Tíminn - 07.10.1983, Blaðsíða 11
10
Píanótónleikar í Háskólabíói
Laugardaginn 8. október 1983 kl. 14.00
Á efnisskrá eru: Schubert og Brahms
hAartin
Berkofsky
&
Anna
JVLálfrídur
Sigurdardóttir
Ágóði rennur til Grensásdeildar.
Miðar seldir í Háskólabíói og
á Grensásdeild Borgarspítalans.
Allskonar
smáprentun
Umslög - Bréfsefni - Reikninga -
Frumbækur - Vinnulista - Kort.
Hverskonar eyðublöð önnur í einum eða
fleiri litum - allar tegundir af pappír og umslögum.
Sjálfkalkerandi pappír - Rúðustrikaðar blokkir A-4
og A-5 á lager, einnig með sérprentuðu firmamerki
ef óskað er. Sjáum einnig um hönnun á nýjum
eyðublöðum o.þ.h. Hringið og við veitum
allar upplýsingar eða komum til yðar.
Notaðir iyftarar
í mikiu úrvaii
Getum afgreitt eftirtalda lyftara nú þegar:
Rafmagns
1.51.
21.
2.51. m/snúningi
31 m/snúningí.
Skiptum og töki
u K.JC
Til leigu
er leyfi til rjúpnaveiði í löndum eftirtalinna jarða:
Kolgrafar, Álfgeirsvalla, Ytra-Vatns, Syðra-Vatns,
Brekkukots, Ytri-Mælifellsár, Mælifellsár og
Reykjasels í Skagafirði, Stafns, Kúfustaða og
Hvamms í Austur-Húnavatnssýslu á veiðitíman-
um nú í haust. Svæðið leigist sem ein heild.
Byssufjöldi verður takmarkaður. Þeir sem áhuga
hafa sendi skriflegt tilboð til Marinós Sigurðssonar
hreppsstjóra Álfgeirsvöllum fyrir 12. okt. nk.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
Landeigendur.
íþróttir
FÖSTUDAGIJR 7. OKTOBF.R 1983
11
umsjón: Samúel Örn Erlingsson
Körfubolta-
punktar:
TURNER FARINN
-12 dómarar sóttu
námskeið hans
■ Körfuknattleiksdómarinn David Turner, sem
hélt hér á dögunum körfuboltadómaranámskeið
fyrir starfandi dómara.er farinn heim. Námskeið
Turners stóð í fjórar kvöldstundir, auk þess sem
hann dæmdi þrjá leiki i Reykjavíkurmótinu og
fylgdist með öðrum. 12 dómarar sóttu námskeiðið.
Koma Turners hefur gert mikla lukku meðal
körfuboltamanna, og er ætlunin að hald nú
námskeið fyrir nýja dómara, og verða kennimeist-
ararnir lærisveinar Tumers.
- SÖE
Meira um dómara:
EINKUNNAGJÖF
■ ( vetur verður gerð tilraun með einkunnagjöf
í dómgæslu í körfuknattleik. Er þetta liður
í stórfelldu átaki KKl ('dómgæslumálum.
Þjálfarar eða liðsstjórar munu gefa dómurum
einkunn fyrir tiltekin atriði, svo sem: stjórn,
framkomu, samvinnu við hinn dómarann, sam-
vinnu við ritara, tækni, úthald o.s.frv. - SÖE
Engin landsliðsnefnd-enginn
landsliðsþjálfari
FÆÐIST
FUOTLEGA
■ Enginn landsliðsnefnd er nú starfandi hjá KKÍ.
né heldur landsliðsþjálfari. Nú er unnið mikið í
málinu, og gert ráð fyrir að slíkt fæðist fljótlega.
