Tíminn - 07.10.1983, Blaðsíða 6
FOSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1983
hefur kynnt sér allt, sem hún
hefur komist höndum yfir um
einhverf börn og farið á nám-
skeið til að læra meðferð
þeirra. Hún eyðir nú öllum
tíma sínum í að þjálfa og kenna
Seargoah og hefur fengið vini
sína í lið með sér og heldur því
fram, að þegar megi greina
batamerki hjá honum.
Sylvester Stailone hefur lagt
sitt af mörkum til styrktar ein-
hverfum börnum með því að
gefa ágóðann af frumsýningu
nýjustu myndar sinnar, „Stay-
ing Alive“ með John Travolta
í aðalhlutverki, í sjóð, til-
einkaðan þessum börnum. Og
hann hefur komið víða fram,
þar sem safnað er fé til
sjóðsins.
En þau hjón gera sér bæði
grein fyrir, að framundan er
löng og ströng barátta og væg-
ast sagt óvíst um árangur
hennar.
■ Eins og fram kemur í frétt í
Tímanum í dag eru nokkrir
áhugamenn um tengsl kynslóð-
anna að fara af stað með það
verkefni að láta ungt fólk ræða
við eldra fólk og færa viðtölin í
letur. Þeir kalla þetta framtak
sitt „Gagnvegi". Tíminn spurði
einn forsvarsmannanna, Þór
Jakobsson veðurfræðing, nánar
út í þetta verkefni.
Þór, hversvcgna kallið þið
verkefnið Gagnvegi?
- Orðið þýðir beinn vegur,
stysta leið. í Hávamálum segir
„en til góðs vinar liggja gagn' g-
r
ir“. Þetta er fallegt heiti. Tillagan
er frá Svövu Jakobsdóttur, og
lýsir verkefni okkar vel. Þetta
þýðir í okkar samhengi beinn
vegur á milli kynslóðanna.
Hvernig fæðist þessi
hugmynd?
- Hugmyndin er frá Kanada.
Ég kynntist henni þar og stóð þá
fyrir svona verkefni og það tókst
prýðilega. Síðan hefur alltaf vak-
að fyrir mér að kynna hana hér
á íslandi og við hrindum þessu
saman af stað, ég, Eðvarð Ing-
ólfsson aðstoðarritstjóri Æsk-
unnar, Níels Arni Lund Æsku-
lýðsfulltrúi ríkisins og
Agnes M. Sigurðardóttir æsku-
lýðsfulltrúi Þjóðkirkjunnar. Þau
eru í þessu sem sjálfboðaliðar en
með fullri vitund og stuðningi
sinna samtaka. Þau ætla að
kynna þetta í æskulýðsfélögum
um landið, í skólum og meðal
fólks sem starfar með ungu fólki
t.d. presta. Líka kynna þetta á
sama hátt hjá eldri kynslóðinni.
En við leggjum mikla áherslu á
að allir geri þeita af fúsum vilja
og af áhuga.
Markmiðið?
- Þetta skapar ánægju hjá
öllum sem þátt taka. Krakkarnir
verða hissa á að heyra hvað
gamla fólkið hefur að segja. Það
er allt annað að heyra hlutina
heldur en að lesa um þá í
bókum. Það verður meira lif-
andi. Og á hinn bóginn hefur
eldra fólkið ánægju af að segja
frá sinni æsku. Það er fyrst og
fremst ætlast til þess að fó.lk tali
svolítið um gamla daga. Um
einhver æviatriði eins og fæðing-
arár og uppvaxtarstað. Annars.
eru engar reglur um það um
hvað á að spyrja. Aðferðin er
frjáls. Þetta er engin samkeppni.
■ Þór Jakobsson, veðurfræðingur
í spegli tímans
SYLVESIER
BERJAST FYRIR
TÍÐSONAR '
■ Sjúkdómur Seargoah
hefur fært þau Sasha
og Sylvester Stallone
nær hvort öðru. Þa
eru staðráðin í að
leggja máliefnum
einhverfra barna það
lið, sem þau mega,
og er ekki minhsti
liðurinn í því
OG
SASHA
FRAM-
■ Lífið hefur ckki alltaf leikið
við leikarann Sylvester Stall-
one og konu hans Sasha, en
mesta áfallið, sem þau hafa
orðið fyrir, var þegar læknir
úrskurðaði son þeirra Searg-
eoh, þriggja ára gamlan, ein-
hverfan, en sá sjúkdómur cr
álitinn ólæknandi.
