Tíminn - 09.10.1983, Page 2
2,
SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1983
Átta flugfélög fengu yfir 4 í einkunn af 5 mögulegum,
í skoðanakönnun bandaríska blaðsins International Travel News
Air New Zealand á toppnum
Flugleiðir komu vel út og urðu í 13. sæti af 45 félögum
■ Eins og greint var frá í Tímanum fyrr
í þessari viku, þá komu Flugleiðir mjög
vel út úr skoðanakönnun bandaríska
blaðsins International Travel News um
þjónustu flugfélaga, en þessi könnun
stóð allt s.l. ár. Urðu Flugleiðir í 13. sæti
af 45 félögum og hlutu einkunnina 3.74
stig, en lélagið sem varð í efsta sæti var
Air New Zealand með 4.49 stig, en hæst
var gefið 5 stig.
Ég hef nú fengið í hendur eintak
blaðsins þar sem gerð er grein fyrir
þessum úrslitum, ásamt því að birtar eru
athugasemdir lesenda, sem margar
hverjar eru skemmtilegar og fróðlegar.
Ég hef valið af handahófi nokkur flugfé-
lög og umsagnir um þau og ætla að snara
efninu yfir á íslensku, lesendum til
fróðleiks og skemmtunar.
Fyrst tilgreini ég að sjálfsögðu sovéska
flugfélagið Aeroflot Soviet Airlines, sem
fékk allra lökustu útkomuna í þessari
skoðanakönnun, eða 1.23. Algengast
var að lesendur gæfu félaginu O. í einkunn,
cn þó gerðist það að félagið fékk 4 í
einkunn. Þeir sem standa að skoðana-
könnuninni skýra einkunnirnar svo: 5 er
frábært, 4 betra en í meðallagi, 3 í
meðallagi, 2 fyrir neðan meðallag, 1 -
afleitt, 0 - verra en afleitt.
Nokkrar athugasemdanna sem lesend-
ur létu fylgja eru svohljóðandi: „Matur
og drykkur fyrir neðan allar hellur,
enginn af starfsliðinu talaði ensku -
ælulykt út um alla flugvél - flugfreyjurn-
ar óvingjarnlegar - öryggisbeltin ónýt -
flugvélin var skítug, ég myndi aldrei
fljúga með félaginu á nýjan leik,“ og svo
mætti lengi telja. Ég verð að upplýsa það
hér að ég get tekið undir allt sem þarna
kemur fram, nema hvað það var engin
ælulykt í Aeroflotflugvélinni sem ég
flaug með til Moskvu í sumar. Matur og
þjónusta var fyrir neðan allar hellur og
málakunnátta nánast engin.
Air New Zealand
á toppnum
69 umsagnir bárust um Air New
Zealand og fær félagið þá frábæru út-
komu að vera með 4.49 í meðaleinkunn.
Algengasta einkunnin var 5, en lægst
fékk félagið 2 stig í einkunn. Nokkrar
athugasemdanna um félagið eru svo-
hljóðandi: „Eitt af uppáhaldsflugfélög-
unum mínum - maturinn var frábær -
starfsfólkið vingjarnlegt, kurteist,
hjálpsamt, elskulegt - mjög elskulegt
starfsfólk og mjög góð þjónusta. Drykkir
og kvikmyndasýningar farþegum að
kostnaðarlausu - of mikið af því góða
fyrir mig, ég tek Aeroflot framyfir - er
ánægður með þjónustuna, og gæði mál-
tíðanna voru vissulega fyrir ofan meðal-
lag - flugvélin var of full, en þjónustan
var góð - alltaf frábærir -
Það væri gaman að prófa eins og eitt
flug með Air New Zealand - ekki satt?
Önnur flugfélög sem komu mjög vel
út úr skoðanakönnuninni, voru Singa-
pore Airlines, en það hlaut 4.40 stig,
Swissair sem hlaut 4.35 stig, Varig
Brazilian Airlines hlaut 4.30 stig, Scan-
dinavia Airlines System hlaut 4.27 stig,
Thai Airways International hlaut 4.26
stig, Cathay Pacific Airways hlaut 4.13
stig og Japan Air Lines hlaut 4.01 stig.
Önnur flugfélög hlutu minna en 4 stig.