Aðalverkefnin framundan eru leikur við banda-
rískt háskólalið í des., og C-hÍuti Evrópukeppni
landsliða í apríl í Osló. _ sÖE
2. FLOKKUR FÆR
„ALVÖRUMÓT"
■ 2. flokkur pilta fær nú fyrsta sinni „alvörumót"
á íslandsmótinu í körfubolta. Strákarnir leika
nefnilega dreift yfir allan veturinn, en áður hafði
verið leikið á leikhelgum, þar sem liðin koma öll
og leika hraðmót, þrisvar á vetri. - Þannig verður
keppt áfrain í öðrum flokkum. - SÖE
FYRSTA DEILD
KVENNA FULL-
SKIPUÐ
-í fyrsta sinn frá upphafi
■ Fyrsta deild kvenna í körfuknattleik er nú
fullskipuð í fyrsta sinn frá upphafi. Liðin sem leika
eru alls 6, það var Snæfell frá Stykkishólmi sem
bættist við og fyllti töluna. Önnur lið í deildinni eru
KR, ÍR, ÍS, Haukar og Njarðvík. - SÖE
SNÆFELLINGAR
í BREIÐABLIK
- töluverð félagaskipti
í körfubottanum
■ Töluverð félagaskipti hafa orðið í körfuboltan-
um fyrir keppnistímabilið í vetur. Er þar eftirtekt-
arvert, að fyrrum Stykkishólmsbúar, sem mikið er
af í körfuknattleiknum, enda Stykkishólmur mikili
körfuboltabær, tínast nokkuð saman í Breiðablik.
Þá er Benedikts Ingþórsson farinn úr (S heim í (R,
Jóhannes Magnússon farinn heim í Val úr Fram,
og Gísli Gíslason farinn að þjálfa Skagamenn.
Þessir hafa skipt:
Benedikt Ingþórsson .Í.S. Í.R.
KristjanaHrafnkelsdóttir . K.R. Snæfell
Bjartmar Bjarnason . Val U.B.K.
Kristín Magnúsdóttir. Í.R. f.S.
María Jóhannesdóttir U.M.F.G. U.M.F.N.
Þórarinn Sigurðsson . Þór Hauka
Gísli Gíslason .........Í.S. Í.A.
Helgi S. Sigurðsson .Val Hauka
Tryggvi Þorsteinsson ..Í.S. U.B.K.
Sigurður Hjörleifsson .Val U.B.K.
Lárus Þór Svanlaugsson ... Esju U.B.K.
Lárentsínus H. Ágústsson .. Val U.B.K.
Ólafur V. Hauksson . Tindastóli Fram
Jóhannes Magnússon. Fram Val
Stefán Friðleifsson . (.M.E. Þór
Ágúst Lárusson ......Val Í.R.
Halldór B. Hreinsson . Fram l.R.
Þröstur Helgason. Fram Í.R.
Guðbrandur Lárusson . Val Fram
Öruggt hjá
FH-stúlkunum
sigruðu KR 21-13 í gær
vann upp6
marka forskot
■ FH stúlkurnar unnu öruggan sigur
21-13 á KR í fyrstu deild kvenna í
handknattleik í gær, en þessi lið léku
fyrsta leik mótsins. FH liðið náði helm-
ingsforystu í fyrri hálfleik, og var því
aldrei aftur snúið hjá KR-liðinu.
Staðan í hálfleik var 12-6 FH í hag,
svo þótt KR tapaði síðari hálfleiknum
aðeins með tveggja marka mun varð
sigur FH stór. Mörkin skoruðu: FH:
Kristjana Aradóttir7, Katrín Danivalds-
dóttir 5, Kristín Pétursdóttir 5, Hildur
Harðardóttir 2, Margrét Theódórsdóttir
1 og Arndís Aradóttir 1. KR: Kristbjörg
Magnúsdóttir 5, Karólína Jónsdóttir 3,
Hjördís Sigurjónsdóttir 2, Valdís Hall-
grímsdóttir 2 og Valgerður Skúladóttir
1 -SÖE
■■■
og náði jafntefli við Stjörnuna
Islandsmótið íblaki:
VfKINGUR OG
FRAMUPP?
