Tíminn - 07.10.1983, Blaðsíða 17
FOSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1983
17
umsjón: B.St. og K.L.
andlát
Hjörtlaug Aðalbjörg Jónsdóttir er látin.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Páll Sæmundsson, stórkaupmaður,
Mánastíg 6, Hafnarfirði, lést þriðjudag-
inn 4. október.
Símon G. Melsted, rafvirkjameistari,
Efstasundi 62, lést í Borgarspítalanum
þriðjudaginn 4. okt.
Reykjavíkur. Óþarfi er að taka fram, hversu
miklar upphæðir myndu sparast fyrir utan
erfið ferðalög og fjarvistir frá heimilunum.
Góðir Austfirðingar. Tökum nú höndum
saman og takið vel á móti konunum, þegar
þær leita til ykkar. Munið að margt smátt
gerir eitt stórt.
Kvennadeild Slysavarnafélags
íslands í Reykjavík er að hefja
vetrarstarfið og verður 1. fundur vetrarins
n.k. mánudag 10. október kl. 20 í húsi SVFl
á Grandagarði. Snyrtikynning, óvæntur
gestur, kaffi. Mætið vel. Konur eru beðnar
að muna hiutaveltuna sunnudaginn 9. októ-
ber kl. 14.
fundahöld
Kvenfélag Neskirkju heidur fund
mánudagskvöldið 10. október kl. 20.30 í
Safnaðarheimili kirkjunnar. Gestur fundar-
ins verður Sigríður Hannesdóttir sem ræðir
um væntanlegt námskeið á vegum félagsins.
tlmarit
tilkynningar
Geðhjálp
■ Félagsmiðstöð Geðhjáipar, Bárugötu 11,
Rvík. Opið hús laugardaga og sunnudaga kl.
14-18. Þetta „opna hús“ er ekki einskorðað
við félagsmenn Geðhjálpar heidur og aðra er
sinna vilja málefnum félagsins. Sími 25990.
Pennavinir
■ Norskur piltur, sem hefur mikinn áhuga
á að skrifast á við íslendinga og hefur áhuga
á bréfaskriftum, mynt- og frímerkjasöfnun,
leitar eftir pennavinum hér á landi. Það hefur
hann reyndar gert áður, en þá varð því miður
enginn til að skrifa honum. Vonandi tekst
betur til nú. Hann getur skrifað á ensku ef
óskað er. t ,
Naín hans og heimdisfang er:
Jan Rolf Karlsen
N-8174 Meloy
Norge
Bókasafn Kópavogs Fannborg 3-5 sími
41577 Opið mánudaga - föstudaga kl. 11-21
og laugardaga (1. okt. - 30. april) kl. 14-17.
Sögustundir fyrir 3-6 ára börn á föstudgöum
kl. 10-11 og 14-15.
sundstaðir
Reykjavík: Sundhöllin, Laugardalslaugin
og Sundlaug Vesturbæjar eru opnar frá kl.
7.20-20.30. (Sundhöllin þó lokuð á milli
kl.13-15.45). Laugardaga kl. 7.20-17.30.
Sunnudaga kl. 8-17.30. Kvennatimar i
Sundhöllinni á fimmtudagskvöldum kl.
21-22. Gufuböð i Vestubæjarlaug og Laugar-
dalslaug. Opnunartima skipt milli kvenna og
karla. Uppl. i Vesturbæjarlaug i síma 15004.
í Laugardalslaug í síma 34039.
Kópavogur: Sundlaugin er opin virka daga
kl. 7-9 og 14.30 til 20, á laugardögum kl. 8-19
og á sunnudögum kl. 9-13. Miðasölu lýkur
klst. fyrir lokun. Kvennatímar þriðjudaga og
miðvikudaga.
Hafnarfjörður: Sundhöllin er opin á virkum
dögum kl. 7-8.30 og kl. 17.15-19.15 á
laugardögum 9-16.15 og á sunnudögum kl.
9-12.
Varmárlaug í Mosfellssveit er opin mánud.
til föstud. kl. 7-8 og kl. 17-18.30. Kvennatími
á þriðjud. og fimmtud. kl. 19-21.30. Karlatím-
ar á miðvikud. kl. 19-21.30. Laugardaga opið
kl. 14-18, sunnudaga kl. 10-12.30. Sauna,
kvennatímar á þriðjud. og fimmtud. kl.
17-21.30, karlatimar miðvd. kl. 17-21.30 og
laugard. kl. 14.30-18. Almennir saunatimar i,
baðfötum sunnud. kl. 10.30-12.30.
Sundlaug Breiðholts er opin alla virka
daga frá kl. 7.20-9 og 17-20.30. Sunnudaga
kl.8-13.30.
áætlun akraborgar
Frá Akranesi
Kl. 8.30
kl. 11.30
kl. 14.30
kl. 17.30
Frá Reykjavík
Kl. 10.00
kl. 13.00
kl. 16.00
kl. 19.00
I apríl og október verða kvöldferðir á
sunnudögum. — I maí, júní og september
■ verða kvöldferðir á föstudögum og sunnu-
• dögum. - I júli og ágúst verða kvöldferðir
alla daga nema laugardaga. 1
Kvöldferðir eru frá Akranesi kl. 20.30 og frá
Reykjavík kl. 22.00.