Sylvester og Sasha kynntust
í New York. Þangað hafði
Sasha flust til að leggja stund á
leiklistarnám, en Sly, eins og
hún kallar hann, er borinn þar
og barnfæddur í alræmdu
hverfl ofbeldis og glæpa. Þegar
fundum þeirra bar saman,
vann Stallone við að vísa til
sætis í bíó og tímalaun hans
voru ekki há, aðeins einn
dollar. En þrátt fyrir bágar
framtíðarlikur á þcim tíma,
felldu þau óðar hugi saman og
árið 1974 giftu þau sig í Los
Angeles. A næsta ári skrifaði
Stallone handritið að Rocky,
sem hann fór líka með aðal-
hlutverkið í, og þar með var
teningnum kastað. Hann öðl-
aðist heimsfrægð með það
sama og innan skamms var
hann orðinn milljónamær-
ingur, aðeins 29 ára að aldri.
Ekki leið á löngu uns önnur
verkefni tóku við. Hann fór að
leikstýra og framleiða kvik-
myndir, m.a. Rocky II og
Rocky III. En þessi velgengni
á framabrautinni varð heimilis-
lífinu ekki holl. Stallone fór að
heiman. En sambandið við
fjölskylduna rofnaði ekki og
smám saman fór Stallone að
eyða meiri og meiri tíma með
henni. Nú voru börnin orðin
tvö, Sage, sem nú er 6 ára, og
Seargoah, sem álitinn var „full-
komið barn.“
Seargoah þótti bráðþroska
barn. Aðeins 6 mánaða gamall
var hann farinn að skríða. Atta
mánaða gamall settist hann
upp og 11 mánaða stóð hann
upp. 18 mánaða gamall fór
hann með stafróflð, taldi upp
að 75 og gat lesið einföld orð,
eftir því sem móðir hans heldur
fram. Hins vegar gat hann ekki
talað, svo að foreldrar hans
drógu þá ályktun, að hann
væri hin hlédræga, sterka og
þögla manngerð, sem hefði
fátt við aðra að segja. Það
hvarflaði ekki að þeim, að
neitt væri athugavert.
Önnur afbrigðileg
einkenni
En smám saman fór Searg-
oah að sýna önnur afbrigðileg
einkenni. Hann forðaðist að
horfast í augu við annað fólk,
hann vildi ekki leika sér við
önnur börn, stundum var hann
„of virkur“, þ.e.a.s. hann
stöðvaðist ckki við neitt, og
hann skrifaði stafl og tölustafl
á stigahandriðið. Þegar hann
var tveggja og hálfs ára báru
foreldrar hans áhyggjur sfnar
undir barnalækna, sem sögðu
þeim, að hann ætti eftir að
vaxa upp úr þessum ósiðum.
En þegar Seargoah var orð-
inn liðlega þriggja ára gamall
og hafði ekkert breyst, var
foreldrum hans orðið verulega
órótt. Þau ákváðu að láta fara
fram á honum rækilega læknis-
rannsókn. Niðurstaða þeirrar
rannsóknar varð sú, að hann
væri einhverfur og þriggja ára
að aldri hefði hann þroska 16
mánaða gamals barns. Geta
má nærri, hvernig Sasha og Sly
varð við, þegar þau heyrðu
þennan dóm og því bætt við,
að hann yrði aldrei heilbrigður.
Þau spurðu ýmissa spurninga,
svo sem hvernig færi fyrir ein-
hverfum börnum, þegar þau
eltust, hvort þau yrðu fær um
að ná sambandi við önnur
börn, hvort þau gætu myndað
vináttusambönd, ekið bíl, unn-
ið sér til framfæris, gift sig?
Þau spurðu og spurðu og svarið
var alltaf það sama: Nei. Síð-
asta spurning þeirra í þetta
skipti var, hvað yrði um þessi
börn, þegar þau kæmust á
gelgjuskeið. Svarið við þeirri
spurningu var, að þá væri þeim
flestum komið fyrir á hælum,
því að það væri svo erfitt að
hafa þau heima fyrir, að þá
væri í flestum tilfellum fjöl-
skylda þeirra orðin uppgefin.
Gefast ekki upp
Eftir mikla umhugsun kom-
ust þau hjón að raun um, að
þau væru ekki reiðubúin að
gefast upp og sætta sig við
orðinn hlut. Stallone er þekkt-
ari fyrir annað en að gefast
upp, og þegar hann hvislaði í
eyra sonar síns: - Læknaðu
þig sjálfur sonur sæll, þú getur
það, varð Sasha ákveðin í að
láta ekki deigan síga. Hún
Vidtal dagsins einkum ætlað 11-18 ára skrásetjurum:
„EN TIL GÓÐS VINAR
UGGJA GAGNVEGIR”