■ Þrátt fyrir að Stjörnumenn hefðu
náð 6 marka forskoti í fyrri hálfleik í leik
sínum við KR í gærkvöld í fyrstu deild
karla á íslandsmótinu í handknattleik,
tókst þeim ekki að innbyrða sigur.
Baráttuglaðir KR-ingar notfærðu sér vel
iiðsmuninn þegar á leið, því vegna grófs
varnarleiks voru Stjörnumenn jafnan
Þjóðverjar unnu
Austurríkis-
menn
■ Miklar hræringar hafa verið í skipun
deildanna á komandi íslandsmóti í blaki.
Nú eru dllar líkur á, að lið Víkings og lið
Fram taki sæti í fyrstu deild karla í vetur,
ásamt Þrótti, ÍS og HK, þeim liðum sem
fyrstu deildarliðin höfðu.
Forsaga málsins er sú, að síðastliðið
vor var lögð niður blakdeild Ungmenna-
sambands Eyjafjarðar, en það lið varð í
þriðja sæti í fyrstu deild á síðasta
keppnistímabili.af þeim fimm sem þar
leika fjórfalda umferð. Ástæðan var sú,
að sambandið fékk ekki úthlutað tímum
þeim sem það þurfti til blakiðkana á
Akureyri, en þar voru allir leikmenn-
irnir. Svipað kom upp á hjá fyrstu
deildarliði Bjarma úr Fnjóskadal. Liðið
varð að hætta við þátttöku vegna mann-
eklu. Lið Bjarma varð í fjórða sæti
síðastliðinn vetur, og hafði því rétt til
fyrstu deildar setu áfram. Tvö sæti urðu
því laus í fyrstu deild karla.
Þrjú lið koma til greina að fylla þessi
skörð. Víkingur, sem féll úr fyrstu deild
í fyrra, Fram, og Samhygð, en tvö
síðasttöldu félögin urðu í öðru til þriðja
sæti í annari deild í fyrra með jafnmörg
stig. Ákveðin var úrslitakeppni milli
liðanna, og skyldu Fram og Samhygð
leika um annað sætið í annari deild, og
sigurvegarinn leika við Víkirig um 1.
deildar sætið. Tapi Víkingur þeim leik
skal liðið leika gegn tapliðinu úr fyrri
leiknum, um síðara sætið í 1. deild.
í fyrrakvöld var leikinn fyrsti leikur-
inn, og sigruðu Framarar örugglega lið
Samhygðar 3-0,15-2,15-6 og 15-10. Leik-
ur Víkings og Fram verður á laugardag.
Fram er því öruggara en áður með fyrstu
deildar sætið, Víkingur gæti aftur á móti
þurft allt að tvo leiki til áð festa það, því
tapi Víkingur fyrir Fram, á Samhygð
enn möguleika.
-SÖE
■ Fyrsti leikurinn í fyrstu deild kvenna í vetur var í gær, FH vann KR 21-13. Síðar
í gærkvöldi léku svo Fram og Valur, en þeim leik var ekki lokið þegar blaðið fór í
prentun. - SÖE/Tímamynd: Róbert.
Uppi... niðri... uppi...niðri... uppi..
j SKALLAGRflWUR UPPI j
■ Þjóðverjar sigruðu Austurrikismenn í
landsleik í Evrópukeppni landsliða í knatt-
spymu í fyrrakvöld örugglega,3-0. Það vom
Karl Heinz Rummenigge og Rudi Völler (2)
sem skomðu mörkin. Möguleikar Austumk-
ismanna til að komast í úrslitin í Frakklandi
snarminnkuðu við tapið, en Þjóðverjar berj-
ast nú mest við N-íra um úrslitasætið.
I fyrrakvöld voru einnig tveir vináttu-
landsleikir í knattspyrnu í Evrópu.
Frakkar og Spánverjar skildu jafnir 1-1 í
Paris. Það var Dominique Rocheteau sem
skoraði fyrir Frakka, en Antonio Senor
jafnaði. Þá yann gerbreytt ítalskt landslið
Grikki 3-0 á Ítalíu. Rossi, Cabrini og Gior-
dano skomðu. Aðeins 5 leikmenn sem urðu
heimsmeistarar á Spáni léku í liði ítaia,
Rossi, Conti, Cabrini, Bergomi og Altobelli.
