Tíminn - 23.09.1983, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1983
17
andlát
Kristján Arnljótsson, fyrrv. rafveitu-
stjóri á Húsvík, lést 20. september.
Sigríður Bjarnadóttir, fyrrv. aðalgjald-
keri Ríkisútvarpsins, andaðist í Sunnu-
hlíð, hjúkrunarheimili aldraðra t' Kópa-
vogi 20. september.
Jóhann Ólafsson, Björk v/Freyjugötu,
Sauðárkróki, lést 14. september.
Arnað heilla
70 ára er í dag Bjami Jóhannesson,
framkvæmdastjóri Utgerðarfélags Kaupfé-
Iags Eyfirðinga. Bjarni er fæddur í Flatey á
Skjálfanda árið 1913, sonur hjónanna Bald-
vins Jóhannesar Bjarnasonar hreppstjóra og
frú Maríu Gunnarsdóttir. Bjarni er búsettur
á Akureyri, kvæntur Sigríði Freysteinsdóttur
ogeigaþau7börn. Þaueruaðheiman ídag.
minningarspjöld
Minningarkort Áskirkju fást á
eftirtöldum stöðum: Bókabúðinni Kleppsveg
152. Holtsapóteki Langholtsvegi 84. Helenu
Halldórsdóttur, Norðurbrún 1. Kirkjuhús-
inu, Klapparstíg 27. Rögnu Jónsdóttur,
Kambsvegi 17. Þuríði Ágúsdóttur, Austur-
brún 37. Þjónustuíbúðum aldraðra V/Dal-
braut.
sundstaðir
Reykjavík: Sundhöllin, Laugardalslaugin
og Sundlaug Vesturbæjar eru opnar frá kl.
7.20-20.30. (Sundhöllin þó lokuð á milli
kl.13-15.45). Laugardaga kl. 7.20-17.30
Sunnudaga kl. '8-17.30. Kvennatimar í
Sundhöllinni á fimmtudagskvöldum kl.
21-22. Gufuböð í Vesfubæjarlaug og Laugar-
dalslaug. Opnunartíma skipt milli kvenna og
karla. Uppl. í Vesturbæjarlaug í sima 15004^
Laugardalslaug i síma 34039.
Kópavogur: Sundlaugin er opin virka daga
kl. 7-9 og 14.30 til 20, álaugardögumkl. 8-19
og á sunnudögum kl. 9-13. Miðasölu lýkur
klst. fyrir lokun. Kvennatímar þriðjudaga og
miðvikudaga.
Hafnarfjörður: Sundhöllin er opin á virkum
dögum kl. 7-8.30 og kl. 17.15-19.15 á
laugardögum 9—16.15 og á sunnudögum kl.
9-12.
Varmárlaug í Mosfellssveit er opin mánud.
til föstud. kl. 7-8 og kl. 17-18.30. Kvennatími
áþriðjud. og fimmtud. kl. 19-21.30. Karlatím-
ar á miðvikud. kl. 19-21.30. Laugardaga opið
kl. 14-18, sunnudaga kl. 10-12.30. Sauna,
kvennatimar á þriðiud. og fimmtud. kl.,
17-21.30, karlatímar miðvd. kl. 17-21.30 og
laugard. kl. 14.30-18. Almennir saunatímar í
baðfötum sunnud. kl. 10.30-12.30.
Sundlaug Breiðholts er opin alla virka
daga frá kl. 7.20-9 og 17-20.30. Sunnudaga
kl.8-13.30.
áætlun akraborgar
Frá Akranesi Frá Reykjavfk
Kl. 8.30 Kl. 10.00
kl. 11.30 kl. 13.00
kl. 14.30 kl. 16.00
kl. 17.30 kl. 19.00
I april og október verða kvöldferðir á
sunnudögum. — I maí, júní og september
verða kvöldferðir á föstudögum og sunnu-
.dögum. - I júlí og ágúst verða kvöldferðir
alla daga nema laugardaga.
