Tíminn - 09.10.1983, Page 4

Tíminn - 09.10.1983, Page 4
4 'sÍJNNUDÁ'Gu'r 9. OKTÓBER 1983 ■ 19. september síðastliðinn varði Gísli Gunnarsson hagsögufræðingur doktorsrit- gerð við Háskólann í Lundi í Svíþjóð. Ritgerðin sem er á ensku ber heitið „Monopoly Trade and Economic Stagnation, Studies in The Foreign Trade of lceland 1602-1787“, eða Einokunarverslun og efnahagsleg stöðnun, athuganir á utanríkisverslun Islands 1602- 1787. Gísli Gunnarsson er fæddur í Reykjavík 1938, sonur hjónanna Gunnars Jóhannesson- ar og Málfríðar Gísladóttur. Hann lauk prófi frá Edinborgarháskóla 1961 og stundaði síð- an framhaldsskólakennslu í Reykjavík til 1972. Eftir það hefur hann stundað fram- haldsnám, háskólakennslu og rannsókna- störf. Hann er kvæntur Sigríði Sigurbjörns- dóttur skrifstofumanni hjá Reykjavíkurborg og eiga þau þrjár dætur. Við ræddum við Gísla á dögunum og báðum hann að segja okkur frá helstu niðurstöðum sínum í ritgerðinni, sem ekki er að efa að eiga eftir að vekja mikla athygli, enda þar í mörgu tilliti um brautryðjandarannsóknir að ræða. fer nokkuð stór hluti ritgerðarinnar í að gera þessum þáttum skil, þótt ekkert af þessu komi beinlínis verslunarsögu við. Þetta tók allt sinn tíma, því að jafn- hliða varð ég auðvitað að sinna mínu lifibrauði og sinna rannsóknum í tengsl- um við mína deild, hagsögudeildina í Lundi, á ýmsu sem ekki kemur íslenskri sögu við, enda voru rannsóknir mínar fjármagnaðar að hálfu leyti af sænskum styrk og að hálfu leyti íslenskum. Svo að allt í allt má segja að 8-9 ár hafi liðið frá því að ég hóf rannsóknirnar þar til ég varði doktorsritgerðina." Hjónaband, spurning um land eða kofa Geturðu sagt í örfáum orðum frá niðurstöðum þínum varðandi mann- fjöldasöguna. „Já, ég athugaði annars vegar gifting- artíðni og frjósemi og hlutfall kynjanna hins vegar. Varðandi giftingartíðnina þá komst ég að því að hún helst í hendur við efnahag þjóðarinnar og í heild þá voru mínar niðurstöðu þær að mun fleiri íslendingar lifðu ógiftir og ókvæntir en títt var annars staðar í Evrópu. Og eftir því sem ástandið á landinu var verra, þeim mun færri voru í hjónabandi. Óskilgetin börn voru að sama skapi hlutfallslega mörg. Ástæðan var ekki sú að ógift fólk væri svo „ósiðlátt" ef þannig má að orði kveða, heldur var það bara svo margt. Nei, þetta var ekki fyrst og fremst lagaatriði. Eftir að kom fram á 19. öld þá kom í lög bann við svokölluð- um öreigagiftingum. En á þessum tíma einfeldningslegum skýringum á þessu sviði eins og ég sagði áðan. Tengslin milli veðurfars og samfélags á þessum tíma eru áhrif veðurfars á landbúnað og fiskveiðar. Þessi tengsl eru síður en svo einföld. Veðurfræðingar, fiskifræðingar, landbúnaðarfræðingar eru enn þann dag í dag langt frá því að vera sammála um áhrif veðurfars á þær atvinnugreinar sem þeir eru að rannsaka, hvað þá ef verið er að rannsaka fortíðina. Ástæðan fyrir því að ég hef snúist gegn þessum þankagangi að álykta sem svo; veðurfarið var slæmt og þess vegna dóu svo og svo margir, en sú að þar með er búið að gera manninn að máttlausu fórnarlambi náttúruafl- anna. Ég tel mikilsverðara að athuga hversu vel eða illa samfélagið var búið undir áföll af völdum veðurfars. Sann- leikurinn var auðvitað sá að íslenska samfélagið var illa búið undir náttúr- uhamfarir vegna þess að það var fátækt. Þá er ekki hægt að segja að mannfellir hafi orðið af völdum harðæris, heldur var