Afgre.iðsla AkranesLsimi 2275. Skrifstof-
an Akranesi sími 1095. .
Afgreiðsla Reykjavík, sími 16050. Sitn-
svari í Rvík.sími 16420,
"■ v 9*s:
ÍMw.'-'■ w.'
Eiðfaxi 9. tbl. 1983, er kominn út. Að
þessu sinni er blaðið að stórum hluta helgað
Evrópumótinu í sumar, sem fram fór í
Nettersheim-Roderath, en þar stóðu íslend-
ingar sig mjög vel. Þá segir Árni Þórðarson
frá fundi um hrossaeign og hrossabúskap,
einkum með landnýtingu og markaðsmál í
huga, sem Búnaðarfélag Islands boðaði til
15. ágúst sl. Maja Loebell ritar grein um
mótahald. Sagt er frá ýmsum hestamótum,
sem farið hafa fram víðs vegar um landið í
sumar.
Ægir 9. tbl. 1983, er kominn út. Þar eru
m.a. birt erindi eftir þá Jónas Bjarnason og
Ólaf Jónsson, sem þeir héldu á ráðstefnu um
gæðamál í sjávarútvegi. Ólafur Karvel
Pálmason skrifar grein um eftirlit með þorsk-
veiðum á Islandsmiðum 1975-1983. Fjallað
er um brunann í Gunnjóni GK 506 og minnst
þeirra þriggja skipverja, sem þar fórust.
Björn Björnsson segir frá ráðstefnu um
þorskeldi og fiskeldismöguleika á jslandi.
Sagt er frá nýjum fiskiskipum, sem bæst hafa
í flotann. Fastir liðir eru á sínum stað, s.s.
töflur um útgerð og aflabrögð, heildarafia og
ísfisksölur. Forsíðumyndin er eftir Rafn
Hafnfjörð og er frá Vestmannaeyjahöfn.
Hitstjórar Ægis eru Þorsteinn Gíslason og
Jónas Blöndal.
BHM-blaðÍð málgagn Bandalags há-
skólamanna, 3. tbl. 7. árg., er komið út. Þar
er m.a. greint frá því, að BHM hafi verið
úthlutáð lóð í Suður-Selási. Gerð er grein
fyrir endurmenntun fyrir háskólamenn, sem
hefst nú í haust. Endurmenntunarstjóri er
Margrét S. Björnsdóttir. Birtur er gerðar-
dómur um dagpeninga BHM-manna. Rætt
er við Sigmund Stefánsson, nýráðinn fram-
kvæmdastjóra bandalagsins. Ásthildur Er-
lingsdóttir segir frá starfsmannafundi í Kaup-
mannahöfn og þingi í Osló. Endurprentuð er
grein úr Tímariti lögræðingafélagsins eftir
Jón Steinar Gunnlaugsson hrl., sem ber
heitið Verðbólga og lagareglur.
bókafréttir
Steini sterki og ET
■ Bókin „ET - geimdvergurinn góöi“ er
komin út hjá Setberg. Hún er gerð eftir
f lokksstarf i
samnefndri kvikmynd Steven Spielbergs,
sem sýnd var hér á landi við gífurlegar
vinsældir mánuðum saman.
Vissulega var ET jafngamall stjörnunum og
gáfaðri en jarðarbúar, en hann var hjálpar-
vana á jörðu niðri, fullur heimþrár og
dauðskelfdur. Flest var ET andsnúið, lög-
reglan á hælum hans og enginn til bjargar -
þangað til hann hitti börnin - og þessum
vinum sínum átti hann aldrei eftir að gleyma.
Og nú er „ET - geimdvergurinn góði"
kominn í bókaverslanir. Þýðandi er Oskar
Ingimarsson, en bókin er skreytt 50 stórum
litmyndum.
Komin er út sjötta bókin í teiknimynda-
flokknum um Steina sterka. Höfundur er
Peyo, en Hörður Haraldsson kennari íslensk-
aði.
Þessi nýja bók heitir Rauðu leigubílarnir
og er 64 blaðsíður í stóru broti. Útgefandi er
Setberg.
Gítarskóli Eyþórs endurútgefinn
■ Setberg hefur endurútgefið Gítarskólann
eftir Eyþór Þorláksson. í bókinni eru öl|
undirstöðuatriði gítarleiks, svo og ásláttar-
æfingar við ýmis létt lög. Einnig er í bókinni
svonefnd stofntónatafia, en með góðum
skilningi á henni geta nemendur svo lagt í að
æfa upp erfiðari verkefni. Með hjálp þessarar
kennslubókar á nemandinn að geta leikið
einföld grip með opnum strengjum, sem nota
má til undirleiks við söng eða annan hljóð-
færaleik, og þá einnig þvergrip í dúr og moll
með sjöundargripum, dimgripum og stækk-
uðum fimmundargripum.