- SÖE
einum færri inná. Staðan í hálfleik var
9-7 Stjörnunni í hag, og 15-15 að leiks-
lokum. Ekki ósanngjörn úrslit, en báðir
aðilar voru þó óánægðir þegar upp var
staðið.
Það stefndi allt í algera kaffæringu
Vesturbæinganna í fyrri hálfleik framan
af, 5-0 og 8-2 á markatöflunni. En
KR-ingar náðu þessu í horf, 7-9 í
hálfleik, og náðu að jafna 13-13. Síðan
var jafnt á öllum tölum, en Stjarnan þó
ávallt með frumkvæðið.
í lokin gekk lítt að skora hjá báðum,
hart var tekið á í vörninni. Títt var að
menn væru reknir útaf á báða bóga. Eftir
að Guðmundur Albertsson jafnaði 13-
13, skoraði Gunnar þjálfari Stjörnunnar
14-13, og Jakob Jónsson jafnaði. Sigur-
jón Guðmundsson skoraði 15-14 úr
horninu, og fékk svo gullið tækifæri að
gera út um leikinn í lokin, en Gísli Felix
varði frá honum úr hraðaupphlaupi.
Jóhannes Stefánsson jafnaði svo af lín-
unni eftir fallega sendingu Jakobs, og
síðasta mínútan fór í slagsmálaþóf.
Gísli Felix var bestur KR-inga, varði
vel. Aðrir stóðu ekki upp úr á vellinum,
enda leikurinn lélegur. Mörkin: KR:
Jakob 5(2),Guðmundur 4, Jóhannes 3,
Haukur 2 og Björn 1 (1). Stjarnan:
Eyjólfur 6(3), Gunnar 3, Magnús 3,
Hannes 2 og Sigurjón 1. -SÖE
Úrvalsdeildin af stad í kvöld:
ÍR FER TIL
uuiaiuu ui uuuiu u»«.,u6.,.,u . .U..,, u uvuuu. JUU..UJI...,., - uu.ua _ _ — _ _ _
ig í kærumáli Selfyssinga gegn Bikarkeppnin sé einungis æfingamót H B pjr0*1 M flH H ■■ 1 Ær B wá HBK
úallagrími vegna en ekki opinber keppni. - SÖE jflwg j||l pL I ll WaBf I I I HHR
—-------------------- f\LrLHWII\UII
■ Skallagrímur úr Borgarnesi er
kominn upp í aðra deild að þvl er
næst verður komist þessa stundina.
DómstóU ÍSÍ dæmdi SkaUagrími í
hag í kærumáU Selfyssinga gegn
SkaUagrími vegna brúks félagsins á
leikmanninum Garðari Jónssyni. ÍSÍ
dæmdi á sömu forsendum í þessu
máli og í kærum Ármanns og Snæ-
fells á hendur SkaUagrími, - Litla ■
Bikarkeppnin sé einungis æfingamót 1
en ekki opinber keppni. - SÖE j
Stórmót iþróttafréttamanna á Selfossi á sunnudag:
Ómar mætir með stjörnurnar gegn kvennalandsliðinu
■ Á hraðmóti íþróttafréttamanna í
innanhússknattspyrnu á laugarduginn
á Selfossi verður valinn maður í hverju
rúmi. Þar mæta stórstjörnur nútíðar,
fortíðar og framtíðar. Landsleikja-
fjöldi leikmanna í mótinu væri hár, ef
hann væri lagður saman. Auk liðanna,
ÍA, Vals, KR, Víkings, Breiðabliks,
Fram, Selfoss og íþróttafréttamanna,
munu koma fram á sunnudagskvöldið
stjörnulið Ómars Ragnarssonar og
kvennalandsliðið, sem munu keppa að
lokinni undankeppni mótsins. Þá gæti
einnig sitthvað komið á óvart. Á
mótinu er keppt um Adidas-bikarinn.
