Tíminn - 07.10.1983, Blaðsíða 2
Vélsleða-
miðstöðin
■ í dag tekur til starfa sýningarsalur
að Bíldshöfða 8 sem kallaður hefur
verið Vélsleðamiðstöðin. í húsnæð-
inu sem er við hliðina á Bifrciðaeftir-
litinu verða til sýnis og sölu notaðir
véisleðar, auk þess sem reynt verður
að útvega varahluti í flestar gerðir
vélsleða. Einnig verður boðið upp á
annað sem tengist vélsleðamennsku,
t.d. vélsleðafatnaður.Þeimsem kíkja
inn verður boðið upp á gott kaffi,
vélsleðaspjall og e.t.v. lifandi
myndir. Til að byrja með verður
Vélslcðamiðstöðin aðeins opin frá
kl. 13 -18 frá mánudegi til laugar-
dags.
Skárust
í andliti
Ekið á ijósa-
staur við Skula-
götu í gærkvöldi x
■ Ökumaður og farþegi hans lentu á
framrúðunni og skárust í andliti er
bifreið þeirra lcnti á Ijósastaur við
Skúlagötu um kl. 21 í gærkvöldi.
Bifreiðinni var ekið norður
Kalkofnsveg og náði ekki beygjunni
austur Skúlagötu og hélt áfram þvert
yfir götuna og lenti á IjóÉastaur sjávar-
megin. Ökumaður og farþegi voru
fluttir á slysadeild.
- BK.
FÖSTIJDAGUR 7. OKTÓBER 1983
■ Bobby Harrisson, söngvan.
skemmtir gestum í Þórscafé næstu
vikurnar. Hér hcfur hann sest uppá
æfmgarhjól með hjáip aðstoðar-
stúikna.
Vetrar-
dagskrá
hefst f
Þórscafé
■ Vetrardagskrá Þórscafé er að
hefjast og mun Bobby Harrison
söngvari skemmta matargestum
næstu 2 -3 vikurnar. Þá munu þær
Saga Jónsdóttir og Edda Björgvins-
dóttir sjá um leikþátt og halda uppi
fjöri fram að áramótum.
Að sögn Péturs Hjálmarssonar
skemmtanastjóra verður svipað snið
á starfsemi ÞÓrscafé og undanfarna
vetur. Dansbandið hefur verið
endurráðið en Þorleifur Hauksson
saxafónleikari hefur verið ráðinn sér-
staklega til að aðstoða við skemmti-
atriði. Þó hafa orðið nokkrar breyt-
ingar á starfsliði staðarins, meðal
annars hefur yfirdyravörðurinn látið
af störfum eítir 21 árs starf.
Pétur sagði að vetrardagskráin yrði
aðallega miðuð við matargesti og
aðeins um 200 manns yrði hleypt inn
í húsið svo allir geti notið þess að
borða. Eins og ætt'ð er lögð niik.il
áhersla á snvrtilegan klæðnað gesta.
- GSH
Deild fyrir blinda og sjónskerta tekur til starfa í Álftamýrarskóla:
FJÖUimiNARTÆKI GEFH), SEM
GETUR SFÆKKAB 140 SINNUM
■ Á þessu hausti tók til starfa deild
fyrir blind og sjónskert börn í Álftamýr-
arskólanum í Reykjavík. í sumar hefur
verið unnið ötullega að því að innrétta
húsnæði fyrir deildina, sem áður var til
húsa í Laugarnesskólanum. Tólf nem-
endur eru nú í deildinni,6-22ja ára gamlir,
og við hana starfa fjórir kennarar, einn
uppeldisfræðingur og einn þroskaþjálfi.
Blindravinafélag íslands var stofnað
1932, og var eitt af fyrstu verkefnum
félagsins að huga að kennslu fyrir blind
börn og reyndar fullorðna líka, og sendi
félagið kennara erlendis til sérnáms í
blindrakennsiu. Ári síðar var fyrsti
blindraskólinn stofnaður og hafði hann
aðsetur á elliheimilinu Grund.
Á árunum 1938-1956 voru aðeins 2
börn blind á skólaskyldualdri og greini-
legt af því, að einhvers staðar hefur verið
pottur brotinn í greiningu. Á þessu
tímabili var enginn sérstakur skóli starf-
ræktur en nemendur voru m.a. í Æfinga-
skóla Kennaraskólans. 1956 var aftur
starfræktur skóli með sérmenntuðum
blindrakennara og nú í húsi Blindravina-
félags Islands, Bjarkargötu 8 og þar var
starfað til 1970, er starfsemin var flutt í
Laugarnesskólann. 1978 lét blindra-
vinafélagið af rekstrinum og skólinn
varð hluti af grunnskólakerfinu.
Samt sem áður eru öll tæki sem notuð
eru í þessari deild grunnskólans.keypt og
gefin af góðgerðarfélögum og þar sem
ekki er endalaust hægt að gera kröfur til
þeirra þá er deildin mjög vanbúin
tækjum. f gær þegar hin nýflutta deild
var formlega opnuð gaf Kiwanisklúbbur-
inn Vífill fjölritunartæki sem getur
stækkað 140 sinnum og þurfti eftirgangs-
semi til þess að fá ríkið til að fella niður
tolla af þeirri gjöf.
Blindir og sjónskertir þurfa að læra
margt sem aðrir sleppa við. Að klæða
sig, borða og elda mat eru allt skólafög,
því að sá sem ekki getur séð um sig
sjálfur, kemst tæpast út á vinnumarkað-
inn. Annars eru nemendur mjög mis-
jafnlega á vegi staddir og þarf að útbúa
námsferil fyrir hvern og einn. Sumir eru
„aðeins“ blindir eða sjónskertir, aðrir
blindir og heyrnarlausir, enn aðrir blind-
ir og vangefnir. Það er því dýrmætt að
búið sé vel að þessum hluta grunnskóla -
nemenda og þess vandlega gætt að þeir
gjaldi í engu fötlunar sinnar. Það er farið
vel af stað í Álftamýrarskólanum. Húsn-
æðið er skemmtilega innréttað og auðséð
að lærðir sem leiknir hafa lagt sig fram
um það að deildin færi sem best af stað.
-BK
■ Agnar Ólafsson, forseti Kiwanisklúbbsins Vífils, afhendir deild sjónskertra og
blindra fjölritunartæki sem um leið er stækkari, en þess má geta að öll tæki sem þessi
grunnskóladeild býr yfir hafa verið gefin af líknarfélögum. Til hliðar við Agnar er
OPIÐ til kl. 22 í kvöld og hádegis á morgunjaugardag
í HELGARNIATINN
Sverrir Kolbeinsson, starfandi skólastjóri Álftamýrarskóla.og Margrét Sigurðardóttir
blindrakennari.
Tímamynd Árni Sæberg
AUar 5 JL-PORTIÐ
, * y,ÖruJ. S NÝVERSLUN
a markaosverði.
ALUIGARNI
NYJA KÖKUHUSIÐ
NÝJAR KÖKUR OG
BRAUÐ DAGLEGA
GRILLRETTIR
ALLAN DAGINN
RETTUR DAGSINS
OPIÐ Á
VERSLUNARTÍMA
Raftæki
Húsgögn
e!K°
NYJUNG!
Jli
Mumö okkar
hagstæöu
greiðsluskilmála
1— ■—t — - J EJUÍJO
__ JuuQn.njjJ
Jon Loftsson hf.
uwn
Hringbraut 121 Sími 10600