Kvöldterðir eru frá Akranesi kl. 20.30 og frá
Reykjavík kl. 22.00.
Afgreiðsta Akranesi sími 2275 Skrifstof-
an Akranesi simi 1095.
Afgreiðslá Reykjavík, sími 16050. Sím-
svari i Rvík, sími 16420, - • -
FIKNIEFNI -
Lögreglan í
Reykjavík, mót-
taka upplýsinga,
sími 14377
tilkynningar
Leiðsögunámskeið
■ Ferðamálaráð íslands mun í vetur halda
námskeið fyrir verðandi leiðsögumenn, ef
næg þátttaka fæst. Námskeiðið hefst 29.
september n.k. og lýkur í maí næsta vor.
Fluttir verða fyrirlestrar tvö kvöld í viku,
mánudags- og fimmtudagskvöld, og próf
verða haldin í nóvember og maí. Umsóknar-
leyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrif-
stofu Ferðamálaráðs, Laugavegi 3, (4. hæð),
R., en umsóknarfrestur rennur út 15. sept.
n.k.
Námskeiðsstjóri verður Birna G. Bjarn-
leifsdóttir
Fréttatilkynning frá
Norræna húsinu 15.9.1983
■ Eftirfarandi tónleikar verða í Norræna
húsinu á næstunni:
Þriðjud. 27. sepf. kl. 20:30
SVEN NYHUS, fiðluleikari, Noregi: Á
efnisskránni norsk þjóðlög leikin á fiðlu og
Harðangursfiðlu.
Þriðjud. 4. okt. kl. 20:30
FINLANDIA tríóið, Finnlandi: Ulf Hást-
backa, fiðla, Veikko Höylá, selló, Izumi
Tateno, píanó. Á efnisskránni - finnsk
tónlist.
Miðvikud. 5. okt. Id. 20:30
FINLANDIA tríóið, Finnlandi: Á efnis-
skránni einleiksverk f. fiðlu, selló og píanó.
Félag einstæðra foreldra heldur
„Haust-flóamarkað“
■ Félag einstæðra foreldra heldur sinn
árlega haust-flóamarkað í Skeljanesi 6 helg-
ina 24.-25. september.
Óskum eftir öllum mögulegum munum,
sem fólk þarf að losa sig við. Upplýsingar í
síma 11822 milli kl. 9-17 og í síma 32601
eftir kl. 19. Sækjum heim ef óskað er.
Flöamarkaðsnefndin.
Samband verkafólks í
matvælaiðnaði á Norðurlöndum
kynnir starfsemi sína hér
■ í lok síðustu viku hélt stjórn Sambands
verkafólks í matvælaiðnaði á Norðurlöndum
fund í Reykjavík.
Fundurinn var haldinn hér á landi til þess
að kynna starfsemi norræna sambandsins
fyrir íslenskri verkalýðshreyfingu ogsérstak-
lega Verkamannasambandi íslands og Félagi
íslenskra kjötiðnaðarmanna. Þá var stjórnin
einnig að kynna sér skipulag og starfsemi
íslensku verkalýðshrefingarinnar.
í norræna sambandinu eru nú 7 landssam-
bönd í Danmörku, Noregi og Svíþjóð með
um 160 þúsund félagsmenn. Sambandið heid-
ur þing 3ja hvert ár og það kýs stjórn þess,
sem skipuð er 2 fulltrúum frá hverju aðildar-
landi. Formaður norræna sambandsins-er
Lage Andreasson.
í Verkamannasambandi Islands hefur farið
fram nokkur umræða um að ganga í þetta
norræna samband og var þessi fundur liður í
þeirri umræðu.
Auk fulltrúa Verkamannasambands (s-
lands fóku fulltrúar frá Félagi íslenskra
kjötiðnaðarmanna þátt í þessum viðræðunt.
Gestirnir skoðuðu sig nokkuð um. fóru
m.a. til Gullfoss, Geysis og til Vestmanna-
eyja. Einnig heimsóttu þeir vinnustaði -
Isbjörninn og Mjólkursamsöluna.