Skipulag mótsins verður í stuttu
máli þannig, að hún er útsláttarkeppni,
þar sem liðið sem tapar leik er úr leik.
Fyrst keppa Fram og UBK, klukkan
19.30, strax eftir setningu mótsins, þá
Selfoss og KR, Valur og Víkingur og
Skagamenn og íþróttafréttamenn.
Eftir þessa undankeppni munu lið
Ómars Ragnarssonar og kvennalands-
liðið keppa, en að því loknu hefjast
undanúrslitin. Þá munu keppa annað-
hvort Fram eða Breiðablik gegn Sel-
foss eða KR, og Valur eða Víkingur
gegn ÍA eða íþróttafréttamönnum.
Sigurvegararnir mætast síðan í undan-
úrslitum.
í liðunum sem mæta til leiks, skipuð
á eftirfarandi hátt, verður margt stórra
nafna í knattspyrnuheiminum:
Breiðablik:
Vignir Baldursson fyrirliði
Sigurður Grétarsson
Sigurjón Kristjánsson
Trausti Ómarsson
Þorsteinn Geirsson
Þorsteinn Hilmarsson
Þjálfari.-Magnús Jónatansson
Liðsstjóri* Pétur Ómar Ágústsson
Fram:
Kristinn Jónsson
Guðmundur Torfason
Steinn Guðjónsson
Bragi Björnsson
Viðar Þorkelsson
Bryngeir Torfason
Sigurður Jónsson
Árni Sveinsson
Hörður Jóhannesson
Guðjón Þórðarson
Sigurður Halldórssen
KR:
OttóGuðmundsson
Sæbjörn Guðmundsson
Jósteinn Einarsson
Sverrir Herbertsson
Jón G. Bjarnason
Björn Rafnsson
Valur:
Hilmar Harðarson
Hilmar Sighvatsson
Valur Valsson
Ingi Björn Albertsson
Guðmundur Þorbjörnsson
Selfoss:
Þórarinn Ingólfsson
Einar Jónsson
Ingólfur Jónsson
Birgir Haraldsson
Gylfi Sigurjónsson
Jón Birgir Kristjánsson
íþrótta-
fréttamenn:
Hermann Gunnarsson
Ingólfur Hannesson
Friðþjófur Helgason
Samúel Örn Erlingsson
Víðir Sigurðsson
Skapti Hallgrímsson
Víkingur:
Aðalsteinn Aðalsteinsson
Jóhann Þorvarðarson
Ólafur Ólafsson
Heimir Karlsson
Andri Marteinsson
Einar Einarsson
Stjörnuliðið:
Ómar Ragnarsson, kafteinn
Jón Ragnarsson, silfurskalli
Magnús Ólafsson, stormsenter
Albert Guðmundsson, arkitekt liðsins.
Kvenna-
landsliðið:
Arna Steinsen KR -
Ásta B Gunnlaugsdóttir UBK
Erla Rafnsdóttir UBK
Magnea Magnúsdóttir UBK
Laufey Sigurðardóttir ÍA
Ragnheiður Víkingsdóttir Val.
Állir leikir í mótinu verða tvisvar
sinnum tíu mínútur. Það lið sem sigrar
í keppninni hlýtur að launum Adidas-
bikarinn, en ADIDAS umboðið gefur
öll verðlaun til mótsins. - SÖE
■ Úrvalsdeildin í körfuknattleik hefst
í kvöld. Þá mætast Keflvíkingar og
IR-ingar í Keflavík. Verður þar áreiðan-
lega um mikia hörku viðureign að ræða,
en bæði þessi lið komu eftirminnilega
við sögu í Islandsmótinu í fyrra, svo og í
Bikarkeppninni. Bæði lið hafa misst
mannskap. Auk útlendingabannsins
hafa Keflvíkingar misst burðarásinn
Axel Nikulásson, en ÍR-ingar hafa misst
Kristin Jörundsson og Kolbein Kristins-
son, sem nú eingöngu sinnir þjálfun, auk
Péturs Guðmundssonar sem kominn er
til Bandaríkjanna á ný. Úrvalsdeildar-
keppninni lýkur 11. mars, en síðan hefst
fjögurra liða úrslitakeppnin 12. mars.
fslandsmótið í körfuknattleik hófst í
gær, með leik ÍS og KR í kvennaflokki,
og greint er frá annars staðar hér á
síðunni. Á morgun hefst svo keppni í
flestum flokkum öðrum.