Flugleiðir Félagið fékk að meðaltali 3.74
stig. 31 unlsögn barst. algengast var að
gefið væri 3.4 stig og stigin dreifðust frá
2 og upp í 5. Ég læt hér til gamans
fljóta með umsagnir lesendanna um
Flugleiðri: „Áhöfn og þjónusta góð,
en flugvélarnar venjulega of seinar. -
Buðu upp á frábæra þjónustu. Tek þetta
flugfélag fram yfir öll önnur sem ég hef
flogið með. - Meðalgott að gæðum, við
völdum flugfélagið vegna hins frábæra
þriggja daga „stopover" á íslandi og
vegna áætlunarstaðarins Luxemburg,-
Frábært félag, og á mjög svo réttlátu
verði. Þjónusta og matur til fyrirmyndar.
- Flugvélarnar eru litlar, en starfsfólkið
leggur sig allt fram um að veita góða
þjónustu. - Mín eina kvörtun er tilkomin
vegna þess að of þröngt var um mann og
sköpuðust óþægindi þar af. Þetta er
alltaf sama vandamálið í DC - 8 vélun-
um, þær eru of litlar og rými fyrir fætur
er of lítið. Takmörkun á handfarangri
ekki skýrð nógu vel fyrir okkur, og á
leiðinni til baka voru reglumar um
takmörkun handfarangurs ekki þær
sömu og í fyrra fluginu. - Verðið er
heldur fyrir neðan meðallag. - Fullnægj-
andi - Elska Flugleiðir og „stopover“ í
Keflavík er hreint frábært."
Eins og sjá má fær félagið mjög
lofsamlega dóma, því svo til eina nei-
kvæða umsögnin er vegna þrengsla í
DC-8, og mega Flugleiðir og starfsfólk
félagsins því vel við una.
| Umsjón Agnes Bragadóttir
■ Þeir sem á annað borð höfðu yfir einhverju að kvarta yfir þjónustu Flugleiða, sögðu að DC-8 þotur félagsins væru þröngar og of litið rými væri ffyrir fætuma í farþegarýminu, en þeir tilgreindu
þá jafnframt að þessi ókostur einkenndi allar DC-8 þotur.
Bretar hafa aðra skoðun
Breska flugfélagið British Caledonian Airways fær titilinn ,,besta flugfélag heinss”
Þ:ið er nú kannski frekar til gamans að
ég greini hér um leiö frá breskri
skoðanakönnun um besta flugfélagið.
því mér hefur borist bréf frá British
Calcdonian Airways, þar sem segir að
félagið hafið verið útnefnt
..Flugfclag" ársins“
Það sem inér þykir skemmtilegt við
þetta er að í öðru sæti í skoðanakönnun
breska blaðsins Executive Travel Maga-
zine.er British Airways og í þriðja sætir
er Swissair. En Swissair var nijög ofar-
lega í bandarísku könnuninni sem skýrt
er frá hér á síðunni, með 4.35 stig, en
Britlsh Airways miklum mun neðar.
með 3.11 stig.
í fréttinni bresku segir að innanríkis-
ráðherra Breta, David Mitchell. hafi
afhent forráðamönnum féiagsins gulilík-
an af Concord í verðlaun fyrir þessa
útnefningu.
Þar sem bresk flugfélög eru í efstu
tveiinur sætunum í þessari bresku skoð-
an.ákönnun, þá hef ég tilhneigingu til
þess að álykta sem svo, að minna sé að
marka þessa bresku könnun en konnun
bandaríska blaðsins Internationai Travel
News, því ekki eitt einasta bandarískt
flugfélag er í átta efstu sætunum í þeirri
könnun. En kannski er þetta eintóm
tilviljun.
Filippseyjadagar
■ Filippseyjadagar standa nú yfir á
Hótel Loftleiðuin o ger þctta í fyrsta sinn
sem kynning fer fram á Filippseyjum á
Loftleiðum. Boðið er upp á filippeyska
þjóðarrétti úr fiski og kjöti, sem að
sjálfsögðu cru matreiddir af matsveini
frá Filippseyjum. Þar að auki sýnir
dansflokkur frá’Filippseyjum þarlenda
dansa og þjóðbúninga eyjaskeggja. Auk
þess verður sýning á munum frá
eyjunum og Ferðaskrifstófan Farandi
annast ferðakynningar, en ferðaskrif-
stofan skipuleggur einmitt ferðir til
Filippseyja.