Friðarhópur einstæðra foreldra
Stofnaðurhefurverið í Reykjavík Friðarhóp-
ur einstæðra foreldra. ( ályktun, sem hópur-
inn samþykkti, segir m.a.:
Sú ógnarstefna sem felst í síaukinni kjarn-
orkuhervæðingu hlýtur að tortíma heiminum
ef almennir borgarar reyna ekki að koma
vitinu fyrir stjórnmálamenn í þessum efnum.
Þegar þær gífurlegu fjárhæðir sem varið er til
hervæðingar í heiminum eru bornar saman
við tölur um fjölda þeirra sem deyja úr
hungri dag hvern, ekki síst barna, verður
manni spurn hvort ráðamenn séu með öllum
mjalla.
Við (slendingar getum ekki setið þegjandi
hjá þar sem stjórnvöld okkar eru á ýmsan
hátt samsek í hernaðarglæpnum með því að
hafa herstöð annars risaveldisins í landinu.
Auknar hernaðarframkvæmdir sem hér eru
boðaðar ýta enn undir þá þörf að efia þá
. krafta sem berjast fyrir afnámi herstöðva og
fyrir friðlýsingu hafsvæða. Við tökum undir
þá kröfu, að Norðurlönd verði um aldur ou
ævi kjamorkuvopnalaus. Sannarlýðræðisþjóð-.
ir ir verða að taka frumkvæði í þessu efni.
Sjónarmið stórveldanna tveggja mega ekki
endalaust ráða ferðum með kenningunni um
ógnarjafnvægi. Uppsetning fleiri kjarnorku-
flauga í Evrópu er nýr glæpur gagnvart
mannkyninu.
Baráttumál einstæðra foreldra hér á landi
hafa um árabil verið að efla hag þeirra sem
einir hafa forræði barna sinna og jafnframt
að gera bömum þeirra kleift að komast sem
best af. Þetta hefur allt verið gott og blessað.
En séð í stærra samhengi er þetta allt til lítils
ef dagar mannkynsins eru brátt taldir og
engin trygging fyrir því að börn okkar eigi sér
framtíð. Hvert einasta barn sem fæðist í
þennan heim fær í vöggugjöf þrjú tonn af
TNT sprengiefni. Það þarf ekki neina spá-
dómsgáfu til aðsjáfyrirframtíð þeirrabarna,
ef slík vitfirring á að fá að halda áfram. En
við viljum tryggja þeim framtíð. Við heitum
því á alla einstæða foreldra, að þeir taki
höndum saman um að krefjast framtíðar
fyrir börn okkar - með því að krefjast
afvopnunar og afnáms hernaðarbandalaga,
að Island taki ekki þátt í auknum kjarn-
orkuvígbúnaði og segir sig úr NATÓ.
Þeir sem hafa áhuga á að starfa í Friðarhópi
einstæöra foreldra hafi samband við Svavar
í síma 22570, Mörtu í síma 35253 og
Aðalheiði í síma 21809.
Allskonar
smáprentun
Umslög - Bréfsefni - Reikninga -
Frumbækur - Vinnulista - Kort.
Hverskonar eyðublöð önnur í einum eða
fleiri litum - allar tegundir af pappír og umslögum.
Sjálfkalkerandi pappír - RúðustrikaÓar blokkir A-4
og A-5 á lager, einnig með sérprentuðu firmamerki
ef óskað er. Sjáum einnig um hönnun á nýjum
eyðublöðum o.þ.h. Hringið og við veitum
allar upplýsingar eða komum til yðar.