í íslandsmótinu taka þátt alls 117 Iið,
þar af 32 meistaraflokks lið, er það
talsverð fjölgun frá í fyrra, þá töku þátt
102 lið. í úrvalsdeildinni leika Haukar,
Keflavík, ÍR, KR, Njarðvík og Valur. í
fyrstu deild kvenna leika Haukar, ÍR,
ÍS, KR, Njarðvík og Snæfell, og er
Snæfell nýtt þátttökulið í deildinni. f
fyrstu deild karla leika sex lið, og er hún
því fullskipuð í fyrsta sinn í langan tíma.
Þar leika Fram, IS, Grindavík, Laugdæl-
ir, Skallagrímur og Þór Akureyri. í
annarri deild karla leika í a riðli Sindri
Hornafirði, S.E. Í.M.E. Egilsstöðum og
Hörður Patreksfirði. f b-riðli leika Esja,
Reynir, HK, Drangur og KFÍ, og í C
■ Óskar Nikulásson og félagar í Kefla-
vík taka á móti ÍR-ingum í kvöld í
„ljónagryfjúnni“ í Keflavtk. Myndin er
tekin í Reykjanesmótinu á dögunum.
Mynd: TóP.
riðli Léttir, Snæfell, ÍA, Tindastóll og
Breiðablik.
2. deildin á
fullu í kvöld
■ í kvöld eru þrír leikir í annari deild
karla í handknattleik, og hefjast allir
klukkan 20.00. Þór fær Fylki í heimsókn til
Vestmannaeyja, Grótta og Breiðablik
keppa á Seltjarnaniesi, og Reynir og HK
keppa í Sandgerði. - Þá eru tveir leikir í
þriðju deild, Aftureldingog Ármann keppa
í Mosfeilssveit og Þór Akureýri og Sclfoss
á Akureyri. Báðir leikir hefjast klukkan
20.00.
' - SÖE
i
■ Eysteinn Guðmundsson, dóm-
ari, dæmir leik Hammarby frá
Svíþjóð og Hakakoski frá Finn-
landi i Evrópukeppni bikarhafa í
knattspyrnu hinn 19. október
næstkomandi. Eysteinn mun fá þá
Sævar Sigurðsson og Kjartan
Olafsson dómara með sér sem
linuverði, en þeir eru tilnefndir af
KSÍ tii þess hlutverks.
—SÖE
V
Leeds tapaði
fyrir Chester
- á Ellan Road
,M Sfðustu leikimir í annari umferð deilda-
bikarkeppninnar cnsku, mjólkurbikarn-
um, voru i fyrrakvöld. Þar bar það tii
tíðinda, að Leeds United, sem nú hefur
verið miÓlungslið í annari deild um nokk-
urt skeið, en var áður eitt stórveldanna í
ensku knáttspyrnunni, steinlá á heimavelli
fyrir fjórðu deildarliðinu Chester. Og
Chester á heimalcikinn inni. Önnur helstu
úrsiit urðu þau að Ipswich rétt hafði
Blackbum 4-3 á Porlman Road, og Liver-
pooi sigraði Brentford 4-1 á Anfield Road.
Urslitin:
Liverpool-Urentford ........ 4-1
Ipswich-Blackbum............ 4-3
Derby-Bimúnghiun ......... 0-3
Leeds-Chester............... 0-1
Leicester-Chelsea .......... 0-2
Newcastle-Oxford.............. M
Stoke-Peterborough ......... 0-0
- SÖE