samfélagið ekki í stakk búið að mæta harðæri vegna fátæktar. Menn hafa stundum verið að gera líkön þar sem þeir sýna hafís fyrir Norðurlandi, sem síðan á að útskýra allt mögulegt. Hafís fyrir Norðurlandi gat haft mjög slæm áhrif á landbúnað víða á Norðurlandi, einkum og sér í lagi á útnesjum. Aftur á móti hafði hafís fyrir Norðurlandi mjög lítil áhrif á landbúnað á Suðurlandi og jafnvel í innsveitum norðanlands, til dæmis í Eyjafirði. Það má sýna fram á það með talsverðum rökum, sem margir bændur á Suðurlandi vita núna líklega mæta vel, að haustrigningar eru miklu stjórnun. í dag höfum við ríkisvald og kjósum stjórn þess lýðræðislega ef svo má orða það á ákveðnu millibili, síðan höfum við embættismenn til að fram- fylgja ákvörðunum ríkisvaldsins og við ímyndum okkur stundum að þannig hafi þetta alitaf verið. En málin voru ekki þannig. Það voru tvær grunneiningar í gamla íslenska samfélaginu að mínu mati, lögbýlið og fjölskyldan. Fjölskyld- an var neyslueining, framleiðslueining og endurframleiðslueining. Með endur- framleiðslu er átt við framleiðslu næstu kynslóðar. Fjölskyldunni tilheyrði vinnufólkið, allir urðu að eiga Iögheimili og tilheyra einhverri fjölskyldu og helst Iögbýli líka. Og allt var þetta bundið ákveðnum böndum og ekkert mátti riðlast. Fólk var hrætt við breytingar vegna þess að ef eitthvað í þessum vef brysti óttaðist fólk að samfélagið hryndi. Síðan kom yfirbygging samfélagsins, ofan á þennan grunn og þar koma hlutir eins og stjórnvöld til sögunnar. En meginatriðið er að samfélagið byggðist á þessu tvennu sem ég nefndi. Þetta var staðlað samfélag og verðlag var fast. Búalögin voru eins og vefur, ef einn þráðurinn var rofinn óttaðist fólk að allur vefurinn færi í sundur. Þess vegna var megináhersla lögð á að halda öllu óbreyttu. Þetta var samfélag þar sem fólk óttaðist um tilveru sína ef á því urðu breytingar. Þess vegna var líka umburð- arleysið algert ef vikið var frá þessum föstu grunneiningum og hver stétt átti að vera á sínum stað ef svo má segja. Það mátti enginn fara út af þeim stað sem honum var afmarkaður í samfélaginu. Einokunarverslunin hélt við úreltum samfélagsháttum á Islandi og festi Kaupmanna- höfn í sessi sem hafnarborg — rætl við dr. Gísla Gunnarsson, hagsögufræðing um nýja doktorsritgerð hans Stefndi ekki að doktorsgráðu „Ég var kennari í Reykjavík frá 1961 til 1972 og fór þá til Lundar í launuðu ársleyfi og hugsaði mér upphaflega að vera þar tvö ár alls. Ég ætlaði mér að auka menntun mína almennt, en ég stefndi þá alls ekki að því að ljúka doktorsgráðu. En eftir eitt og hálft ár þá var ég innritaður í doktorsnám í hagsögu við Lundarháskóla. Ég hafði alltaf haft mestan áhuga á hagsögu innan sagn- fræðinnar og hafði raunar lært hagfræði ásamt sagnfræðinni. Og hagsaga ereigin- lega þvervísindagrein hagfræði og sagn- fræði. En þetta var sem sagt aldrei ætlunin, þetta gerðist næstum því án þess að ég vissi af.