T >1 TT H -J ' L
BOLHOLTI 6 REYKJAVIK SIMI 82143
t
Þakkir færum við öllum sem vottuðu okkur samúð við andlát og útför
eiginmanns míns.föður, fengdaföður, afa og bróður okkar
Þorvarðar K. Þorsteinssonar
fyrrverandi sýslumanns
f.h. aðstandenda
Magdalena Thoroddsen
flokksstarf
Aðalfundur FUF í Reykjavík
Aðalfundur félags ungra framsóknarmanna j Reykjavík veröur
haldinn sunnudaginn 25. sept. n.k. að Hótel Heklu I sal niðri kl. 14
(kl. 2)
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál.
Tillögur um lagabreytingar verða að hafa borist skrifstofu félagsins I
síðasta lagi tveimur vikum fyrir aðalfund.
Stjórnin.
Félag framsóknar-
kvenna
í Reykjavík
Féiagsfundur verður haldinn mánudaginn 26. sept. kl. 20.30 að
Rauðarárstíg 18, kjallara.
Fundurinn verður með „indversku yfirbragði‘1 Þóra Einarsdóttir
formaður Indlandsvinafélagsins segir okkur frá dvöl sinni á Indlandi
þar sem hún starfaði meö Móðir Theresu.
Haraldur Ólafsson varaþingmaður heldur fyrirlestur um Indland.
Konur úr Björk félagi framsóknarkvenna I Keflavík koma í heimsókn
og taka með sér gesti af Suðurnesjum. Þá verða indverskir smáréttir
á boðstólum.
Við vonumst til að þetta verði fróðlegur og skemmtilegur fundur og
nú er um að gera að fjölmenna og taka með sér gesti.
Nýir félagar sérstaklega velkomnir Stjórnin.
Skagfirðingar Sauðárkróksbúar
Almennt félagsmálanámskeiö verður haldið í Framsóknarhúsinu,
Suðurgötu 3, laugardaginn 24. og sunnudaginn 25. sept. n.k. Þátttaka
tilkynnist í síma 5374 á fimmtudags og föstudagskvöld milli kl. 7.30
og 8.30.
Allir velkomnir
FUF Skagafirði
Launþegaráð Suðuriandi
Aðalfundur Launþegaráðs Framsóknarmanna á Suðurlandi verður
haldinn að Eyrarvegi 15. Selfossi fimmtudaginn 29. sept. kl. 20.30.
Miðstjórnarfundur SUF 1
Dagana 8. og 9. okt. n.k. verður Miðstjórnarfundur SUF haldinn að
Bifröst I Borgarfirði og hefst fundurinn kl. 14. þann 8. okt.
Kl. 10 sama dag fer rúta frá B.S.i
Dagskrá og fundarboð hafa verið send út til miðstjórnarmanna og þeir
hinu sömu beönir um að tilkynna sem fyrst tii skrifstofu SUF hvort þeir
geti setið fundinn.
Framkvæmdastjóri SUF
Undirbúningsfundir
vegna miðstjórnarfundar SUF.
Ákveðið hefur verið að efna til undirbúningsfunda vegna Miðstjórnar-
fundar SUF. Hér er um að ræða fundl sem fjalla um þá málaflokka
sem teknir verða til sérstakrar umræðu á miðstjórnarfundinum.
Þriðjudaginn 27. sept. kl. 16.30 verða fundir sem hér segir:
Umhverfismál (Hópstjóri: Áskell Þórisson)
Húsnæöismál (Hópstjóri: Helga Jónsdóttir),
Unga fólkið og Framsóknarflokkurinn.
(Hópstjóri: Egill Ólafsson).
Miðvikudaginn 28. sept. kl. 17. verður fundur í þeim hópi sem fjallar
um stjórnmál á miðstjórnarfundinum.
(Hópstjóri: Finnur Ingólfsson.)
Fundirnir verða haldnir á skrifstofu Framsóknarflokksins. Lögð er
áhersla á, að sem flestir miðstjórnarmenn komi á fundi I þeim hópi
sem þeir ætla að starfa með á miðstjórnarfundinum. Einnig eru
formenn FUF félaga boðnir velkomnir sem og aðrir ungir Framsókn-
armenn sem hafa í hyggju að sitja miðstjórnarfundinn.
SUF.