu bjartsýnn á að
það takist að finna það fé, og það fyrir
nóvembermánuð?
„Ég leyfi mér að vera bjartsýnn á það.
Menn gerðu sér grein fyrir því í ríkis-
stjórninni að það þýddi ekki að sam-
þykkja þetta, án þess að standa við það.
Ríkisstjórnin mun því nú á næstu
dögum, hefja undirbúning að því að
undirbúa fjáröflunarleiðir. Ein þeirra
verður að nýta þá heimild sem er til, og
fjármálaráðherra hefur ekki notað til
þessa, en það er að gefa út spariskírteini.
Það er mjög gott samstarf milli fjármál-
aráðherra og mín í þessum málum, og
ég hef enga ástæðu til þess að ætla annað
en við stöndum að þessu sem einn maður
að sjá um að við þetta verið staðið."
í máli félagsmálaráðherra kom fram
að stefnt er að því að hægt verði að byrja
að greiða út viðbótarlánin út á tvö sl. ár
í nóvember nk. en þar verður um 50%
hækkun af upphaflega láninu að ræða.
- AB