“ Var ástæðan kannske sú að þú varst búinn að finna rannsóknarefni sem þú gast ekki slitið þig frá? „Já, einmitt, ég var búinn að finna rannsóknaverkefni og það var einokun- arverslunin. Þegar ég byrjaði að kynna mér þau mál þá vöknuðu með mér spurningar sem urðu æ áleitnari og mig langaði til að fá svör við. Það voru spurningar eins og þessar: Var Kaup- mannahöfn byggð að verulegu leyti fyrir íslenskt fé? Var ísland arðrænt af Dan- mörku? Hvaða áhrif hafði einokunar- verslunin á þjóðfélagsuppbygginguna á íslandi og hagkerfi þess? . Komstu þá að því að þessu efni hefði verið gerð minni skil af sagnfræðinj- n en ætlað hafði verið? Það er aðallega eitt atriði. Ég var í hagsögu en ekki hefðbundinni sagnfræði og þar eru notaðar ýmsar aðferðir seni ekki eru notaðar í sagnfræði almennt. Þar má til dæmis nefna vísitöluútreikn-, inga. Ég reiknaði t.d. mjög snemma á mínum rannsóknaferli út viðskiptakjör kaupmanna. Mér fannst að það þyrfti að gera hreina og klára hagfræðilega úttekt á þessu sögulega viðfangsefni. Það hefur margt verið skrifað um verslunarsögu, en mikið af því eru frásagnir. Frásagnir af framferði einstakra kaupmanna, sam- skiptum íslendinga við þá og þar fram eftir götunum. Hliðarsporin urðu mörg Hvað tók þig langan tíma að vinna að þessu? „Já, það er nú það. Fyrst verð ég að taka fram að hliðarsporin urðu ansi mörg. Rannsóknin leiddi mig í margar fræðilegar áttir. Fljótlega eftir að ég fór að velta þessu verkefni fyrir mér komst ég að þeirri niðurstöðu að ég gæti ekki rannsakað einokunarverslunina og áhrif hennar fyrr en ég væri búinn að gera mér sem best grein fyrir þessu gamla íslenska samfélagi og uppbyggingu þess og borið saman við gerð annarra fornra samfélaga áður en kapítalismi og markaðsbúskapur hélt innreið sína. í þessu efni leitaði ég mikið fanga til mannfræðinnar (social anthropology), sem mér finnst gefa meira þegar um er að ræða rannsóknir á þessum gömlu samfélögum en hagfræð- in. En hliðarsporin urðu sem sagt mörg og ég gaf út nokkur rit um ýmis efni1 samhliða rannsóknunum. Þar má nefna mannfjöldasögu, þar hef ég gefið út rit um giftingartíðni og frjósemi, og annað um ungbarnadauða og hlutfall kynjanna, ég hef rannsakað ' eðurfarssögu því að ég hef verið gagnrýninn á það sem ég hef kallað einfeldningslegar skýringar á sambandi árferðis og sögu. í því sam- bandi hef ég reynt að gera heildarfram- leiðsluúttekt á hlutum eins og aflamagni og heyfeng eftir árstíðum og eftir lands- hlutum. Ég athugaði uppbyggingu ís- Ienska samfélagsins, t.d. verðlagskerfi þess og skrifaði grein í Sögu um það efni 1980. Margt fleira mætti tína til og það sem ég fjalla um, þá er þetta fyrst og fremst spurning um aðgang að landi. Ef fólk hafði ekki aðgang að landi eða kofum á landareign annarra, þaðan sem það gat stundað fiskveiðar t.d., þá gat fólk ekki gifst. Þá varð það að vera í vist og vinnufólk gat ekki gengið í hjóna- band, nema það ætti vísan aðgang að jarðnæði eða kofa. Samfélagið gat tak- markað giftingar í gegnum leyfi til lands og kofa. Um kynjahlutfallið er það að segja að ég gerði á því athugun að mun fleiri konur en karlar voru á íslandi á þessum tíma. í sumum árgöngum voru konur allt að helmingi fleiri en karlarnir. Skýringar á þessu? Margir hafa viljað nefna hinar hættulegu og mannfreku fiskveiðar, en ég tel það ekki skýringu, heldur ungbarnadauðann. Ungbarn- adauði var meiri hér en í nokkru öðru evrópsku landi svo að vitað sé. Á árunum 1770 til 1800 var ungbarnadauð- inn 37.1% að meðaltali. Framan af 19. öldinni var hann oftast yfir 30%. Það er nú einu sinni þannig að það deyja fleiri karlar en konur og það gildir líka um ungbörn. Þegar svona mörg ungbörn deyja, þá þýðir það einfaldlega að kynja- hlutfallið ruglast mjög rækilega. Ég hef leitað skýringa lækna á þessu, en þar hafa engin svör á því hvers vegna sveinbörn deyja frekar en meybörn fengist. Það hefur