Höfundur Gítarskólans, Eyþór Þorláks-
son, er einn af þekktustu gítarleikurum
landsins. Hann stundaði nám í kontrabassa-
leik við Tónlistarskólann í Reykjavík og
framhaldsnám við Royal ManchesterCollege
of Music. Lagði stund á hljómfræði og
kontrapunkt hjá Dr. Urbancic. Eyþór lagði
síðan leið sína til Spánar og stundaði þar
gítarnám í nokkur ár hjá þekktum kennur-
um.
Eyþór Þorláksson er nú starfandi gítar-
kennari við Tónmenntaskóla Reykjavíkur
og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
Hjalti Jónsson,
verkstjóri,
Karfavogi 21, Reykjavík,
andaöist í Landakotsspítala aöjtvöldi 5. október.
Fyrir hönd vandamanna:
Anna Magnúsdóttir
Óli Þór Hjaltason
Viðtalstímar
Borgarfulltrúar og varafulltrúar Framsóknarflokksins í Reykjavík
veröa til viðtals næstu laugardaga að Rauöarárstíg 18 kl. 10.30-12.
N.k. laugardag 8. okt. munu Auður Þórhallsdóttir og Kristján
Benediktsson veröa til viðtals,Auður á sæti í barnaverndarnefnd og
Kristján í Borgarráði og Útgerðarráði.
Þing Landssambands
Framsóknarkvenna
verður haldið á Hótel Húsavík síðustu helgina í október.
Þátttaka er heimiluð öllum framsóknarkonum. Beint flug verður til
Húsavíkur frá Reykjavík, ísafirði og Egilsstöðum. Þingið hefst
föstudagskvöld 28. okt. með setningu og samhristingi. Þingið stendur
fram á sunnudag 30. okt.
Barnagæsla verður á staðnum. Nánar auglýst síðar.
Stjórnin
Keflavík
Aðalfundur FUF í Keflavík verður haldinn laugardaginn 8. okt. í
Framsóknarhúsinu í Keflavík og hefst hann kl. 14.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Lagabreytingar
3. Önnur mál.
Stjórnin.
Skagfirðingar
Sauðárkróksbúar
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra verður
á almennum stjórnmálafundi í Framsóknarhúsinu
Suðurgötu 3 Sauðárkrókifimmtudaginn 13. okt.
kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélögin.
Félag framsóknarkvenna í Reykjavík
Laugardaginn 8. okt. kl. 14.30 verður rabbfundur að Rauðarárstíg 18.
Við ætlum að ræða vetrarstarfið og fjáröflun (basar)
Sigrún Magnúsdóttir formaður
Guðný Laxdal formaður basarnefndar.
Miðstjórnarfundur SUF
Miðstjórnarfundur SUF hefst n.k. laugardag kl. 14. Ferð frá BS( kl. 10
fyrir hádegi sama dag. Á laugardagskvöld er afmælishóf SUF, en
samtökin eiga 45 ára afmæli á þessu ári. Öllum ungum framsóknar-
mönnum er heimilt að sitja fundinn. Til þeirra sem vilja gista aðfaranótt
sunnudagsins: Nauðsynlegt er að þið komið með svefnpoka með
ykkur. Þar sem aðeins er fyrirhuguð ein sameiginleg máltíð (þ.e. á
laugardagskvöldið) eru fundarmenn beðnir um að koma með nesti.
Gist er í orlofshúsum skammt frá Bifröst og þar er öll aðstaða til
eldunar. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma 91 -24480 fyrir kl. 14.
n.k. fimmtudag.
SUF
Húnvetningar
Sameiginlegur haustfagnaður
framsóknarmanna verður
í Húnavatnssýslu
haldinn í Félagsheimilinu á
Hvammstanga föstudaginn 14.
okt. kl. 21.
Dagskrá:
Kaffiveitingar
Ávörp: Halldór Ásgrímsson og Arnþrúður Karlsdóttir, Jóhann Már
Jóhannsson syngur við undirleik Guðjóns Pálssonar.
Jóhannes Kristjánsson hermir eftir hinum og þessum en þó aðallega
þessum.
Hljómsveit Geirmundar leikur fyrir dansi.
Framsóknarfélag V.-Hún.
Framsóknarfélag A.-Hún.
FUF A-Hún og framsóknarfélag Blönduós.
Til London með SUF
Þann 2. nóvember efnir SUF til vikuferðar til London. Dvalið verður á
London Metopole Hotel í 7 nætur. Innifalið í verði: Flug frá Keflavík
til London og til baka aftur. Gisting á framangreindu hóteli ásamt
continental morgunverði. Akstur frá flugvelli að hóteli og til baka aftur
þann 9. nóvember. Verð: 11.980. Greiðsluskilmálar. Það er
ferðaskrifstofan Samvinnuferðir/Landsýn sem annast ferðina og eru
væntanlegir þátttakendur beðnir um að panta far sem fyrst. Síminn
hjá Samvinnuferðum/Landsýn í Reykjavik er 27077 og 28899.
Umboðsmenn eru líka víða utan Reykjavíkur. Þátttaka i ferðinni er
ekki bundin við þá sem eru flokksmenn og allir aldurshópar eru
hjartanlega velkomnnir.
SUF