einnig komið í ljós að fósturlát eru algengari ef um karlfóstur er að ræða og sama gildir um andvana fædd börn. Arferðið og fátæktin Veðurfarið og áhrif þess. Þú hefur komist að merkilegum niðurstöðum um þau efni? Ja, það er spurning hvað menn vilja kalla merkilegt. Ég vara sterklega við hættulegri fyrir landbúnað en köld vor. Ég efast um að nokkur sunnlenskur bóndi sé mér ósammála um þetta, þótt fræðimenn greini á um það. Hefurðu dæmi um það að slæmt árferði á ákveðnum tímabilum hafi haft mismunandi áhrif, eftir því hvernig landsmenn voru í stakk búnir til að mæta því? Taktu hungursneyðarárin 1756-58 og móðuharðindin 1783-85. Hvort tveggja fylgdi þetta hafís fyrir Norðurlandi, móðuharðindin áttu rót sína þar ekki síður en í eldgosunum. Berðu þetta svo saman við 19. öldina. Þá var sultur og harðæri, 19. öldin var líklega jafn köld og sú 18. En það varð engin stórkostleg hungursneyð á 19. öld. Hvers vegna dóu menn þá ekki á 19. öld eins og þeir gerðu á 18. öld? Jú, það var meiri samfélags- legur viðbúnaður. Lögbýlið og f jölskyldan; tvær grunneiningar Þú nefndir samfélagsuppbygginguna, sem þriðja „hliðarsporið" frá aðalverk- efninu? Já, þar kem ég inn á hluti eins og landareign og landskuld, en þar byggi ég ákaflega mikið á öðrum íslenskum hag- sögumanni, sem hefur gert því efni mjög góð skil, en það er Björn Lárusson, studierektor við hagsögudeildina við Lundarháskóla, en hann hefur starfað þar mjög lengi. Ég slapp þar að verulegu 'eyti við byrjunarrannsóknir, rit hans um þessi efni standa fyrir sínu. En það voru aðrir hlutir sem ég þurfti að taka fyrir frá byrjun, eins og verðlagskerfið, búalögin og eðli þeirra, mismunandi stéttir, staða hjáleigubænda og vinnu- fólks, í stuttu máli samfélagsbyggingin. Á hverju byggðist hin samfélagslega Þeir sem það gerðu urðu illa úti. Innan- ríkisverslunin t.d. mátti ekki byggjast á hagnaði heldur á skiptum á jöfnu. Frjáls verslun aldrei talin möguleg Ef við víkjum núna að meginkaflanum í ritgerðinni, einokunarversluninni. Hverjar eru meginniðurstöður þínar þar? Meginniðurstaðan er auðvitað sú að einokunarverslunin hafi hindrað veiga- miklar breytingar á íslenskri samfélags- gerð, þar á meðal í atvinnumálum, einkum sjávarútvegi, og að það hafi aðeins verið með auknu verslunarfrelsi sem efnahagslegar framfarir voru mögu- legar á íslandi. Einokunarverslunin hélt við lýði fornum og úreltum samfélags- háttum. Og það löngum í góðu samspili við íslendinga. Við skulum athuga þaö að þetta var ekki eitthvað sem Danir tróðu upp á íslendinga. Þeir voru sáttir við þetta fyrirkomulag, a.m.k. hinir leiðandi íslendingar, þar á ég við yfir- stéttina í landinu. Það er raunar satt sem sagt er að enginn sé bóndi nema hann barmi sér og íslendingar börmuðu sér oft. Þeir vildu betri viðskiptakjör og því um líkt. Hins vegar var innleiðing einok- unarverslunarinnar fyllilega rökréttur hlutur, vegna þess að frjáls verslun var aldrei talin möguleg á íslandi hér áður fyrr. Við skulum athuga það að lögfest- ing einokunarverslunarinnar 1602 var ekki svo róttæk breyting, því að fyrir þann tíma mátti enginn versla á íslandi nema með konungsleyfi og Hamborg- arnir, sem hér versluðu fyrir 1602 gerðu það með leyfi konungs. Það sem gerðist 1602 var einfaldlega það að þá sviptir konungur þá þessu leyfi og eftir það mega aðeins danskir þegnar versla við

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.